Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986 Þrír hestar drápust af völdum slógmeltu ÞRÍR hestar drápust nýlega eftir að hafa fengið matareitrun af völdum slógmeltu sem þeim var gefin í litlum mæli. Tveir aðrir hestar veiktust. Annar þeirra hefur náð sér að fuUu. Hinn er enn með einkenni en er þó á batavegi. Morgunblaðið/Þorkell Þrír af frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Guðrún Zoöga, Sólveig Pétursdóttir og Ámi Sigfússon, dreifa kosningabæklingi sjálfstæðismanna á Lækjartorgi í blíðviðrinu í gær. Útifundur Sjálfstæðisflokks- ins á Lækjartorgi á morgun Að sögn Helga Sigurðssonar dýralæknis, sem hefur rannsakað orsakir þess að hestamir drápust ásamt Eggerti Gunnarssyni dýra- lækni á Keldum, voru allir hestamir sem veiktust í sama húsi í Mos- fellssveit. Þeim var gefín slógmelta í litlum mæli, en hún er gefín til þess að auka eggjahvítu í fóðri. Slógmelta er unnin úr fískúrgangi og í hana er sett sýra til að auka geymsluþol hennar. Helgi sagði að meltan virtist vera vandmeðfarin og yrðu menn því að koma í veg fyrir að í hana bærist hey eða óhreinindi. Rekstur Granda lof- ar nú góðu — segir Davíð Oddsson borgarstjóri REKSTUR Granda hf. í Reykjavík í aprfl- og maímánuði á þessu ári lofar góðu, að sögn Davíðs Odds- sonar, borgarstjóra, en aðalfund- ur fyrirtœkisins var haldinn 16. maí sl. Borgarstjóri sagði, að reikningar Granda fyrir síðasta ár, sem Iagðir voru fram á aðalfundinum, tælqu aðeins til eins mánaðar, enda hefði fyrirtækið ekki verið stofnað fyrr en í lok nóvember. í byijun þessa árs hefði verið gripið til skipulags- breytinga og hagraeðingar og væri þess nú farið að sjá merki í rekstri fyrirtækisins. í aprílmánuði hefði reksturinn þannig skilað 26 milljón króna framlegð. Davíð Oddsson sagði, að upplýs- ingar um rekstur Granda fyrstu fjóra mánuði þessa árs lægju ekki fyrir, en reikningar yrðu tilbúnir um miðj- an næsta mánuð. Útgerðarfyrirtækið Grandi hf., sem stofnað var með samruna Bæj- arútgerðar Reykjavíkur og ísbjam- arins, er að 77,8% í eigu Reykjavík- urborgar, en að 22,2% í eigu ís- bjamarins og OLÍS. „Við höfum gefíð músum meltu úr sömu tunnu og hestunum var gefíð úr og þær hafa allar drepist. Það er því ljóst að meltan úr þessari tunnu heftir valdið dauða hest- anna,“ sagði Helgi. „Þetta ergreini- lega matareitmn, sú tegund hennar sem kölluð hefur verið botulismi. Henni veldur baktería sem nefnist Clostridum Botulinum en hún fram- leiðir eiturefni. Til em margar tegundir af bakteríunni en við höf- um ekki getað staðfest um hvaða tegund hér er að ræða. Þessi bakt- ería er í öllum jarðvegi og einnig í físki. Við vitum að hey og óhreinindi bámst í meltutunnuna og þess vegna getum við enn ekki fullyrt hvort matareitmnin stafi af því að hráefnið sjálft var lélegt eða af því að hey, mold eða önnur óhrein- indi bárust í meltuna. Meltan virðist vera viðkvænr og menn verða að gæta ýtrasta hreinlætis við með- höndlun á henni," sagði Helgi. Eitmnm lýsir sér þannig að dýrin lamast. Lömunin byijar fyrst í koki, en breiðist síðan smám saman út um líkamann. Helgi sagði að ekki hefði verið hægt að beita neinni sérstakri læknismeðferð við þessari eitmn. stjóri Þjóðviljans, sem skipar 4. sætíð á lista Alþýðubanda- lagsins í borgarstj ómarkosn- ingunum i Reykjavík, sagði á kosningafundi DV í Há- skólabíói í fyrrakvöld, að Alþýðubandalagið ætlaði að fæla alla æðstu embættís- menn Reykjavíkurborgar úr ÚTIFUNDUR sjálfstæðis- manna i Reykjavík vegna borg- arstjórnarkosninganna 31. maí verður á Lækjartorgi klukkan 17:15 á morgun, fimmtudag. Ávörp flytja Davfð Oddsson, borgarstjóri, og frambjóðend- umir Katrín Fjeldsted og Árni Sigfússon. Fundarstjóri verður Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður. starfi, ef flokkurinn kæmist í meirihlutastjóm í höfuð- borginni. „Mér er alveg sama hvert við sendum þá, í öskuna eða látum þá sópa götur eða bara rekum þá. Þeir unnu skemmd- arverk á síðasta kjörtímabili vinstri meirihlutans og burt Áður