Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986 Á fyrsta degi veiðanna var kastað frá bryggjunni í Keflavík. Voru flestir með þijá öngla á hverri linu og þótti veiðimönnunum mikið til þess koma að oft var fiskur á þeim öllum. Þennan dag veiddi hópurinn 374,6 kg í höfninni. Her ræðir Jóhann Sigurðsson við Ron King í Hraunsvikinni. Jó- hann var fararstjóri hópsins og vann að kynningum á veiðunum með fyrirlestrum i Bretlandi siðastliðinn vetur. „Veiðum meira á einum degi hér en á einu ári við England“ — eonria hroelni háttt'ihaiidiimiír í ftrrotu ol_ ^ * — segja bresku þátttakendurnir í fyrstu al- þjóðlegu sjóstangveiðikeppninni í Keflavík ÞESSA VIKU hefur staðið yfir í Keflavík og nágrenni, fyrsta alþjóðlega sjóstangveiðimótið í Keflavík. í því taka þátt 34 Bret- ar, frá suðurströnd Englands. Tilhögun mótsins er þannig að veitt er fjóra daga, tvo daga af bát og tvo daga af strönd ef veður leyfir, annars af bryggjunni í Keflavík. Þegar blaðamaður gerði sér ferð til veiðimannanna voru þeir staddir í Hraunsvík austur af Grindavík og reyndu sig þar á ströndinni. Ekki héldust þeir lengi þar vegna versnandi veðurs, sandroks og öldugangs, svo að þeir óku til Keflavíkur og luku keppni þar á bryggjunni. Víkingaferðir í Keflavík halda þessa keppni og fararstjóri er Jóhann Sigurðsson, umboðsmaður Flugleiða í London en hann hefur mikla reynslu af strandveiði við ísland. „Eg tengist þessu í dag nú á þann hátt að fyrst kom ég hingað með Breta 1960, gagngert til að veiða lax og silung. Eitt sinn er við vorum að borða í Naustinu kom Bretinn þar auga á kort yfir þá fiska sem finnast við strendur Islands. Þar sá hann meðal annars hámeri og það varð úr að hann vildi ólmur reyna sig við hámera- veiðar hér við ströndina," sagði Jóhann. „Ég talaði við Örn John- son sem var forstjóri Flugleiða á þeim tíma og hann aðstoðaði okkur við þetta. Við leigðum bát sem var hentugur ogg rérum út frá Grindavík. Við sáum nú há- meri en hún bara vildi ekki taka, en á meðan á eltingarleiknum við hana stóð þá veiddum við á stang- ir og veiddum þama tveir um hálft tonn af fiski á hálfum degi. Bretinn sem var með mér var ekki lengi að segja að þetta óhemju fiskerí væri auðvelt að nýta með ferðamenn í huga. Næstu ár á eftir kom ég svo með hópa á sjóstangveiðimót í Vest- mannaeyjum. Á sama tíma stofn- uðum við svo nokkrir saman SJÓR, Sjóstangveiðifélag Reykja- víkur, og þá hófst sjóstangveiði við ísland fyrir alvöru. Þessar veiðar við Vestmannaeyjar gerðu mikla lukku og það komu t.d. Bretar, Frakkar og Svíar með mér þangað og það tókst mjög vel. Svo fór að verða erfiðara að fá báta og þorskastríðin komu og þau fældu frá. Því næst gerðist ekkert í þessu hjá mér fyrr en í fyrra að sjónvarpsmenn frá TVS komu hingað til Keflavíkur með tíu breska menn sem höfðu unnið Ijöldan allan af sjóstangveiði- keppnum við Bretland. Sú ferð tókst það vel að ég byijaði á þessu áný. Það er mikill áhugi fyrir því hér á svæðinu að koma upp ferða- mannaþjónustu og miðað við hvemig veiðarnar hafa gengið hér þá væri hægt að koma töluverðum fjölda ferðamanna hingað ef allt gengur vel. í haust hóf ég að halda fyrir- lestra í borgum á suðurströnd Englands, með aðstoð Víkinga- ferða og þeirra Peter Baker og Colin Agate, en þeir komu með hópnum hér í fyrra. Við kveiktum þarna í töluvert mörgum og nú eru hér 34 Bretar og 45 koma í næstu viku. Ferðaskrifstofa í