Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 „Er þetbc*- „X&lkcini má ntélum,' „nauteítókr meb hvitkáli''elí>(x „lo.sangal'?" áster___ ¥ ... aðsameinast. HÖGNI HREKKVtSI FB V SVOhlA, Hættl) þessu." Þessir hringdu . Á sjómannaþjóðin ekkert farþegaskip? Kona hringdi: „Getur það verið að við íslend- ingar, þessi mikla sjómannaþjóð, eigum ekkert farþegaskip sem sigli milli landa? Er ekki eitthvert togarafélag eða skipafélag sem gæti tekið þó ekki væri nema einn farþega? Eg spyr vegna manns sem ekki þolir að fljúga en þarf að komast til Danmerkur í júní. Mér þætti vænt um ef einhver gæti sagt mér hvert á að leita í vanda sem þessum." Viðmiðunarverð á girðingarstaurum Haraldur Samsonarson hringdi: „I Morgunblaðinu 21. maí rakst ég á auglýsingu frá Stéttarsam- bandi bænda, sem mér kom dálítið skringilega fyrir sjónir. Þar var auglýst viðmiðunarverð á girðing- arstaurum. Mér þætti gaman að vita hvort það er heimilt sam- kvæmt lögum að setja slíkt við- miðunarverð. Ef menn mega ekki taka sig saman og selja hlut fyrir ákveðið verð, þá finnst mér skrýt- ið ef kaupendur geta bundist samtökum um að kaupa hlut á ákveðnu verði. Mér þætti gott ef einhver gæti frætt mig um rétt- mæti svona viðskiptahátta." Það þarf að vökva gjafatrén Lesandi hringdi: „Nú er verið að hvetja fólk til þess að gefa tré tii fegrunar borg- arinnar á 200 ára afmælinu. Tré hafa áður verið gróðursett hér á vegum borgarinnar, t.d. í Laugar- nesinu þar sem ég bý. En síðan voru hríslumar bara settar á guð og gaddinn og greinilega ætlast til þess að drottinn vökvaði þær. Það er ekki nóg að hoia hríslunum niður, það verður líka að hlú að þeim og vökva þær í þurrkum, svo þær drepist ekki. Ég sé í Hafnar- firði að þar er komið með dælu- bíla og tré á opinberum svæðum vökvuð. Þar gætum við Reykvík- ingar lært af Hafnfirðingum.“ Svar við fyr- irspurn um krufningu Vegna bréfs í dálki yðar um „Hver ákveður kmfningu"? skal eftirfarandi tekið fram. Kmfningar em gerðar af tvennskonar ástæð- um. 1. Ef óvíst er um orsök dauða eða ef gmnur er um vofeiflegt and- lát. Samkvæmt lögum má læknir ekki gefa út dánarvottorð ef dánarorsök er óviss. An dánar- vottorðs verður hinn látni ekki jarðsunginn. í því tilfelli getur aðstandandi hins látna ekki neit- að kmfningu. Þetta er ákvörðun Alþingis og verður ekki breytt nema lögum verði breytt. 2. I vísindaskyni. Hér ber að leita álits nánasta aðstandanda. Ef aðstandandi sjmjar um leyfí ber lækni að virða þá ákvörðun. Landlæknir. Spil óskast Kæri Velvakandi. Ég heiti Hrönn Magnúsdóttir, er 10 ára og á heima á Fumgmnd 81,200 Kópavogi. Við amma emm að safna spilum. Em ekki einhveijir sem eiga spil í fómm sínum sem þeir em hættir að nota eða vantar kannski í. Svo em sjálfsagt margir sem eiga spila- safn sem þeir em hættir að hafa áhuga á. Ef svo er þá þigg ég allt slíkt með þökkum. Við söfnum líka jókemm. Hrönn M. Víkverji skrifar Víkverji fékk ekki alls fyrir löngu tækifæri til að skoða þá viðamiklu hótelbyggingu sem risið hefur af gmnni í Hveragerði og kynna sér þá starfsemi sem stefnt er að, að þar verði. Það var athygl- isvert að hitta að máli verktakann sem að þessu stendur, Helga Þór Jónsson, fertugan Reykvíking sem fékk hugmyndina þegar hann vann við uppsetningu Tívolís þar eystra. Hann sá í hendi sér hvað staðurinn er vinsæll af fólki á Stór-Reykjavík- ursvæðinu og sem gisti- og hvíldar- staður hefur Hveragerði ýmislegt umfram önnur sveitarfélög. Stað- setningin ræður ekki minnstu um hvað höfuðborgarbúum og öðmm á Suðvesturhominu er auðvelt að skreppa austur fyrir Fjall til hvfldar og hressingar, ekki endilega að sumri til, heldur miklu frekar í skammdeginu. Jarðhitinn ræður að sjálfsögðu úrslitum um það að Hveragerði er kostameiri gististað- ur en flestir staðir aðrir og enginn vafí er á þvi að margir útlendingar eiga eftir að dveljast þar eystra, bæði til hvíldar og ekki síður til endurhæfíngar, því Helgi hefur í hyggju að veita læknisþjónustu á staðnum og þar verður vatnsgufu- bað, auk sánu og leirbaða, en umfram allt hefur verið lokið við skemmtilega sundlaug og verið er að leggja síðustu hönd á hana með því að reisa við hana vatnsrenni- braut sem komin er til landsins og verður 60 metra löng og 6 metra há. Margvísleg önnur tæki verða þama gestum