Morgunblaðið - 27.05.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
Bandaríkin:
Nýfundnar leiðir í
leitinni að bólu-
efni gegn alnæmi
Washington. AP.
TVEIR hópar vísindamanna segjast hafa Jundið nýjar leiðir í
leit sinni að bóluefni og lyfjum gcgn vírusnum, sem veldur alnæmi
(AIDS). Þakka visindamennirnir þennan árangur nýlegum upp-
götvunum í sambandi við gerð vírussins og aðferðum hans við
að drepa l’rimiur.
Vísindamenn við læknadeild
George Washington-háskólans og
Krabbameinsstofnun Bandaríkj-
anna kveðast geta komið í veg fyrir
árás alnæmisvírussins á frumur
ónæmiskerfisins með því að nota
mótefni gegn algengu líkamshorm-
óni.
Hormón þetta og alnæmisvírus-
inn virðast innihalda efnisþátt, sem
Kína:
129 drukknuðu
er ferju hvolfdi
Peking. AP.
129 MANNS drukknuðu í Gulá í
Shanxi-héraði í Kína í síðasta
mánuði, þegar yfirfullri feiju
hvolfdi, að því er fregnir hermdu
ígær.
Samkvæmt fyrri fréttum höfðu
24 drukknað, en 125 manns var
saknað eftir slysið, sem átti sér stað
11. apríl sl.
Kínversk fréttastofa kvað 174
farþega hafa verið um borð í ferj-
unni. Henni hvolfdi, þegar vélin
stöðvaðist í miklu straumkasti í ánni.
Nærstöddu fólki tókst að bjarga
45 manns upp á árbakkana, að því
er sagði í fréttinni. Enn fremur
sagði, að feijan hefði verið í lélegu
ásigkomulagi og engin björgunar-
tæki verið um borð. Áhöfnin hafði
engrar formlegrar þjálfunar notið
og hafði ekki opinbert leyfi til
mannflutninga.
að flestu leyti er eins í báðum og
getur örvað mótefnavirkni.
„Við teljum að uppgötvun þessi
muni stytta þróunartíma bóluefnis,
svo að um munar,“ sagði dr. Allan
Goldstein, formaður lífefnadeildar
George Washington-háskóla á fundi
með blaðamönnum, en vildi ekki
fullyrða um, hvenær það yrði tilbúið
til notkunar.
Hópur víndamanna, sem fiestir
vinna við læknadeild Stanford-
háskóla í Kalifomíu, kveðst hafa
komist að nýjum upplýsingum um
aðferð alnæmisvírussins við að
drepa hinar svonefndu T-frumur,
sem gegna því mikilvæga hlutverki
að kalla út vamarsveitir ónæmis-
kerfisins, þegar sýking berst inn í
líkamann.
Vísindamennimir segjast hafa
komist að raun um, að T-fmmur,
sem orðið hafi fyrir áhrifum frá
alnæmisvímsnum, renni saman við
heilbrigðar fmmur og myndi risa-
fmmur. Risafmmumar ungi síðan
út gífurlegum fjölda af vímsnum á
líftíma sínum, og geti það verið
skýringin á brotthvarfí T-fmmn-
anna og niðurbroti ónæmiskerfísins
á síðustu stigum alnæmis.
„Þegar T-fmmnanna nýtur ekki
lengur við, þá em varnir ónæmis-
kerfísins lamaðar," sagði dr. Edgar
Engleman, oddviti vísindamann-
anna við Stanford-háskóla.
Sagt er frá uppgötvunum beggja
þessara hópa vísindamanna í tíma-
ritinu The Journal of Science, sem
kom út sl. föstudag.
AP/Símamynd.
Þátttakendur í „handabandi milli stranda“ í Bandaríkjunum á sunnudag. Nær 6 milljónir manna héidust
í hendur í nær óslitinni línu frá New York á austurströndinni til Löngustrandar í Kaliforníu í vestri.
Tilgangnrinn var að vekja athygli á kjörum nær 20 milljóna Bandarikjamanna, sem sagðir eru líða
hungur, og safna peningum til aðstoðar þeim. Meðfylgjandi mynd var tekin í Arizona.
Bandaríkin:
Handabönd stranda á milli
New York, AP.
TALIÐ ER að um sex milljónir manna hafi tekið þátt í átaki gegn
húngri í Bandaríkjunum og lialdist í hendur í nær óslitinni línu
milli New York í austri og Long Beach i Kaliforníu í vestri á sunnu-
dag.
Lengd „handabandsins" var
4.124 mílur eða nær 6.700 km.
Aðstandendur uppákomunnar von-
uðust til að safna 50 milljónum
dollara í sjóð, sem ætlað er að
styrkja fátæka og hungraða í
Bandaríkjunum með ýmsum hætti.
Halda þeir fram að um 20 milljónir
Bandaríkjamanna líði hungur.
