Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 36

Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 36
36 *s__ MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986 „Ég held að við höfum líka verið fyrsta féiagið til þess að ná fram mati á húsmóðurstörfum, en við fengum það starf metið til fjögurra ára starfsreynslu. Að vísu þykir konum sem hafa starf- að í 30 ár við húsmóðurstörf matið heldur rýrt, en þetta er þó altént skref,“ segir kempan Aðal- heiður Bjamfreðsdóttir, formaður Sóknar, í viðtali 1. maí. Vísar þar til þess hvemig láglauna Sóknar- konur hafa oft látið í raun bijóta á sér ýmis réttindamál. Enginn efast um að þetta sé eitt af stórum réttindamálum kvenna, að komi til góða margvísleg reynsla þeirra sem staðið hafa fyrir stórum heimilum og ganga svo í viðlíka störf úti á vinnumarkaðinum. í nýlegri þingsályktunartillögu vilja kvennalistakonur láta fjármála- ráðherra sjá til þess að í kjarasam- ingum við ríkisstarfsmenn verði ólaunuð heimilisstörf í aðalstarfi metin sem starfsreynsla til aldurs- flokkahækkunar. Enda eru þetta í greinargerð taiin heimilis- og umönnunarstörf og getið þar þátta eins og frumkvæðis, sjálf- stæðis, ábyrgðar og meðferðar flármuna sem séu þættir í launuð- um störfum sem einna hæst eru metnir til launa á vinnumarkaði. Eflaust geta allir verið sammála um að kona, sem hefur í Qölda ára eða áratugi rekið stórt heimili með mörgum bömum og kannski öldruðum eða sjúklingum á heim- ilinu, hafi býsna dijúga reynslu, sem að gagni megi verða. Slík kona er hreinasti fjölfræðingur. En ætli sé ekki heilmikið til í því hjá þeim vísa Marlowe að heiður er keyptur með þeim dáð- um sem við framkvæmum , ekki bara því sem við segjum og samþykkjum. Ekki sé hægt að vinna sér heiður fyrr en dáðin er drýgð. Verkin tali. Ummæli verkakonu í útvarpsþætti að kvöldi 1. maí um nauðsyn á endur- mati á störfum kvenna: „því störf kvenna hafa aldrei verið metin rétt“ urðu tilefni til að líta i kring um sig. Hvemig skyldi því nú í raun vera tekið í samfélaginu ef kona, sem raunverulega hefur rekið stórt heimili um árabil, vill vera gjaldgeng á vinnumarkaði? Skyldi reynsla hennar í raun vera metin? Sá sem búinn er að hlusta á þúsund góðar ræður með fróm- um óskum um hvemig eigi að leiðrétta óréttlæti, verður nefni- lega stundum svo andstyggilega tortrygginn. Við blasir splunkunýtt dæmi. Gæti vart verið glöggara. Margrét S. Einarsdóttir, sjúkraliði og hús- móðir á stóm heimili að aðalstarfí í tvo áratugi, sækir um forstöðu- starf á öðru stóru heimili úti í þjóðfélagihu, þjónustuíbúðum fyr- ir aldraða við Dalbraut. Margrét hafði ung stofnað heimili og var búin að ala þar upp 4 stráka áður en hún kom út á vinnumarkaðinn. Fór þá í sjúkraliðanám til að búa sig undir það. A heimili hennar og manns hennar var líka og er enn öldmð móðursystir hennar. Heimili em vissulega misjöfn, en hlýtur ekki svona heimili að vera dæmigert fyrir þá fjölbreytni í störfum og útsjónarsemi í rekstri sem við emm sammála um að skuli meta til starfsreynslu? Ekki kannski síst þegar um stjómun á stóm þjónustuheimili er að ræða, eins og heimili með