Morgunblaðið - 15.05.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
35
astarf
m
vinstri flokkanna segja að vísu, að
nægir peningar séu til, en þeim
sé ekki réttilega úthlutað og nefna
í því sambandi „sóun“ í afmælis-
hald borgarinnar, kaup á jarðnæði
sem ekki verður notað næstu árin
og kaup á dýrum hljómflutnings-
tækjum. Sjálfstæðismenn segja á
móti, að þarna sé ekki um upp-
hæðir að ræða, sem ráði úrslitum.
Og þeir benda á, að áþekkur mál-
flutningur hafí heyrst fyrir kosn-
ingamar 1978. Vinstri flokkamir
hafí fengið tækifæri til að standa
við orð sín á kjörtímabilinu 1978-
, 1982, en ekki gert það.
A vinnustaðafundi í Landa-
kotsspítala svömðu Alþýðubanda-
lagsmenn ábendingu af þessu tagi
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson og Guðrún Zoöga, spjalla við starfsfólk Eimskips í Pósthússtræti.
Morgunblaðið/Emilía
Fógetanum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Morgunblaðið/Börkur Amarson
Elín Olafsdóttir og Kristín Astgeirsdóttir frá Kvennalistanum á fundi
með starfsmönnum Skýrsluvéla ríkisins.
Morgunblaðið/Júlíus
á frambodsfundi.
„ Morgunblaðið/RAX
Guðrún Agústsdóttir, frambjóðandi Alþýðubandalagsins, í kaffistofu starfsfólks Landakotsspítala.
með þeim orðum, að á vinstri
stjómarárunum hefðu embættis-
menn Reykjavíkurborgar unnið
skipulega gegn meirihlutaflokkun-
um. Naumast væri hægt að tala
um, að vinstri flokkamir hefðu
haft raunvemleg völd á þessu
tímabili. Aftur á móti hafa fram-
bjóðendur Alþýðubandalagsins og
annarra vinstri flokka ekki gert
grein fyrir því hvemig vinna á
gegn þessum meintu áhrifum
embættismannanna, ef flokkamir
komast til valda á ný.
Alþýðuflokkurinn hefur talsvert
flaggað tillögum sínum um kaup-
leiguíbúðir í kosningabaráttunni,
enda þótt þær séu mál sem á heima
á Alþingi og borgarstjóm ræður
engu um. Segjast Alþýðuflokks-
menn ekki vilja starfa með öðmm
en þeim, sem samþykkja kaup-
leigutillögumar í húsnæðismálum.
Raunar vilja flestir minnihluta-
flokkanna láta kjósa um landsmál-
in öðmm þræði, en frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins telja að kosn-
ingamar eigi eingöngu að snúast
um stjóm borgarinnar. Alþýðu-
bandalagið hefur gefið út dreifírit,
þar sem sett er fram vígorðið:
„Bolungarvík fyrst, Reykjavík
næst“ (og er þar að sjálfsögðu
skírskotað til samninganna fyrir
vestan um 30 þúsund króna lág-
markslaun), en það er athyglisvert
að þetta stefnuatriði hefur ekki
verið sett í öndvegi og er jafnvel
ekki nefnt á sumum vinnustaða-
fundum flokksins. Kannski er
skýringin sú, að Alþýðubandalags-
mönnum í valdastöðum í bæjarfé-
lögum úti á landi geðjist ekki að
því. Hvers vegna hafa t.d. ekki
verið gerðir „Bolungarvíkursamn-
ingar" á Neskaupstað, höfuðvígi
Alþýðubandalagsins? spyija and-
staeðingar flokksins og þá virðist
fátt um svör. Nýgerðir samningar
við starfsmenn Kópavogskaup-
staðar sýna að Alþýðubandalags-
menn láta ekki verkin tala í þessu
efni.
Eykst lýðræði með
fleiri borg-arfulltrúum?
Frambjóðendur minnihluta-
flokkanna gagnrýna þá ákvörðun
sjálfstæðismanna að fækka borg-
arfulltrúum á ný í 15, en þeir voru
21 á núverandi kjörtímabili. Telja
þeir, að þetta dragi úr lýðræði í
borginni. Davíð Oddsson svaraði
þessari gagnrýni á fundi með
starfsmönnum Eimskips á dögun-
um og benti m.a. á, að borgarfull-
trúar í Moskvu væru 1.000 og þó
færu engar sögur af lýðræði þar.
Hann tók líka dæmi af Stokkhólmi,
þar sem borgarfulltrúar eru 101,
en taldi að það hefði ekki aukið
lýðræði í borginni. Davíð kvaðst
frekar vilja fækka nefndum og
sameina þær og gera starfíð mark-
vissara. Taldi hann það raunveru-
legu lýðræði fremur til framdráttar
en sífelld fundahöld, þar sem engar
ákvarðanir væru teknar.
Sem fyrr segir eru nú rúmar
tvær vikur til sveitarstjómarkosn-
inga. Kosningabaráttan herðist
væntanlega næstu daga og full-
yrða má, að kosningamar líði ekki
svo hjá að kjósendur verði þeirra
ekki áþreifanlega varir! Framund-
an eru framboðsfundir í útvarpi
og sjónvarpi, „Bláa bókin" frá
sjálfstæðismönnum verður borin í
hús í Reykjavík innan skamms og
kosningahátíðir stjómmálaflokk-
anna síðustu dagana fyrir kjördag
ættu ekki að fara leynt. Og úrslitin
em auðvitað enn óráðin. Flestir
spá því, að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi meirihluta sínum í höfuð-
borginni og skoðanakannanir
benda jafnvel til þess að sá meiri-
hluti styrkist. Hinar raunvemlegu
kosningar fara hins vegar fram í
kjörklefanum á kjördag og þar
getur allt gerst. Þetta vita fram-
bjóðendur og erindrekar flokkanna
og þess vegna munu þeir væntan-
lega leggja allt kapp á markvisst
kosningastarf á síðasta sprettin-
um.
- GM.