Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 43

Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986 43 Hulda Guðna- dóttir — Minning Fædd 27. janúar 1937 Dáin 27. apríl 1986 Hún Hulda er dáin. Þessi frétt kom svo óvænt og fyrirvaralaust að maður varð hreint orðlaus. Hún veiktist að morgni sunnudagsins 27. þ.m. og var öll að kvöldi sama dags. Hún fæddist 27. janúar 1937 á Reyðarfirði, en ólst upp að Bónd- hól í Borgarfirði. Hulda giftist ung frænda mínum Pálma Jónssyni og eignuðust þau 5 biirn. Eitt dó við fæðingu, en hin eru Heiða, gift Magnúsi Haralds- syni, Svanhildur, gift Haraldi Sig- þórssyni, Magnús og Elísabet. Heiða á litla dóttur, Guðrúnu, sem því miður fær ekki lengur að njóta Huldu ömmu sinnar. Mér hefur alltaf fundist ég standa í þakkarskuld við þau Huldu og Pálma. Þegar ég var unglingur fékk ég að fara til Pálma í aukatíma í nokkrum námsgreinum, sem mér gckk ekki alls kostar vel með. En Pálmi var yfirkennari við Réttar- holtsskólann í mörg ár. Það var gott að koma á heimili þeirra og þó aldursmunur væri nokkur á okkur fannst mér ég alltaf vera að koma til vina minna. Þetta sama fann ég seinna þegar ég var gift og átti þijú lítil börn. Ég var nýflutt í Breiðholtið og fór oft út að ganga með börnin mín. Þá höfðu Pálmi og Hulda byggt sér einbýlishús við Geitastekk 1. Hulda var ein af þessum konum sem vildi vera heima og annast börnin sín og heimili, þó það yrði til þess að húsið yrði seinna fullbúið. Ég er viss um að börnin hennar búa að því í dag. Þá var líka gott að koma til hennar, og oft báðu börnin um að við gengum þangað. Því það vita allir sem eiga ung Blómastofa Fnðfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavtk. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- eínnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Ö.w w// ORYGGIShlONUSTA Þóroddsstöðum v/Skógarhlíð, Reykjavik Pósthólf 1101,121 Reykjavik S 91-29399 - Simaþjónusta allan sólahringinn 4 börn að það er ekki hægt að fara hvert sem er með þau í heimsókn. Ég hef oft hugsað til þessara ára með þakklæti. Og þó heimsóknun- um hafi fækkað hefur vináttan haldist. Nú þegar Hulda hefur horfið frá okkur svo fyrii’varalaust, þá er söknuðurinn mikill, einkum hjá Pálma og börnunum. En þegar við finnum til vanmáttar og sorgar, þá er gott að geta leitað styrks hjá lifandi Guði, sem er Guð allrar huggunar. Hann vill leiða okkur í gegnum alla erfiðleika og veita okkur gleði að nýju. Ég og fjölskylda mín vottum Pálma, börnunum og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Minning: Helga M. Niels- dóttir ljósmóðir Megi Guð veita þeim öllum blessun sína. Vilborg R. Schram. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát og útför móöur okkar og dóttur, HELGU LÁRU ÓSKARSDÓTTUR. Óskar Sveinsson, Rakel Sæmundsdóttir, Rakel Sveinsdóttir, Óskar Hallgrímsson. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960 Fædd 21. júní 1903 Dáin 28. apríl 1986 Mér er fullljóst þegar ég sest til að minnast vinkonu minnar Helgu M. Níelsdóttur, að ég geri því ekki tæmandi skil, því hún var það stór- brotinn persónuleiki. Þess vegna minnist ég þess eiginleika sem hæst bar í fari hennar og það var mannúðin, skilningur og elska til lítilmagnans. Hún valdi sér ung að árum þann starfsvettvang sem hún naut sín best á. Hún var ljósmóðir og kynnt- ist ég henni vel á þeim vettvangi, því hún tók á móti mörgum börnum mínum og barnabömum. Það er of langt mál að telja upp allt sem hún tók sér fyrir hendur á löngum starfsferli, því starfsgleði og þrek var ótæmandi, en fyrst og síðast var hugsunin að vera öðrum að liði. Nú veit ég að hún flytur með sér til nýrra heimkynna þakkar- og saknaðarkveðjur frá þeim ótal mörgu sem hún hefur glatt og líkn- að á genginni ævi. Það er persónu- leg skoðun mín að þótt starfsferli hennar sé lokið hér, þá vakni hún til starfa í nýjum heimkynnum þar sem nóg verður að starfa við að taka á móti þeim sem er svipt yfir landamærin í stríði og slysum. Þeir þurfa hjálpar við. Ég og bömin mín þökkum Helgu alla vináttu í 56 ár. Við sendum dætmm og fjölskyldum bestu samúðarkveðjur og ég kveð Helgu með orðum Kahlil Gibran: „Þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna, og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“ Anna Kristjánsdóttir Lokað Legstelnar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veítum fúslega upplýsingar og ráðgjöf _______um gerð og val legsteina._ || S.HELGASON HF I STEINSmlÐJA m r~....-.. i SKEMMUVEGI 48 SiMI 76677 vegna jarðarfarar HELGU M. NÍELSDÓTTUR Ijósmóður mánudaginn 5. maí eftir hádegi. Gleraugnasalan Linsan, Aðalstræti 9. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð við andlát og útför eigin- konu minnar og móður okkar, JAKOBÍNU HERMANNSDÓTTUR. Fyrir hönd vandamanna Helgi Elíasson og börn. SIGLIIMG UM EYSTRASALT Með lúxusslqpinu MAXII^I GORKI ENN EIN LUXUS SKIPAFERÐIN I BOÐI Nú verður haldið til Eystrasaltshafna. Um er að ræða skemmtifleyið MAXIM GORKI — 25.000 tonn að stærð, búið öllum hugsanlegum þægindum, sem fjöldi íslendinga hafa notið undanfarin ár. FERÐATILHÖGUN Brottfór 23. maf. FlogM tU CHIó, A glst 2 iMttur. HakUð til hafs 25. X maf, siglt um Stórabelti til Gdynla, Hotsinkl, Leningrad, Stokkhólms, Borgundarhólms, WamemUnde f A-Þýskalandi, komið til Kaupmannahafnar 4. júnl og gist þar 12 nntur og flogfö heim 6. júnf. SKOÐUNARFERÐIR Á öllum viðkomustöðum skipsins verður boðið upp á spennandi skoðunarferðir. VERÐ Verð kr. 64.250.- pr. mann í tvfbýli. Innifalið: Skipsferðin ( útklefa m/baði/sturtu. Fullt fæði um borð. Flug til og frá íslandi. Gisting á Hóteli 2 nætur ( Osló og 2 nætur í Kaupmannahöfn. siglingar eru okkar sérgrein FERÐASKRIFSTOFA. lönaöatrhúsinu Hallveigarstigl. sími V1-28388.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.