Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 62

Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986 -4 Eldaðá eldhús- gólfinu Maurar í matnum og nútima þægindi lítið notuð þó fyrir hendi séu Þegar þeir segja nei kinka þeir kolli en hrista aftur á móti höfuðið ját- andi. En það er nú ekki það eina sem kom okkur spánskt fjrrir sjónir. Þrátt fyrir átroðslu 3ja þjóða, að ótöldum Ind- veijum, þ.e. Portúgala, Hollendinga og Breta i samfleytt 443 ár (1505-1948) hafaSri Lanka-búar haldið sér- kennum sínum og menn- ingu. Þjóðir þessar hafa allar traðkað með f íls- fótum sínum yfir landið með því virðingarleysi sem svo oft er einkenn- andi fyrir nýlendustefn- una. Túristar sjaldséðir hvítir hrafnar Undirrituð ásamt 7 nemendum frá ýmsum menntastofnunum í Danmörku eyddi mánaðartímabili (í janúar og febrúar ’86) á Sri Lanka. Auk mín voru tveir aðrir Isiendingar í ferðinni, þeir Sigutjón Markús Jóhannsson og eiginmaður minn Ari Þ. Þorsteinsson. Tilgangur ferðarinnar var að kanna ýmsar greinar fiskveiða, verkun, geymslu og aflanýtingu þar í landi með von um nýjar hugmyndir og endurbætur í huga. Ferðin var farin í samráði við Sjávarútvegsmálaráðuneyti Sri Lanka og vegna tengsla okkar við þá stofnun fengum við óviðjafnan- legar viðtökur hvar sem við komum. Það má segja að kynni okkar af þjóðinni hafi verið töluvert mikið nánari en gengur og gerist með venjulegt ferðafólk. Við bjuggum hjá innfæddum Qölskyidum í fiski- þorjtinu Wennappuwa á suðvestur- strönd Sri Lanka. Þar búa um 40 þúsund manns og túristar eru sjald- séðir hvítir hrafnar. Frítími okkar var mikið notaður til að skoða land og menningu og í þær ferðir höfðum við bíl sem ráðuneytið lagði til ásamt bílstjóra. Tveggja gráðu munur á heitasta og kaldasta degi Það var erfítt að fá upplýsingar um Sri Lanka áður en lagt var af stað. Það var eins og að leita að nál í heystakk að fínna bækur þar um, hvort heldur sem var á bóka- safni eða í búð. Á ferðaskrifstofum fengum við þó þær upplýsingar að hitinn væri um 30 gráður að meðal- tali og munur á kaldasta og heitasta verði væri 2 gráður. Við fengum líka að vita að nóg væri af lúxus- hótelum og að kókospálmaviskíið, Arrack væri gott <>g það var alveg satt. Aðrar upplýsingar höfðum við nánast ekki nema helst sjónvarps- fréttir af óeirðum sem geysuðu um allt landið vegna uppreisna tamila, minnihlutahóps frá Indlandi. Seinna komumst við að því að þær fréttir voru mjög uppblásnar og urðum sjálf ekki vör við neitt ófriðarástand Ein margra veiðiaðferða Sri Lanka-búa. því þessar óeirðir eru mjög svæðis- bundnar. Jú, við höfðum líka heyrt að smáglæpir og þjófnaðir væni algengir og þá ekki síst gagnvart túristum. Sri Lanka er u.þ.b. 65.000 fer- kflómetrar og fólksfjöldi tæpar 15 milljónir. Með þessar sparsömu upplýsingar lögðum við af stað út í óvissuna, hálf smeyk um að verða rænd eða drepin í ferðinni. Við hittum fararstjóra okkar, hr. Lal Femando, Sri Lanka-búa, búsettan í Danmörku, á Kastrup-flugvelli og svo hófst ferðin. Ríkir og fátækir búa hlið við hlið Við héidum að við værum að einhveiju leyti undir það búin að horfast í augu við lífíð í þróunar- landi og vissum nokkurn veginn að ástandið væri töluvert ólikt því sem við eigum við að búa. Engu að síður fengum við öll hið margfræga menningarsjokk. Lífíð á Sri Lanka er svo gjör, gjörólíkt því sem við höfum upplifað áður og það er nú töluverður munur á að sjá þriðja heims land í sjónvarpsþætti eða að vera staddur í því. Sri Lanka telst með þróunarlöndunum en ástandið þar er ekki svo slæmt samanborið við mörg önnur. Landið er fátækt og bjargast að miklu leyti á styrkj- um og hjálparstarfsemi frá velstæð- um löndum svo sem Japan og Danmörku sem að sjálfsögðu nota tækifærið til að koma ár sinni vel fyrir borð og flytja inn allskonar glingur. Það er ekki hungursneyð á Sri Lanka. Margir eru mjög fátækir og nokkrir mjög ríkir, stærsti hópurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.