Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986 opnað í Njarðvík, Hagkaup og Samkaup, og nú kemur fólk víða að af Suðumesjum til Njarðvíkur að versla. Bæjarfélagið stóð mynd- arlega að því að veita þessum stór- mörkuðum aðstöðu. Lóða- og- skipulagsmál Fyrir atbeina - Geirs Hallgríms- sonar, f.v. utanríkisráðherra, rætt- ist langþráð ósk Njarðvíkinga, en það var færsla flugvallargirðingár og flutningur olíutanka af vamar- svæði. Vegna þessara aðgerða fékkst um 13 hektara land til íbúð- arbygginga. Land þetta hefur þegar verið deiliskipulagt og verður mögulegt að úthlutá þar lóðum á næsta hausti. eftirSvein R. Eiríksson Njarðvík, einn af þremur kaup- stöðum suður með sjó, hefur tekið stórstígum framförum undanfarin ár og áratugi. Síðan Njarðvík varð sjálfstætt sveitarfélag fyrir 44 árum hefur íbúatalan tífaldast og er í dag um 2.300 manns. Á þessu tímabili hafa sjálfstæðis- menn átt aðild að stjóm bæjarins í 32 ár, þar af með hreinan meiri- hluta í 28 ár. Sjálfstæðismenn hafa þar með átt mestan þátt í hvemig staðið hefur verið að uppbyggingu og rekstri bæjarfélagsins. Meiri- hluti sjálfstæðismanna á því lqor- tímabili, sem nú er að ljúka, hefur staðið afburða vel að málum, fram- kvæmdir allar hafa verið markviss- ar, skipulagsmál, umhverfismál og framtíðaruppbygging hafa vegið þyngst. Aldraðir og unga fólkið Búið hefur verið vel að öldruðum, þó betur megi gera. Á kjörtímabil- inu voru byggðar íbúðir fyrir aldr- aða, með þjónustumiðstöð í eigu bæjarins. Garðvangur, dvalarheim- ili aldraðra, var stækkað og var viðbótin fyrir 29 vistmenn. Auk þess lítur bæjarfélagið til með öldr- uðum, með heimilishjálp og heima- hjúkrun, einnig er létt af þeim öllum gjöldum enda talið að fólk sem um áratugi hefur byggt upp bæjarfé- lagið eigi rétt á að létt sé af þeim álögum í ellinni. Æskulýðs- og íþróttastarf er með miklum blóma. Æskulýðsheimili Sveinn R. Eiriksson. „Njarðvík, einn af þremur kaupstöðum suður með sjó, hefur tekið stórstígum fram- förum undanfarin ár og áratugi. Síðan Njarðvík varð sjálfstætt sveitar- félag fyrir 44 árum hefur íbúatalan tífald- ast og er í dag um 2.300 manns.“ var tekið í gagnið á kjörtímabilinu og fer æskulýðsstarfsemi fram þar og í grunnskólanum. íþróttafólk úr Njarðvík er lands- þekkt, sundkappinn Eðvarð Þór og félagar hans, körfuknattleiksmenn UMFN og handboltastúlkur láta að sér kveða. Allur sá mikli árangur íþrótta- fólksins er að þakka, auk góðrar ástundunar, þeirri aðstöðu sem bæjarfélagið veitir unga fólkinu. Þó sundlaugin sé aðeins kennslu- laug hefur Eðvarði Þór tekist að ná árangri á heimsmælikvarða. Nýtt dagheimili var tekið í notk- un á síðasta ári og eru þá tvö dagheimili rekin á vegum bæjarins. Njarðvík er sennilega eina sveitar- félagið á landinu sem fullnægir þörfinni fyrir dagvistanými. Verslun Um áratuga skeið voru í bænum tvær litlar matvöruverslanir, sem veittu ágæta þjónustu, en á kjör- tímabilinu hafa tveir stórmarkaðir Séð yfir Njarðvík. Hla haldið á spilunum eftirHögna Torfason Undanfamar vikur hefur komið berlega í ljós hve málefnafátækt tröllríður minnihlutaflokknum í borgarstjóm Reykjavíkur. Reynt er að tína til eitt og eitt mál þar sem von er um að hægt sé að koma höggi á sjálfstæðismenn og þá einkum Davíð borgarstjóra. Um heildstæða úttekt á stefnu og störf- um sjálfstæðismanna í borgarstjóm á kjörtímabilinu er ekki að ræða. Minnihlutaflokkamir vita sem er, að yfírgnæfandi meirihluti borgar- búa er ánægður með þau störf og treystir Sjálfstæðisflokknum