Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
. . . . að fagmaðurinn velur AIWA,
AIWA eru einfaldfega topp-tæki.
Nú bjóðum við AIWA V-800 sam-
stæðuna á sérstöku tilboðsverði.
NÚ GETUR PÚ EIGNAST
AIWA
n i., i
í\aaiooær nr.
Ármúla 38 og Garðabæ. Símar 31133 og 651811
Um leið og við hefjum okkar annað starfsár sem framleið-
endur á eldspýtnabréfum, viljum við bjóða þér ýmsar
gerðir
eldspýtnastokka og eldspýtnabréfa
áprentuð í einum eða fleiri litum eftir þeim fyrirmyndum eða texta sem þú
óskar eftir, á hreint ótrúlega lágu verði. Stokkarnir og bréfin koma einungis
frá viðurkenndum aðilum sem hafa áralanga reynslu að baki.
Ath.: Við getum boðið til afgreiðslu strax eldspýtnabréf áprentuð í einum
lit að ósk kaupenda. Áprentaðir eldspýtnastokkar eða bréf eru tilvalin fyrir
alla þjónustuaðila sem vilja vekja eftirtekt.
Áprentaður eldspýtnastokkur gefur arð!
Teron sf., Grundarstíg 15, pósthólf 5027,
Reykjavík, símar 34499 og 33727
Heiðursfélaginn prófessor Thorstein Bertelsen yfirlæknir þakkar
Lofti Magnússyni yfirlækni.
Augnlækningafélag Islands:
Norskur lækn-
ir heiðursfélagi
í TILEFNI af 20 ára afmæli
Augnlæknafélags íslands á síð-
asta ári ákvað þáverandi stjórn
þess að gera að heiðursfélaga
norskan augnlækni, prófessor
Thorstein Bertelsen yfirlækni
augnlækningadeildar háskóla-
sjúkrahúss Haukeland-spítala í
Bergen. Er hann jafnframt fyrsti
erlendi heiðursfélagi Augn-
læknafélagsins. Af þessu tilefni
kom prof. Bertelsen hingað til
Reykjavíkur, en jafnframt flutti
hann fyrirlestra á vegum félags-
ins og fræðslunefndar Landa-
kotsspitalans.
Prófessor Thorstein Bertelsen er
einn kunnasti vísindamaður Norð-
manna í sérgrein sinni og augn-
lækningadeildin er hann veitir for-
stöðu mjög virt. Hann hefur veitt
ungum íslenskum læknum tækifæri
til sérmenntunar við deild sína í
Bergen. í ýmsum norrænum sam-
starfsnefndum augnlækna hefur
hann verið talsmaður þess að tekið
sé tillit til framhaldsmenntunar -
þarfa íslenskra lækna. Dr. Bertel-
sen er frá Harsted í N-Noregi þar
sem staðhættir eru ekki ósvipaðir
því sem gerist hérlendis. Hingað
hefur hann komið áður.
Ákvörðunin um að gera prófessor
Thorvald Bertelsen að heiðursfé-
laga Augnlæknafélags íslands var
tekið er Emil Als læknir var stjóm-
arformaður. Það kom í hlut núver-
andi formanns, Lofts Magnússonar
yfirlæknis á Akureyri, að afhenda
prófessor Bertelsen heiðursfélaga-
skjalið. Myndin hér að ofan var
tekin við það tækifæri. Heiðurs-
félaginn heldur á skjalinu og þakkar
Lofti Magnússyni þann heiður sem
Augnlæknafélagið hafi sýnt sér, að
gera sig að fyrsta erlenda heiðurs-
félaga sínum. íslenskir augnlæknar
gleðjast yfir því að hann varð við
óskum félagsins og eru stoltir yfir
að eiga prófessor Bertelsen í sínum
röðum. Athöfnin var tákn þess góða
samstarfs sem einkennir samskipti
þessara bræðraþjóða. Hún fór fram
á Landakotsspítala.
(Fréttatilkynning.)
1YJJUSTU
\ [■/K K IM (i'- KIC Y H S L A - OIW í.iX j I
.YI'JAÍ'YKIKTÆKIÐ
Njarðvíkur-
söfnuðir
heimsækja
Hafnfirðinga
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi tilkynning:
Sunnudaginn 4. maí er von á
góðri heimsókn til Hafnarfjarðar-
kirkju.
Þá mun safnaðarfólk úr Njarð-
víkursóknum taka þátt í guðsþjón-
ustu kl. 14.00. Séra Þorvaldur Karl
Helgason sóknarprestur þeirra mun
þá prédika og annast altarisþjón-
ustu ásamt sóknarpresti Hafnar-
fjarðarkirkju og kirkjukórar Njarð-
víkursókna leiða söng undir stjóm
organista þeirra, Gróu Hreinsdótt-
ur. Að guðsþjónustu lokinni býður
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju
kirkjugestum í kirkjukaffi í Fjarð-
arseli, íþróttahúsinu við Strand-
götu. Á liðnu hausti var farið í
safnaðarferð á vegum Hafnarfjarð-
arkirkju til Njarðvíkur og verið við
guðsþjónustu þar. Er sú ferð þátt-
takendum enn mjög minnisstæð.
Samskipti af þessu tagi milli safn-
aða eru þýðingarmikil. Þau stuðla
að samstöðu, kynnum og vináttu.
Fyrr þennan morgun verður farið
f skemmtiferð með sunnudaga-
skólaböm frá Hafnarfjarðarkirkju
kl. 10.30 og er það lokaþáttur
sunnudagaskólastarfs kirkjunnar á
þessu misseri.
Séra Gunnþór Ingason