Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1986 47 . Morgunblaðið/Sigurgeir Tekið á, trúlega er vænn fiskur á önglinum. Glaðst yfir goðri veiði, þátttakendur í sjóstangaveiði- móti í Vestmannaeyjum um hvítasunnuhelgina. V estmannaeyjar: Vel aflaðist í góðu veðri Hvítasuimumót í stangveiði V estmannaeyj um. VEL AFLAÐIST og gæftir voru góðar á Hvítasunnumóti Sjóstang-veiðifélags Vestmannaeyja um síðustu helgi. Kepp- endur voru 81 og róið var á 16 bátum. Haldið var til veiða klukkan sex að morgni Iaugardag og sunnudag og komið að landi klukkan tvö eftir hádegið. Veðurguðirnir léku við veiðifólkið báða dagana og afli var vel í meðallagi. Ef eitt- hvað var dró veðurblíðan úr veiðinni. Aflakóngur mótsins, Jói á Andvara. Heildaraflinn á mótinu var 13.686 kg og fór ekkert af aflan- um í gáma heldur fór hann til vinnslu í Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja. „Við hugsum um hag Ánægður veiðimaður með vænan steinbít. byggðarlagsins og hins vinnandi fólks," sagði Þorsteinn Þorsteins- son, einn af forvígismönnum mótsins í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins. Andvari var fengsælastur báta, veiðifólkið þar um borð innbyrti 1.894 kg eða 270.5 kg á hverja stöng að meðal- tali. í sveitakeppninni röðuðu heimamenn sér í öll efstu sæti, en keppendur voru víða að af landinu. Sveit Boga Sigurðssonar, Vestmannaeyjum, aflaði mest, 906,3 kg, sveit Guðjóns A. Guð- jónssonar, Vestmannaeyjum, var í öðru sæti með 877,4 kg og sveit Hjálmars Eiðssonar, Vestmanna- eyjum, hreppti þriðja sætið með 818.6 kg. Röð íjögurra efstu ein- staklinga varð þessi: 1. Gunnar Snorrason, Vestm., 349.7 kg. 2. Ester Óskarsdóttir, Vestm. 298,2 kg. 3. Karl Jörunds- son, Akureyri, 282,9 kg. 4. Bogi Sigurðsson, Vestm. 279,6 kg. Flesta fiska fékk Andri Páll Sveinsson, Akureyri, eða 257 stykki og ekki alla mjög væna. Stærsta fiskinn dró Friðleifur Stefánsson, Reykjavík, lúðu sem vóg 21,1 kg. Hefur þurft dijúg átök við að innbyrða það heilag- fiski. Verðlaun voru og veitt fyrir fjölbreytni í físktegundum sem rötuðu á öngla keppenda og þar urðu jöfn Helga Tómasdóttir, Vestmannaeyjum og Friðleifur Stefánsson, Reykjavík, með 8 tegundir hvort. Þetta mót SJÓVE þótt takast sérlega vel í alla stað og ánægja keppenda auðsæ að loknu móti. Mikill Qöldi bæjarbúa mætti á bryggjuna þegar bátamir komu að landi og upphófst þar líflegt bryggjuspjall. Mótinu lauk síðan með veglegu lokahófi í Samkomu- húsinu. — hkj. ,SnigIamir“ á ferð, en þeir verða heiðursgestir á sýningunni, Mótorhj ólasýn- ing í Hollywood MÓTORHJÓLASÝNING verður haldin dagana 27. og 28. maí nk. á vegum Hollywood og Valþórs Ólasonar. Sýningin verður í Hollywood og verða þar hjól frá Kawasaki GPZ 1000, RX, Suzuki og Yamaha. Einnig verða þar Jet-ski og fjór- hjóla torfærutröll frá Kawasaki. Heiðursgestir verða meðlimir bif- hjólaklúbbsins Sniglamir, sem koma á hjólum sínum, rúmlega 100 talsins. Hollywood models sýna leðurfatnað og annan mótorhjóla- fatnað frá Henco hf. og Karli H. Cooper. Á efri hæð skemmtistaðar- ins mun síðan hljómsveitin Greif- amir leika bæði kvöldin. (F réttatilkynning;) HOMEBLEST ... ínújumumbúóum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.