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, og Nancy forsetafrú tóku þátt,
ásamt dótturinni Maureen og manni
hennar, og starfsfólki í Hvíta hús-
inu. Aðstandendur átaksins sögðust
ánægðir með þátttöku Reagans, en
stjóm hans hefur verið gagnrýnd
fyrir að aðhafast ekki neitt í málefn-
um fátækra og sveltandi manna.
Svíþjóð:
Vaxandi harka í
launadeilunum
Stokkhólmi. AP.
BANDALAG opinberra starfs-
manna í Svíþjóð hótaði því á
_ ^
Frakkar og Iranir
vilja bætta sambúð
Frá Torfa Tulinius, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRAKKAR og Iranir hafa eldað saman grátt silfur í fimm ár. Á
undanförnum vikum hafa átt sér stað viðræður milli þjóðanna
til að samskipti verði með eðlilegum hætti á ný. Yfir þessum
viðræðum hvilir skuggi frönsku gislanna í Beirút.
22. maí var nákvæmlega ár löngu hefðu flölmiðlamir ekki
liðið síðan tveimur Frökkum,
Jean-Paul Kauffmann og Michel
Seurat, var rænt á Beirút-flug-
velli. Síðan hafa illa skilgreind
samtök síta haft þá í gíslingu
ásamt tveimur sendiráðsstarfs-
mönnum, §órum sjónvarpsmönn-
um og hálfníræðum hermanni á
eftirlaunum. Allir eru þessir menn
franskir ríkisborgarar. Sá síðast-
nefndi settist að í Líbanon fyrir
nokkrum áratugum til að njóta
veðurblíðunnar í ellinni. Hann og
eiginkona hans voru einmitt að
fara að yfirgefa landið af öryggis-
ástæðum eftir loftárás Banda-
ríkjamanna á Líbýu þegar gamla
manninum var rænt. Frönsku
gíslamir í Líbanon eru nú orðnir
níu og eru frönskum stjómvöldum
stöðugt áhyggjuefni.
í tilefni af því að ár er liðið
frá því að Kauffmann og Seurat
var rænt, var efnt til útifundar í
París. Athygli vakti að eiginkona
Seurats neitaði að mæta á fund-
inn. Maður hennar var sennilega
líflátinn rétt fyrir þingkosningam-
ar í mars. Ekki hefur þó tekist
að fá staðfestingu á því. Það kom
fram í yfirlýsingu sem hún gaf
út, að hún teldi að öll opinber
umfjöllun um mál gíslanna væri
aðeins til að tefja fyrir frelsun
þeirra. Hún er á þeirri skoðun að
gíslunum hefði verið sleppt fyrir
blásið mál þeirra út. Því meira
hitamál sem gíslatakan varð í
frönskum stjómmálum, því meira
gátu ræningjamir talið sér trú um
að þeir gætu fengið fýrir að láta
gíslana lausa.
Mary Seurat hefur ekki verið
ein um að gagnrýna þá miklu
umfjöllun sem gíslamálið hefur
fengið í fjölmiðlm. Chirac forsæt-
isráðherra hefur tekið í sama
streng. Stuttu eftir að hann tók
við embætti sínu, lýsti hann því
yfír að máli gíslanna yrði ekki
komið í höfn nema sem minnst
yrði fjallað um það á opinberum
vettvangi. Síðan hafa liðið tveir
mánuðir og lítið hefur farið fyrir
þessu máli í fréttum. Hins vegar
hafa ýmis teikn verið á lofti um
það að Frakkar og íranir myndu
bráðlega bæta samskipti sín. Að
margra dómi er nauðsynlegt að
lausn fáist á deilum þessara þjóða
til að unnt verði að fá ræningjana
til að sleppa gíslunum. Mann-
ræningjamir eru sítar og kröfur
þeirra eru m.a. þær að skotsveit
sú sem íranir sendu tii Frakklands
til að ráða Chapour Bakhtiar að
dögum 1980 verði iátinn laus úr
fangelsi en félagar hennar afplána
þar dóm samkvæmt frönskum
lögum. Vonast er til að stjómvöld
í Iran geti beitt áhrifum sínum á
ræningjana ef samband þeirra við
Frakka batnar.
Varaforsetisráðherra Iran, Ali
Reza Moayer var staddur í París
í vikunni og hitti þá Chirac forsæt-
isráðherra og Mitterrand forseta.
Ágreiningsefni þjóðanna vom
viðmð. Opinberlega em þau þijú:
I fyrsta lagi tóku Frakkar milljarð
dollara lán af írönum árið 1974,
meðan Mohammed Rega Pahlavi
keisari var enn við völd. Síðan
honum var vísað frá, hafa Frakkar
stöðvað endurgreiðslur sínar.
