Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986 Visa og Eurokortaþjónusta Morgnnblaðsins Blaðberar sækja svarseðla um helgina Eins og komið hefur fram i Morgun- blaðinu hefur áskrifendum nú í fyrsta sinn verið gefinn kostur á því að greiða áskrift með greiðslukortum. Nú um helgina verða blaðberar Morgunblaðsins á ferðinni með rukkun fyrir april eins og verið hefur og um leið munu þeir sækja svarseðiana, sem sendir hafa verið öllum handhöfum Visa og Eurokort. Áskrifendur Morgunblaðsins eru vin- samlegast beðnir um að taka vel á móti blaðburðarf óikinu. Blaðamaður ræddi við þijá blaðbera, sem lengi hafa verið við störf hjá blaðinu og innti þá m.a. álits á hinu nýja fyrir- komuiagi. „Tímafrekt að rukka með gamla laginu“ — segir Sigríður Júlíusdóttir „Klukkan hringir ki. 4.30 hjá mér á hverjum morgni," sagði Sigrið- ur Júliusdóttir, blaðburðarkona Morgunblaðsins í smáíbúðahverfun- um. „Þetta kemst auðvitað upp í vana, ég hef borið út í tíu ár og er hátt í þijá tíma með skammtinn hveiju sinni.“ Sigríður sér um Breiðagerði, Háagerði og Espigerði og synir hennar tveir, Ásmundur 18 ára og Grétar 16 ára, bera út í sitt hvort hverfíð líka. „Ég er reyndar að flytja á árinu í Fossvog og vil ég gjaman halda áfram í blaðburðinum þar í hverfínu. Annars er Espigerðið draumahverfi fyrir blaðburðafólk Sigríður Júlíusdóttir. þar sem allt morar í blokkum og því fljótt yfirfarið. Það tekur heilmikinn tíma að mkka mánaðarlega inn fyrir blaðið, en ef allir fara nú að nota sér nýju Visa- og Eurocard-þjónustuna leys- ist heilmikill vandi fyrir okkur mkkarana. Ég persónulega myndi þó aldrei kæra mig um að nota þessi kort, fjármagnið hjá mér eykst alls ekki við það. Ég veit hvað ég þarf að borga á mánuði og fínnst mér kortin frekar skammgóður vermir heldur en nauðsyn." Sigríður sagði að því væri ekki að neita að blaðburður væri bind- andi, en það kæmi sér ekkert illa þar sem eiginmaður hennar ynni vaktavinnu og því lítill tími fyrir ferðalög. Einnig skúraði hún á leik- skóla og þyrfti að sinna því á hveiju kvöldi. „Eg tek mér sjaldan frí, en mig dauðlangar í frí í júlí í sumar. Ég tók hálfsmánaðar frí í fyrrasum- ar, en bara prentaraverkfallið árið þar á undan." Sigríður á 50 ára afmæli laugardaginn 10. maí og sagðist hún fastlega gera ráð fyrir útburðardegi þá jafnt sem aðra daga, en í sumarfríinu ætlaði hún að mála nýja húsið sitt í Fossvogin- um. Frá vinstri: Brynhildur, Guðmundur, Sigríður og Kristmundur. í baksýn má sjá Sigrúnu 2 ára, sem eí yngst þeirra systkina. „Ef við sendum pabba þá borga allir strax“ 3 Fjölskyldan á Stuðlaseli 5 í Breiðholti sér um að koma Morgun- blaðinu til áskrifenda í Stuðla- og Strandaseli, en þar á bæ er óhætt að segja að útburðurinn hafi gengið mann fram af manni sl. 15 ár. Fjölskyldan bjó lengi vei i Langholtshverfi og sá þar um blaðburð- inn, en flutti fyrir nokkrum árum í Seljahverfið. Systkinin eru sjö talsins. Tvö þau yngstu, Sigrún 2 ára og Björn Gísli 3 ára, verða þó að biða enn í nokkur ár þangað til þau geta hafið störf, en hin fimm hafa öli fengið sinn skammt af Morgunblaðsútburði. Elsta dóttirin, Marta, sem nú er 25 ára bóndakona austur í sveit, byijaði í blaðburðinum. Sfðan tók Kristmundur, sem nú er 22 ára, við starfínu og þar sem yfírferðin var nokkuð mikil fékk hann systur sínar tvær til liðs við sig í Breiðholtinu, þær Sigríði 18 ára og Brynhildi 17 ára. Síðan hefur Guðmundur 14 ára alfarið blaðburðinn á sinni könnu nú og segist vera u.