Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 12

Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Hlaupið gegn hungri í Hyde Park: „ Við getum öll haft áhrif á þennan heim sem við lifum í“ Allt að einni milljón Breta tók þátt í íþróttaviðburði aldarinnar Lundúnum. Frá Hildi Helgu Sigurðardótt- ur, blaðamanni Morgunblaösins. AP/Símamynd Poppstjörnurnar Sirnon Le Bon og Sting létu sig ekki vanta í Hyde Park á sunnudaginn. Þarna eru þeir ásamt brautryðjanda Live Aid-herferðarinnar, Bob Geldof, og sundmanninum Duncan Good- hew. „Við skulum senda kveðju til Indlands og Ástralíu þar sem allir eru úti að skokka um hánótt og til þurrkasvæða Afríku, þar sem hitinn er of brennandi til þess að nokkrir geti hlaupið," sagði Bob Geldof, eða „heilagur Bob“ cins og fjölmiðlar hér eru famir að kalla hann, bæði í gamni og alvöru, í þann mund sem 250 þúsund manns lögðu upp í Live Aid-hlaupið mikla í Hyde Park í London klukkan fjögur eftir hádegi að staðartíma á sunnudaginn. Hyde Park, stærsti lystigarður Engíands í hjarta Lundúna, var eitt iðandi mannhaf í góða veðrinu og hundruðir þúsunda skriddust hvít- um skyrtubolum með áletruninni „I ran the World“, í óbeinni þýðingu „Eg hljóp fyrir heiminn". Talið er að alls hafi um milljón Englendinga víðs vegar um landið tekið þátt í hlaupinu gegn hungri á sunnudag. Þátttaka í hlaupinu í Hyde Park fór fram úr björtustu vonum aðstandenda, en þess má get.i til samanburðar að um það bil tíu þúsund manns taka þátt í árlegu maraþonhlaupi í London. Vonir standa til að þegar upp verður staðið hafi enn meira fé safnast en þær 48 milljónir sem voru afrakst- urinn af Live Aid-tónleikunum í fyrrasumar. Það var litríkur hópur, sem þarna iagði sinn skerf að mörkum. Meðal annars ákvað hópur af nunnum í Brighton að hlaupa nokkra hringi um klausturgarðinn og innan múra Dartmoor fangelsisins skokkaði bankaræninginn Rory Dale ásamt fangaverði sínum, en þeir kumpán- ar vonuðust til þess að ná saman að minnsta kosti 300 pundum fyrir málstaðinn. Aðrir létu sér nægja að hlýða kalli Geldofs og skokka kringum húsið heima hjá sér. Og peningamir streymdu inn í söfnun- ina hér í Englandi, líkt og í hinum löndunum 78 sem tóku þátt í þessu umfangsmesta íþróttaframtaki allra tíma. Stemmningin í Hyde Park var með ólíkindum góð. Það lá við að sumir viðstaddir þættust sjá friðar- dúfur blaka vængjunum í háloftun- um yfír Lundúnaborg og næsta ótrúlegt hvað mikil rósemi hvíldi yfír þessum mikla mannfjölda. Hvergi vottaði fyrir pústrum eða Fossvogur Ca 35 fm einstaklingsíbúð við Snæland. V. 1,3 m. Garðabær Ca 80 fm glaesil. 3ja herb. íb. m. bílsk. í fjórbh. v. Brekku- byggð. Verð: Tilboð. Gaukshólar Ca 80 fm 3ja herb. í lyftuh. S-svalir. V. 1950 þús. Nýbýlavegur Kóp. Ca 85 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð i fjórbýli með aukaherb. í kj. Bílskúrsr. V. 2,2 m. Hringbraut Ca 75 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Laus strax. V. 1,9 m. Æsufell Ca 90 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. V. 1,9 m. Asparfell Ca 95 fm 3ja herb. mjög falleg ib. ílyftuh. S-svalir. V. 2,2 millj. Seljabraut Ca 115 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð m/bílskýli. V. 2,5 m. Háaleitisbraut Ca 120 fm 4ra herb. íbúð m/bílskúr. V. 2,8 m. Grundarásraðhús Ca 175 fm á þrem pöllum með tvjjföldum bílskúr. V. 5,2 m. Smáíbúðahverfi Ca 170 fm parhús á þrem hæðum m/bílskúr v. Hliðar- gerði. V. 4,2 m. Hafnarfjörður einbýli Ca 100 fm m/bilskúr á miklum útsýnisstað í bænum. Húsið er allt meira og minna ný standsett meðfallegum garði. V. 3,7 m. Kvöld- og helgarsími 28902. Klapparstíg 26, sími 28911. ólátum, enginn tróð öðrum um tær. Það kom greinilega ekki annað til mála en að gera þennan dag að atburði, sem allir gætu minnst með stolti. „Þetta er stórkostlegt, ég á eftir að muna þennan dag svo lengi sem ég lifí,“ sagði ungur maður, sem var meðal þáttakenda og bætti við: „Af hvetju hefur engum stjóm- málamanni tekist að hrinda af stað nokkru í líkingu við þetta?" Sem nsést einu Lundúnabúarnir er létu sér fátt um finnast virtist vera fið- urféð á Serpentine-vatninu í Hyde Park, það svamlaði um værðarlegt að vanda og myndaði mótsögn