Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
FRÉTTASKÝRIIMG / Ómar Valdimarsson
Átökin í Mið-Austurlöndum færast heim í túngarðinn:
Evrópa verður af tug-
um milljarða í tekjur
— allt að tvær milljónir Bandaríkja-
manna hætta við Evrópuferðir í sumar
af ótta við hryðjuverk
„Flugellir New York eru land tækifæranna fyrir hryðjuverkamenn,"
sagði blaðið New York Post með þessari mynd, sem tekin er á La
Guardia-flugvelli af dyrum að eldsneytisgeymslusvæði vallarins.
jóðir Evrópu munu verða
af tugmilljarða tekjum í
ár og sumar þeirra eru
þegar famar að fmna fyrir tapinu.
Ekki er ólíklegt að fjöldi fyrirtækja
í ferðamannaiðnaði i Evrópu fari á
hausinn í framhaldi af þessu. Af
um 27 milljónum Bandaríkjamanna,
sem fóru út fyrir landsteina sína á
síðasta ári, kom tæplega fjórðungur
til Evrópu. Hver þeirra eyddi um
1.000 dollurum í ferðinni, eða sem
svarar rúmlega 40 þúsundum ís-
ienskra króna. I fyrra eyddu banda-
riskir ferðamenn í Evrópu því um
6,5 miiljörðum dala eða um 260
milijörðum ísienskra króna. Ef
bandarískum ferðamönnum til Evr-
ópu fækkar um 30% í ár — og það
er áreiðanlega ekki of hátt áætlað
— mun Evrópa verða af að minnsta
kosti 86 milljörðum í tekjur. Enn
alvarlegra er áfallið í ýmsum Mið-
Austurlanda, svo sem ísrael og
Egyptalandi. Egyptar hafa um
langt skeið verið afar háðir ferða-
mönnum — einkum Bandaríkja-
mönnum — en nú sjá þarlend yfir-
völd fram á hrun í þeirri grein.
Talið er að bandarískir ferðamenn
í Egyptalandi verði allt að 80%
færri í ár en þeir voru í fyrra. Það
munar um minna. Ástæðan er
aðallega ein: Bandaríkjamenn eru
hræddir við hryðjuverk herskárra
araba, sem virðast ætla að færast
mjög í aukana eftir loftárásir
Bandaríkjamanna á menn og mann-
virki í Líbýu fyrir skömmu. Þá
skiptir og lækkun dollarans máli í
þessu sambandi, en hefur engin
úrslitaáhrif, að sögn kunnugra, sem
blaðamaður Morgunblaðsins ræddi
við í New York fyrir skömmu.
I fjölmiðlum vestra er látlaust —
og nánast alveg gagnrýnislaust —
fjallað um loftárás Bandaríkjahers
á Líbýu um miðjan apríl og ýmsar
hugsanlegar og óhugsanlegar af-
leiðingar árásarinnar. Stöðugt er
hamrað á hryðjuverkum í Evrópu
og þeirri hættu, sem sögð er sam-
fara ferðalögum Ameríkana þar.
Allan sólarhringinn flytja blöð, út-
varps- og sjónvarpsstöðvar fréttir
af samdrætti í ferðalögum heima-
manna til Evrópu. Með þessum
fréttum eru sýndar myndir af nýjum
eða gömlum hryðjuverkum í Evrópu
eða af æstum borgurum í Líbýu,
sem heimta hefnd fyrir loftárásirn-
ar; fréttamenn amerísku sjónvarps-
stöðvanna tala frá Trípólí og gera
mikið úr að verið sé að reka þá og
fréttamenn frá Evrópubandalags-
löndunum heim, rifjaðar eru upp
árásirnar á flugvellina í Vín og Róm
um jólin eða sprengingin um borð
í TWA-þotunni frá Aþenu og sífellt
vitnað til ferðaskrifstofa og flug-
félaga, sem varla hafa við að skrá
afpantanir Evrópuferða.
Gífurleg áhrif áefna-
hagslífið . . .
„Allt þetta hlýtur að hafa áhrif
á fólk, sem kann að vera að hugsa
til Evrópuferða,“ sagði Donald
McSullivan, forstöðumaður Evr-
ópska ferðamálaráðsins (European
Travel Commission) í New York, í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins. „Eftir því sem sunnar
dregur í álfunni, til dæmis í Grikk-
landi og á ítah'u, hefur þetta meiri
áhrif. Eg ímynda mér að íslending-
ar sleppi nokkuð vel því þið eigið
engan þátt í þeim átökum, sem eiga
sér stað í Mið-Austurlöndum. Það
er hinsvegar alveg ljóst, að þessir
atburðir munu hafa gífurleg áhrif
á efnahagslíf í Miðjarðarhafslönd-
unum. Við getum aðeins vonað að
ástandið lagist á næstu vikum, að
það dragi úr hryðjuverkunum. Þá
gæti ferðamönnum til Evrópu aftur
farið að fjölga.“ Fréttir síðustu daga
benda ekki til að McSullivan verði
að ósk sinni — dáglega heyrist af
nýjum morðum og morðtilraunum
í hefndarskyni fyrir loftárásimar á
Líbýu.
