Morgunblaðið - 28.05.1986, Page 35

Morgunblaðið - 28.05.1986, Page 35
Vegaframkvæmdir í sumar MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 35 Bundið slitlag á 200 kílómetra í ÁR ER áætlað að verja tæpum tveimur milljörðum króna til vega- mála hérlendis. Er það nokkru minna fé en gert var ráð fyrir í upphaflegri vegaáætlun fyrir 1986, þar sem ráðgert var að setja 2 milljarða og 40 milljónir króna i vegina. Alls verður sett bundið slitlag á um 200 km vega og brýr verða byggðar víða um land fyrir samtals um 110 milljónir króna. í árslok 1986 má reikna með, að 1.350 km vega á íslandi verði lagðir bundnu slitlagi, að sögn Snæ- bjarnar Jónassonar vegamálastjóra. Á veginn frá Reykjavík, norður Á Vestijörðum verða byggðar til Akureyrar, verður í sumar lagt biýr á Ósá í Patreksfirði, Hofsá í sc bundið slitlag á u.þ.b. 47 kílómetra. I Hvalfirði verður lagt á eina 11 kílómetra, í Norðurárdal milli Gljúf- urár og Hraunár um 10 km og 16 km verða þaktir á Holtavörðuheiði. í Húnavatnssýslu og Skagafirði verða 10 kílómetrar þaktir. Eru þetta samtals 11—12% af veginum milli Reykjavíkur og Akureyrar. í Vaðlareit á Svalbarðsströnd í Eyjafírði verða 4 km lagðir bundnu slitlagi. I Austurlandskjördæmi verður lagt á u.þ.b. 60 km, þar af 20—30 km í nágrenni Hafnar í Homafírði austur í Hamarsljörð og Álftafjörð. Á Skeiðarársandi verða lagðir 9 km af bundnu slitlagi. Allir þeir kaflar sem taldir eru hér á undan, eru á þjóðvegi nr. 1 eða hringveginum svokallaða. Auk þess, sem hér er talið, verður lagt bundið slitlag á hluta Þing- vallavegar, nokkra kafla á Snæ- fellsnesi og í Dölum, Austur-Barða- strandarsýslu, Strandasýslu og á ýmsum stöðum á Norðurlandi eystra. Þá verður vegurinn úr Breiðholti til Vífílsstaða gerður akfær í sumar og sett á hann slitlag, og er það eitt stærsta verkefni Vegagerðar- innar á þessu ári. Auk þess að leggja bundið slitlag, mun Vegagerðin vinna að ýmsum vegabótum öðrum í sumar. Miklar vegabætur verða gerðar í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Haldið verður áfram lagningu vegar jrfir Steingrímsfjarðarheiði, unnið verður að vega- og brúargerð á Leirum við Eyjafjarðará, Norðfjarð- arvegur um Fagradal verður bættur og unnið verður við Austurlandsveg á kaflanum Hof-Össurá í Álftafirði. Þá eru miklar vegaframkvæmdir í gangi í Mýrdalnum og hafa verið síðan í vetur. Svokallaður vegskáli verður byggður yfir 90 metra langan kafla vegarins um Óshlíð milli Isafjarðar og Bolungarvíkur. Vegskáli þessi á að hlífa vegfarendum fyrir gijót- hruni og er hinn fyrsti sem er byggður hérlendis. Mun mannvirkið kosta um 23 milljónir króna, og er það fé hluti þess fjár sem hér er talið renna til nýsmíði brúa. Allmargar brýr verða smíðaðar í sumar. Á Suðurlandi verður byggð ein brú, á Varmá í Hveragerði. Á Vesturlandi verða smíðaðar brýr á Kirkjufellsá í Grundarfirði og Kaldá í Hnappadal. Arnarfirði og Sandaá í Dýrafirði. Á Norðurlandi vestra verður smíðuð brú á Hofsá hjá Enni í Skagafirði. Á Norðurlandi eystra verður lögð brú yfir Eyjafjarðará á Leirum og er hún dýrust brúa í ár, til hennar verður varið um 23 milljónum króna. Þá verða lagðar biýr á Bröndu í Eyjafirði og Ormsá hja Raufarhöfn. Tvær