Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Áhorfendur hylltu Kristján hvað eftir annað með því að rísa úr sætum og klappa honum lof í lófa. Morgunblaðið/Skapti Hrifning á tónleikum Kristjáns Jóhannssonar á Akureyri Tönlist Sverrir Pálsson Löngum hefir verið sagt, að enginn sé spámaður í foðurlandi sínu, að minnsta kosti sé erfitt að verða það. Ekki sannast það á Kristjáni Jóhannssyni. Þegar hann kemur heim til Akureyrar til að syngja, er honum fagnað þar af hjartanleik og hlýju. Akureyringar nefna hann gjama Kristján „okkar“ Jóhannsson, svipað því sem Þjóð- veijar kölluðu Pétur Jónsson „unser Peter" á sínum tíma. Sá er munur- inn, að í Þýskalandi var Pétur aökomumaður, sem Þjóðveijar tóku ástfóstri við, en á Akureyri er Kristján fæddur og fóstraður. Það- an er hann sprottinn, og þaðan var hann nestaður að eðli og erfðum til sigurgöngunnar út í hinn stóra og harða heim, þar sem hann hefir brotist til mikils frama og þar sem listahróður hans mun vaxa lengi enn, ef að líkum lætur. Vitaskuld hefði hann komist skammt á hæfi- leikanestinu einu saman, en sjálfur hefir hann lagt til kapp, dugnað og óbilandi trú á, að það skuli takast, sem fyrir honum vakir. Góð gáfa er aldrei annað en smíðaefni, sem manni er fengið í hendur til að gera úr fagran grip. Þetta hefír Kristjáni tekist. Hann er fyrir löngu viðurkenndur listamaður og stór- söngvari, hafínn yfir lágkúrulegt nagg og níð öfundarmanna, sem enginn tekur mark á, því það Iætur Kristján Jóhannsson kunnir fyrir sitthvað fremur síðustu árin en að flykkjast á tónleika og úthella þar tilfinningum sínum. Nei, það var ekki síður vegna þess, að hér var á ferð stórbrotinn hæfileikamaður og söngvari á heimsvísu, og hann náði sannarlega tökum á tilheyrendum sínum og lét Júlía Egilsdóttir færði Kristjáni blóm að loknum tónleikunum. hlægilega í eyrum. Hann vekur hrifningu áheyrenda sinna með glæstum listflutningi, sem nær til hjartans, og það er löngum besti mælikvarðinn á góða list, hve auð- velda leið hún á að hjörtum manna. Það var ekki eingöngu vegna þess að Kristján „okkar" Jóhanns- son var að syngja í íþróttaskemm- unni á Akureyri á laugardagskvöld- ið, að þangað komu mörg hundruð tónleikagestir, sem létu aðdáun sína óspart í ljós með langvinnu lófataki og hrifningarhrópum og risu allir úr sætum hvað eftir annað til að hylla söngvarann. Eru Akureyringar þó þá ekki ósnortna. Til voru þeir, sem sátu í lokin voteygir með kökk i hálsi, ekki af hryggð, heldur af gleði yfir þeirri fegurð, sem þeir höfðu fengið að njóta. Efnisskrá Kristjáns var þrískipt. í fyrsta kafla voru nokkur íslensk lög, sem faðir Kristjáns, Jóhann heitinn Konráðsson, söng oft og voru honum mjög kær. Má vera, að það hafi nokkru ráðið um val þeirra, að nú söng Kristján á heima- slóð og á sjálfan afmælisdaginn sinn, og því hafi hann með þessu viljað höfða til upphafs síns og uppruna. Fyrstu fjögur lögin söng Kristján vel og smekklega, en þegar kom að tveimur lögum eftir hið snjalla og vandvirka tónskáld Jó- hann Ó. Haraldsson óx söngvaran- um ásmegin og skilaði þeim afburða vel. Hið sama má segja um lögin þijú í miðkaflanum, sem öll voru eftir Sigvalda Kaldalóns. Þótt ljóðasöngur liggi mæta vel fyrir Kristjáni, er hann þó fyrst kominn í veldi sitt, þegar í óperuvið- fangsefnin er komið. Þar syngur hann eins og sá, sem valdið hefir, enda er ekkert um það að efast. Fjórar glæsiaríur á síðasta hluta efnisskrárinnar og ein til viðbótar færðu mönhum sanninn um það. Sá söngur þoldi fyllilega samanburð við flutning frægustu veraldar- söngvara, bæði tæknilega og tón- listarlega. Er þá mikið sagt, en þó ekki ofsagt. Saman fóru raddfegurð og raddstyrkur, kunnátta og