til farsællar forystu um sín mál. „Brids í borgarstjóm“ Þannig er fyrirsögn greinar sem Ingibjörg S. Gísladóttir borgarfull- trúi Kvennaframboðsins ritar í Morgunblaðið 3. þ.m. Er hún þar að svara skrifum Lárusar Her- mannssonar og ítreka gagniýni sína á þá ráðstöfun, að borgarsjóður og Bridssamband íslands keyptu hús- eign að Sigtúni 9 sl. vetur. Verða henni þessi húsakaup tilefni til furðulegra hugleiðinga og skulum við nú líta aðeins á málflutning hennar. Fjárútlát borgarinnar / Borgarfulltrúinn átelur að húsa- kaup þessi hafi ekki verið á fjár- hagsáætlun. Hún hlýtur að gera sér grein fyrir þvi, að í jafn umsvifa- miklum rekstri og Reykjavíkurborg stendur í, geta alltaf komið upp fjár- útlát á milli ijárhagsáætlana og er það eins og í öðmm góðum rekstri, að stjómendur verða að taka ákvarðanir um slík fjárútlát eftir því sem skynsemin býður hveiju sinni. Að óskalisti Kvennafram- boðsins hafi ekki verið samþykktur við afgreiðslu flárhagsáætlunar kemur þessu máli ekkert við. Landssamtök óalandi Borgarfulltfuinn gagniýnir að verið sé að styrkja landssamtök sem ættu fremur að njóta stuðnings ríkis en borgar. Sá meinbugur er á þess- um málfutningi, að hér er ekki um neinn styrk að ræða. Bridssamband íslands greiðir fullt fyrir sinn eign- arhlut og borgin á sinn hlut óskert- an í umræddri eign. Borgarstjóm hefur hins vegar sýnt bridshreyf- ingunni þá velvild, að greiða fyrir kaupum á húsnæðinu og tryggja báðum aðilum full afnot af því. Röksemdin um að ekki beri að styðja landssamtök fær ekki staðizt. Það vita allir sem vilja vita, að um eða yfír 80% af félagsmönnum slíkra landssamtaka eru Reykvík- ingar eða íbúar nágrannabyggð- anna. Það eru því fyrst og fremst borgarbúar sem njóta þessarar aðstöðu þótt þar verði einnig sinnt ýmsum þörfum landssamtakanna. Hitt má svo borgarfulltrúinn hug- leiða, hvort það sé æskilegt fyrir slík landssamtök að hafa starfsemi sína hér í Reykjavík ef borgaryfír- völd synja þeim um eðlilega fyrir- greiðslu. Sjálfstæðismenn í borgarstjóm hafa sýnt mikinn skilning á þörfum ýmissa félagasamtaka og lagt þeim lið til að leysa húsnæðisvandamálin, sem einatt em hvað þyngst í starf- seminni. Mætti nefna mörg dæmi þess. Slíkur stuðningur hefur víða eflt mjög félagsstarfsemi og má þar til nefna starfsemi Taflfélags Reykjavíkur, svo eitthvað sé nefnt. Nýting húsnæðisins Samkomulag hefur tekizt um að Bridssamband íslands nýti sinn eignarhluta á kvöldin og um helgar og samrýmist það vel þörfum sam- bandsins. Borgin mun hins vegar nýta húsnæðið að deginum og verð- ur þar starfsemi fyrir aldraða og fatlaða, sem hefst þegar á þessu sumri. Sýnist sem hér hafi verið fundin mjög heillavænleg lausn til að leysa vanda Bridssambandsins Högni Torfason „Um heildstæða úttekt á stefnu og störfum sjálfstæðismanna í borgarstjórn á kjör- tímabilinu er ekki að ræða. Minnihlutaflokk- arnir vita sem er, að yfirgnæfandi meiri- hluti borgarbúa er ánægður með þau störf og treystir Sjálfstæðis- flokknum til farsællar forystu um sín mál.