Morgunblaðið - 27.05.1986, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ1986
Kasparov vann síðustu
skákina glæsilega
■
Úr söngleiknum „Chess“. Sovéski heimsmeistarinn landflótta
(Tommy Körberg) situr að taflborði, en sovésk eiginkona hans
(Siobhan McCarthy) reynir að ná athyglinni.
HEIMSMEISTARINN í skák,
Gary Kasparov, sigraði glæsi-
lega i sjöttu og síðustu einvigis-
skák sinni við enska stórmeist-
arinna Tony Miles. Kasparov
sigraði þvi með 5 Vzvinningi
gegn '/z, sem er iangbezti
árangur hans i eingvigi til
þessa. í fyrra sigraði hann
v-þýzka stórmeistarann Robert
Hiibner 4 V* — 1 l/t, sem var
hans bezta skor til þessa.
Munurinn varð miklu meiri en
Elo-stig keppinautanna gáfu til
kynna. Kasparov hefur nú 2720
stig, en Miles 2610. Það er
aðeins Bobby Fischer sem hef-
ur áður náð að sýna svo algjöra
yfirburði í einvígjum við skák-
menn yfir 2600 stig, er hann
vann þá Taimanov og Larsen
báða 6-0 árið 1971.
Yfirburðir Kasparovs voru
miklir, sérstaklega vegna þess að
honum tókst að fá upp flóknar
og tvísýnar stöður í næstum
hverri einustu skák. Miles stóðst
honum ekki snúning $ flækjunum,
auk þess sem hann var eins og
illa lesinn skólastrákur þegar
tízkuafbrigði bar á góma. Þannig
tapaði hann svo að segja baráttu-
laust f fimmtu og sjöttu skákun-
um, þar sem að hann anaði út f
afbrigði sem Kasparov og sovézk-
ir aðstoðarmenn hans hafa þaul-
stúderað.
Aðeins í annarri skákinni náði
Miles að pressa, en Kasparov
varðist af þolinmæði og svo fór
að Miles sprengdi sig og tapaði
skákinni algjörlega að óþörfu. Það
er greinilegt að Kasparov hefur
aldrei verið sterkari en nú, en í
þessu einvígi sýndi Miles samt
hvemig á ekki að tefla á móti
honum. Gegn Kasparov verður að
tefla leiðinlega og velja afbrigði
sem gefa ekki færi á neinu sprikli
og helst ekki byijanir sem eru í
tfzku. Þetta veit Anatoly Karpov
allra manna bezt og virðist fær
um að hagnýta sér þá þekkingu,
öfugt við aðra sem háð hafa ein-
vígi við Kasparov.
Sjötta skákin var glæsilegur
endapunktur á einvígið af hálfu
Kasparovs. Hann setti Miles út
af laginu með bráðsnjallri nýjung
í byijuninni. Hann fór með kóng
sinn út á borðið í miðtafli en Miles
tókst ekki að hagnýta sér það og
gagnsókn heimsmeistarans réð
úrslitum.
Kasparov á leið til London
Sýningar á söngleiknum
„Chess" eða Skák eru nýhafnar í
Prince Edward-leikhúsinu í Lond-
on. Verkið hafa samið engir aðrir
en Tim Rice og Abba-drengimir
Benny Andersson og Bjöm Ulva-
eus. Hljómplata með lögunum er
löngu komin út og varð mjög
vinsæl, t.d. á rás 2. Aðalpersón-
umar í verkinu eru einmitt að
bítast um heimsmeistaratitilinn í
skák og Kasparov er því málið
skylt. Hann er nú á leið til London
til að sjá söngleikinn, auk þess
sem hann mun tefla flöltefli, sem
mun færa honum u.þ.b. 600.000
ísl. krónur í aðra hönd, sem er
met.