Starfsmaður ítalska ferðamála-
ráðsins í New York, Colombo að
nafni, kvaðst gera sér vonir um að
ferðamannastraumurinn til heima-
lands síns tæki að aukast aftur með
haustinu. „Eg hef að vísu ekki
ákveðnar tölur um samdráttinn yfir
Atlantshafíð en mér sýnist að hann
sé frá 25 og upp í 50% eftir flug-
félögum og svæðum," sagði hann.
„Það segir sig sjálft, að þetta er
mjög alvarlegt fyrir efnahagslíf
okkar — á síðasta ári heimsóttu
nærri tvær milljónir Bandaríkja-
manna Ítalíu og skildu eftir sig um
milljarð dollara. Það er hátt í 10%
af þeim tekjum, sem við höfum af
ferðamönnum á hvetju ári og auð-
vitað miklu meira fyrir þær borgir,
sem vinsælastar eru, Flórens og
Róm.“
20-30% samdráttur
Talsmönnum fyrirtækja í ferða-
mannaþjónustu ber ekki saman um
hversu mikill samdrátturinn í ferð-
um yfír Atlantshaf verður í sumar.
Almennt er talið að hann verði á
milli 20 og 30%. Bill Connors hjá
Flugleiðum í New York kvaðst telja
að hann yrði eitthvað lægri eða um
15%. „Þá er verið að tala um 15%
á alla línuna," sagði hann, „sam-
drátt frá fyrra ári, sem var metár.“
Connors sagði augljóst hvað hefði
þessi áhrif: það væru hryðjuverkin
og fréttaflutningur af þeim. „Við
hjá Flugleiðum förum að vísu betur
út úr þessu en mörg önnur flugfélög
— ætli samdrátturinn hjá okkur sé
ekki á bilinu 7-9%. Það var heldur
dræmt í janúar og febrúar en þegar
við fórum að auglýsa í mars tóku
bókanir svo mikinn kipp, að við
þurftum að bæta við tíu starfs-
mönnum í farpantanir. En um leið
og einhvers staðar springur dregur
mjög úr fyrirspumum og bókun-
um.“
Bill Connors kvaðst telja þetta
eðlileg viðbrögð miðað við þann lát-
lausa fréttaflutning, sem væri í
gangi í Bandaríkjunum. „Það hlýtur
að hafa áhrif," sagði hann, .jafnvel
á fólk, sem annars hefði ekki haft
af þessu neinar áhyggjur. Og ég
er sannfærður um, að ef hryðju-
verkaaldan í Evrópu heldur áfram,
þá magnast fréttaflutningurinn og
samdrátturinn verður enn meiri.
Það veltur því mikið á þróuninni í
Evrópu á næstu vikum.“
Fórnarlömb umferðarslysa
og morðingja
En hversu raunveruleg og alvar-
leg er hættan fyrir bandaríska
ferðamenn í Evrópu? Mega þeir allir
eiga von á að verða sprengdir í loft
upp í hefndarskyni fyrir stefnu
stjórnar þeirra í málefnum Mið-
Austurlanda? „Hættan er verulega
miklu minni en af er látið,“ svaraði
Jay Hartmann, talsmaður samtaka
ferðabiaðamanna, American Assoc-
iation of Travel Editors. „Á síðasta
ári létust einhveijir tugir Banda-
ríkjamanna í hryðjuverkaárásum í
Evrópu en hér heima fórust 43
þúsund manns í umferðarslysum á
þjóðvegum og árlega eru um 1.300
manns myrtir í New York-borg
einni," sagði hann. „En fólk er
hrætt vegna fréttanna og þessa
látlausa áróðurs. Á fúndi, sem við
áttum nýlega með forystumönnum
í ferðamannaþjónustu, kom greini-
lega fram að margir þeirra eru
bjartsýnir varðandi framtíðina —
þeir telja að fólk sé fljótt að gleyma
og að á allra næstu vikum muni
farjiantanir til Evrópu taka ræki-
lega við sér á ný. En það gerist að
sjálfsögðu ekki nema dragi úr
hryðjuverkum í Evrópu. Ferðaskrif-
stofumenn eru margir mjög tregir
til að mæla með Evrópuferðum sem
Kanada er fyrirheitna landið í
ár, einkum heimssýningin, Expo
’86, í Vancouver. Sýningarsvæðið
er fremst á myndinni. Gert er
ráð fyrir að 8—10 milljón manns
sæki sýninguna og að Banda-
rikjamenn fari í auknum mæli
til Kanada i stað Evrópu.
