Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986 Bygging húss aldraðra á Eskif irði; Lægstatilboð 2,5 milljónum kr. undir kostnaðaráætlun Mofgunblaðið/JúUus Þórður H. Sveinsson starfsmaður utankjörstaðaskrifstofunnar í Hafnarfirði ræðir við kjósanda. Reykjavík: Yfir tvö þúsund manns kosið utankjörstaða RÚMLEGA 2.200 höfðu kosið utankjörstaða í Reykjavík um miðjan dag í gær. Að sögn Þorsteins Hilmars- sonar starfsmanns utankjör- staðaskrifstofunnar gengur kosningin vel. Flestir koma og kjósa um miðjan dag og á kvöldin. Utankjörstaðaskrif- stofan er í Armúlaskólanum og er hún opin til kl. 22 á kvöldin. í Hafnarfirði höfðu hátt á fjórða hundrað manns kosið utan- kjörstaða í gær og að sögn Þórðar H. Sveinssonar starfsmanns skrif- stofunnar gengur kosningin greiðlega. Kosið er í húsi Gjald- heimtunnar f Hafnarfírði á Suður- götu 14. í Kópavogi höfðu yfír tvö hundruð manns kosið utankjör- staða í gær en kosið er í lögreglu- stöðinni að Auðbrekku. TRÉVERK sf. á Reyðarfirði átti lægsta tilboð í byggingu húss aldraðra á Eskifirði sem Hús- næðisstofnun ríkisins bauð út fyrir nokkru. Tilboð fyrirtækis- ins var rúmlega 2,5 milljónum undir kostnaðaráætlun Hús- Aðalfundur Sambands íslenskra rafveitna hefst í dag AÐALFUNDUR Sambands is- lenskra rafveitna hefur verið boðaður að Hótel Sögu í Reykja- vík dagana 28. og 29. maí. Dagskrá fundarins hefst með skráningu þátttakenda á fundar- stað Hótel Sögu miðvikudag 28. maí kl. 11.30. Að loknum hádegis- verði kl. 13.30 er fundur settur og flutt ávörp. Fyrri hluti aðalfundar hefst með kosningu trúnaðar- manna, skýrslu, reikningar og §ár- hagsáætlun. Jakob Bjömsson orku- málastjóri flytur erindi um „Raf- orkunotkun til fískeldis, eigin fram- leiðsla eða raforkukaup" með stuttu innleggi frá Alberti Albertssyni, Hitaveitu Suðumesja og Jóhanni Má Maríussyni, Landsvirkjun. Agnar Olsen, Landsvirkjun flytur siðan erindi um „Öryggi raforku- kerfisins gagnvart náttúruham- förum". Fimmtudag 29. maí hefst fundur- inn kl. 09.30 með síðari hluta aðal- funda, afgreiðsla Qárhagsáætlunar, reikningar og stjómarkjör. Að há- degisverðiloknum kl. 13.30 flytur Elías B. Elíasson, Landsviricjun erindi um „Viðhorf í gjaldskrármál- um“. Stutt innlegg í erindið verður frá þeim Hauki Pálmasyni, Raf- magnsveitu Reykjavíkur og Krist- jáni Jónssyni, Rafínagnsveitu ríkis- ins. Fundinum lýkur með umræðum um málefni raforkufyrirtækja ásamt öðmm málum. næðisstofnunar. Byggmganefnd hefur leitað eftir samningum við Tréverk sf. en ekki hefur verið gengið endanlega frá samning- um, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Hús- næðisstofnun. Umrætt hús á að rísa við Bleiks- árhlíð á Eskifírði. Stærð þess er 3.177 rúmmetrar og verða í því 8 einstaklingsíbúðir og 3 hjónaíbúðir fyrir aldraða auk sameiginlegs rým- is fyrir íbúana, svo sem setustofur, fönduraðstaða, eldhús, matsalur og heilsurækt. Verktaki á að skila húsinu fokheldu 15. nóvember á þessu ári. Kostnaðaráætlun fyrir verkið var 10.850 þúsund krónur. Eftirtalin tilboð bámst: Framtak sf. Reyðar- fírði 9.917 þúsund kr. (91,4%), Austurverk hf. Egilsstöðum 10.015 þús. (92,3%), Gísli Stefánsson og Bjarki Gíslason Eskifírði 10.903 þúsund kr. (100,5%), Baldur og Óskar sf. Feliabæ 12.669 þúsund (116,7%) og Tréverk sf. Reyðarfirði 8.313 þúsund kr. (76,6%). Morgunblaðið/Skapti Útgerðarfélagi Akureyringa gefið silfurslegið horn Jón Ingvarsson, formaður stjórnar Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna notaði tækifærið, þegar hann sleit aðalfundi fyrirtæk- isins á Akureyri síðastliðinn föstudag, að færa Gisla Kon- ráðssyni, öðrum af framkvæmdastjórum Útgerðarfélags Akur- eyringa og starfsfólki félagsins silfurslegið horn. Þvi fylgdu þakkir og virðing frá SH vegna góðrar móttöku á Akureyri og farsæls samstarfs fyrirtækjanna. 2000 tonn af drasli á haugana í hreinsunarherferð borgarbúa lNNLEN"r „Rúmlega 2.000 tonn af drasli hafa safnast saman i hreinsunar- herferð borgarbúa að undan- förnu og hefur borgin svo sann- arlega tekið stakkaskiptiun,*1 sagði Pétur Hannesson, yfirmað- ur hreinsunardeildar Reykjavík- urborgar, í samtali við blaða- mann. íbúar í öllum hverfum borgarinnar nema tveimur hafa nú lokið við hreinsun í sínu nán- asta umhverfi. „Holtin og Hlíðamar norðan Miklubrautar em einu hverfín sem eftir em en íbúar þar hyggjast hreinsa til hjá sér þann 7. júní, sem er jafnframt fyrsti dagurinn í fegr- unarviku Reykjavíkurborgar. Fegr- unarvikan stendur frá 7.