Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1986 55 Að aflífa sendiboðana í stað þess að leysa vandann eftirHaukMá Haraldsson Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavík- ur, ritar grein í Morgunblaðið 13. maí sl. Grein þessi er svar við grein Siguijóns Valdimarssonar, ritstjóra sjómannablaðsins Víkings, frá 29. apríl, sem aftur var athugasemd við grein sem Guðmundur hafði skrifað í Morgunblaðið 22. apríl. Hér er því í raun um ritdeilu þeirra tveggja að ræða. Ég hins vegar sé ástæðu til að blanda mér í deiluna, ekki síst vegna þess að deilt er um greinaflokk sem ég skrifaði í Sjó- mannablaðið Víking, 3. tbl. þessa árs. Greinaflokkur þessi samanstend- ur af inngangi mínum, sem nefna mætti hugleiðingu; viðtali við Amar Jensson hjá Fíkniefnalögreglunni um þátt sjómanna í smygli og neyslu fíkniefna og loks viðtölum við tvo sjómenn sem um árabil hafa fengist við bæði smygl og neyslu á þessum efnum. Margvísleg viðbrögð Báðir þessir sjómenn gefa hrika- lega lýsingu á ástandi mála, annars vegar á farskipaflotanum og hins vegar á fískiskipaflotanum. Það er því eðlilegt að viðbrögð manna verði margvísleg, ekki síst þeirra sem lqömir hafa verið til forystu í samtökum sjómanna. Enda hafa sumir þeirra reiðst þessum grein- um, eins og Guðmundur Hallvarðs- son, en aðrir hafa litið svo á að þama hafí verið opnuð umræða um ákveðið vandamál sem leysa þurfí. Sú var einmitt skoðun okkar Sigur- jóns ritstjóra, þegar við ákváðum að taka mál þetta til umQöllunar. Ég tel hins vegar ekki að lausn vandans felist í því að hengja sig í aukaatriði en láta lönd og leið þær alvarlegu upplýsingar sem fram koma í þessum viðtölum. Nafnleysi viðmælenda minna er til dæmis, að mínu mati, algert aukaatriði en ákaflega nauðsynlegt til að vemda þá menn sem við var rætt og ekki síður til að fá þá til að tjá sig. Athugasemdir starfsmanna Fíkni- efnalögreglunnar um markleysi slíkra upplýsinga eru í raun fárán- legar, ekki síst þegar tillit er tekið til þess að þessi deild lögreglunnar byggir stóran hluta starfsemi sinnar á nafnlausum upplýsingum í sjálfvirkan símsvara. Spurningum svarað En snúum okkur að athugasemd- um og spumingum Guðmundar Hallvarðssonar. 1. Spurt er um forsendur eftirfar- andi setningar í inngangi mín- um: „Fíkniefnaneysla virðist ótrúlega útbreidd um borð í ís- lenskum skipum, jafnt farskip- um sem fískiskipum." Svar: Þessar upplýsingar hef ég úr viðræðum við starfandi sjómenn, fískimenn sem farmenn, um langt árabil. Hér er því ekki á ferðinni nýr sannleikur hvað mig snertir og mér þykir með ólíkindum ef Guð- mundur Hallvarðsson hefur ekki heyrt um þetta rætt. Tölulegar uppiysingar eru að sjálfsögðu ekki fýrir hendi, enda málið aldrei verið rannsakað svo ég viti. Enda aukaat- riði. Aðalatriðið er að vandinn er fyrir hendi og verður ekki leystur nema hann sé viðurkenndur. 2. Spurt er um nöfn skipa, þar sem mannskapurinn sé keyrður svo hart áfram að hann verði að fá sér spítt til að halda sér vakandi. Svar: Mér kemur ekki til hugar Haukur Már Haraldsson „Viðbrögð í mín eyru hafa sýnt mér að það haf i verið rétt að opna þessa umræðu; hún geti orðið sjómannastéttinni til góðs þegar til fram- tíðar er litið.