Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Thatcher vill kosningar á herteknu svæðunum: Israelar hafna hug- myndum Thatchers Jerúsalem. AP. Norðmenn fúsir til viðræðna í OPEC isfylkingar Palestínumanna (PLO) kosningu. Á fundi með ritstjórum blaða á sunnudag varpaði Thatcher einnig fram þeirri hugmynd að fulltrúi Sameinuðu þjóðanna yrði falið að hafa eftirlit með valdatöku Palest- ínumanna á herteknu svæðunum, en hún mun ekki hafa rætt þann möguleika í viðræðum við ísra- elska leiðtoga. Thatcher mun eiga viðræður við Hussein Jórdaníukonung í London í júní og gerir hún honum þá m.a. grein fyrir viðræðum sín- um við ísraelska ráðamenn. Hún mun hafa lofað Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, að reyna að fá Hussein til að fallast á að komið verði af stað embættis- mannaviðræðum milli ísraels og Jórdaníu. I gær var fyrirhugaður fundur Thatcher með átta leiðtogum Palestínumanna á herteknu svæð- unum. AP/Símamynd Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, gera blaðamönnum grein fyrir viðræðum sinum í Jerúsalem á sunnudag. YITZHAK Rabin, varnar- málaráðherra, gagnrýndi í gær Evrópuríki fyrir að veita enga aðstoð til uppbyggingar á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. Jafnframt hafnaði Israelsstjórn tillögu Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, að kosningar yrðu Etna lætur á sér kræla f1 A P ELDFJALLIÐ Etna á Sikiley gaus ösku og reyk í gær og segja sérfræðingar að verið geti að þetta sé forleikurinn að eldgosi i þessu virkasta eldfjalli í Evrópu. Hið 3.200 m háa eldfjall ræskti sig á 15 til 20 sekúndna fresti og fylgdust sérfræðingar gjörla með. Etna gaus síðast í desember og fórst þá einn maður í jarðskjálfta og tólf slösuðust. haldnar á herteknu svæðun- um. Thatcher, sem nú er í heimsókn í ísrael, hvatti til þess í ræðu á sunnudagskvöld að 1,4 milljón Palestínumönnum, sem búa við herstjóm á Vesturbakkanum og Gaza, yrði gefið tækifæri til að hafa áhrif á eigin mál. Hún sagði það ekki við hæfí að æðri og óæðri flokkar fólks byggðu ísrael í framtíðinni. Sambúð tveggja hópa, sem nytu mismunandi réttar og lifðu við ólík kjör gengi ekki til frambúðar. Ríki heims ætluðust til þess af Israelum að þeir tryggðu réttindi araba á herteknu svæðunum. Hvatti hún til þess að bæjar- og sveitarstjómarkosning- ar yrðu haldnar á svæðunum tveimur. Rabin ræddi við Thatcher á King David hótelinu, en þar var aðsetur yfirstjómar brezku her- sveitanna í Palestínu þegar hún laut brezkum yfirráðum. Eftir fundinn sagði hann að Israels- stjóm væri andvíg kosningum á herteknu svæðunum. I borgar- stjómarkosningum á svæðunum 1976 hlutu stuðningsmenn Frels- Minnkandi verð- bólga innan EB Þriggja daga fundi samtakanna lauk um helgina Lúxemborg. AP. VERÐBÓLGA í aðildarlöndum Evrópubandalagsins (EB) í heild minnkaði úr 4,1% á ári í marz í 3,7% í apríl miðað við sama tíma- bil. Kom þetta fram í skýrslu, sem gefin var út af hálfu banda- lagsins í gær. Þar kom fram, að í síðasta mán- uði hefði framfærsluvísitalan hækk- að um aðeins 0,8% í aðildarlöndum EB í heild. Mest hefði hún verið hlutfallslega í Danmörku, Bret: landi, Grikklandi og Portúgal. I Vestur-Þýzkalandi lækkaði fram- færsluvísitalan um 0,1%, sem gæti haft það í för með sér, að verð- hjöðnun ætti eftir að verða þar um 0,2% á þessu ári, en slíkt hefur ekki átti sér stað í aldarfjórðung. Árleg verðbólga í öðrum aðildar- löndum EB en Vestur-Þýzkalandi verður samkvæmt þessum tölum þannig, en samsvarandi tölur miðað við það 12 mánaða tímabil, sem lauk í marzlok, eru innan sviga: Frakkland 2,7% (3%), Ítalía 6,8% (7,2%), Holland 0,7% (0,7%), Belgía GENGI GJALDMIÐLA London. AP. BANDARÍKJADALUR lækkaði lítillega gagnvart evrópskum gjaldmiðlum en hækkaði gagn- vart japanska jeninu og Kan- adadal. Gjaldeyrismarkaðir voru lokaðir í Bretlandi og Bandaríkj- unum vegna almennra frídaga. í Tókýó var gengi dalsins skráð 169,75 í lok viðskipta í gær, miðað við 169,20 á föstudag. í Evrópu var gengið gagnvart jeninu 169,70 jen í gær. Brezka pundið hækkaði úr 1,48775 dölum í 1,4950 en annars var gengi dalsins þann veg að fyrir hann fengust: 2,2810 vestur-þýzk mörk (2,2835), 1,8908 svissneskir frank- ar (1,8952), 7,2685 franskir frank- ar (7,2775), 2,5660 hollenzk gyllini (2,5720), 1.563,50 ítalskár lírur (1.564,25), 1,3716 kanadískir dalir (1,3670). Gullúnsan kostaði 341,50 dali í Ziirich í gær, miðað við 341,00 dal á föstudag. Gull- og silfurmarkaður var lokaður í London. 