-15. júní og er þá ætlast til að íbúar prýði sitt ytra umhverfi t.d. með því að mála hús sín, laga girðingar og garða og annað sem betur mætti fara. Fegmnarvikan er því lokaátak borgarinnar fyrir afmælishátíðina," sagði Pétur. Hann sagði að víðast hvar væri ástand í hreinsunarmálum viðun- andi nema þá helst í iðnaðarhverf- unum á Ártúnshöfðanum og á ný- byggingarsvæðum, en lítið væri við því að gera. „Vorhreingemingum er því að ljúka með góðum árangri og með góðri þátttöku borgarbúa sjálfra," sagði Pétur. Kaupfélag Skag- firðinga með til- boð í Vallhólm hf. Premium - bensín OLÍS , M05AS: le.ASIS fo 0R 8.15 13-0.75 0E5 THE RON IS 97-9'^THE SG THE MED ÖAbl rUn U , 1 J lO U i * J J ' ifiw wnwAM 0V0TA.TI0NS .ARE BASED UR$N 0.^ G/L. GULARj. THE LEAP LEVEL XN THE MED IS 0.4G/UANO 8-156/L IN NHE. Ptoi IS USUALLy AROUND 91. THE SG BASIS FOR 0.15 IS0.7A5 AND| 10 73rrw 8.18» BARLES. raf range high often. but not , NECESSAPILV. reflects ex-refinerv material while the range loh ’ tenos to reflect stored or blended material. Hluti telexskeytis, sem hefur að geyma leiðbeiningar með „platts European Marketscan“, sem vísað er til í grein Þórðar Ásgeirssonar. eftirÞórð Asgeirsson Árni Ólafur Lárusson hjá Skeljungi segir í samtali við Morgunblaðið að Skeljungur og Olíufélagið hf. (ESSO) hafi fest kaup á sterku bensíni sem verði til sölu hér eftir næstu helgi. Hann segir bensínið svokallað „premium" bensín með öllum þeim eiginleikum sem það ætti að hafa. Hann vildi ekki líkja því við 97 oktan bensínið sem ÓLÍS hóf nýlega að selja og sagði að það væri ekki sambærileg vara. Um svona stað- hæfíngar þarf ekki að hafa mörg orð. OLÍS-bensínið sem verið hefur til sölu sfðastliðinn hálfan mánuð er „premium" bensín með öllum þeim eiginleikum sem það á að hafa. Samkvæmt opinberri skráningu á Rotterdam-verði flokkast bíla- bensín eftir oktantölu í „regular“ og „premium". í leiðbeiningunum með „Platts European Marketscan" segir svo orðrétt: „Premium: On both barges and cargos the RON (Research Octan Number — innskot ÞÁ) is 97—98“. Frekar þarf ekki vitnanna við. Yfírlýsingar Skeljungs- og Olíufé- lagsmanna í þessu efni fá ekki staðist. Þeir vita að OLÍS-bensínið er 97,1 oktan og þess vegna „prem- ium“ bensín þó að vissuleg sé rétt að „premium" geti farið upp í 98 oktan. Trauðla held ég að nokkur finni nú mun á þessu á bflnum sín- um, en hitt hafa margir reynt sem verslað hafa við OLIS sl. hálfan mánuð að fýrir marga bfla hentar 97—98 „premium" bensín mun betur en hið hefðbundna 93 oktan bensín sem hér er líka og verður áfram boðið upp á. OLÍS mun halda áfram að bjóða viðskiptavinum sínum upp á val milli venjulegs bensfns og „prem- ium“ bensfns. Við höfum þegar fest kaup á 97—98 oktan bensíni sem væntanlegt er til landsins á næstu dögum og mun endast okkur vel fram á haust, þannig að vonandi hefur OLÍS hér vísað veginn með nýjung sem er komin til að vera í framtíðinni. Höfundur er forstjórí OLÍS STJÓRN Graskögglaverksmiðj- unnar Vallhólms hf. í Skagafirði hefur fengið eitt tilboð i eignir félagsins sem það auglýsti fyrir skömmu. Tilboðið er frá Kaup- félagi Skagf irðinga. Graskögglaverksmiðjan er með greiðslustöðvun en skuldir hennar eru orðnar meiri en bókfærðar eign- ir, og allt hlutafé, sem er 10 milljónir kr., er tapað að auki. Ríkissjóður er stærsti eigandi hlutafjár, og er auk þess stærsti kröfuhafínn en einnig eiga Búnaðarbankinn, SÍS, Kaup- félag Skagfirðinga, Glóbus og Byggðasjóður verulegar kröfur á fyrirtækið. Skuldir voru um 98 millj- ónir um sfðustu áramót, en eignir 91 milljón. Sigurður I. Halldórsson lögmaður fyrirtækisins vildi ekki greina frá upphæð tilboðsins, en það er samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins miklu lægra en eignir eru skráðar í reikningum félagsins. Til- boðið rennur út í byijun næstu viku og bjóst Sigurður við að afstaða yrði tekin til þess einhvem næstu daga, en um það yrði haft samráð við stærstu kröfuhafana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.