Stjómvöld í Iran vilja skiljanlega
fá þessa peninga til baka. í öðm
lagi vilja íranar að Frakkar tak-
marki starfsemi íranskra stjómar-
andstæðinga í Frakklandi. I þriðja
lagi fara þeir framá að Frakkar
verði hlutlausir í stríðinu milli íran
og írak. Aðspurður hvort mál gísl-
anna hefði borið á góma í viðræð-
um hans við franska ráðamenn,
sagði íranski varaforsetaráðherr-
ann að þjóð hans ætti enga aðild
að gíslatökunni. Slíkar aðgerðir
samræmdust hvorki stefnu íran
né siðferði múhameðstrúar. Hins
vegar sagði hann að íran myndi
gera allt í sínu valdi til að gíslam-
ir öðlist frelsi.
Kröfur írana koma sér illa fyrir
Frakka, hver þeirra á sinn hátt.
Á hinn bóginn er mál gíslanna
öflug hvatning til að mæta kröf-
unum. Það verður forvitnilegt að
vita hversu langt frönsk stjóm-
völd em tilbúinn að ganga til að
níu þegnar þeirra geti um fijálst
höfuð strokið á ný.
sunnudag að láta enn fleiri
lækna, félagsfræðinga og sál-
fræðinga fara í verkfall til þess
að fylgja eftir kröfum um hærri
laun. Lars Rydell, formaður
bandalagsins, sagði í útarpsvið-
tali, að 7.000 meðlimir banda-
Iagsins til viðbótar myndu leggja
niður vinnu 7. júní nk., ef verk-
banni yrði skellt á af hálfu hins
opinbera, eins og hótað hefði
verið.
Þetta kann að bitna mjög á
sænskum námsmönnum, þar sem
verkbannið yrði til þess að tefja
fyrir lokaprofóum þeirra. Afleiðing-
in yrði sú, að þeir, sem nú em að
ljúka stúdentsprófum, fengju stúd-
entsskírteini sín of seint til þess að
geta sótt tímanlega um nám í há-
skólum og öðmm æðri mennta-
stofnunum. Efndu námsmenn í
Stokkhólmi til mikilla aðgerða á
sunnudag til að mótmæla þessu.
Til þessa hafa um 9.000 opinberir Læknar í Svíþjóð, sem nú fá um
starfsmenn tekið þátt í verkfallinu
og em 2000 læknar á 10 helztu
sjúkrahúsum landsins á meðal
þeirra. Samtök bæja- og sveitarfé-
laga hafa svarað með því að hóta
verkbanni á 30.000 opinbera starfs-
menn, aðallega kennara, frá og með
2. júní.
18.000 s. kr. í laun á mánuði (um
100.000 ísl. kr.) rökstyðja kröfur
sínar um hærri laun með því, að
þeir hafi tapað margra mánaða
launum í reynd á hveiju ári, þar
sem þeir hafí ekki hlotið launabætur
í samræmi við verðbólgu allt frá
því á miðjum síðasta áratug.
Italir hlynntir takmörk-
unum á tóbaksreykingum
Ræm. AP.
ÍTALIR, sem taldir eru reykja einna mest af Vestur-Evrópubúum,
styðja tillögur heilbrigðisráðherra síns þess efnis, að þeir megi
aðeins reykja „í einrúmi", að því er fram kemur í skoðanakönnun,
sem dagblaðið La Republicabirti sl. sunnudag.
Sjö af hveijum tíu Itölum segja,
að þeir séu ekki andvígir tillögum
heilbrigðisráðherra landsins, Cost-
ante Degan, um að banna tóbaks-
reykingar á öllum opinberum stöð-
um, samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar.
Ef tillögur heilbrigðisráðherrans
yrðu samþykktar í þinginu, mættu
Italir lögum samkvæmt að heita
má hvergi reykja annars staðar en
utandyra, heimafyrir og í einkabíl-
um sínum.
Nú þegar er bannað að reykja í
kvikmyndahúsum, leikhúsum, skól-
um, söfnum, spítölum og sam-
göngumiðstöðvum.
Tillagan hefur ekki verið form-
lega lögð fram í þinginu, en hún
hefur þegar komið samráðherrum
Degans í nokkurt uppnám. Einn
þeirra hefur jafnvel haft í heitingum
um að stofna „Félag tóbaksvina“,
ef ekki verði dregið úr kröfuhörku
tillögunnar á hendur reykingafólki.
Degan heilbrigðisráðherra, sem
hætti sjálfur í fyrra, eftir 20 ára
tóbaksreykingar, segist hafa rank-
að við sér, þegar hann sá niðurstöð-
ur bandarískra rannsókna, sem
sýndu, að bæði reykingamönnum
og þeim, sem ekki reyktu, væri
hættara við að fá krabbamein, ef
þeir önduðu að sér tóbaksreyk.
„Það, sem eitt sinn var álitið allt
að því óhjákvæmilegt skref til að
komast í tölu fullorðinna, er nú
talið hættuspil, sem rétt sé að forð-
ast með öllum ráðum," sagði í La
Republica.