Morgunblaðið - 28.05.1986, Side 41

Morgunblaðið - 28.05.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 41 Þúsund blóm blómstri eftir Bryndísi Schram Flestir vita núorðið að aðalmál Alþýðuflokksins þessar borgar- stjómarkosningar eru kaup/leigu- íbúðir handa launafólki og þjón- ustuíbúðir fyrir aldraða. Nú þegar líður að lokum kosn- ingabaráttunnar og flestir játa að A-listanum vex óðum fylgi, er óm- aksins vert að kynna ýmis önnur stefnumál okkar jafnaðarmanna. Sannleikurinn er sá að stefnu- skráin er full af nýstárlegum hug- myndum, sem vert er að gefa gaum og taka afstöðu til. Þessar hug- myndir eru nýstárlegar fyrst og fremst vegna þess, að borgarstjóm Reykjavíkur virðist ekki vera ýkja hugkvæm. Borgarstjómaríhaldinu virðist eitthvað annað betur gefíð en að koma auga á það smáa og fagra í tilverunni, sem gefur lífínu gildi. Lftum á nokkrar hugmyndir: • Atvinnumál Við viljum að borgin komi á fót þróunar- sjóði, sem kaupi hlut { nýjum fyrirtækjum, og selji síðan, þegar þeim vex fiskur um hrygg, að borgin starfræki upplýsinga- og ráðgjafarþjónustu fyrir smá og meðalstór fyrirtæki, að komið verði á fót sérstökum iðnaðarsvæðum fyrir nýjar iðngreinar og leitað lagabreyt- inga til þess að efla nýjar iðn- greinar með „fríiðnaðarkjör- um“, að aðbúnaður fyrir ráðstefnu- hald í borginni verði bættur, sem liður í aukinni ferða- mannaþjónustu, að boigin beiti sér fyrir því að Reykjavík verði aðsetur al- þjóðastofnana. íslendingar hreyfðu fyrstir tillög- um um eftirlitsstofnun 'með lax- veiðum á N-Atlantshafí. Stofnunin var sett upp í Edinborg á Skotlandi, en væri betur komin í Reykjavík. Bryndís Schram „Sannleikurinn er sá að stefnuskráin er full af nýstárlegum hugmynd- um, sem vert er að gefa gaum og taka afstöðu til. Þessar hugmyndir eru nýstárlegar fyrst og fremst vegna þess, að borgarstjórn Reykjavíkur virðist ekki vera ýkja hug- kvæm.“ Hvemig væri að borgin reyndi að fá tii sín þá stofnun, sem setja á upp skv. hafréttarsáttmálanum til þess að hafa eftirlit með nýtingu auðlinda á hafsbotninum? • Jafnréttismál — Dagvistarmál Við viljum að ráðnar verði fleiri konur í stjórnunarstörf hjá Reykjavík- urborg, að sem jöfnust tala karla og kvenna sitji í nefndum, stjómum og ráðum borgarinnar. í samræmi við þetta er auðvitað fulltjafnræði með konum ogkörlum á A-listanum, þótt konur séu að vísu fjölmennari í efstu sætum. Við höfum sett fram nýjar hug- myndir um dagvistarmál, sem fleiri taka nú undir. Við viljum að foreldrar geti valið um aðstöðu fyrir böm á dagvistarheimili eða greiðslu sem samsvarar rekstr- arkostnaði við dagvistar- pláss, ef foreidrar kjósa það heldur, að borgin styðji rekstur dagvistar- stofnana á vegum fyrir- tækja, í tengslum við vinnu- staði, enda verði kröfum borg- arinnar um uppeldishlutverk og starfsmannahald fullnægt, að gerð verði tilraun með rekstur dagvistarstofnunar í tengslum við dvalarheimili aldraðra, svo að öldruðum, sem þess óska, gefist kostur á að nýta reynslu sína af uppeldismálum. Hvemig lízt þér á þetta? • Skóla-og fræðslumál Við viljum að gefinn verði kostur á skólamál- tíðum $ grunnskólum, að fullorðinsfræðsla verði efld verulega og þess gætt að námsgjöldum vegna fullorðins- fræðslu verði stillt í hóf, að skólamir verði betur nýttir til framhalds- og endurmenntunar fullorðinna og starfsemi öld- ungadeilda og námsflokka Reykjavíkur njóti meiri stuðn- ings en hingað til, að borgin beiti sér fyrir öflun fræðsluefnis á myndböndum til útlána á borgarbókasafni og, með notkun sjónvarps, að borgin komi upp kerfi til dreif- ingar á sjónvarpsefni, þ.