Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Dagar í Túnis: í leit að Lótófögum á Djerba Svo segir í Odysseifskviðu: „ ... þaðan hraktist ég í fárviðri níu daga yfir hið fiskisæla haf, en á tíunda degi stigum vér á land Lótófaga, er lifa á blómfæðu. Þar gengum vér á land upp og jusum vatn; síðan tóku skipverjar dagverð hjá hinum örskreiðu skipum. En er þeir höfðu neytt matar og drykkjar þá valdi ég tvo menn af förunautum mínum og lét þeim fylgja kallara hinn þriðja mann og sendi þá á land upp til að njósna, hvað þar byggi mennskra manna. Þeir fóru þegar og komu á fund Lótófaga. Ekki bjuggu Lótófagar banaráð mönnum vorum, heldur gáfu þeir þeim að eta af lótusviði. En hverr þeirra sem át lótusviðarins hunangs- sæta ávöxt vildi ekki aftur snúa eftir það, til að segja frá tíðind- um og ekki heim fara; heldur vildu þeir verða þar eftir hjá Lótófögum og tína lótusviðarver en ekki hugsa til heimfarar. Hafði ég þá með mér til skipa, var þeim það svo nauðugt, að þeir grétu; síðan dró ég þá upp í hin rúmgóðu skip og batt þá undir þóftumar. En hinum öðrum tryggvum förunautum mínum bauð ég að stíga í skyndi á hin öskureiðu skip, svo engi þeirra skyldi eta af lótusviðnum og verða svo afhuga ferðinni..." Hómer lýsir hér komu Odysseifs að eynni Djerbu, sem liggur undan ströndum Túnis. Þar búa nú um eitt hundrað þúsund manns í mörg- um litlum þorpumn, litfögrum og hlýlegum. Hið stærsta þeirra er Houmt Souk og þar er flugvöllur eyjarinnar. Mér hafði verið búin gisting á Palm Beach-hótelinu og á leiðinni frá Houmt Souk, skimaði ég í kring- um mig forvitnislega: lótusætur sáust hvergi, að minnsta kosti ekki í þeirri mynd sem Odysseifur sá þá. Lótusætumar og gestir þeirra hafa aukin heldur étið upp allan lótus- viðinn, þar er að vísu gróskulegt um að litast af pálmatijám og ólífu- tijám. Margir hafa orðið til að lýsa töfrum Djerbu, fyrr og síðar „Eyjan hinna gullnu sanda," sagði Gustave Flaubert og verður ekkert ofsagt um strandlengjuna í kringum eyna alla. Ég fór einatt í göngutúra á morgnana eftir fjörunni áður en sólin kom upp á morgnana og mætti þá Djerbum sem voru að undirbúa sig undir dagsverkið; að bjóða ferðamönnum að þeysa á arabískum gæðingum eða reyna hæfni sína við að sitja úlfalda eftir sandborðinu. Allir buðu alltaf góðan dag og vildu helzt taka upp sam- ræður, sem gengu svona upp og ofan. Mætti maður hins vegar stöku ferðamanni á göngu í fjöruborðinu var undantekning ef tekið var undir kveéju manns. Saga Djerbu er nánast jafn gömul mannkyninu, að þvf er talið er. Án efa hafa fyrstu íbúamir verið berbar. Á 6. öld fyrir Krist flúði svo þangað hópur gyðinga og í þorpinu Hara essghira búa um þúsund gyðingar og þar er fræg og fom sýnagóga. Til hennar koma gyðing- ar hvaðanæva úr heiminum á páskahátíð gyðinga. Goðsögnin segir okkar að heilagur steinn hafi dottið af himni ofan og staðurinn hafi verið valinn af guði til að þama yrði reist bænahús gyðinga. „Dular- full útlend stúlka, ghriba, birtist og hjálpaði byggingaverkamönnunum með kraftaverkum að reisa sýna- góguna og gaf staðnum nafn.“ Gyðingabærinn á Djerba Hara essghira er í fáu frábrugðinn öðmm þorpum á eynni. Ég kom þangað einn sólskinsdag og fékk að skoða bænahúsið. Þar voru fyrir nokkrir gyðingar að fara með bænir og reisn og fegurð hússins hreif mig, það var einhver blíður andi inni í þvf. Saga Djerbu er saga drottnunar og kúgunar gegnum aldir og sagt var að Djerbar hefðu farið að iðka khaijisma til að geta leitað sér hugsvölunar í trúnni. Djerbar munu alltaf hafa litið á sig sem hluta Túnis, en langar og strangar tíðir urðu þeir að þreyja unz að þvf kæmi að eyjan yrði sjálfstæð. Aröb- um mun hafa verið fagnað af Djer- bum sem frelsurum á sjöundu öld, en fjórum öldum síðar eða um 1135 kemur þangað Roger Sikileyingur og lagði eyna undir sig, karlmenn voru murkaðir niður og konur og böm gerð að þrælum. Síðan fylgdi hver innrásin annarri og árið 1560 sigraði 30 þúsund manna lið Filipp- usar Spánarkonungs eyna. Sfðar tóku eyjarekeggjar höndum saman Pálmatrén úti um allt en h var var lótusviðurínn ? Við höfnina iHoumt Souk. Ben Mahmoud í leirkerasmiðju sinni í Guella. við Tyrki og voru því hluti Ottóman- veldisins til 1881 að eyjan varð ásamt meginlandi Túnis franskt vemdarsvæði. Það em svo ekki nema þijátíu ár síðan Túnis og Djerba hlutu hið langþráða sjálf- stæði. Margir hafa spurt hvað það væri sem ferðamönnum þætti heillandi við Djerbu; landslagið er sem sé ekki stórbrotið, eyjan er algerlega flöt og þótt pálmatré og ólífutré séu til prýði og gagns verður Djerba varla lofuð fyrir landslagsfegurð. En öll þessi litlu litríku þorp, þessi hreina flara umhverfis eyna, þetta kyrrláta en fallega mannlíf, þessi þytur í loftinu. Þennan dag sem ég sótti heim Hara essghira fór ég líka til Guella, þar er miðstöð leirkeraiðnaðar á eynni og ég fór í smiðju Bomdhane Ben Mahmoud og fékk að fylgjast með því hvemig leirinn er mótaður og undursamlegustu listaverk urðu Frá sýnagógunni Elgrítm. Gyðingakrakkar í Hara essghira. Markaðurínn íHoumt Souk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.