smekkvísleg túlkun. Þó er ef til vill enn ótalin perla þessara tónleika, flutningur „Tón- anna“ eftir Sjöberg, aukalags, sem að verður lengi minnisstætt í flutn- ingi Kristjáns sem hrein opinberun sakir tærleika, fínleika og væmnis- lausrar viðkvæmni, líkust svalandi dögg eftir heitan dag. Undirleikarar Kristjáns veittu honum í senn styrkan stuðning og þjála fylgd eins og vera ber, þeir Kristinn Óm Kristinsson í íslensku lögunum og Maurizio Barbacini í óperuaríunum. íþróttaskemman á Akureyri, sem var í öndverðu reist yfír veghefla, skurðgröfur og jarðýtur Akureyrar- bæjar, en var síðar tekin til annarra þarfa, hefir reynst hinn þokkaleg- asti tónleikasalur, þegar litið er til hljómburðar, þótt flest annað vanti, sem annars staðar þykir lágmark hins boðlega. Sennilega verður langt að bíða þess, að Akureyringar eignist gott tónlistarhús, jafnvel þótt kosið yrði til bæjarstjómar á tveggja ára fresti með viðeigandi heitstrengingum og loforðalistum frambjóðenda. En meðan við bíðum, ætti það ekki að vera áhorfsmál bæjarstjómar Akureyrar að kaupa góðan konsertflygil til notkunar í Skemmunni, þegar á þarf að halda, og smfða utan um hann tryggan skáp til að geyma hann í þess á milli, svo að ekki þurfi að hlaupa um allan bæ í leit að hljóðfæri til flutnings aftur og fram með vem- legri sköddunarhættu, ef von er á gesti. Sv.P. Kaupmannasamtök íslands: „Ætlum að beita okkur fyrir sama vöruverði á sömu vöru um land allt“ — segir Magnús E. Finnsson framkvæmdastjóri Kaupmannasamtök íslands hyggjast beita sér fyrir því á næstunni að sama vöruverð verði greitt fyrir sömu vöru hvar sem er á landinu. Fundur var haldinn á vegum samtakanna í vikunni með kaupmönnum víðsvegar af landinu og fulltrúum heildsala þar sem rætt var um mögulegar Ieiðir til þess að Iækka vöruverð. „Kaupmenn úti á landi sérstak- lega óska eftir því að vöruverð verði hið sama alls staðar á landinu að heildsöluaðilinn taki að sér að greiða kostnaðinn, sem í raun þýðir að íbúar höfuðborgarsvæðisins myndu greiða flutninginn út á land. Kaupmannasamtök íslands eru landssamtök og þetta er krafa okkar manna úti á landi og þar af leiðandi krafa Kaupmannasamtaka íslands," sagði Magnús E. Finnsson framkvæmdastjóri Kaupmanna- samtakanna. Hann sagði að sterk rök væru færð að því af hálfu þeirra kaup- manna sem versla úti á landi að þeir ættu mjög erfitt með að selja fólki sömu vöru og seld er í Reykja- vík miklu dýrara á meðan að þetta fólk tekur þátt í því að afla þess gjaldeyris sem til þarf til að kaupa vöruna inn í landið. Fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins þýddi þetta Frá fundi kaupmanna og heildsala sem haldinn var á vegum Kaup- mannasamtaka íslands i vikunni. afar litla vöruhækkun e.t.v. 1% eða svo til að hægt verði að greiða niður vöruverð úti á landi. „Það er dálítil undiralda meða! kaupmanna um að heildsöludreif- ingin á landinu hafí ekki tekið eins mikinn þátt í að lækka vöruverð og kaupmenn hafa gert síðustu mánuði. Kaupfélögin hafa jafnvel ekki getað sýnt fram á lægra vöru- verð úti á landi þrátt fyrir loforð um það á síðasta ári,“ sagði Magn- ús. Á fundinum voru rædd ýmis önnur atriði f samskiptum heildsala og kaupmanna. „T.d. eru greiðslu- kjör einstakra kaupmanna mjög misjöfn og höfum við í hyggju að safna upplýsingum um greiðslukjör hjá kaupmönnum sjálfum. Sumir kaupmenn fá lengri greiðslufrest en aðrir, aðrir borga enga vexti af vöruúttekt o.s.frv. Það virðist ekki sama hver á í hlut og getur mismun- ur á vöruverði af þessum sökum verið allt að 15%. Einnig er Ijóst að stórmarkaðir hafa verulega betri kjör en smærri kaupmenn," sagði Magnús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.