Sjötta einvígisskák heims-
meistarans við Miles bendir ekki
til þess að hann þurfi að lækka
prísana á næstunni:
6. einvígisskákin:
Hvitt: Anthony Miles
Svart: Gary Kasparov
Slavnesk vörn
1. d4 - d5, 2. c4 - c6, 3. Rc3
- Rf6, 4. e3 - e6, 5. Rf3 -
Rbd7, 6. Bd3 — dxc4, 7. Bxc4
— b6, 8. Bd3 — a6, 9. e4 — c5,
10. e5 — cxd4,11. Rxb5 — Rg4.
Þessi staða kom einnig upp í
4. skákinni. Þá lék Miles ömgg-
asta leiknum, 12. Rbxd4. í teóríu-
bókunum er 11. — Rg4 hins vegar
talinn vafasamur vegna hins
kröftuga leiks 12. Da4!? Illu heilli
trúir Miles fræðibókunum, en
hann hefði þó mátt vita að Kasp-
arov myndi ekki gefa kost á leikn-
um án þess að hafa eitthvað í
pokahominu.
12. Da4 — Rgxe5, 13. Rxe5 —
Rxe5
Að gefa kost á tvfskákum og
fráskákum er afskaplega vara-
samt, nema flækjumar hafí verið
reiknaðar út heima.
14. — Rd6++
Teóríubækumar gefa einnig
14. Rc7++ - Ke7, 15. Rxa8 -
Rxd3+, 16. Ke2 - Re5, 17. Db4+
— Ke8, 18. Db6 með betri stöðu
á hvítt, en f nýjasta Informatom-
um er gefið upp 17. — Kf6!, 18.
Dd2 — Ke7! og svarta staðan á
að vera í lagi.
14.- Ke7,15. Rxc8+ - Kf6.
Stórkostlegur og óvæntur milli-
leikur. Bæði 15. — Dxc8, 16.
Dxd4 og 15. - Hxc8, 16. Bxa6
- Ha8, 17. Db5 - f6, 18. 0-0 -
Hb8,19. Dxe5 (Spassky — Novot-
elnov, Sovétríkjunum 1961) Ieiða
til betri stöðu á hvítt.
16. Be4,
Svartur má vel við una eftir
16. Bxa6 - Rd3+, 17. Kfl -
Dxc8.
16. — Hxc8,17. h4?
17. 0-0 er skárra, þó svartur
nái frumkvæðinu eins og í skák-
inni með 17.— Hc41, 18. Ddl —
d3, 17. Bf4 — Dd6 veldur svarti
engum erfiðleikum, en 17. Db3
er athyglisverðasti leikur hvíts,
því hvítur hótar óþyrmilega að
leika 18. Dg3. Svartur virðist þó
eiga gott svar við 17. Db3: 17 —
d3, 18. Bf4 - Dd4, 19. Bxe5+ -
Dxe5, 20. Dxd3 - Bb4+, 21. Kfl
- Hhd8, 22. Df3+ - Ke7, með
öflugu frumkvæði.
Það er því ekki ljóst hvemig
best er að svara 15. — Kf6, en
varla hefur hvítur sagt sitt síðasta
orð í afbrigðinu.
17. -h6,18.0-0.
E.t.v. hefur Miles ætlað að leika
18. Bg5+, en guggnað, því eftir
18. — hxg5, 19. hxg5n—Kxg5,
20. Hxh8 er 20. - Bb4+, 21.
Dxb4 - Dxh8, 22. Dxd4! vel
viðunandi á hvítt, en svartur leik-
ur 20. - f5!, 21. Dxd4 - Hc4,
eða 21. — Dc5 og nær betri stöðu.
18. — Hc41,19. Ddl,
Það er hart að þurfa að hörfa
en eftir 19. Dxa6 — d3 hótar
svartur báðum biskupum hvíts
(20. — Hxe4 og 20. — d2)
19. — d3,20. Hel?
Nú tapar hvítur liði, en það var
úr vöndu að ráða: 20. Bf3 — g6
og svartur er með peð yfír og
hefur alla stöðuna, eða 20. f4 —
Rg4!, 21. Dxg4 - Dd4+, 22. Khl
— Dxe4, með sælu peði yfir.
