Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
114. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. MAI1986_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Assad Sýrlandsforseti á Grikklandi:
„Bandaríkjamenn hóta að
gera heiminn að vígvelli“
Aþenu. AP.
HAFEZ Assad, forseti Sýrlands, sagði í gær að Bandaríkja-
menn og ísraelar hótuðu nú að breyta heiminum í „vígvöll“
undir því yfirskini að vopnaðar árásir séu andspyrna gegn
hryðjuverkastarfsemi.
Bonner á heimleið:
Ottast
aukna
einangrun
París. AP.
YELENA Bonner sagði í gær að
það væri „líkast þvi að vera
örvera á glerþynnu, sem sett er
undir smásjá til læknisskoðunar"
að vita að sovésk yfirvöld hefðu
stöðugt fylgst með sér og manni
sínum, Ándrei Sakharov, með
kvikmyndavélum í útiegðinni í
Gorkí. „Og það er hræðileg til-
finning,“ sagði Bonner, sem
yfirgaf Bandaríkin á laugardag
og er á leið til Sovétríkjanna.
Hún er nú stödd í París.
Bonner lét þessi orð falla í sam-
tali við blaðamenn áður en hún hitti
Jaques Chirac, forsætisráðherra.
Bonner kvaðst óttast mest að
einangrun þeirra hjóna yrði aukin
þegar hún kæmi aftur til Gorki og
sovésk yfirvöld myndu halda áfram
að breiða út rangar upplýsingar um
þau.
„Trúið engu sem kemur frá
stjómvöldum um okkur," sagði
Bonner. „Bréf, símskeyti, filmur;
allt er falsað." Hún kvað böm
hennar myndu reyna að hringja
mánaðarlega í sig frá Bandarílq'un-
um. „Og nái þau ekki sambandi þá
emm við í vandræðum," sagði
Bonner.
Bonner ræðir við Francois Mit-
terrand, forseta, í dag. Hún heldur
til Oslóar á miðvikudag og þaðan
til London og Rómar.
Upplýsingar
um Cherno-
byl of litlar
Pólverjar gagnrýna
ríkisfjölmiðla í
skoðanakönnun
Warsjá/Moskvu. AP.
MARGIR Pólveijar, búsettir á
þeim svæðum, sem mest geisla-
virkni fór yfir eftir kjarnorku-
slysið í Chernobyl, eru gagnrýnir
á upplýsingastefnu stjórnvalda
um slysið, að því er fram kemur
í opinberri skoðanakönnun.
31 prósent aðspurðra kvaðst hafa
hlustað á vestrænar útvarpsstöðv-
ar, sem senda út á pólsku, til þess
að fá fréttir af kjamorkuslysinu 26.
apríl.
83,5 prósent þeirra, sem spurðir
vom, kváðust hlusta á fréttir pólska
sjónvarpsins af slysinu, en aðeins
39 prósent kváðust telja fréttaflutn-
ing sjónvarpsins áreiðanlegan.
37 prósent sögðu of lítið hafa
verið greint frá slysinu í fréttum
og 20 prósent töidu að viljandi hefði
verið reynt að gera sem minnst úr
upplýsingum um slysið. Aðeins 29
prósent aðspurðra sögðu frétta-
flutning af slysinu hafa verið full-
nægjandi.
Yevgeny Velikhov, varaforseti
sovésku vísindaakademíunnar,
sagði á blaðamannafundi í Moskvu
T gær að nítján manns hefðu nú
látið lífið vegna kjamorkuslyssins í
Chemobyl. Tveir hefðu beðið bana
þegar slysið varð og saucján hefðu
dáið á sjúkrahúsum vegna of mikill-
ar geislunar.
Assad lýsti yfír þessu í ræðu á
Grikklandi þar sem hann er í
þriggja daga opinberri heimsókn.
Þetta er fyrsta heimsókn Assads,
sem er 55 ára, til vestræns ríkis
í átta ár.
Grísk blöð og vestrænir frétta-
skýrendur segja að tilgangur
Assads með för sinni sé að kveða
niður ásakanir um að Sýrlending-
ar styðji alþjóðlega hryðjuverka-
starfsemi.
„Þetta hættulega uppátæki að
nota vopnaðar árásir til að ná
pólitískum markmiðum er heimin-
um viðvömn um að honum verði
breytt í vígvöll. Og þessi vígvöllur
verður á valdi þeirra, sem vita að
þeir em þess umkomnir að gera
árás án þess að þurfa að óttast
refsingu," sagði Assad.
„Þetta gerðu Bandaríkjamenn
með árás sinni á Líbýu og þetta
em ísraelar að gera í Suður-
Líbanon og hemumdu arabalend-
unum. Og þetta er það sem stjórn
Suður-Afríku er að gera í ríkjum
suðurhluta Afríku," bætti hann
við.
Assad sagði að ríki, sem fylgdu
þeirri stefnu, að grípa til ofbeldis
undir yfírskini andstöðu gegn
hryðjuverkum, fæm villur vegar
ef þau teldu að slíkt leiddi til þess
að hryðjuverkastarfsemi yrði
kveðin niður.
Sýrlenski leiðtoginn, sem náði
völdum í Sýrlandi 1970 með að-
stoð hersins, sagði að þjóð sín
væri mótfallin hryðjuverkum
„vegna þess að við höfum þjáðst
vegna þeirra". Hann bætti aftur
á móti við að Sýrlendingar gerðu
greinarmun á hryðjuverkum og
andspymu þjóðar gegn nýlendu-
stefnu.
Ræðu Assads var sjónvarpað
beint.
Forseti Sýrlands kom til Aþenu
í gærmorgun og tóku á móti
honum Christos Sartzetakis, for-
seti, og Andreas Papandreou,
forsætisráðherra. Papandreou
hefur gagnrýnt aðgerðir vest-
rænna ríkja gegn Líbýumönnum,
sem em bandamenn Sýrlendinga.