á m. á fræðslu- og menningarefni, að endurmenntun og starfsþjálf- un fatlaðra verði efld. # Skipulag — umhverfi Hefurðu vitað það betra? Við kratar lýsum yfir afdráttar- lausum stuðningi við tillögu framsóknarmanna um nýjan mið- bæjarkjama í Suður-Mjódd í Breið- holti. Þetta gerum við auðvitað af því að við meinum það. Svo munum við auðvitað taka upp þessa till., þótt Framsókn falli út úr borgar- stjóm. En við viljum líka að gerðar verði tilraunir með yfir- byggingu verzlunar- og göngugatna, að umhverfi Tjamarinnar verði fegrað og Tjömin hreinsuð og dýpkuð, að Hljómskálagarðurinn verði stækkaður út í Vatnsmýrina, án þess þó að tortíma því fiiglalifi, sem þar er á summm. í garðin- um viljum við koma upp húsi með glerklæðningu og upp- hitun, gróðri og veitinga- sölu, sem drægi að borgarbúa og ferðamenn. Á stefnuskrá okkar er að finna aragrúa annarra nýstárlegra og skemmtilegra hugmynda, sem flest- ar hverjar kosta ekki mikil útgjöld í framkvæmd. Það er bara að láta sérdettaþaðíhug. Kynntu þér þessar tillögur betur. En mundu: Kaup/leigufbúðim- ar og nýjar leiðir til að fjár- magna þjónustuíbúðir aldraðra — það eru eftir sem áður aðal- málin. Þau ein verðskulda stuðn- ing þinn, þótt ekki komi annað til. — Bryndís. Höfundur skipar 2. sæti á fram- boðslista AJþýðuflokks við borgar- stjómarkosningar i Reykjavík. Átakanlegt „átak í heilsugæslu“ eftir Halldór Jónsson Fyrir þann sem fylgst hefur með framkvæmdum í heilsugæslu í Reykjavík á síðustu 4 árum er það sérkennilegt reynsla að sjá og heyra sjálfstæðismenn stæra sig af því hvemig staðið hefur verið að þess- um málum. Fyrir kosningamar 1982 var því lofað af sjálfstæðismönnum að ef þeir kæmust til valda yrði sett á laggimar ein heilsugæslustöð á ári, eins og það var kallað. Þetta kosn- ingaloforð var ekki á auglýstum verkefnalista borgarstjóra eftir kosningar og virðist að mestu hafa gleymst þar til nú fyrir kosningar. Nú er talað um „átak í heilsu- gæslu". í stuttu máli má segja að efndimar hafa verið það sem hér fer á eftir og er þá vísað til upptaln- ingar sjálfstæðismanna sjálfra: 1. Heilsugæslustöð Miðbæjar var opnuð 1983 { húsnæði Heilsu- vemdarstöðvar Reykjavíkur, í næsta húsi við stærstu lækna- stöð landsins. Þar starfar einn læknir. 2. Grafín hefur verið gryfja í Breið- holti III þar sem rísa á heilsu- gæslustöð í framtíðinni. 3. Fengið var inni í heilsugæslustöð í nágrannabyggðarlaginu Sel- tjamamesi fyrir hluta af íbúum vesturbæjar. 4. Gerður var samningur og undir- ritaður fyrir nokkmm dögum við Heilsugæsluna í Álftamýri 5 um heilsuvemd og heimahjúkmn fyrir Háaleitis- og Laugames- „Átaks er þörf í heilsu- gæslumálum Reykvík- inga. Það vita allir, ekki síst þeir sem hafa fylgst með fréttatíma útvarps síðustu daga.“ hverfi. Hann er til 7 mánaða og eðlilega miðaður við byijunar- rekstur. Það er því rangt að halda því fram að það sé tiyggt að íbúar í viðkomandi hverfum geti notið þessarar þjónustu, þótt svo verði vonandi í framtíð- inni. Sem einn af aðstandendum þessa samnings get ég upplýst að fmmkvæði að honum var ekki á neinn hátt í höndum borgarinnar. 