20. - Hxcll, 21. Hxcl - d2, 22.
Hf 1 — Dd4I.
Með tvöfaldri hótun. Eftirleik-
urinn er auðveldur fyrir Kasparov.
23. Hc2 - Dxe4, 24. Hxd2 -
Bc5, 25. Hel - Dxh4, 26. Dc2
— Bb4I, 27. Hxe5 — Bxd2, 28.
g3 — Dd4, 29. He4 — Dd5 og
hvítur gafst upp, þvf hann hefur
engar bætur fyrir biskupinn sem
svartur er yfir.
Stýrímannaskólanum slitið
Stýrimannaskólanum i Reykja-
vík var slitið við hátiðlega athöfn
i hátiðasal skólans laugardaginn
17. mai.
Skipstjómarprófi 1. stigs luku
35 nemendur við Stýrimannaskól-
ann í Reykjavik, 10 nemendur við
Dalvíkurskóla og 6 nemendur á
Höfn í Homafirði. Hæstu einnkunn-
ir í Reykjavík fengu Ingimundur
Þ. Ingimundarson, Reykjavík, með
9.19, Gunnar H. Sigurðsson, Akur-
eyri, með 9.17 og Geir Þóroddsson,
Þórshöfn, með 8.72. Hæstu ein-
kunnir á Dalvfk hlutu Nökkvi Jó-
hannsson, Blönduósi, með 8.72 og
Benedikt P. Guðbrandsson, Hofsósi,
með 8.22 og á Höfn í Homafírði
hlaut Bjami E. Olgeirsson 8.43.
Alls luku 22 nemendur skip-
stjómarprófi 2. stigs. Hæstu ein-
kunnir fengu Jóel Kristjánsson,
Siglufirði, 9.33, Ámi Þorsteinsson,
Kópavogi, 9.02 og Vilhjálmur Ól-
afsson, Isafirði, 8.95.
Skipstjómarprófi 3. stigs, far-
mannaprófi, luku 14 nemendur.
Jens Kristján Kristinsson, Akureyri,
fékk hæstu einkunn 8.80. Haraldur
Haraldsson, Reykjavík, fékk 8.70
og Roland Bucholz, Grindavík, fékk
8.61.
í vetur var haldið réttindanám-
skeið skipstjómarmanna sem verið
hafa á undanþágu. Námskeið þessi
voru haldin víðsvegar um landið en
Stýrimannskólinn í Reykjavík hafði
yfirumsjón með náminu. Réttinda-
námið skiptist í 80 rúmlesta rétt-
indanám annars vegar, en því luku
samtals 79 skipstjómarmenn, og
framhaldsnámskeið sem veitir rétt-
indi til skipstjómar á 200 rúmlesta
skipi í innanlandssiglingum hins
vegar. Því luku 32 nemendur. Níu
vikna kvöldnámskeið til 30 rúmlesta
réttinda var einnig haldið í vetur.
Þessu námskeiði luku 40 manns við
Stýrimannaskólann og 18 manns á
ísafírði.
Nokkur verðlaun voru veitt við
skólasiitinn. Hæsti nemandi á 2.
stigi, Jóel Kristjánsson, fékk Öldu-
bikarinn, farandverðlaun Sjó-
mannadagsráðs Reykjavíkur og
Hafnaifyarðar. Jens Kristján Krist-
insson hlaut bikar Eimskipafélags
íslands. Landssamband fslenskra
útvegsmanna veitir á hveiju ári
verðlaun, loftvog og klukku, til
hæsta nemanda í siglingafræði á
skipstjómarprófi 2. stigs. Að þessu
sinni hlaut Hallgrímur Magnús
Siguijónsson frá Isafirði verðlaun-
in, en hann fékk 46 stig af 50
mögulegum. Nemendur sem fengu
ágætiseinkunn og hæstu einkunnir
fengu bókaverðlaun og viðurkennn-
ingarskjal frá Verðlaunasjóði Páls
Halldórssonar skólastjóra. Danska
menntamálaráðuneytið veitti bóka-
verðlaun fyrir hæstu einkunnir f
dönsku á brottfararprófi. Skólinn
verðlaunaði nemendur sem náðu
bestum árangri í íslensku í hverri
deild. Þá vom tíu nemendum sem
fengu 10 í skólasóknareinkunn veitt
sérstök verðlaun, en Kristján Jó-
hannesson, Reykjavík, fékk sér-
staka viðurkenningu fyrir að hafa
100% mætingu bseði á haust- og
vorönn.