við iðandi mannhafið allt um kring. Eitt vinsælasta tákn borgarinnar, tvílyftu rauðu strætisvagnarnir, settu svip sinn á útjaðra Hyde Park, en í þeim höfðu ýmsir hópar verið selfluttir á staðinn. Lundúnalög- reglan vakti hins vegar athygli með ijarveru sinni, að minnsta kosti sást ekki einn einasti lögregluþjónn á svæðinu og einhvem veginn ýtti það undir þá tilfinningu manns að óhugsandi væri að allt myndi ekki fara vel og friðsamlega fram. Þar með er ekki sagt að engin löggæsla hafí verið á staðnum, en sú ákvörð- un yfirvalda að láta sem minnst fyrir henni fara átti vel við stað og stund. Áður en „Saint Bob“ gaf start- kallið höfðu ýmsar aðrar stórstjöm- ur sýnt sig á sviðinu, spjallað við fjöldann og tekið þátt í upphitunar- æfingum. Meðal annarra Elaine Page og Cliff Richard, sem sagðist dags daglega ekki nenna að hlaupa með hundinum sínum úti í garði, hvað þá meira. Á gríðarstóm kvik- myndatjaldi, sem komið hafði verið fyrir nálægt sviðinu, gaf að líta í beinni útsendingu fólk að skokka víðs vegar um heimsbyggðina; undir miðnæturhimni í Nýju Delhí, kvöldroða í Búdapest, og miðdegis- sól á breiðstrætum New York- borgar. Sjálft hlaupið hófst síðan í þann mund er sást á tjaldinu hvar súd- anski hlauparinn Omar Khalifa hóf kyndilinn sem hann lagði upp með í súdönskum flóttamannabúðum á loft fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York. Um leið var þúsundum flugelda skotið á loft í London og það var stórfengleg sjón að sjá mannfjöld- ann í Hyde Park fara skipulega á hreyfingu eins og straumhart stór- fljót í miðri stórborginni; flestir væntanlega með lokaorð Geldofs í huga. „Við getum öll haft áhrif á þennan heim, sem við lifum í.“ Vantareignir Vegna mikillar sölu undanfarið bráðvantar okkur allar stærðir og gerðir eigna á söluskrá ! Hússf&M “ ® Aðalsteinn Pétursson FASTEIGNASALA Langhottsvegi 115 Bergur Guðnason hdl. (Bæ/arleiðahúsinu) Sími:681066 Þorlá kur Einarsson SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL Til sýnis og sölu auk fjölda annarra eigna: 5 herb. sérhæð við Goðheima Neðri hæð 121,3 fm netto. Allt sér (hiti, inng., þvottah.). Svalir. Bílsk. 30,2 fm netto. Skuldlaus. Ræktuð lóð. Skipti mögul. ó einbhúsi t.d. í Smáíbhverfi. Stór og góð við Hraunbæ 3ja herb. íb. á 3. hæð 84,4 fm netto. Sólsvalir. Ágæt sameign. Mikið útsýni. Sanngjarnt verð. Ákv. sala. Séríb. í gamla bænum Efri hæð í tvibhúsi. 4ra herb. Sér inng., sér hiti. Ný teppi, mikið út- sýni. Verð aðeins kr. 1,9 millj. Miðsvæðis í borginni Óskast til kaups 4-5 herb. góð íb. með bilsk. eða bflskrétti. Afhending 1. sept. nk. Mikil og góð útb. Góð 3-4 herb. íb óskast á 1. hæð i' vesturborginni. ALMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 V. Ml7 Fasteignasalan Einir Skipholti 50c S: 688665 Reykás 2 herb. íb. nær fullbúin. Gott útsýni. Verö 2 millj. Norðurás 2-3ja herb. íb. með risi. Möguleiki á 2 herb. í risi. Samtals um 120 fm. ib. afh. tilb. undir tróverk. Fullfrág. sameign með sameiginlegu saunabaði. Frábært útsýni. Skemmtileg eign. Verð2,1 millj. Hraunbraut 2-3 herb. sérhæð ítvíbýli. Gott útsýni. Falleg eign. Verö2,1 millj. Borgarholtsbraut 3 herb. íb. fullfrág. nýleg m. góðu útsýni. S-svalir Falleg eign. Möguleiki á bílsk.Verð 2,2 millj. Álftahólar 4 herb. íb. 120 fm. Góð eign. Suðurhlíðar Einbýli i smíðum 286 fm á þrem pöllum með tvöf. bílskúr ca 45 fm. Afh. fokhelt í júní. Álftanes Til sölu lóð á norðanveröu Álftanesi. Vegna eftirspurnar vantar allar gerðir eigna á skrá. n % Omar Khalifa áMan- hattan ^.. i Þessi mynd var tekin á sunnu- dag, er súd- anski hlaupar- inn Omar Khal- ifa tekur loka- sprettinn í „Afríkuhlaupi" sínu á Manhatt- an-eyju í New York á leið sinni til aðal- stöðva Samein- uðu þjóðanna, þar sem tendr- aður var eldur Sport Aid- hreyfingarinn- ar. Helmingur ágóðans af söfnunarstarfi Sport Aid gengur til verk- efna á vegum Barnahjálpar samtakanna. Um 10 miljjónir manna í 79 löndum tóku þátt í Afríku- hlaupi Sport Aid og var þátttakan víð- ast hvar Hfleg nema í Banda- ríkjunum. Þá tóku að sögn aðeins 2000 Danir þátt í hlaupinu. Abm Helgi H. Jonsson, Solum. Horður Binrn.TSon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.