brýr verða svo byggðar á Gæsavatnaleið uppi á öræfum, önnur á Skjálfandafljót og hin á Jökulsá hjá Upptyppingum. Þá verður ein brú byggð á Aust- urlandi, á Bleiksá í Eskifirði. Eins og áður er sagt, verður 110 milljónum króna varið til nýsmíði brúa í sumar og er þá talinn með vegskálinn í Óshlíð. Helstu verkefni hvað varðar við- hald brúarmannvirkja eru sem hér segir: Á Suðurlandi verður unnið að steypuviðgerðum og ryðvöm á brúm á Þjórsá og Hvítá á Iðu. Lagfærð verða gólf brúa á Hólmsá, Ulfarsá og Leirvogsá í nágrenni Reykjavíkur. Á Vesturlandi verður sett nýtt brúargólf á brúna á Kjallaksstaðaá á Klofningsvegi. Á Vestfjörðum verður unnið að steypuviðgerðum á brúnni á Mjólká í Arnarfírði. Á Norðurlandi vestra verða ryð- varðar brýmar á Þverá í Blönduhlíð og Hjaltadalsá á Hólavegi. Á Austurlandi verður breikkuð akbraut brúar á Hofsá í Vopnafírði auk þess sem gert verður þar við steypuskemmdir. 34 milljónum króna verður varið í viðhald brúa. Á undanfömum ámm hefur minna fé verið veitt til vegafram- kvæmda á fjárlögum, en áætlað var í svokallaðri langtímaáætlun um vegagerð. Ef farið hefði verið eftir þeirri áætlun í ár, hefði fram- kvæmdaféð verið um 2,8 milljarðar króna, þegar tekið er mið af vísi- töluhækkunum síðan áætlunin var gerð. Snæbjöm Jónasson vega- málastjóri sagði, að þrátt fyrir þennan niðurskurð á seinni ámm, hefði tekist að vinna flest það, sem áætlunin gerði ráð fyrir, og er það vegna hagstæðra tilboða, sem hafa fengist í hin ýmsu verk, auk ýmiss konar hagræðingar hjá Vegagerð- inni sjálfri. Steinullarverksmiðjan: Kortið sýnir þá vegi sem áætlað er, að verði komnir með bundið slitlag í lok þessa árs. Alls eiga það að vera 1.350 kílómetrar. Til samanburðar má geta þess, að hringvegurinn allur er rúmir 1.400 kOó- metrar að lengd. — Áætluð bundin slitlög í árslok 1986 Fyrsti viðræðufundur um galla á bræðsluofni FYRSTI viðræðufundur stjórnar Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki og norska fyrirtæk- isins Elkem um bætur vegna galla á bræðsluofni verksmiðj- unnar sem Elkem framleiddi. Árni Guðmundsson stjómarfor- maður Steinullarverksmiðjunnar sagði að málin hefðu verið rædd og ákveðið að halda annan við- ræðufund innan tíðar. Stjómendur Steinullarverksmiðj- unnar telja að bræðsluofninn eyði meira rafmagni en gert var ráð fyrir auk þess sem hann væri af- kastaminni. Ami sagði að sjálfsagt yrði þetta erfitt mál að sækja, en forráðamenn norska fyrirtækisins viðurkenndu þó viss atriði. Hann sagði að verksmiðjan væri í gangi fjóra daga vikunnar, eins og gert hefði verið ráð fyrir í upp- hafi, og dygði það til að anna eftir- spum á innanlandsmarkaði. Fram- leiðslan væri mjög góð og markaðs- setningin hefði tekist vel. Sagði Ámi að verksmiðjan væri að þreifa fyrir sér með útflutning til að geta aukið framleiðsluna. Væri ýmislegt í sigtinu sem gæfi góðar vonir. Stórar sendingar af veggskápum eru teknar í hús. Á myndinni hér fyrir ofan er tegund Oslo í mahoní. Verð 34.450,- Ljósa- kappi 3.370,- Útborgun 10.000,- — rest á 6 mánuðum. HLISGÖCIM húsgagna höllin BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK -91-681199 og 681410

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.