þjónustuíbúð- um fyrir aldraða er, þar sem þarf að sjá um reksturinn, þrif og snyrtingu á sameiginlegu, stórt mötuneyti fyrir íbúa og nærliggj- andi hverfi og upplyftingu og fé- lagsleg samskipti öll við íbúana og sækja lækninn eða heima- hjúkmnarkonu ef þörf krefur, því á Dalbraut er ekki hjúkmnar- heimili heldur vemdað heimili aldraðra sem búa hver f sinni íbúð. Hafði nú nokkmm fundist að þama mætti meta nokkurs reynslu af heimilisrekstri og umönnun bama og fullorðinna? Ekki hafði maður séð það í um- fjöllun í fjölmiðlum. Heldur ekki að meðan Margrét var að koma upp bömum og hafði að aðalstarfi að reka heimili, hafði hún haldið tengslum út í samfélagið og lagt lið margvíslegum velferðarmál- um. M.a. verið í fomstu og við stjóm í stærstu kvenfélagasam- böndunum í landinu, var formaður Kvenfélags Arbæjarsóknar í 6 ár, í stjóm Húsmæðrafélags Reykja- víkur í 8 ár, í stóm Kvenfélaga- sambands Islands í 10 ár, formað- ur Landssambands sjálfstæðis- kvenna í áratug, og loks verið treyst til að vera formaður í stór- um launþegasamtökum sjúkra- liða. Ég hugsa að konum sem starfa á slíkum vettvangi finnist að töluverð reynsla í sljómun og samskiptum við fólk sé slíku samfara. Auk þess sem Margrét hafði í 12 ár verið sem varaborg- arfulltrúi með í gerð fjárhagsáætl- ana stærsta fyrirtækis í landinu, Reykjavíkurborgar, með öllum sínum málaflokkum og þá einkum unnið í heilbrigðisgeiranum með setu í heilbrigðisráði og varamað- ur í félagsmálaráði. Og vil ég fullyrða af eigin reynslu að það er á við mörg stjómunamámskeið að vera með í Ijárhagsáætluninni þeirri á haustin, fylgjast með út- færslu hennar, læra að velja og hafna. En þetta er hliðarspor. Skrýtið að tama ef engum hefði dottið í hug að meta áratuga hús- móðurstarf nokkurs í þessu sam- hengi, fyrst á annað borð var verið að gera úttekt á starfs- reynslu í sambandi við vemdaðar þjónustuíbúðir aldraðra. Mér fannst það með svo miklum ólík- indum að ég lagði á mig að lesa allar umræðumar um málið í borgarstjóm, einar 50-60 blaðsíð- ur af ræðum. Undrunin fór vax- andi eftir því sem leið á ræður kvenborgarfulltrúanna — því auðvitað vom það nær eingöngu þær sem kusu að greina starfs- hæfni verðandi forstöðumanns. Gerður Steinþórsdóttir, Guðrún Agústsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Adda Bára, sem ekki var að ráða gangavörð heldur forstöðumann sem hefði þarfír íbúanna í fyrir- rúmi og hafnaði því sjúkraliðan- um. Þannig var viðhorfíð til reynslu húsmóðurinnar, sem engri þessara ágætu kvenna þótti einu sinni taka því að nefna þegar þær ræddu starfshæfni Margrétar. Hvort þær vildu einhvem annan í starfið að mati loknu er svo önnur saga, sem ekki kemur þessu máli við. Hver verður þá að meta eftir sínum eigin smekk. En það eina sem virt- ist skipta máli um ofannefndan umsækjanda var að hún hefur skoðun á þjóðmálum, fylgir Sjálf- stæðisflokknum. Pólitískar skoð- anir annarra umsækjenda virtust ekki varða borgarfulltrúana. Þó ekki væri! En húsmóðurstarfíð í tvo áratugi var ekki til í hugum ræðumanna þegar meta átti starfshæfnina. Niðurstaðan af könnuninni á því hvers húsmóðurstörfin em