til skemmtunar og uppbyggingar, s.s. æfingasvæði fyrir golf, tennisvöllur, þrekæfinga- stöð og sitthvað fleira sem aðdrátt- arafl hefur. Hótelbyggingin og umhverfið fyrír austan er athyglisverður vott- ur um einstaklingsframtak sem á að geta komið mörgum að góðu gagni. Helgi hefur sjálfur fylgzt með allri vinnu og stjómað verkinu. Hann hefur mikia þekkingu á slík- um störfum vegna atvinnu sinnar og hefur tekizt að þrýsta öllum kostnaði rækilega niður með til- boðum, bæði hér heima og erlendis. Telur hann sig hafa sparað milljónir króna með aðhaldi og útboðum og muni byggingin rísa fyrir lægsta verð sem í boði sé nú um stundir. Hann er ánægður með snögg við- brögð sveitarstjómarmanna í Hveragerði og hefur tryggt sér góða lóð til viðbótar þeirri sem nú verður nýtt. Þegar Hótel Örk, en svo mun það heita, verður opnað um miðjan næsta mánuð verða þar 59 tveggja manna herbergi í sér- stakri gistiálmu sem er alveg út af fyrir sig og eru þau öll svo rúmgóð að auðvelt er að breyta_ þeim í þriggja manna herbergi. Á næstu grösum eru svo borðsalir, en heilsu- rækt í kjallara. Ef allt gengur að óskum hyggst Helgi bæta við gisti- herbergjum í viðbótarbyggingu vestan aðalhótelsins og er gert ráð fyrir henni í upphaflegri áætlun. Þar er ráðgert að risið geti mótel í tengslum við aðalhótelið og alla starfsemina á svæðinu. Þar verður sérstakur listigarður, sundlaug og leiktæki undir suðurvegg, svo enn sé eitthvað nefnt. Þegar opnað verður eru einungis 6 mánuðir frá því framkvæmdir hófust. Hótelbyggingin verður 5.000 fermetrar. Auk þess sem áður er talið má nefna ráðstefnusali, heita potta og hlaupabrautir. Herbergin verða búin vestur-þýzkum hús- gögnum, en hönnun byggingarinn- ar, sem Kjartan Sveinsson, teiknaði, er þannig úr garði gerð, að einingar hinna ýmsu þátta í starfseminni eru mjög afmarkaðar þannig að skipu- lag hússins er hentugt þrátt fyrir fjölbreytta starfsemi. Hótel Ork getur tekið á móti liðlega 1.000 gestum í mat í einu. .Aðalsamkomu- salur, sem jafnframt er danssalur, rúmar nokkur hundruð gesti í sæti, en sá salur er við hliðina á aðalmat- sal hótelsins sem rúmar á annað hundrað gesti í sæti. Þá er skyndi- bitastaður á jarðhæð við hliðina á búningsklefum fyrir sundlaug og einnig er kjötvinnsla á jarðhæð, en eldhúsið er við hliðina á aðalmatsal. Á efstu hæð veitingaálmunnar er aldingarður undir gleri þar sem gestir geta setið í sól og notið útsýn- is. Þessi garður er arkarlaga og þaðan er nafnið komið. Þegar hafízt var handa um bygg- inguna í vetur voru settir niður 5.000 túlípanar og eru þeir nú farnir að springa út. Þannig er einnig gróðursett merkileg starf- semi í þessu heillandi bæjarfélagi, mikilvæg viðbót við aðra starfsemi þar sem hefur dregið að sér athygli og fjölda fólks, ekki sízt þegar Eden fyllist um hveija helgi. Vík- veiji fékk sér að vísu ekki kaffi þar að þessu sinni, heldur bauð hann Helga (sem fer senn að verða aura- lítill!)í kaffí í gamla veitingahúsinu þar á staðnum, ásamt Áma Johnsen, þingmanni og áhuga- manni um uppbyggingu í kjördæm- inu, en veitingahúsið rekur frétta- ritari Morgunblaðsins í Hveragerði og að sjálfsögðu af miklum myndar- skap eins og við fengum að reyna. Öll starfsemi í Hveragerði á eftir að njóta góðs af þjónustu Hótels Arkar sem dregur væntanlega fjölda manna austur, bæði innlenda ferðamenn og ekki síður erlenda. Við eigum að leggja áherzlu á ferðaþjónustu, hún er mikilvæg kynning á landi okkar, auk þess sem hún er þörf viðbótarbúgrein. Við eigum að lyfta undir hana og þá sem hætta fjármagni sinu í mikil- væga landkynningu og auka fjöl- breytnina í atvinnurekstri okkar. Nú er verið að fjargviðrast út af Reykjavíkurflugvelli, jafnvel halda einhvetjir pólitíkusar að unnt sé að slá sér upp með því að lýsa yfír að þeir hyggist leggja Reykjavíkur- flugvöll niður og byggja annan nýj- an fyrir milljarði króna. Allt út i bláinn. Það væri þá nær að leggja þessa pen- inga i fullkomna spor- braut milli Reykjavíkur og Keflavík- urflugvall- ar, að flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það gæti verið vit í því að nýta Leifs- flugvöll með þeim hætti, jafnvel fyrir innanlandsflug. Víkveiji hefur heyrt Gísla í Ási hreyfa þessari athyglisverðu hug- mynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.