“ að birta slík nöfn. Mér hafa verið gefín þau upp, en í fyrsta lagi gætu þau beint athygli að viðmæl- endum mínum, í öðru lagi legði slíkt mér á herðar sönnunarbyrði sem ég gæti ekki staðið við vegna nafnleys- is heimildarmanna minna og f þriðja lagi lít ég ekki á skipsnöfn sem neitt aðalatriði. Við erum enn og aftur um tala um ákveðið ástand. Vandamál sem þarfnast viðurkenn- ingar svo hægt sé að leysa það. Ég get bætt því við að mér hafa einnig verið sögð nöfn fjölmargra fyrirtælq'a hér á landi sem haldið er gangandi á fíkniefnasmygli og -sölu eigendanna. Raunar einnig annars konar smygli, svo sem á myndböndum. En mér dettur heldur ekki í hug að birta þau nöfn, af sömu ástæðu og fyrr er getið. Loks er rétt að leiðrétta þann misskilning, sem mér fínnst að Guðmundur Hallvarðsson sé hald- inn; það er að allir sjómenn á togur- um séu sagðir fá sér örvandi lyf til að halda sér vakandi ef lengi er staðið. Lýsing viðmælanda míns er að sjálfsögðu á atferli fíkniefna- neytenda, ekki annarra. 3. Annar viðmælandi minn sagði í viðtalinu að enginn efí væri á því að jafnaðarmerki mætti setja milli vinnuslysa á sjó, jafnvel dauðaslysa, og fíkniefnaneyslu. Guðmundur Hallvarðsson segir í grein sinni að „hvorki rök sé staðreyndir hafí komið fram hjá Víkingsmönn- um ... varðandi þá fullyrðingu .. að slys á sjómönnum séu vegna eiturlyfjanotkunar ...“ (leturbr. mín; HMH). Svar: Sú alhæfíng sem felst í feitletruðu orðunum er fráleit, enda hvergi gefíð í skyn eða sagt að öll slys á sjómönnum séu eiturlyfja- neyslu að kenna (orðið „eiturlyf" er raunar frá Guðmundi komið en ekki mér). Hins vegar kom fram hjá viðmælanda mínum að hann vissi með vissu um slys af völdum fíkniefnaneyslu. Ástæðuna sagði hann vera þá, að menn undir áhrif- um ly§a eða í „lyflaþynnku" væru vanhæfari til að gæta sín en aðrir á þeim hættulega vinnustað sem togarar óneitanlega geta verið, ef menn gæta sín ekki. Hér er því verið að ræða um slys á þeim hluta sjómanna sem fíkniefna neyta. Eins og Guðmundur bendir rétti- lega á í grein sinni er há slysatíðni meðan fslenskra sjómanna mikið áhyggjuefni. Mér hefði því þótt eðlilegt að upplýsingar viðmælenda míns í Víkingi yrðu til að fá fram aðgerðir sem bætt gætu ástandið. Guðmundur kýs hins vegar að láta y sem hér sé um lygi að ræða, án þess þó, að því er virðist, að kanna það frekar eða renna stoðum undir þá skoðun sína. Slík afstaða er ekki til þess fallin að leysa vanda- mál. Vangaveltur um fjölgun' eða fækkun slysa á sjó í þessu sambandi eru út í hött, því enginn veit hve mörg slys við erum að tala um. En hvert eitt þeirra er einu of mikið. Lokaorð Ég hef í grein þessari látið liggja á milli hluta köpuryrði formanns Sjómannafélags Reykjavíkur og ritstjóra Sjómannablaðsins Víkings hvors í annars garð. Þau eru ekki mitt mál. Ég hafði hins vegar haldið að allar þær upplýsingar sem fram koma í viðtölunum í Víkingi ættu að vera fengur þeim sem láta sig málefni sjómanna varða. Ekki vegna eðlis þeirra, því