5. Tilbúin er til notkunar í fyrrver- andi dæluhúsi Hitaveitunnar, Heilsugæslustöð við Drápuhlíð sem þjóna á hluta af Hlíðar- hverfi. Sú stöð mun taka til starfa á næsta kjörtímabili. Svo mjög 14 á að opna stöðina fyrir kosningar að yfírlæknir hennar var skipaður án auglýsingar og er það einsdæmi. Rétt er að taka fram að þar er á ferðinni hinn hæfasti maður. Átaks er þörf í heilsugæslumál- um Reykvíkinga. Það vita allir, ekki síst þeir sem hafa fylgst með fréttatíma útvarps siðustu daga. Fyrst og fremst þarf að tryggja uPPbyggingu heilsugæslustöðva í hinum stóm úthverfum borgarinn- ar. Heilsugæslan við Álftamýri var reist á 9 mánuðum. Sú skoðun hefur komið fram að þar sé nú besta aðstaðan fyrir heilsugæslustöð í Reykjavík. Það er hægt að gera átak í þessum málum á stuttum tíma ef vilji er fyrir hendi. Reynslan sýnir að það nægir ekki að sjálf- stæðismenn fari með meiri hluta í borgarstjóm og að Sjálfstæðis- flokkurinn fari með heilbrigðismál í ríkisstjóminni til þess að slíkt átak sé gert. Höfundur er starfandi heimilis- læknir við Heilsugæsluna í Álfta- mýri ogskipar 5. sæti á framboðs- lista AJþýðuflokksins við borgar- stjómarkosningar i Reykja vík. Sauðárkrókur: Alvarlegar horfur í atvinnumálum VEGNA þess ástands, sem er að skapast í atvinnumálum fisk- vinnslufólks og skólafólks á Sauðárkróki, hafa stjórnir Vmf. Fram og Vkf. Öldunnar gert eftirfarandi ályktun: Hér á Sauðárkróki hafa skapast alvarlegar horfur í atvinnumálum nú næstu vikur og mánuði, sérstak- lega að því er snýr að fiskvinnslu- fólki, unglingum og öðm skólafólki. Fyrirsjánlegt er, að vegna breytinga á Drangey SKl og alvarlegrar vél- arbilunar í Skafta KS3 er ólíklegt að þessir togarar komi með fisk til vinnslu fyrr en eftir 20. júlí nk. Skafti muni þó komast í gagnið eitthvað fyrr eftir nýjustu upplýs- íngum. Er því ekki annað að sjá en alvar- legt atvinnuleysi fiskverkunarfólks og unglinga verði hér a.m.k. næstu 2 mánuðina. Stjómir Verkamannafélagsins Fram og Verkakvennafélagsins Öldunnar telja hér vera að skapast svo ískyggilegt ástand, sem snertir fjölda heimila í bænum, að einskis megi láta ófreistað að skapa þessu fólki vinnu. Fjölmargir unglingar og skólafólk treystir á vinnu í fiysti- húsum yfír sumarið og réttur þeirra til atvinnuleysisbóta er í flestum tilfellum enginn eða mjög takmark- aður. Jafnframt þvi sem félögin bjóða fram alla sína aðstoð í þessum efnum er skorað á Útgerðarfélag Skagfirðinga, frystihúsin á staðn- um, sem og bæjaryfírvöld, að vinna að því svo sem mögulegt er, að útvega skip í stað þessara tveggja, eða gera aðrar þær ráðstafanir sem duga til þess að koma í veg fyrir það atvinnuleysi sem við blasir. Einnig er þeirri áskomn beint til sjvarútvegsráðherra og þingmanna Norðurlands vestra að allt verði gert á þeirra vettvangi til að koma { veg fyrir það alvarlega ástand, sem hér er að skapast ef ekkert verður að gert. (Fréttatilkynning) Rafmogns oghand- iyftarar Liprir og handhægir. Lyftigeta: 500-2000 kíló. Lyftihæð upp í 6 metra. Mjóar aksturs- leiðir. Veitum fúslega allar upplýsingar. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN 71 SEGULROFAR YFIRALAGSVARNIR STJORNUÞRI- HYRNINGSROFAR TIMALIÐAR ROFAHUS gssðl Hagstættverð = HÉÐBENIN i= VÉLAVERZLUN-SIMI: 24Z60 L/V3ER-SÉRR4NTANIR-WÓNUSTA BÍLDSHÖFÐA 16 SlMI:672444 Allar stærðir fyrir allar spennur. Festingar fyrir DIN skinnur. 3 Gott verð. f = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA IZUMI STÝRILIÐAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.