Morgunblaðið - 27.05.1986, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1986
59
I i fe I s í -5 S
w * > i 1Ss í
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
iMJLk
Fyrirspurn til flugmálastjóra:
Er öryggi yngstu
farþeganna tryggt?
Velvakandi.
í framhaldi af umræðu þeirri sem
að undanfömu hefur verið um ör-
yggismál í flugi langar mig að koma
með eina fyrirspum.
Svo virðist sem ung böm (<2ja
ára) sem fullorðnir halda á í sætum
sfnum séu ekki spennt niður með
öryggisbeltum í flugtaki og lending-
um eins og aðrir farþegar. Mér
hefur verið tjáð að hjá mörgum
erlendum flugfélögum séu bömin
spennt með beltum sem festast í
sætisbelti þeirra sem halda á bam-
inu, þannig að þungi þess fullorðna
kemur ekki yfir á bamið við högg.
Mér finnst það harla óhugnanleg
tilhugsun að komi eitthvað upp á í
fluginu séu allir farþegar fast
spenntir nema þeir yngstu, sem þá
e.t.v. þeytast á loft við árekstur eða
annað, því varla getur fullorðinn
einstaklingur — þó sterkur sé —
haldið bami föstu eins og öryggis-
belti. Þó lífslíkur séu e.t.v. ekki
miklar í flugslysum þá trúi ég þó
að það sé betri kostur að vera
spenntur í sætið en ekki.
Ég vildi gjaman fá að vita ástæð-
una fyrir þessu. Ef hún er engin
raunhæf til er þá ekki ráð að gera
bragarbót á þessum málum fyrr
heldur en seinna?
M.H.S.
Þungarokksveitin Iron Maiden.
Þungarokkarar
sameinist!
Kæri Velvakandi.
Við emm tveir þungarokksað-
dáendur og viljum koma þökkum
til stjómenda Poppkoms fyrir að
spila lög með Dio og Ozzy Osbome.
Jafnframt fínnst okkur engin of-
rausn, þótt spilað sé £ið minnsta
kosti eitt þungarokkslag í hveijum
þætti.
Þá viljum við þakka Sigurði
Sverrissyni fyrir góðan Bámjáms-
þátt á rás 2 á laugardagskvöldum.
Við viljum koma á framfæri
þökkum til þungarokksveitanna
Gypsy og Watt fyrir frábæra tón-
leika í Tónabæ. Haldið þessu áfram!
Þungarokkarar, stöndum saman!
Hilmar og Bjarki.
Hvaðan er orðatiltækið?
Andinn er að sönnu reiðubúinn, en holdið er veikt.
Úr Matteusarguðspjalli 26, 41 og Markúsarguðspjalli 14, 38, þar sem
segir frá sálarstríði Jesú í Getsemane. Jesús veit, að hann verður svikinn
og fangaður, og hann tekur Pétur, Jakob og Jóhannes afsíðis til að biðja.
Jesús biður þá vaka með sér, en þeir sofna. Þá segir Jesús við Pétur;
„Sfmon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund? Vakið og biðjið, til þess
að þér fallið ekki í freistni; andinn er að sönnu reiðubúinn en holdið er
ve*W>“ (Dagbladenes Pressetjeneste)
Meira um
Bláa lónið
Velvakandi.
Ég skrifa þessar línur í tilefni
greinar í Velvakanda 17. maí sl.
um sukk í Bláa lóninu.
Ég var stödd við Bláa lónið
þennan sama dag ásamt hópi fé-
laga. Vomm við á ferð um Reykja-
nes og í lokin var farið í Bláa lónið.
Verð ég að segja, að mér ofbauð
aðkoman, svo ekki sé meira sagt.
Er þá langt gengið!
Ég skrifaði frásögn um ferðina
með það í huga að koma frásögninni
um Bláa lónið í blöðin. Tel ég það
óþarft nú, þar sem grein M.G. segir
flest það sem ég sá og skrifaði og
er þar ekkert ofsagt. Meira að segja
sá ég, að stór hundur, sem þama
var á vappi, fór oftar en einu sinni
í lónið. Þá var mér allri lokið! Em
það e.t.v. öll þessi auka-„bætiefni“
sem gera Bláa lónið svo heilsusam-
legt?
Það þarf varla að taka fram, að
stærðar kasettutæki var á trébrúnni
á öllu útopnu.
Mér varð hugsað til greinar, sem
birtist í Norsk Ukeblad í fyrra, þar
sem kostum lónsins var lýst í máli
og myndum. Er það slík aðkoma,
sem bjóða á fólki, sem kemur í
Bláa lónið sér til heilsubótar?
Að lokum fómm við f kaffí í
gistihúsið við Bláa lónið og var þar
allt til fyrirmyndar — eins og að
koma inn í annan heim.
Ég vil þakka M.G. fyrir skrifín.
Þorbjörg.
Utankjörstaða-
skrifstofa
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar 688322, 688953 og 688954.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla
alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnu-
dagakl. 14-18.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlegast látið skrifstofuna
vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á
kjördegi 31. maí nk.
límtré
sparar fyrir þig
Límtré fyrirliggjandi úr furu, eik og brenni.
Tilvalið efrú fyrir þig til að smíða úr sjálfum þér til ánægju -
og svo sparar þú stórfé um leið!
Hringdu í síma 621566 og við veitum