þær eru vægast sagt dapurlegar, heldur vegna þess að þær gefa tilefni til aðgerða í málum sem margir hafa vitað um en enginn hefur þorað að færa upp á yfírborðið. Viðbrögð í mín eyru hafa sýnt mér að það hafi verið rétt að opna þessa um- ræðu; hún geti orðið sjómannastétt- inni til góðs þegar til framtíðar er litið. En til þess að svo megi verða, hljóta þeir sem að málefnum sjó- manna starfa að verða að viður- kenna að vandamálið sé fyrir hendi. Þá fyrst er hægt að takast á við það. Það leysir engan vanda að gera eins og kóngamir í gamla daga, þegar þeir tóku af lífi þá sendiboða sem færðu þeim váleg tíðindi. Vandinn helst þá óbreyttur eftir sem áður. '' Höfundur er kennari við Iðnskól- ann ÍReykjavík og lausamaður I blaðamennsku. Grétar D. Pálsson, fráfarandi forseti, og Marta Sigurðardóttir, núver- andi forsed JC á íslandi. „Hlakka til að tak- ast á við þetta“ - segir Marta Sigurðardóttir, fyrsti kvenforseti JC á Islandi 25. LANDSÞING JC var haldið á Hótel Sögu 15. til 18. maí sl. Á þinginu voru haldin fimm nám- skeið og var sérstök dagskrá fyrir börn alla dagana. I lok þingsins tók Marta Sigurðardótt- ir við forsetaembætti JC-hreyf- ingarinnar, en hún er fyrsta konan sem gegnir þvf embætti hér á landi. „Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka til að takast á við þetta sagði Marta Sigurðardótir í samtali við Morgunblaðið. „Forsetinn er kosinn í þetta embætti með árs fyrirvara, og við vorum tvö í fram- boði í fyrra." Marta gekk í JC-hreyfínguna fyrir 8 árum og er önnur konan sem gengur til liðs við JC hér á landi. Hún er fóstra og vinnur allan dag- inn á bamaheimili Kleppsspítalans. „Þetta er algjört sjálfboðastarf sem unnið er á kvöldin, um helgar og í sumarleyfum. Forseti JC mótar stefnu hreyfíngarinnar, og kemur fram sem fulltrúi út á við, innan lands sem utan. Það má segja að JC-hreyfingin sé nokkurs konar félagsmálaskóli, og fólk þjálfast þar í alls konar félagsstörfum." Marta sagði að forsetaembættinu fylgdu ferðalög víða um heim, eftir u.þ.b. viku er ferðinni heitið til Finnlands og í ár em janframt fyrirhuguð ferðalög til Danmerkur, Svíþjóðar ogJapan. EQPP —r/l946lf 1986^ ☆ ☆ it \ it ☆ ☆ HVAÐ GERIST NÆSTU HELGI? Nú fer hver að verða síðastur að sjá Ómar sprella fyrir matargesti. Opið öll fimmtudagskvöld. Nú gerast helgarævintýrin ekki bara um helgar! Nýja diskótekið okkar verður framvegis opið frá kl. 22.00-01.00 öll fimmtudagskvöld með ólýsanlegu tóna- og Ijósaflóði. Óvæntar uppákomur! 'fr iV it Á föstudags- og laugardagskvöldum opnum við kl. 20.00 fyrir matargesti. Við bjóðum upp á frábæra þríréttaða máltíð á góðu verði. Ómar Ragnarsson skemmtir matargestum en Karl Möller sér um Ijúfu tónana. Pálmi Gunnarsson kemur fram á Miðnætursviðinu. Pónik og Einar leika fyrir dansi. Diskótekið verður opið. Við skemmtum okkur til kl. 03.00! Matargestir athugi að panta borð tíman- lega hjá veitingastjóranum okkar í símum 23333 og 23335 alla daga vikunnar. Snyrtilegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára. ☆ it it it
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.