Morgunblaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
53
sér dulrænt lífsrými í poppheimin-
um. Kate datt út af færibandi
menntakerfísins þegar hún var í
menntaskóla í Kent og þar sem
ekki var mikið um atvinnu sneri
hún sér að söng. Árið 1978 söng
hún lagið „Wuthering Heights" inn
á plötu, en textinn er gerður eftir
skáldsögu Emily Broté sem fjallar
um magnaðan draugagang. Um
skeið tók hún sér frí frá álagi
poppheimsins en er nú farin að
syngja á ný. Og Kate Bush, sem
leikur sér að því að syngja hreint
í fjórum áttundum, er aftur komin
á toppinn með lagið „Hounds of
love“.
KÍNA
Þegar Zhang Qiang, sem kallar
sig einfaldlega Rósu, var 18 ára,
sló hún í gegn í söngvakeppni í
Peking í Kína með söng sínum
Jambalaya. En ekki hreppti hún
efsta sætið þó hún væri áberandi
best „vegna þess að efni textans
féll ekki að pólitískum anda þessa
tímabils", segja aðdáendur hennar.
En þegar Deng Xiaoping kom til
valda var hins vegar slakað pínulítið
á hinni menningarlegu spennitreyju
Maótímabilsins. Og nú má Zhang
Qiang syngja ástarsöngvana sína
sem flestir eru ortir við gömul lög
frá Japan og Taiwan. í laginu
„Laugardagur" syngur hún um
hversu gott er að fá frí frá vinn-
unni: „Eg klæðist í gallabuxur, og
hlið við hlið reikum við unnusti
minn um hin breiðu stræti." Qiang
fær aðeins jafnvirði um 20 þúsund
ísl. króna fyrir hverja plötu, þó
sumar plötur hennar hafi selst í
meira en 4 milljónum eintaka. En
að auki fær hún gjafír frá útgáfu-
fyrirtækinu s.s. píanó, stereótæki
og litasjónvarp, og er þetta dót
alveg að fylla einherbergis íbúðar-
kytruna þar sem hún býr ásamt
móður sinni og bróður. Zhang
Qiang hefur fengið nærri því 100
giftingartilboð sem hún les jafnóð-
um en brennir síðan til ösku.
TAIWAN
Teresa Teng, söngkonan fræga
á Taiwan, er 32 ára gömul og hefur
sent frá ser um 100 plötur síðustu
16 árin. Hún hefur verið nefnd
söngfugl Asíu - hin silfurtæra og
tilfínningaþrungna rödd hennar
hefur aflað henni aðdáenda í millj-
ónatali. Hún stundaði nám í Los
Angeles og Tókýó og syngur stund-
um á japönsku. Faðir hennar var
foringi í her Chiang Kai-shek’s og
fluttist til Taiwan 1949 þegar
kommúnistar höfðu sigrað í Kína.
Þegar plötur hennar tóku að berast
með smyglurum til Kína vöruðu
siðgæðisverðir Maós við því að rödd
hennar gæti afvegaleitt hinn dýr-
keypta byltingaranda sem þá átti
að ríkja í landinu.
COSPER
SUÐUR-AMERÍKA
Gal Costa, söngkona Brazilfu, er
nú 40 ára gömul. Hún hefur sent
frá sér 18 plötur síðustu tvo áratug-
ina og nýtur gífurlegra vinsælda.
Hin kristalstæra rödd hennar nær
yfír tvær áttundir og hún hefur
aldrei stundað söngnám af neinu
tagi. Gal Costa er frá Bahia í Brazil-
íu og hefur fengið 8 gullplötur frá
1968. Síðasta plata hennar „Bem
Bom“ seldist í 380 þúsund eintökum
á þrem mánuðum og hún er svo
vinsæl að oft koma rúmlega 10
þúsund manns á hljómleika hjá
henni. „Þegar ég er ekki á senunni
er ég mjög hljóðlát," segir Gal
Costa. „En þegar á sviðið kemur
verð ég öll önnur og þá blómstra ég
öll.“
— Ég yrði rólegri, ef við fengjum okkur þjóf abjöllu.
Utsala
15%-60%
Viö rýmum fyrir nýjum vörum. Seljum í
dag og næstu daga alls konar keramik
og stell meö hressiiegum afslætti.
Alttað 60%.
í(r
U7IWU
HÖFÐABAKKA9 -
Sími685411.
REYKJAVÍK
Akstur á kjördag
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða á
bifreið til aksturs á kjördegi, laugardaginn
31. maínk.
Upplýsingar eru góðfúslega veittar á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 frá kl. 09.00—22.00 og frá
kl. 13.00—18.00 um helgar.
—■............ — Sjálfstæðisflokkurinn OMi
3ja vikna
sumarnámskeið
3. júní.
Hraunbergi
Kerfi I:
Fyrir konur á öllum aldri,
flokkarsem hæfaöllum.
Kerfi II:
Framhaldsflokkar.
Þyngri tímar.
Kerfi III:
Aerobic J.S.B., okkar útfærsla
af þrektimum með góðum
teygjum. Eldfjörugir púltimar
fyrirungarog hressar.
Innritun ísíma
79988
Allir finna flokk
við sitt hæfi hjá
Ný og glæsileg aðstaða. Sturtur — sauna — Ijós.