Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
Norskir listamenn með samsýningu
í Norræna húsinu:
Eiga sér bakgrunn
í franskri list
WmmÞ.
í dag var opnuð í Norræna hús-
inu sýning „Dcvris“-hópsins, en
í honum eru fjórir norskir lista-
menn, Peter Esdaile, Ulf Valde
Jensen, Jörn Nilsen og Axel
Tostrup. Á sýningunni eru 40
olíumálverk, nokkur grafíkverk,
teikningar og skúlptúrar.
„Devris“-hópurinn kom fyrst
fram í Galleri F-15 í Noregi árið
1984 og fékk sýning þeirra mjög
góða dóma. Fjórmenningamir
þekkjast vel og eru allir af sömu
kjmslóð. Þeir uxu úr grasi í Noregi
A
ATVINNUREKSTRARTRYGGING
SJÓVÁ
ATVINNUREKSTRARTRYGGING SJÓVÁ ER NÝR
Helstu kostir eru þessir:
Nýir skilmálar sem veita aukna og betri vernd.
Nýjar vátryggingar sem svara kröfum nútíma atvinnurekstrar.^
Einföldun sem auðveldar vátryggðum að gera
sér grein fyrir vátryggingarverndinni og rétti sínum.
Einföldunin hefur í för með sér hagkvæmni sem skilar sér í hagstæðari iðgjöldum.
Með reglubundnu millibili munu starfsmenn Sjóvá aðstoða við endurskoðun
vátryggingarinnar, en það veitir öryggi og tryggir að vátryggingarverndin fylgir
þróun oq vexti fyrirtækisins. —
eftir síðustu heimsstyrjöld en eiga
sér sameiginlegt baksvið í franskri
list. Ekki er um neina sameiginlega
stefnuskrá hjá fjórmenningunum
að ræða, heldur fyrst og fremst
sýningarsamvinnu, þar sem einn
styður annan til að leita nýrra leiða,
bijóta múra. „Expressjóniskar"
rætur binda „Devris“-hópinn við
norræna listasöguhefð, jafnt í yrkis-
efninu sem afstöðu.
„Okkur þykir gaman að fá tæki-
færi til að koma til íslands og við
þekkjum talsvert til íslenskrar sögu
og könnumst við ýmsa íslenska
listamenn. Merkilegt er þó að við
höfum ekki kjmnst neinum íslensk-
um listamönnum í Noregi, heldur í
Frakklandi, þar sem við höfum allir
verið meira eða minna," sögðu þeir
Peter Esdaile, Ulf Valde Jensen og
Axel Tostrup. Jöm Nilsen kemur
ekki til landsins að þessu sinni.
„Devris“-hópurinn hyggst sýna
víðar og er ferðinni héðan heitið til
Finnlands þar sem sýnt verður í
Tampere.
Að sögn listamannanna hefur
frönsk list skipt þá talsvert miklu
máli, einkum Picasso og mynd-
höggvarinn Branqusi.
Skúlptúrar Axels Tostrups liggja
að mjmdefni og formi á landamær-
um náttúru og menningar. Verk
hans eru mótuð náttúra, með skýr-
um skynjanlegum gæðum.
Ulf Valde Jensen er þekktastur
sem grafíklistamaður og em verk
hans gróskumikil, stór málverk.
Peter Esdaile málar á stóra
mjmdfleti og tengir saman málverk
og skúlptúr.
Jöm Nilsen hefur sökkt sér niður
í athugun á því, hver kjami þess
sé, að vera listamaður.
Sýningin í Norræna húsinu verð-
ur opin daglega kl. 14 til 19 fram
til 19. maí.
Samtök um jafnrétti
milli landshluta:
Fundur með
þingmönnum
Vesturlands
Opinber fundur Samtaka um
jafnrétti milli landshluta verður
haldinn nk. mánudagskvöld, 5.
maí, kl. 20.30 á Hótel Borgamesi.
Á fundinum verða alþingismenn
Vesturlandskjördæmis.
Fulltrúar samtakanna munu þar
gera grein fyrir uppruna, sögu og
starfí samtakanna og skýra bar-
áttumál þeirra fyrir fundargestum.
Alþingismenn kjördæmisins munu
síðan gera grein fyrir sinni afstöðu
og svara fyrirspumum frummæl-
enda samtakanna.
Framsögumenn samtakanna
verða: Ámi Steinar Jóhannsson,
Akureyri, Guðjón Ingvi Stefánsson,
Borgamesi, Hólmfríður Bjamadótt-
ir, Hvammstanga, Pétur Valdimars-
son, Akureyri og Öm Bjömsson,
Gauksmýri. Fundarstjórar verða
Egill Heiðar Gíslason og Sigrún
Elíasdóttir, Borgamesi.
Fréttatilkynning
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!