Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
Nýkonii
semfng
frá Vestur-
Þýskatandi
Pantanir
óskast
staðfestar
STRAX
(fl^naust h.f
SÍDUMULA 7—9 SÍMI 82722.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Yfir heimskautsbaug
á seglbretti
Áformuð ferð f ranskra ungmenna
Ung kona, 24 ára gömul,
ætlar norður yfir heim-
skautsbaug á seglbretti. Þann-
ig hljóðar fyrirsögnin í frönsku
blaði. Og þegar betur er að gáð
er þar verið að segja frá fyrir-
huguðu ferðalagi nokkurra
ungmenna í Normandí í
Frakklandi í sumar. Þau ætla
á seglskipinu „Pan-Dulck-VI“
til Islands, kringum landið,
ferðast eitthvað á bílaleigubíl-
um í landi og hápunktur ferðar-
innar á að verða áformað
ferðalag ungu stúlkunnar á
seglbrettinu frá Húsavík og
norður yfir heimskautsbaug.
Þetta afrek hefur ekki fyrr
verið unnið og verður „heims-
met“, að því er blaðið segir.
Þetta ferðalag hafa Frakkarnir
lengi verið að undirbúa og eru
búnir að selja svissneska sjón-
varpinu og einhveijum fleirum
kvikmyndina sem þau gera í
ferðinni til að hafa upp í kostn-
að. Og matvæla og aðstoðar
hafa þau aflað sér með ein-
hverskonar auglýsingum og
merkingum. Fólkið er í klúbbi
siglingafólks, sem nefnist Roc-
ka.ll Intemational og hefur
höfuðstöðvar í Rúðuborg, sem
víkingamir sigldu til upp eftir
Signu fyrir þúsund ámm.
Til ferðarinnar hafa Frakk-
amir leigt 22 metra langa
skútu sem að jafnaði siglir
undir 260 fermetra seglum.
Eigandinn er Eric Tabarly, sem
hefur aflað sér og skútunni
Pen-Duick-VI orðstírs, m.a. í
reisum kringum jörðina og með
góðum árangri í einmennings-
keppni Transat. Áhöfnin í ís-
landsferðinni samanstendur af
vönu siglingafólki og kvik-
myndatökufólki, að viðbættri
Sylviu Polli, ungu stúlkunni
sem er þjálfuð í þeirri íþrótt
að sigla á seglbretti og ætlar
að reyna að komast á því norð-
ur yfir heimskautsbaug.
Stjórnandi leiðangursins heitir
Patrick Besancon. Og hann
lætur hafa það eftir sér að
keppikeflið sé að vinna þetta
afrek fyrstir manna og slá með
því heimsmet.
Ferðin á að taka 8 vikur og
reiknað með að sigla 3.500 sjó-
mílna vegalengd. Þessvegna
kveðst Patrick Besancon hafa
valið svo gott fley. Hann segir
líka að þau hyggist í landi nota
þyrlu og jeppa til að auðvelda
kvikmyndatöku af leiðangrin-
um og ekki síst til að mynda
leiðangur ungu stúlkunnar á
seglbrettinu.
Leiðangurinn kallar áhöfnin
„íslande 1986“ og stjómandinn
lætur hafa eftir sér að með
þessum leiðangri komist þau í
snertingu við afkomendur vík-
inganna sem fóm til íslands,
en í Normandi séu einmitt
afkomendur þessara sömu vík-
ingaætta. Ferðin er áformuð í
juní- og júlímánuði.
Leiðangurinn er mjög dýr
og hyggjast ungmennin greiða
sjálf 35% af kostnaðinum, til
merkis um að þeim sé alvara
með að leiða hann til lykta á
hveiju sem gengur. En stór
hluti af áhöfninni er í viðskipta-
lífinu og segjast þeir afla
stuðnings við leiðangurinn í
Frakklandi og á Islandi út á
ýmiskonar auglýsingastarf-
semi í sambandi við ferðina og
kvikmyndina.
Þau höfðu hitt ungan Islend-
ing, Atla Vigfússon frá Laxa-
mýri sem starfaði í Normandí
og báðu hann um leiðbeiningar
og aðstoð eftir að þau koma
til Húsavíkur til að leggja upp
í siglinguna á seglbrettinu.
Frönsku ungmennin
ætla að sigla skútunni
Pen Duick til Islands
í sumar, fara kringum
landið og ferðast eitt-
hvað í landi.