1,4% (1,5%), Bretland 3% (4,2%), Danmörk 3,9% (1,7%), Lúxemborg C,5% (1,5%), Grikkland 24,7% (24,8%), Spánn 7,8% (8 7%), Port- úgal 12,3% (12,2%) og Irland 4,6% (4,9%). Taif, Saudi-Arabíu. ÞRIGGJA daga fundi olíumála- ráðherra fimm aðildarríkja OPEC, samtaka oliuútflutnings- ríkjanna, lauk á sunnudag í Saudi-Arabíu. Fram koma á fundinum, að hin nýja stjórn Verkamannaflokksins í Noregi hefði lýst sig fúsa til viðræðna við samtökin. Ahmed Zaki Yamani, olíumála- ráðherra Saudi-Arabíu, kvaðst ánægður með fundinn og sagði að „algert samkomulag" hefði náðst þar um skiptingu olíumarkaðarins Flýði úr fangelsi með aðstoð þyrlu Paris. AP. FRÖNSK kona flaug þyrlu niður á þak La Sante-fangels- ins í gær og hjálpaði alræmd- um glæpamanni að flýja. Með konunni var karlmaður vopn- aður hríðskotabyssu, en ekki kom til skotbardaga. Að sögn sjónarvotta „hékk“ þyrlan yfír fangelsinu í fjórar til fímm mínútur áður en hún sveif niður undir þakið. Þar náði fang- inn Michel Vaujour, 34 ára stór- glæpamaður, sem afplánaði 18 ára dóm, taki á lendingarbúnaði þyrlunnar. Hékk hann þar er þyrlan flaug á brott. Félagi hans, sem komst einnig upp á þakið, snerist hugur á síðustu stundu og hætti við að flýja. Fangelsisverðir fylgdust með flóttanum en tókst ekki að afstýra honum. Gripu þeir ekki til skot- vopna, þar sem Vajour faldist bak við reykháf meðan þyrlan at- hafnaði sig yfír fangelsinu. Þyrlan flaug á brott og lenti á knatt- spymuvelli í hverfinu Porte D’Orleans í suðurhluta Parísar, þar sem hún var yfírgefín. Þetta er fjórða skiptið sem Vaujour tekst að flýja úr fangelsi. Atvikið átti sér stað klukkan 10:45 í gærmorgun. Flugskólinn, sem á þyrluna, er í útborginni St. Cyr L’Ecole, og eigandi hans sagði konu um þrítugt hafa leigt þyrl- una. Hún hefði leigt þyrluna títt í heiminum. Ákvarðanir og niður- stöður fundarins verða Iagðar fyrir næsta ráðherrafund OPEC, sem áformað er að halda í Brioni í Júgó- slavíu 25. júnínk. Ekkert var sagt að öðru leyti um hvað gerðist á fundinum nú, en hann fór algerlega fram fyrir lukt- um dyrum. Fundur þessi var hald- inn í samræmi við ákvörðun OPEC- ríkjanna í Genf í apríl sl. um að hefja samvinnu við olíuríki utan OPEC í því skyni að tryggja sam- vinnu þeirra til þess að koma í veg fyrir offramleiðslu á olíu í heiminum og koma á þann hátt fram verð- hækkun á olíu. OPEC-ríkin hafa einkum kennt Bretum og Norðmönnum um of- framboðið á olíu í heiminum, en báðar þessar þjóðir standa utan við OPEC-samtökin. Michel Vaujour, sem flýði með þyrlu úr fangelsi. Hann afplánaði 18 ára dóm, sem hann hlaut í fyrra. Myndin er tekin 1979. AP/Slmamynd Þyrlan sem notuð var til að hjálpa frönskum stórglæpa- manni að flýja úr fangelsi i París í gær. Þyrlan er af gerðinni Alouette. Hún lenti á leiksvæði í suðurhluta Parísar og var yfir- gefinn þar. og reglulega undanfama 5-6 mán- uði. Hún hefði sagst heita Lena Rigon og sagst búa í París. Að sögn lögreglu vora skilríki, sem hún sýndi í flugskólanum, fölsuð. Jafnframt voru rangir einkennis- stafír málaðir á þyrluna rétt fyrir flóttann óvenjulega. Lögregla reyndi árangurslaust að ná talstöðvarsambandi við þyrluna er hennar varð vart í lít- illi hæð yfír París, en flug undir 6.000 feta hæð yfír borginni er bannað. Veður víða um heim Lægst Hæst Akureyri 6 skýjað Amsterdam vantar Aþena 18 28 heiðskírt Barcelona 20 rigning Berlín 13 25 heiðskírt Brussel 10 25 heiðakírt Chicago 10 23 rigning Dublin 12 16 skýjað Feneyjar 26 heiðskirt Frankfurt 10 22 heiðskfrt Genf 7 22 heiðskfrt Helsinki 10 13 skýjað Hong Kong 26 30 heiðskfrt Jerúsalem 11 25 heiðskírt Kaupmannah. 12 15 heiðskfrt Las Palmas 28 mistur Ussabon 14 24 heiðskfrt London 10 19 skýjað Los Angeles 15 31 heiðskfrt Lúxemborg 22 léttskýjað Malaga 24 heiðskfrt Mallorca 29 hálfskýjað Miami 25 28 skýjað Montreal 10 25 skýjað Moskva 12 26 skýjað NewYork 16 26 heiðskfrt Osló 7 14 skýjað Paris 11 25 hefðskfrt Peking 15 30 heiðskfrt Reykjavfk 9 alskýjað Rióde Janeiro 19 32 skýjað Rómaborg 15 31 heíðskfrt Stokkhólmur 9 17 heiðskfrt Sydney 10 21 heiðskfrt Tókýó 15 21 skýjað Vfnarborg 9 20 heiðskfrt Þórshöfn 10 léttskýjað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.