Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Reikningar bæjarsjóðs Kópavogs 1985: Fjármálasljórn vinstri meirihlut- ans - gegndarlaus skuldasöfnun Eftir Richard Björgvinsson í lok ársins 1984 og fram á árið 1985 komst bæjarsjóður Kópavogs undir stjórn vinstri meirihluta í mikil greiðsluvandræði. Lausafjár- staðan hafði farið hríðversnandi allt frá árinu 1983. Vinstri meiri- hlutinn gerði sér lengi vel ekki grein fyrir þessu, en reyndi síðan í lengstu lög að þræta fyrir ástandið og leyna því. Loks er kom fram á sl. ár eftir stöðugar ábendingar sjálfstæðis- manna í bæjarstjóm sáu vinstri menn sitt óvænna og viðurkenndu staðreyndir. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1985 var því ákveðið að veija 54,2 milljónum króna til að greiða vanskil og lausaskuldir, sem hlaðist höfðu upp. Til þess að svo mætti verða þurfti greiðslujöfnuður eða afgangur af rekstri að vera veruleg- ur og áætlað að hann yrði 86,6 milljónir króna. í reynd varð þessi afgangur 20,8 milljónir samkvæmt reikningum ársins 1985, sem nú liggja loks fyrir. Mismunurinn var um 66 milljónir. Vinstri meirihlut- inn hefur dregið í lengstu lög að leggja fram reikninga bæjarins. Reikningamir em dagsettir 5. maí sl. og vom tilbúnir fjölfaldaðir ör- fáum dögum seinna, en loks lagðir fram í bæjarráði 20. maí. Leyna átti minnihlutann útkomunni eins lengi og fært var. í stað þess að nota 54,2 milljónir króna til að greiða vanskil og lausa- skuldir hafa verið tekin ný lán að upphæð 55,6 milljónir króna. Lausaskuldir hafa aukist um 14,4 milljónir, námu um áramót 125,9 milljónum og skuldabréfalán hafa á árinu aukist um 41,2 milljónir króna, námu um áramót 140 millj- ónum ef afborganir þessa árs em ekki dregnar frá og skuldimar því Richard Björgvinsson samtals nærri 266 milljónum króna, eða rúmar 18 þúsund krónur á hvem einasta íbúa bæjarins. „Lausafjárstaða bæjar- ins hefur batnað tölu- vert, en allt var það gert með nýjum lántök- um. Það hækkar í budd- unni hjá mönnum þegar þeir taka ný lán o g þeir eiga meira skotsilfur í svipinn, en þeir eru ekki betur staddir fjár- hagslega heldur verr, því greiða þarf vexti af lánum.“ Lausafjárstaða bæjarins hefur batnað töluvert, en allt var það gert með nýjum lántökum. Það hækkar í buddunni hjá mönnuin þegar þeir taka ný lán og þeir eiga meira skotsilfur í svipinn, en þeir eru ekki betur staddir fjárhagslega heldur verr, því greiða þarf vexti af lánum. Fjár- málastjórn vinstri meirihlutans og bæjarstjóra hans felst í því að velta öllum vanda á framtíð- ina, enda þreyttir menn að hætta. Allur rekstur bæjarins fór úr böndum, í heild fór hann nær 17% fram úr áætlun. Það vekur sérstaka athygli hvað stjórn bæjarins hækk- ar mikið, fór í heild um 24% fram úr áætlun og hækkaði hlutfallslega miðað við árið 1984 um rétt tæp 50%. í vexti og fjármagnskostnað voru greiddar 24,6 milljónir króna, um 5 milljónum meira en ráð var fýrir gert enda eðlilegt þegar menn lifa á lánum. Þetta er árangurinn af fjár- málasjórn vinstri meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs eftir átta ára setu. Nú er kominn tími til að gefa þessum sundurlynda þríeykis vinstri meirihluta frí frá sljórn Kópavogskaupstaðar og fela hana einum styrkum samhentum flokki, Sjálfstæðisflokknum. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og skipar fyrsta sæti framboðslista flokksins. Vortónleikar Mótettukórsins í kvöld: Þijú íslensk tónverk frumflutt ÞRJÁR mótettur íslenskra tón- skálda verða frumfluttar á ár- legum vortónleikum Mótettu- kórs Hallgrímskirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, í Kristskirkju. Verkin voru samin að beiðni NOMUS, Nordisk Musiksamar- bejde, en tónskáldin eru Hjálm- ar H. Ragnarsson, Gunnar Reynir Sveinsson og Jónas Tómasson. Stjórnandi tónleik- anna er Hörður Áskelsson organisti. Önnur verk efnisskrárinnar eru þijú sálmalög eftir Þorkel Sigur- bjömsson og verk eftir Benjamin Britten, Jubilate Deo. Er það flutt við orgelundirleik Þrastar Eiríks- sonar. Eftir hlé verða eingöngu flutt verk þýskra tónskálda. Eru þau Unser Leben ist ein Schatten eftir Johannes Bach sem var einn af frændum J.S. Bachs. Þrír kór- félagar syngja þar stutta ein- söngskafla, þau Guðrún Finn- bjamardóttir, Sverrir Guðmunds- son og Magnús Baldvinsson. Þá er verk eftir Heinrich Schiitz, Die mit Tránen Sáen Richte mich Gott eftir Mendelssohn og Wamm ist das Light gegeben eftir Jo- hannes Brahms. Er það vinsælt verk í mörgum þýskumælandi löndum og vel þekkt. Sem fyrr segir em þrjú íslensk verk á tónleikunum fmmflutt en verkin vom samin að beiðni NOMUS á síðasta ári. Jón Ás- geirsson samdi einnig verk að beiðni NOMUS en Dómkórinn fmmfiutti það fyrir nokkm. Verk- dýrkun í lúthersku kirkjunni. Um svipað leyti og hann samdi verkið vann hann einnig við tónlist í leik- riti, Agnes, bam Guðs, þar sem hann hefði bæði samið sjálfur tón- list og notað tónlist úr guðsþjón- ustunni. Því hefði María verið sér ofarlega í huga en upphafsstef verksins notaði hann einnig í leik- sýningunni. in hafa verið kynnt nokkuð á Norðurlöndum en ekki fiutt fyrr. Gunnar Reynir Sveinsson tón- skáld sagði í samtali við Morgun- blaðið að beðið hefði verið um kirkjuleg tónverk sem flytja mætti á Norðurlöndum án þýðingar. Því hefði hann valið að semja við latneskan texta, Gloríu. Gunnar Reynir kvaðst hafa samið allnokk- uð af kirkjulegum verkum, m.a. tvær messur. Um þessar mundir vinnur hann að tónsmíðum fyrir leikrit og kvikmynd. Hjálmar H. Ragnarsson tón- skáld sagðist hafa valið textann Ave Maria, þessa kaþólsku, meðal annars vegna þess að honum fyndist fara of lítið fyrir Maríu- Mótettukór Hallgrímskirkju heldur árlega vortónleika sina í Kristskirkju í kvöld. Þijú íslensk tónverk verða frumflutt á tónleikum Mótettukórsins en þau eru eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jónas Tómasson. Jónas Tómasson tónskáld sem valdi 23. Davíðssálm sagðist hafa samið verkið við Latneska textann en síðan við þann íslenska þegar ákveðið var að taka það til flutn- ings hér á landi. Sagðist hann hafa breytt verkinu lítillega. um leið. Jónas hefur samið kirkjutón- list, sem Sunnukórinn á ísafirði hefur flutt, og nýverið var verk hans, Lofsöngur Maríu, flutt á Ísafírði og Bolungarvík en það er samið fyrir sópran, hom og orgel. Félagar Mótettukórs Hall- grímskirkju eru um 40 á aldrinum 18 til 40 ára en kórinn stofnaði Hörður Áskelsson haustið 1982. Sumarið 1984 fór kórinn í söng- ferð til Þýskalands, um miðjan júní er ráðgert að sækja Norð- menn heim og halda nokkra tón- leika í Osló og nágrenni. Tónleik- amir í kvöld hefjast klukkan 20.30 og em seldir aðgöngumiðar við innganginn. Félagar Listvina- félags Hallgrímskirkju fá ókeypis aðgang gegn framvísun félags- skírteina. Tæplega 400 símtöl Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins vegna borgarstjómarkosning- anna í Reykjavík sátu fyrir svör- um í Valhöll, húsi flokksins, á laugardag. Var auglýst, að borg- arbúar gætu hringt og lagt fyrir frambjóðenduma spumingar um borgarmálefni og stefnu Sjálf- stæðisflokksins. Alls var tæplega 400 manns svarað. Á myndinni sjást þeir Hilmar Guðlaugsson (t.v.) óg Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, borgarfulltrúar, að störfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.