Morgunblaðið - 28.05.1986, Qupperneq 49
MORGUNBLABIÐ, MIÐVTKUÐAGUR 28. MAÍ 1986
49
Minning:
*
Ami Jóh. Bærings-
son Patreksfirði
Fæddur 26. janúar 1913
Dáinn 21. maí 1986
Ámi var einn af níu börnum
þeirra Jóhönnu Guðbjargar Áma-
dóttur og Bærings Bjamasonar er
þá bjuggu í Keflavík í Rauðasands-
hreppi. Fjölskyldan fluttist svo til
Örlygshafnar í sömu sveit árið
1920. Þaðan til Patreksfjarðar
1930.
Jóhanna og Bæring, foreldrar
Áma, vom bæði dugnaðarmann-
eskjur, enda ekki aukvisum hent
að búa í Keflavík í nábýli við Látra-
bjargið háir flallgarðar á þijá vegu
og úthafið fyrir víkurmunnanum,
enda ein harðbýlasta bújörð á
landinu. Bæring kynntist ég ekki.
Hann var dáinn þegar ég fór að
vera á Patreksfirði. Jóhönnu kynnt-
ist ég hins vegar vel. Hún var ekki
stór kona vexti, að öðm leyti hefði
maður vel getað ímyndað sér að
hún væri stigin beint út úr Látra-
bjarginu sjálfu. Þvílíkur var svipur-
inn og festan að fomeskju líktist.
Um afrek hennar við að bjarga sér
og sínum svo sem best mátti verða
gengu kynngimagnaðar sögur. Það
skerpir þessa mynd af móður Áma,
að hún var fríð kona sýnum og
mátti á gamals aldri kalla laglega,
sem afkomendur hennar bera með
sér.
Ámi byijaði snemma að vinna.
Daginn eftir ferminguna réðst hann
til sjóróðra þjá Sigurbimi í Hænu-
vík. Næstu fimm árin stundaði hann
sjó; á vetrarvertíð í Sandgerði, á
síldveiðum fyrir Norðurlandi og
þilskipum frá Patreksfírði þess á
milli, en þá var skútutímabilið að
renna út.
Árið 1932 réðst Ámi til vinnu
við hið landskunna fyrirtæki Vatns-
eyrarbræðra á Patreksfirði. Móður-
fyrirtækið var verslunin Ó. Jóhann-
esson sem gerði út tvo togara, þá
rak hún beinamjölsverksmiðju,
fyrsta flokks vélaverkstæði, neta-
gerð og myndarlegasta frystihús á
landinu. Einnig átti hún marga
vömbfla sem Ami sá um ásamt
því að vera bifreiðastjóri á einum
þeirra lengst af. Af þessum at-
hafnamönnum hreifst Ámi svo að
vinátta myndaðist og hélst þar til
fyrirtækið hætti rekstri.
Svo sem oft má verða með slík
fyrirtæki þá var gjaman dregið
fram í dagsljósið það sem miður fór
og blásið út. Áma þótti þetta mjög
miður og sagði að minna væri eftir
tekið og um rætt sem vel væri gert.
Nefndi hann í því sambandi þá hefð
til margra ára að fyrirtækið lét
færa einstæðu og fátæku fójki í
byggðarlaginu jólapakka, sem Áma
og öðm starfsfólki var falið að út-
búa án íhlutunar þeirra bræðra.
Síðan var það hlutverk Áma að
færa fólkinu pakkana á aðfanga-
dagskvöldjóla.
Fyrir eða um 1940 stofnaði Ámi
fyrirtæki sem gerði út tvo mótor-
báta. Meðeigendur hans vom for-
menn bátanna, Ágúst Pétursson og
Gísli Snæbjömsson, miklir myndar-
og dugnaðarmenn. Ámi sá um þetta
fyrirtæki þeirra félaga í landi. Það
gekk fram til 1950, að þeir hættu
rekstri. Eftir það gerði hann út um
nokkum tíma mótorbátinn Freyju
með nýjum meðeigendum, en þeir
vom Siguijón bróðir hans og Ingi-
mar Jóhannesson. Mun það eins-
dæmi að ekki skyldu verða hags-
munaárekstrar því á sama tíma var
hann eins og fyrr segir fastur
starfsmaður hjá Vatnseyrarbræðr-
um, en slík staða hefur orðið mörg-
um manninum að falli. Svona var
Ámi traustur maður. Hann var síð-
asti maður á launaskrá í fyrirtæki
Vatnseyrarbræðra er því var slitið.
Patreksfjörður var hans orrustu-
völlur hvað atvinnu snerti. Þannig
var hann bifreiðaeftirlitsmaður um
árabil, en því starfí svo sem öllu
öðm skilaði hann af þeirri sam-
viskusemi sem blóð forfeðranna
hafði látið honum svo ríkulega í té.
Ámi fylgdi Sjálfstæðisflokknum
að málum og efaðist aldrei um
ágæti þess flokks. Hann deildi hart
þegar pólitík bar á góma og var í
meira lagi rökfastur. Hann lifði og
hrærðist í stjómmálum nú síðustu
dagana og var sérlega umhugað
um gott gengi Davíðs Oddssonar,
boigarstjóra í Reykjavík, og taldi
að af þeirri útkomu myndu lands-
málin ráðast.