Tveir 50 ára nemendur skólans
vom viðstaddir skólaslitin, þeir Jón
Steingrímsson og Guðráður Sig-
urðsson skipstjórar. Skólanum bár-
ust ýmsar gjafir. Fyrir hönd 18
nemenda sem útskrifuðust 1966
með hið meira fiskimannapróf af-
hentu Gunnar Þórðarson og Jón
Bjöm Vilhjálmsson 90.000 krónur
í lána- og styrktarsjóð nemenda.
Fyrir hönd 40 ára nemenda talaði
Jónas Þorsteinsson, skipstjóri frá
Akureyri, og gáfu þeir 33.000 krón-
ur í tækjasjóð Stýrimannaskólans.
Halldór Hermannsson, skipstjóri á
ísafírði, afhenti vandaða bekkjar-
mjmd og peninga,til stofnunar fag-
bókasjóðs Stýrimannaskólans, frá
30 ára nemendum úr farmanna- og
fískimannadeild. Guðni Einarsson,
skipstjóri á Suðureyri, talaði fyrir
hönd 10 ára farmanna og gáfu
þeir 24.000 krónur í sögusjóð Stýri-
mannaskólans. Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, flutti kveðju 20
ára nemenda úr farmannadeild og
gáfu þeir 13 þúsund krónur í sögu-
sjóðinn. Þá fluttu þeir Jón Þórðar-
son, Gunnar Tryggvason og Víðir
Jónsson kveðjur frá 10 ára nemend-
um fiskimannadeildar, en bekkur-
inn ætlar að styrlq'a sögusjóðinn.
Guðjón Armann Eyjólfsson skólastjóri afhendir Jens Kristjáni Krist-
inssyni bikar Eimskipafélags íslands. Við hlið þeirra stendur Hall-
grímur Magnús Siguijónsson, sem fékk verðlaun LÍÚ.
Höggvið er nú grimmt
í garð vina minna
eftirAdolf Björnsson
Umræður og linnulausar árásir á
Útvegsbanka Islands og starfsfólk
þeirrar stofnunar að undanfömu
hafa verið hatrammar og óvægar,
oftast án íhugunar og röksemda.
Vopn hafa verið ryðbúin og slíðra-
laus.
Ekki verður mínum dómi hlýtt,
en rödd mín hljómar til yðar ftjáls.
Ég hefí starfað í Utvegsbanka
íslands í rúma hálfa öld og átt oft
á tíðum í stríði og vopnaburði við
harða andstöðu og ranglæti póli-
tískra andstæðinga og sérhags-
munahópa. Alltaf hefi ég notið
stuðnings félagsmanna minna í hópi
stjómenda í starfsmannafélagi Út-
vegsbankans og annarra félags-
manna þar og í öðmm bönkum.
Ég talaði þar aldrei og hvergi
tæpitungu, en fyrir það hlaut ég
þann dóm, grundaðan og undir-
búinn af pólitískum andstæðingum
mínum, að ég og félagar mínir í
stjóm starfsmannafélags Útvegs-
bankans vomm dæmdir í sex daga
fangelsi, sem síðar dagaði uppi í
skjalamöppu dómasafns Hæstarétt-
ar.
Nú er á ný leitað lags, að koma
höggi á starfsmenn Úivegsbanka
íslands.
Stjómmálamenn ættu að láta
bankamenn í friði við skyldustörf
sín.
Höfundur er starfsmaður Útvegs-
bankans og fyrrverandi formaður
starfsmannafélagsins.