þ.b. einn og hálfan tíma að bera út á morgnana. Þau systkin voru sammála um að greiðslukortaþjónustan yrði létt- ir fyrir blaðburðafólk, ekki síst yngstu blaðberana, þar sem fólk hikaði ekki við að bera við hinum og þessum afsökunum um peninga- leysi þegar rukkunarseðlamir bær- ust. „Við höfum þurft að fara í sama húsið allt upp í fjórum sinnum til að fá áskriftargjaldið greitt,“ sagði Kristmundur. Þau sögðu að besta ráðið væri að senda pabba ef fólk neitaði að borga — þáð mundi engin segja „komdu í næstil viku“ við fullorðna. Foreldramir, Gylfi Sigurðsson og Hrafnhildur Guðmundsdóttir, voru bæði í blaðburði þegar þau voru krakkar, Gylfi hjá Vísi og Hrafn- hildur hjá Þjóðviljanum. „Okkur hjónunum fínnst sjálfsagt að krakk- amir fái að vita hvað það sé .að vinna fyrir sér. Þau hafa gott af þessu. Við hlaupum stundum undif bagga með þeim í vitlausum veð- rum, en að öðru leyti sjá þau um þetta sjálf." Húr sagði að þau legðu fyrir af tekjunum til að kaupa sér Jes Einar Þorsteinsson arkitekt nýju sundlaugarmannvirkjanna horfir yfir nýju setlaugina. „Skúlptúrar“ i móttökunm. Morgunblaðifl/Ámi Sæbcrg Sundlaugarnar í Laugardal Ný bað- og búningsaðstaða opnuð á morgun Frítt í laugarnar í tilefni dagsins Á MORGUN, mánudag, verður formlega opnuð ný og glæsileg bað- og búningsaðstaða við sund- laugamar í Laugardai. Hús- næðið er samtals 3.085 m eða 11.510 m og hefur verið tæp fimm ár í smíðum. Heildarkostn- aður er orðinn 124.259.000 krón- ur á verðlagi 1. aprU sl. Það er byggt fyrir tilstuðlan íþróttaráðs og samkvæmt ákvörðun þess og borgarráðs. í tilefni af opnun þessa nýja áfanga verður borgar- búum boðið ókeypis í laugamar á morgun. Á jarðhæð hinnar nýju byggingar er rúmgóð móttaka með afgreiðslu, kaffístofu og snyrtiherbergjum. Listaverk prýða móttökuna, gerð af Gunnari Amasyni, Ólafi Sveini Gíslasyni og Helgu Júlíusdóttur, sem öll voru nemendur í mynd- höggvaradeild Myndlista- og hand- íðaskólans þegar bygging hússins hófst. Þar er einnig uppdráttur af sundlaugarsvæðinu og tafla sem sýnir hitastig á hveijum stað á svæðinu. Inn af móttökunni eru böð og búningsherbergi sem rúma 550 gesti. 36 sturtur eru fyrir konur og jafnmargar fyrir karla. Sér- búnings- og snyrtiaðstaða er fyrir fatlaða. Útgangur til laugar er um svokallaðan sundlaugarskála. Úr sundlaugarskála liggur hring- stigi upp á þakhæð þar sem eru útiskýli og sólbaðssvaíir. Sunnan við sundlaugarskálann er svo ný og glæsileg setlaug með vatns- nuddi. Til skrauts við setlaugina er notað fjörugijót af Álftanesi. Jafnframt nýbyggingarfram- kvæmdum hefur staðið jrfír hreins- un á sundlauginni og viðgerðir á áhorfendastúkunni og er áætlað að níu milljónum verði varið til við- gerða í ár. Samtals fara í nýbygg- inguna og viðgerðir rúmar 48 millj- ónir króna. Nýja húsið mun bæta mjög að- stöðu sundlaugargesta. Flestir hafa komið á einu ári 619.852 í Sund- laugamar í Laugardal en í fyrra voru gestir 514.157. Heildaraðsókn að sundlaugunum á árunum 1968—1985 er 9.104.989 manns. Arkitekt hins nýja húss er Jes Einar Þorsteinsson. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. sá um burðarþolshönnun, Rafhönnun hf. teiknaði raflagnir og Hönnun hf. aðrar lagnir. Umsjón og bygginga- stjóm var á vegum byggingadeildar borgarverkfræðings. Sigurður og Logi sf. hafa séð um lokafrágang hússins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.