en útifundurinn hefst leik- ur hljómsveit Stefáns Stefánsson- ar í um það bil hálfa klukkustund á Lækjartorgi og frambjóðend- umir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Júlíus Hafstein og Haraldur Blöndal tefla skák á útitaflinu við Lækjargötu. Á dagskrá útifundarins er auk ávarpa borgarstjóra og frambjóð- skulu þeir,“ sagði frambjóðand- inn orðrétt. Tilefni þessara ummæla var fyrirspum utan úr sal um það hvemig Alþýðubandalagið æti- aði að stjóma Reykjavík, ef Sjálfstæðisflokkurinn tapaði meirihluta sínum. „Við ætlum að byija á því, að koma okkur saman um stefiiuskrá með enda ljóðalestur Helga Skúlason- ar, leikara, og tónlist og söngur, sem hljómsveit Magnúsar Kjart- anssonar og söngvaramir Ellen Kristjánsdóttir og Sigrún Hjálm- týsdóttir annast. Fundur sjálfstæðismanna er haldinn undir merkjunum: „Styrk stjóm í Reykjavík. Sofum ekki á verðinum." samstarfsflokkunum,“ svaraði Össur. „Síðan ætlum við að koma okkur saman um sameig- inlegan borgarstjóra, sem verð- ur úr hópi borgarfulltrúa. Og svo ætlum við að byija á því, sem við gerðum ekki illu heilli síðast þegar við náðum borgar- sijórnarmeirihluta [1978- 1982] og það er að fara og fæla alla æðstu embættismenn borgarkerfisins úr starfi." Sjá einnig Staksteina á bls. 9. ______ Þotuflug hf Tekur 2—3 mánuði að koma fluginu af stað „VIÐ HÖFUM ekki faríð neinar ferðir út enn þá,“ sagði Valdimar J. Magnússon framkvæmdastjórí Þotuflugs hf. sem nýveríð hóf starfsemi sína. Að sögn Valdimars hefur töluvert borist af fyrirspumum um flug. Vélin tekur átta farþega og þarf að skipuleggja ferðimar svo að sæmileg nýting náist. „Vélin kom með stuttum fyrirvara og því eigum við ekki von á öðru en að það taki tvo til þijá mánuði að koma fluginu af stað,“ sagði Valdimar. Unnið er að kynningu þotuflugs- ins hjá ferðaskrifstofum, fyrirtækj- um og einstaklingum. Meðal þess sem er í undirbúningi er útsýnisflug yfír Norðurheimskautsbaug og verður flogið í góðu skyggni í yfír 40 þúsund fetum en í þeirri hæð má sjá ísland og Grænland samtím- is. Þá er verið að kanna möguleika á stuttum ferðum til Grænlands í þeim tilvikum þegar menn em tíma- bundnir og ætla einungis að dvelja þar í nokkrar klukkustundir. Sigfús Daðason Siguröur Pálsson Þorsteinn frá Hamrí Margrét Lóa Jónsdóttir Besti vinur ljóðsins: Skáldakvöld á Hótel Borg „BESTI vinur ljóðsins" heldur skáldakvöld á Hótel Borg mið- vikudagskvöldið 28. maí nk. kl. 21. Þar verður boðið upp á vandaða dagskrá með ljóðum og tónlist. Eftirtalin skáld lesa úr verkum sínum: Sigfús Daðason, Sigurður Pálsson, Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Þórarinn Eldjám, Kristján Þ. Hrafnsson, Þorsteinn frá Hamri, Guðjón G. Guðmundsson, Elísabet Jökuls- dóttir, Þór Eldon, Ari Gísli, Pétur Gunnarsson og Birgitta Jónsdótt- ir. Þá mun Hrafn Jökulsson ann- ast stutta kynningu á skáldunum Jóni Thoroddsen (1898—1924) og Jónasi Guðlaugssyni (1887-1916). Ljóðabók Jóns, „Flugur“ sem út kom árið 1922 er einstök í íslenskri bókmennta- sögu, en hefur að mestu fallið í gleymsku. Jónas Guðlaugsson var aðeins 17 ára þegar fyrsta ljóða- bók hans kom út og þá þegar sáu menn að mikið skáldefni hafði kvatt sér hljóðs. Þegar hann lést, aðeins 28 ára, hafði hann öðlast mikla viðurkenningu í Danmörku fyrir ljóð sín, þótt nafn hans beri ekki hátt nú á tímum. Að lokum mun svo Bjami Tryggvason leika nokkur lög af væntanlegri sólóplötu sinni. Kynnir verður Viðar Eggertsson leikari. Miðaverð á skáldakvöldið er aðeins 250 krónur. Það er sem fyrr segir „Besti vinur Ijóðsins" sem stendur að skáldakvöldinu, en veg og vanda af undirbúningi höfðu þeir Guðjón G. Guðmundsson, Hrafn Jökuls- son og Kristján Þórður Hrafnsson. (F réttatilkynning) Össur Skarphéðinsson, frambjóðandi Alþýðubandalagsins: Ætlum að fæla alla æðstu embættis- menn Reykjavíkurborgar úr starfi „Sama hvert við sendum þá, í öskuna eða látum þá sópa götur eða bara rekum þá“ ÖSSUR Skarphéðinsson, rit-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.