Það var 20. nóvember 1943 sem
Ámi giftist eftirlifandi eiginkonu,
Jónu Jóhönnu Þórðardóttur frá
Innri-Múla á Barðaströnd, systur
undirritaðs, og var það sem annað
heimili bræðra hennar um margra
ára skeið. Þau hjón eignuðust átta
böm, öll mikið myndarfólk. Nú
seinni árin, eftir að Ámi missti
heilsuna og hafði ekkert umleikis
sjálfur, fylgdist hann með athafna-
semi bama sinna og tengdabama,
sem hann hafði verið ekki minni
lærifaðir en faðir og heldur þar
áfram hagsýni og atorka í þriðja
ættlið og það svo að í sumum tilfell-
um með ólíkindum er. Fyrir það sem
hann fann og sá í bömum sínum
lifði hann margar og stórar gleði-
stundir.
17. apríl 1980 varð heimilið fyrir
þeirri þungbæm sorg að elsta dótt-
irin, Jóhanna Bærings, lést eftir
harða baráttu við illvígan sjúkdóm
frá fjórum bömum. Hún hafði ráð-
stafað yngri bömunum þremur til
fjölskyldu sinnar, vissi sem var að
þar yrði kappkostað um gott atlæti
og uppeldi. Eldri dóttirin sá um sig
að nokkru sjálf.
Hjónaband þeirra Áma og Jó-
hönnu var farsælt og mat hann
konu sína mikils.
Ámi var af óvenju hraustu og
traustu fólki kominn, eins og lýsing-
in af móður hans sýnir. Hann var
ekki meira en meðalmaður á hæð,
en hvergi annars staðar var hægt
að nota um hann meðalmennskuvið-
miðunina. Líkamsburðir vom meira
en í meðallagi og vitsmunir einnig.
Hann stóð föstum fótum í fortíðinni
og gömlum uppeldisháttum, þó var
hann fljótur að tileinka sér nútíma-
tækni og jafnvel nýja siði, svo lengi
sem þeir vom sæmd hans samboðin
og ekki slitnir úr samhengi við
fomar dyggðir. Hann var í besta
lagi glaðvær, prúður og í alla staði
gagnmerkur maður. Ég votta eigin-
konu og aðstandenum öllum dýpstu
samúð.
Júlíus Þórðarson
Nokkur kveðjuorð til mágs míns
Áma Jóhannesar Bæringssonar bfl-
stjóra og útgerðarmanns á Patreks-
fírði.
Ámi var fæddur 26. janúar 1913,
í Keflavík í Rauðasandshreppi, 5. í
röð níu systkina og em fjögur þeirra
dáin. Á þeim áram heijaði fátækti"
sem mest á okkur íslendinga. Þes
vegna vissi Ámi að lífíð var engim
dans á rósum og þurfti þvf að far.
með skynsemi og ráðdeild með sit
eigið fé og annarra.
Ámi var fulltrúi Sjálfstæðis
flokksins í stjómun hreppsins un
árabil. Hann vann hjá þeim sæmd
armönnum Vatnseyrarbræðmm un
tugi ára og virtur þar fyrir dugnai
og samviskusemi. Hann rak útgerc
með Ágústi Halldórssyni og Gísla
Snæbjömssyni og fleiram um árabi'
á Patreksfírði og tókst vel til. Á
þeim ámm varð útgerðarmaðurinr
að gera út án þess að geta hlaupié
í það opinbera og heimtað styrk.
Nú síðustu árin þegar heilsan var
búin hafði hann yndi af að fylgjast
með sonum sínum sem gera út bát
af miklum myndarbrag.
Ámi kvæntist eftirlifandi konu
sinni Jóhönnu Þórðardóttur og
eignuðust þau 8 böm en misstu
eina dóttur fyrir nokkmm ámm 35
ára gamla. Hún átti 4 böm sem fóm
til afa og ömmu, nema hvað Hug-
rún systir hennar tók að sér yngsta
bamið.
Ami var einn af þeim mönnum
sem öilum vildi hjálpa ef til hans
var leitað. Það segi ég af minni
eigin reynslu því ég kom til þeirra
hjóna sem ungur maður. Bæði
reyndust mér eins og ég væri einn
af þeirri Qölskyldu og fyrir það vil
ég nú þegar leiðir okkar Áma skilja
í bili þakka af heilum hug, því þegar
hann kemur til ósýnilega landsins
fær hann þakkir fyrir þann dreng-
skap sem hann sýndi öllum sem
hann var samvistum við á lífsleið-
inni.
Til marks um þann mann sem
hann hafði að geyma má nefna að
um árabil ók hann því fólki sem
yfírgaf þetta líf á Patreksfirði síð-
asta spölinn til grafar án greiðslu.
Ámi var alla tíð sjálfstæðismaður
og trúði á frelsi og athafnir einka-
framtaksins sem hann taldi þjóðinni
fyrir bestu.
Að endingu bið ég góðan Guð
að styrkja ástvini hans í þeirri sorg
sem hefur barið að dymm hjá þeim
en við lifum í minningunum um
góðan dreng.
Blessuð sé minninghans.
Karl Þórðarson
Akstur á kjördag
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða á
bifreið til aksturs á kjördegi, laugardaginn
31. maí nk.
Upplýsingar eru góðfúslega veittar á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 frá kl. 09.00—22.00 og frá
kl. 13.00—18.00 um helgar.
mammmnamammmmmi Sjálfstæðisflokkurinn ■■■
indola
loftræstiviftur
4
FALKINN
SUCURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
4
METS0LUB0KI
seldist upp á svipstundu
Ný prentun kemur í vikunni Mál og menning