“ og um leið að leysa að nokkru marki' aðkallandi vandamál aldr- aðra og fatlaðra. Er lítt skiljanlegt hvemig borgarfulltrúinn getur verið að agnúast út í það. „Karlasamstaðan“ Undir lok greinarinnar fer heldur að slá út í fyrir borgarfulltrúanum. Hún fer að tala um að húsakaupin séu „skilgetið afkvæmi karlasam- stöðunnar", og að „félagsstarfsemi sem karlar standa fyrir mætir mun meiri skilningi ráðamanna en það sem konur taka sér fyrir". Þessi málflutningur minnir á veðhlaupa- hryssur sem búnar eru augnhlíftim svo að þær sjái ekkert til hliðar, aðeins þá einstefnu sem þeim er ætlað að fylgja. Jafnréttisbarátta kvenna heftir vissulega átt rétt á sér og borið mikinn árangur, en sumar þeirra kvenna, sem háð hafa baráttu, virðast hafa tapað áttum og lent á villigötum. Borgarfulltrú- inn fyllir þann hóp. Þegar farið er að heyja baráttu sem tekur aðeins mið af kynferði er komið út á hálan ís og fólk með slíku hugarfari og slíka einsýni gleymir því, að við búum í samfélagi karla og kvenna. Nú er það svo, að í hugaríþrótt- unum tveimur, skák og brids, er jafnréttið milli kynjanna í hávegum haft og að sumra mati meira en góðu hófí gegnir. Þó að borgarfull- trúinn virðist ekki vita það, er starf- andi Bridsfélag kvenna, konur eru í stjóm félaga og samtaka brids- íþróttarinnar og konur spila óhindr- að með körlum í öllum mótum. Til þessa að tryggja fullt jafnrétti á nútímavfsu eru karlmenn ekki gjaldgengir í Bridsfélagi kvenna og spila ekki í þeirra mótum nema sem gestir. Þrátt fyrir þetta er frábær- lega góð samvinna milli karla og kvenna í íþróttinni og mér vitanlega hafa konur ekki kvartað undan neinu kariaveldi eða karlasamstöðu þar. Hlaðvarpinn og moldviðrið Augnhlífar borgarfulltrúans eru á sínum stað þegar hún ræðir um tveggja milljóna króna framlag fyrrverandi fjármálaráðherra tii Hlaðvarpans á Vesturgötu 3. Hún minnist þá ekkert á að framlag þetta var ekki á fjárlögum og veit- ing þess ekki lögð fyrir einn eða neinn annan en hinn örláta fjár- málaráðherra. En eitthvað virðist Ijármálasið- gæði borgarfulltrúans vera brengl- að þegar hún leggur það að jöfnu, að borgarsjóður kaupir fasteign sem hann á til fullra aftiota og mun eiga og reka svo lengi sem hann vill, styður um leið starfsemi Brids- sambandsins án þess að leggja því til eina einustu krónu, og svo hitt, að eftir geðþóttaákvörðun veitir ijármálaráðherra 2 milljónir króna af peningum skattborgaranna til hlutafélags til að kaupa og reka fasteign sem það félag getur selt hvenær sem vera skal og hirt þær tvær milljónir króna sem hagnað sem rann til þessara einkaaðila af skattpeningum landsmanna. Borg- arfulltrúinn er heldur ekkert að fárast yfir þvi, að það eru „Reykja- víkursamtök" en ekki landssamtök sem fá þessa dúsu úr sjóðum lands- manna allra. Landsmenn fengu líka að sjá það í sjónvarpinu fyrir skömmu hvemig þessum skattpeningi þeirra hefur verið varið. í þessari „menningar- miðstöð" gat að líta myndir frí fyrirtækjum, sem Ieigja húsnæði fyrir ýmiss konar glingur og tízku- fatnað fyrir tildurdrósir, vafalaust á „menningarlegu" verði. Davíð „lunkinn“ Davíð Oddssyni borgarstjóra ei margt til lista lagt. Borgarfulltrúi Kvennaframboðsins kveður hann vera „Iunkinn spilamann". Það er rétt, Davíð er ágætur bridsspilari, þótt ekki hafi hann leitt neina sveit til sigurs á bridsmóti, eins og borg- arfulltrúinn heldur fram, en sú fá- vísi er ekki frábrugðin öðm í mál- flutningnum. Davíð er líka lunkinn taflmaður og skákhreyfingin kann vel að meta öflugan stuðning hans. Svo er um miklu fleiri félagasamtök sem eru að beijast af veikum mætti fyrir því að halda uppi hollri og góðri tómstundaiðju án vímuefna og vandræða. Slík samtök hafa átt hauk í homi þar sem Davíð er. En í kosningum á laugardaginn skiptir mestu máli, að Davíð Odds- son er lunkinn borgarstjóri og hann mun leiða sveit sína til sigurs í þeirri keppni sem þá fer fram. Höfundur er áhugamaður um brids.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.