stendur og sumir vara fólk eindreg-
ið við slíkum ferðum. Það hefur í
för með sér að stórir hópar hætta
við ferðir sínar — skólafélög,
íþróttafélög, átthagafélög og fleiri
og fleiri. En við hveiju er svo sem
að búast þegar æðsti yfírmaður
ferðamála í Bandaríkjunum, frú
Tuttle hjá U.S. Travel Service í
Washington, lýsir því yfír opinber-
lega að hún sé hætt við að fara á
ferðamálafund í Vín vegna ótta við
hryðjuverk?“ sagði Hartmann.
Cannes „strandbær
gegnt Líbýu“
Frú Tuttle er ekki eini bandaríski
frammámaðurinn, sem hikar við
Evrópuferðir. Stjórnvöld hafa bein-
línis varað fólk við ferðalögum í þá
átt og margir hafa tekið þá áskorun
bókstaflega. Þeirra á meðal eru
kvikmyndagerðarmennirnir Steven
Spielberg og Martin Scorsese, sem
hafa ákveðið að fara ekki á kvik-
myndahátíðina í Cannes í Frakk-
landi 8.-10. maí. Kunnir bandarískir
leikarar hafa sömuleiðis hætt við
að fara, þeirra á meðal nýbakaður
Óskarsverðlaunahafi, Whoopi Gold-
berg, Barbara Hershey og Sylvester
Stallone. Stórfyrirtæki í kvik-
myndagerð vestra, svo sem Warner
Brothers og United Artists, hafa
ákveðið að senda enga fulltrúa til
Cannes. Stór dreifingarfyrirtæki
hafa sömuleiðis hætt við þátttöku,
að því er fram kom í New York
Times fyrir síðustu helgi. Einn
dreifíngarstjóri sagðist þó ætla að
fara með sitt fólk jafnvel þótt
Cannes væri „strandbær gegnt
Líbýu", eins og hann orðaði það.
Þetta kunna ekki allir Suður-
Evrópumenn að meta. AP-frétta-
stofan hafði nýlega eftir Lenny
Spangberg, ferðaskrifstofueiganda
í Nissa í Frakklandi (sem er næsti
bær við Cannes) að af bandarískum
fjölmiðlum væri helst að skilja að
Beirút væri í úthverfi Nissa og Trí-
pólí við borgarhlið Monte Carlo.
En hvað sem því líður eru það
einmitt löndin við Miðjarðarhaf,
sem fínna sárast fyrir hryðjuverka-
hræðslu bandarískra ferðamanna.
„Útgerðir skemmtiferðaskipanna á
Miðjarðarhafínu, sem hafa verið
með allt að 50% ameríska farþega,
eru nánast í panik,“ sagði Jay
Hartmann hjá Ámerican Associat-
ion of Travel Editors í samtalinu
við blaðamann Morgunblaðsins í
New York. „Þeir fella niður ferðir,
hætta ’að koma við í ákveðnum
höfnum og sjá fram á að það verði
ekki nema 20-30% farþeganna
Bandaríkjamenn í sumar. Aftur á
móti er mikil ásókn í skemmtisigl-
ingar á Karíbahafi og sum skip
hafa verið færð þangað úr Miðjarð-
arhafinu."
Hrun í Egyptalandi
Egyptaland hefur lengi verið
fastur viðkomustaður skemmti-
ferðaskipa á Miðjarðarhafssigling-
um. Það verður varla í sumar og
talsmaður Egypt Air í New York
viðurkenndi að flugfarþegum félags
síns frá Bandaríkjunum til Kaíró
hefði þegar fækkað feiknarlega.
„Ætli bókanir séu ekki allt að 80%
færri en þær eru yfírleitt á þessum
árstíma," sagði hann. „Við Egyptar
erum mjög háðir tekjum af ferða-
mannaþjónustu svo þessi þróun
mun hafa mjög alvarlegar afleiðing-
ar fyrir okkur. En ég skil svo sem
Bandaríkjamennina, sem ekki þora
að fara til Mið-Austurlanda, því hér
er almennt litið svo á að séu Banda-
ríkjamenn á ferð þar hljóti þeir að
vera að taka þátt í samsæri um
stórfelld hryðjuverk."