Bretlandi sem heitir Twickers World kemur svo með 35 til 40 manns í tveimur hópum og ef að þeirra reynsla verður jákvæð og þeir bíta á agnið, þá koma þeir á næsta ári með a.m.k. 150 manns og sitt árlega sjóstangveiðimót. Þetta eru erfiðar kringumstæður sem við glímum við héma, en hér hafa þessir drengir veitt meira en nokkru sinni fyrr á æfinni og því getum við séð að þetta er mögulegt," sagði Jóhann Sigurðs- son fararstjóri. Hér sjást nokkrir keppendanna við veiðar í Hraunsvík, skammt austan við Grindavík. Gekk þeim hálf illa þar, enda slæmt í sjóinn og veðrið slæmt, einungis veiddist þar einn marhnútur. Fremst á myndinni er Fred Laker, en hann var aflahæstur á bátnum fyrri daginn. Veðrið setti nokkurt strik í reikninginn hjá veiðimönnunum. Bræla var mestallan tímann sem á veiðunum stóð og því varð mestöll strandveiðin að fara fram í vari { höfninni í Keflavík. En þrátt fyrir það voru þeir allir himinlifandi með veiðina og Á laugardag iauk mótinu og verðlaun voru afhent. Aflahæsti veiðimaður mótsins var Ron King og var hann jafnframt aflahæst- ur í veiðum af bát, en Ron Farthing veiddi mest af ströndinni. Við mótsslitin kom fram mjög almenn ánægja meðal bresku veiðimannanna og höfðu margir þeirra á orði að koma aftur að ári. fannst það ótrúlegt hvemig þeir gátu mokað fiskinum upp, kola, marhnútum, ufsa og þorsk. I mótinu verða bæði útnefndir Kóngar stangveiðinnar og báta- veiðinnar. Fyrsta daginn veiddust 374,6 kg í höfninni og sá afla- hæsti var með 24 kg. Hann sagð- ist hafa veitt meir á þeim degi en á þremur árum frá strönd á Bretlandi! Ég ræddi við þá Fred Laker og Ron King, en þeir voru afla- hæstir eftir fyrri daginn á bátun- um, miklar aflaklær. Þeir voru svo sannarlega í skýjunum með ferð- ina og sögðu veiðarnar hafa geng- ið stórkostlega. „Við gætum hvergi nokkurs staðar við Eng- land veitt nærri því jafn mikið og við gerðum á bátunum á miðviku- daginn,“ sögðu þeir. Þeir sögðust vita að þeir hefðu verið óheppnir með veðrið en það fékk ekkert á þá. King sagði veiðar sem þessar mjög erfiðar og sagðist hann vera með tak í bakinu eftir að hafa mokað upp fiskinum undanfarna daga. „Ég verð hér aðra viku með næsta hóp og ég vildi jafnvel lifa hérna,“ sagði Laker. „Bara að ég kynni málið og ætti nóg af krón- um. Fólkið hérna er alveg frá- bært.“ Þeir félagar rómuðu mjög gestrisnina og þær móttökur sem þeir hafa fengið og þegar ég spurði þá að lokum hvort að þetta mikla fiskerí þeirra innan íslensku landhelginnar kæmi ekki af stað nýju þorskastríði, þá svöruðu þeir því til að þeir vonuðu nú að til þess kæmi ekki og að magnið af fiskinum væri þvílíkt að það væri nóg fyrir alla. Það má því sjá að ef að vel verður á þessum málum haldið þá er góður möguleiki á því að erlendir sjóstangveiðimenn fari að streyma til Suðurnesja. Þegar hefur eitt hótel verið opnað í Keflavík og annað er í byggingu. Veiðimennirnir hafa verið í fæði í Glóðinni í Keflavík og vildu þeir þakka Axel veitingamanni þar stórkostlegar móttökur sem og öðrum sem að ferðinni hafa stað- ið. En framhaldið á þessum veið- um ber framtíðin í skauti sér eins og Jóhann Sigurðsson sagð': „Hér höfum við fiskinn, hótel, veitinga- hús, skemmtistaði, besta golfvöll landsins, Bláa lónið og svo fram- vegis, þar þarf bara að laða fólkið að og vona það besta.“ Grein og myndir: Einar Falur Ingólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.