Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
1 42_
}
STÚDENTA-
STJARNAN
14 karata
gull
hálsmen
eða
prjónn
Jón Sigmundsson,
skartgripaverslun hf., Laugavegi 5, sími 13383.
*S
Espadrillur
nr. 33—41
Kr.
199.-
Hvítar, Ijósbláar,
grænar, orange,
rauðar ogbleikar.
TOPE
~ sKúr inn
VELTUSUNDI2,
Siemens-innbygg-
ingartæki í eldhús
Hjá okkur fáið þið öil tæki á sama stað: Eldavél-
ar, uppþvottavélar, kæliskápa, frystiskápa, ör-
bylgjuofna, kaffivélar, hrærivélar, brauðristar og
þannig mætti lengi telja.
SIEMENS er trygging ykkar fyrir góðum tækjum
og samræmdu útliti.
íslenskir leiðarvisar fylgja með.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Kvennalistar voru
hugsjón frumherjanna
eftir Sigurveigu
Guðmundsdóttur
< Frægasti pólitískur sigur ís-
lenskra kvenna vannst af Kvenna-
listanum 1908. Að þeim lista stóðu
helstu kvenréttindakonur landsins,
með frumheijann Bríeti Bjamhéð-
insdóttur í fararbroddi. Fjórar kon-
ur voru á þessum kvennalista til
bæjarstjómarkosninga í Reykjavík
og komust allar að. Bríet hafði
stofnað Kvenréttindafélag Islands
árið áður.
Næsti kvennalisti kom fram árið
1922 og þá til Alþingiskosninga.
Komst þá fyrsta íslenska konan á
þing, Ingibjörg H. Bjarnason, for-
stöðukona Kvennaskólans í Reykja-
vík. Baráttumál hennar á þingi voru
einkum stofnum Landspítala og
málefni Kvennaskólans. Hún átti
erfítt uppdráttar á þingi, og varð úr
að hún gekk í íhaldsflokkinn og
síðar varð hún einn af stofnendum
Sjálfstæðisflokksins. Kvennalista-
konur sem höfðu stutt Ingibjörgu
vom óánægðar með þessa ráð-
breytni hennar og árið 1926 kom
fram annar kvennalisti með Bríeti
Bjamhéðinsdóttur í fyrsta sæti. Þá
var hún orðin sjötug en barðist samt
eins og hetja. Ekkert dugði, Bríet
náði ekki kosningu.
Hversvegna komu ekki
fram fleiri kvenna-
listar þar til nú
Ástæðumar voru margar og í
fyrsta lagi: Kvennalistar voru slíkt
framúrstefnufyrirtæki að undrun
vekur hvað frumheijar íslenskra
kvenréttinda voru langt á undan
tímanum. Enda var íslenskt þjóðlíf
ákaflega kyrrstætt fram að síðustu
heimsstyijöld, og er það reyndar
enn hvað snertir stöðu kvenna á
sumum sviðum.
í öðru lagi gerðu valdamenn sér
ekki grein fyrir upphaflega að
kvennalisti gæti orðið pólitískt vald.
Þessvegna kom lítil andstaða fram
á móti fyrstu kvennalistunum. Það
var fyrst þegar kona tók sæti á
Alþingi að mörgum fannst vera
farið að harðna á dalnum. Þjóðin
var vön því um aldir að á Alþingi
sætu eingöngu karlar.
Þegar kona tók þar sæti var slíkt
í raun og veru bylting. Mönnum
fannst nóg um og raunar sjálfsagt
að konur sætu í einhveijum af
stjómmálaflokkunum og hlýddu þar
forræði karla. Kvennalisti var alltof
fjarlæg framtíðarsýn.
Enginn amast við
kvenfélögnm
Konur vinna öðruvísi í félögum
en karlar. Þær hafa aðrar starfsað-
ferðir og á margan hátt önnur sjón-
armið en þeir. Þetta vita allir, enda
amast enginn við kvenfélögum.
Sigurveig Guðmundsdóttir
„ Endurvakning
kvennalistanna hefur
sýnt vitrum mönnum að
ekki er lengur stætt á
að konur séu eins og
stakir hrafnar á hinum
pólitísku listum.“
Hversvegna? Af því að kvenfélög
eiga aldrei neitt sem heitir fjármun-
ir, þau hafa ekkert teljandi vald í
þjóðfélaginu. Konur hafa alltaf
þurft að biðja og sníkja til þess að
hugsjónamál þeirra nái fram að
ganga.
Nú er komin önnur tíð. Konumar,
helmingur þjóðarinnar, vilja ekki
lengur lifa á pólitískum bónbjörg-
um, hvorki á bæjavísu eða lands-
vísu. Endurvakning kvennalistanna
hefur sýnt vitrum mönnum að ekki
er lengur stætt á að konur séu eins
og stakir hrafnar á hinum pólitísku
listum.
Varla nokkur flokkur lætur sér
lengur detta í hug annað en að
prýða lista sinn með konum, þó að
of margar sitji sumstaðar í vafasæt-
um. Þetta er árangurinn af starfí
kvennalistanna. Þeir em í senn
trygging og hvatning þeim konum
sem er annt um sín mannréttindi.
Góðir menn og bræður
Víðsýnir karlmenn studdu frum-
heijana. Þegar Bríet Bjamhéðins-
dóttir hóf baráttu sína fyrir réttind-
um íslenskra kvenna fyrir aldamót-
in síðustu, fékk hún uppörvun frá
Grími Thomsen og Hannesi Haf-
stein þegar hún réðst í að flytja
opinberan fyrirlestur, fyrst kvenna
hér á landi. Mest og best studdi
hana þó maður hennar, Valdimar
Ásmundsson ritstjóri, meðan hans
naut við.
Bræður Ingibjargar H. Bjama-
son virðast hafa stutt hana með
ráðum og dáð. Barátta Skúla Thor-
oddsen á Alþingi fyrir réttindum
kvenna er fræg að maklegleikum.
Þannig mætti lengi telja.
Enn í dag em til sanngjamir
menn og drengilegir sem munu
styðja kvennalistana, minnugir
mæðra og systra, og annarra þeirra
kvenna sem hafa stutt þá um lífsins
veg. Hvað sagði líka hinn vísi
Salómon konungur.
Væna konu, hver hlýtur hana?
Gefið henni af ávexti handa hennar,
og verk hennar skulu lofá hana í borgaihliðunum.
Höfundur er fyrrverandi kennarí
og hefur starfað í kvennahreyf-
ingum í áratugi.
Gengust fyrir hlutaveltu
Djúpavogi.
STÚLKUR úr 3. til 5. bekk Grunnskóla Djúpavogs, þær Guðrún
Anna Eðvaldsdóttir, Klara Bjarnadóttir, Rán Freysdóttir og
Sigurborg Karlsdóttir, héldu hlutaveltu hinn 10. maí síðastliðinn
í Félagsheimilinu á Djúpavogi til ágóða fyrir Ungmennafélagið
Neista. Neisti mun standa fyrir ýmiss konar íþróttastarfsemi í
sumar. A hlutaveltunni söfnuðust nærri 9 þúsund krónur.
Myndin er af stúlkunum meðan á hlutaveltunni stóð.
— Ingimar
Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjavík
Vinna á kjördegi
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða til margvíslegra
starfa á kjördegi, laugardaginn 31. maí nk.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins í Valhöll, Háaleitisbraut 1 eða í síma 82900 frá kl.
09.00—22.00 og frá kl. 13.00—18.00 um helgar.
mmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmm Sjálfstæðisflokkurinn mam