metin þegar til kastanna kemur og tækifæri gefst til varð semsagt 0. Svo dapurlegt var nú það. En það var íjörugt að syngja saman á kvennadaginn 1976: Því skulum við reyna að skriða út úrskelinniþamaheima og rétta úr okkar kvennakút eikraftiokkargleyma. Því ef við stöndum hlið við hlið við hljótum að vera margar. Ef stelpan okkur leggur lið það leiðin er til bjargar. Svonamargar . . . ÆVINTÝRAHEIMUR THAILANDS: Allt sem þér hefur dottið í hug fyrir verð sem þér hefur aldrei dottið í hug. \^gna sérstakra samninga SAS og Flugleiða er þér nú gert kleift að kynnast ótrúlegum ævintýraheimi Thailands í heila 17 daga fyrir enn ótrúlegra verð; 52.249,- krónur per mann í tveggja manna herbergi. Og það er ekki eftir neinu að bíða; brottfarir eru alla þriðjudaga a.m.k. út maí. í september byrjar svo gaman- ið aftur. Aukavika fyrir kr. 3.698,- Gist er í 4 nætur í Bangkok og 10 nætur á óviðjafnanlegri Pattaya strönd- inni. Þar er dvalið á fyrsta flokks hóteli og aukavika kostar aðeins 3.698,— krónur. Það er frábært verð fyrir allar þær vellystingar sem í boði eru. Einnig er hægt að gista á lúxushóteli og verðið hækkar þá aðeins um litlar 5.994,- krónur. íburðurinn á þessum hótelum er engu líkur. Aukavika í Singapore fyrir 9.828,- krónur. Þú getur líka farið í sérferð til Singa- pore. Þar er gist á enn einu lúxushótel- inu og til að kóróna allt er þar boðið uppá 3ja daga skipsferð til Indónesíu og ógleymanlega siglingu með einka- snekkju. Allar nánari upplýsingar um þetta ein- staka ævintýri eru veittar á næstu ferða- skrifstofu og söluskrifstofum Flugleiða. FLUGLEIÐIR S4S Svíþjóð: Ráku sex Tékka úr landi vegna nj ósnastarf semi Stokkhólmi. AP. SÆNSK stjórnvöld hafa ákveðið að reka úr landi fimm Tékka, þar á meðal fjóra sendiráðs- menn, fyrir meinta tilraun til að komast yfir hernaðar- og iðnað- arleyndarmál, að þvi er utan- ríkisráðuneytið sagði í gær. I tilkynningu frá ráðuneytinu sagði, að sænska stjómin hefði í aprfllok fengið upplýsingar um „ákveðnar njósnir Tékkanna í Sví- þjóð“. „Upplýsingamar leiddu í ljós, að fimm tékkneskir borgarar, þar af fjórir fulltrúar í ser.diráði Tékkó- slóvakíu, höfðu haft í frammi til- burði, sem samræmdust ekki stöðu þeirra hér í landinu," sagði í tilkynn- ingunni. Ennfremur sagði, að „samkvæmt mati ráðuneytisins hafa gerðir þeirra ekki valdið landinu neinu tjóni, en kynnu að hafa gert það, ef þeim hefði verið leyft að halda áfram á sömu braut". I tékkneska sendiráðinu í Stokk- hólmi em aðeins 10 starfsmenn, svo brottrekstur fjórmenninganna mun draga svo að um munar úr starf- semi þess. Tveir hinna brottreknu vom háttsettir í sendiráðinu. I tilkynningu utanríkisráðuneyt- isins var ekki tilgreint, í hveiju athafnir Tékkanna hefðu verið fólgnar, en Stokkhólmsblaðið Ex- pressen sagði, að njósnir þeirra hefðu beinst að hemaðarmálefnum og hátækni. Expressen sagði ennfremur, að Tékkamir hefðu ráðið sænska umboðsmenn og „neytt" þá til að framselja hemaðar- og iðnaðar- leyndarmál. Sumir umboðsmann- anna vom gagnnjósnarar og veittu sænsku öryggislögreglunni upplýs- ingar. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.