Morgunblaðið - 28.05.1986, Side 1
80 SIÐUR
115. tbl. 72. árg.
Banda-
ríkin
virða
Salt-II
Washington. AP.
BANDARÍKJAMENN hafa
ákveðið að leggja tveimur
Poseidon-kjarnorkukafbát-
um í sumar til þess að upp-
fylla ákvæði Salt II-
samkomulagsins.
Larry Speakes, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að það færi síðan
eftir þörfum bandarískra land-
vama annars vegar og framferði
Sovétmanna hins vegar hvort
Bandarílqamenn héldu Salt II
þegar fram Iiðu stundir.
Speakes sagði samkomulagið
gera ráð fyrir gagnkvæmni sem
aldrei hefði átt sér stað. Hefðu
Sovétmenn brotið hvað eftir annað
ýms ákvæði þess og aðra samn-
inga, sem gerðir hefðu verið um
takmörkun vígbúnaðar. Útilokað
væri að Bandaríkjamenn héldu
einir samkomulagið, sem væri stór-
gallað í ýmsum atriðum.
Speakes sagði kafbátunum
tveimur lagt af hagkvæmnisástæð-
um. Hvor um sig er búinn 16 fjöl-
odda eldflaugum. Salt II takmark-
ar fjölda langdrægra Qölodda
kjamaflauga við 1.200. í dag eiga
Bandaríkjamenn 1.198 flaugar, en
þegar kafbátunum tveimur hefur
verið lagt og Trident-kafbáturinn
tekinn í notkun verða þær 1.190.
Iranskar
þotur
ráðast á
orkuver
__ Nikósíu. AP.
ÍRANIR sögðu orrustuþotur
sínar hafa valdið „stórtjóni“
er þær vörpuðu sprengjum á
Dukan-orkuverið, sem er
norðaustur af Sulaymaniyah í
Irak í gær. Harðir bardagar
hafa verið á þessum slóðum
síðustu daga.
íranir skýrðu frá hörðum bardög-
um við Sumar og Mehran á mið-
hluta víglínunnar og við Subeidat
og Majnoon-eyjar í suðri. Þá sögð-
ust íranir hafa fellt eða sært hundr-
uði íraskra hermanna í leiftursókn
á Faw-skaganum í írak á mánudag.
Ennfremur sögðust íranir hafa
stöðvað og skoðað 11 útlend flutn-
inga- og olíuskip á Persaflóa í gær
til að koma í veg fyrir hergagna-
flutninga til írak. Engin hergögn
hefðu fundist í skipunum og þeim
verið leyft að halda för sinni áfram.
Yfírvöld í _ Bagdað í írak létu
yfirlýsingum írana ósvarað.
STOFNAÐ1913
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
m AP/Sfnuunynd
Tugþúsundir manna fögnuðu Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, i Ramat Gan, útborg Tel Aviv, í gær. Öryggisverðir áttu í
erfiðleikum með að hemja mannfjöldann, sem vildi heilsa ráðherranum.
Friðarviðræður í Miðausturlöndum:
Thatcher vill ann-
an valkost en PLO
Jerúsalem. AP.
TUGÞÚSUNDIR manna fögnuðu Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, í útborg Tel Aviv, Ramat Gan, í gær á lokadegi
opinberrar heimsóknar hennar til ísraels. Thatcher sagði að í
viðræðum við leiðtoga í ísrael hefðu komið fram ýmsar nýjar
hugmyndir, sem komið gætu skrið á viðræður um frið í Miðaust-
urlöndum. Lagði hún sjálf til að fundinn yrði nýr valkostur í stað
PLO sem fulltrúi Palestínumanna i friðarviðræðum við ísrael.
Thatcher sagðist þó ekki hafa
neinar tillögur að færa Hussein
Jórdaníukonungi frá ísraelum
þegar Hussein kemur til Lundúna
um miðjan næsta mánuð. Jafn-
framt er ekki samstaða um með
hvaða hætti friðarviðræður verði
hafnar að nýju. ísraelar fögnuðu
tillögu Thatcher um að fundinn
yrði annar fulltrúi Palestínumanna
en PLO, sem þeir segja vera
hryðjuverkasamtök. Yfirlýsingar
hennar eru taldar til marks um
meiri velvild í garð ísraels í Evr-
ópu.
Thatcher hitti átta fulltrúa Pal-
estínumanna á Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu og hvöttu þeir
hana til að fínna PLO aðild að
friðarviðræðum. Thatcher ítrekaði
við þá að fyrst yrði PLO að falla
frá hryðjuverkum og viðurkenna
ísraelsríki.
Hátt í 30.000 manns voru saman
komnir í miðri Ramat Gan til að
fagna Thatcher er hún kom þangað
í gærmorgun. Ramat Gan er vina-
bær Finchley-hverfísins í Lundún-
um, sem er kjördæmi Thathcer.
Hún gekk á meðal mannfjöldans
og heilsaði fólkinu með handa-
bandi. Öryggisvörðum tókst naum-
ast að halda fólkinu í skeíjum er
það braust fagnandi fram og
reyndi að komast í tæri við Thatch-
er.
Reglur um vegabréfaskoð-
un valda spennu í Berlín
AUSTUR-ÞJÓÐ VERJ AR sögðu
í gær að nýjar reglur um vega-
bréfaskoðun á mörkum Austur-
og Vestur-Berlinar hefðu verið
settar til að hindra hryðju-
verkastarfsemi. Reglurnar
hafa valdið spennu og gremju
meðal Vesturveldanna, sem
aðild eiga að Berlínarsam-
komulaginu, en visað var á bug
orðrómi þess efnis að þau
hyggðust slíta stjómmálasam-
bandi við A-Þýzkaland.
Fulltrúar Bandaríkjanna, Bret-
lands og Frakklands sögðu nýju
reglumar stangast á við sam-
komulagið um stöðu Berlínar.
Þær gera ráð fyrir að sendifulltrú-
ar erlendra ríkja sýni vegabréf er
þeir fara úr einum borgarhluta í
annan. Ekki hefur reynt enn á
þetta gagnvart bandarískum,
brezkum og frönskum sendifull-
trúum, en röðin kemur brátt, að
þeim, að sögn heimildamanna í
A-Berlín. Hafnar voru í gær
samningaviðræður við Sovétríkin
vegna málsins, sem er afar við-
kvæmt.
Reglumar gengu í gildi á
mánudag og var þá dönskum, ít-
ölskum og vestur-þýzkum sendi-
fulltrúum í A-Berlín snúið til baka
er þeir hugðust fara til V-Berlínar
án þess að sýna vegabréf. Ákveðið
hefíir verið að mál þetta verði
tekið fyrir á fundi utanríkisráð-
herra NATO-ríkja í Halifax í
Kanada. Reynt verður að ná
samkomulagi um sameiginleg
viðbrögð.
Bandarískir ráðamenn hafa
sagst gmna að hryðjuverkamenn,
sem aðsetur hefðu haft í A-Berlín,
hefðu staðið á bak við tvö
sprengjutilræði í V-Berlín. Eftir-
litsleysi á landamærunum hefði
gert þeim kleift að fremja ódæðin.
Austur-Þjóðveijar segjast vera að
koma á móts við gagnrýni og
Sovétmenn segjast gáttaðir á þvf
fjaðrafoki, sem nýju reglumar
hafi valdið.