Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
5
ýmislegt og einnig borguðu þau
hluta af árlegu sumarfríi fjolskyld-
unnar til útlanda.
„Fyrsta veturinn sem elstu
krakkamir okkar, Marta og Krist-
mundur, báru út vorum við hjónin
ákveðin í að fara þá um sumarið í
fyrstu utanlandsförina okkar — til
Englands. Krakkana langaði að
vonum með og báðu um það. Við
„Ekkert erfitt
að vakna en heldur
verra að rukka“
— segir Kristín Völundardóttir
höfðum ekki efni á að taka þau
með og sögðum eins og var. Stuttu
seinna spurðu þau hvort þau
kæmust með ef þau ættu sjálf fýrir
ferðinni, en þá höfðu þau reiknað
út að ef þau bæru blöðin út allan
veturinn gætu þau sjálf greitt far-
gjöldin fyrir sig og svo fór að við
tókum þau með að lokum," sagði
Hrafnhildur.
„Það er allt í lagi að vakna á
morgnana en heldur verra að
þurfa að rukka,“ sagði Kristín
Völundardóttir um blaðburð
Morgunblaðsins. Hún hefur borið
blaðið út síðan hún var 13 ára —
eða í 7 ár — alltaf með skólanum.
„Ég tók við af fjölskyldu á sínum
tíma sem flutti úr hverfinu en hafði
þá borið Moggann út í ein níu ár
samfleytt í Eyjabakka og Dverga-
bakka. Ég gæti alveg hugsað mér
að gefa blaðburðinn upp á bátinn,
en þetta hefur verið góður aukapen-
ingur svona með s':ólanum. Maður
er að reyna að standa á eigin fótum
íjárhagslega. Ég bý enn hjá
mömmu, en fjármagna eigin þarfír
sjálf svo sem bóka-,_ fatakaup og
annað sem til þarf. Ég vinn líka á
veitingastað um helgar með skólan-
um og hefur það svo sannarlega
yerið búbót líka.“
Kristín er þessa dagana í miðju
stúdentsprófí og sagðist ekta vita
hvað tæki við af því loknu. „Ég er
ekki búin að fá neina vinnu ennþá
— maður er svo bjartsýnn — vonar
bara að einhver góðviljaður hringi
og bjóði manni góða og vel launaða
viimu. Ég geri samt ráð fyrir að
halda áfram að bera út ef ég fer í
skóla næsta haust." Kristín sagðist
ekki vera nema u.þ.b. hálftíma með
blaðaskammtinn sinn á morgnana,
en hún er með stærsta hverfí í
borginni og þyrfti að fara á fætur
Kristin Völundardóttir.
kl. 6.00 á hveijum morgni. „Ég er
svona fljót af því að ég ber eingöngu
í blokkir, sem betur fer.“
Hún fagnaði Visa- og Eurocard-
þjónustu Morgunblaðsins og sagði
að eflaust létti það á mörgum blað-
burðarmanninum. „Ég man þegar
ég byijaði fyrst í þessu 13 ára
gömul. Fólk bar alls kyns afsökun-
um við þegar maður kom með
rukkunarseðlana. En, nú eftir því
sem ég sjálf eldist meira hættir það
þessum afsökunum og borgar á
réttum tíma,“ sagði Kristín.
Kristinn Guðnason hf.
Suðurlandsbraut 20 — sími86633.
Punkturinn
sýnir hinn frábæra söngleik
SÖHGLEIKURIHH
sunnudagskvöldið 11. maí nk. kl. 21
Einstakt tækifæri til að
sjá gott stykki
Borðhald hefst kl. 20.00
Hljómsveitin Sjöund leik-
ur fyrir dansi
Matseðill
Rækjupaté
Lamba-roast-steik
m/villikrydduðum
sveppum
ís m/jarðarberjum og
rjóma
Miðasala og borðapantanir í Broadway í dag kl. 2-5 og
svodaglega kl. 11-19
Sími77500