Morgunblaðið - 28.05.1986, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986
►
v-
Elio de Angelis lést
við kappakstursæfingu
FORMULA 1-ökumaðurinn ít-
alski, Elio de Angelis, lést á
sjúkrahúsi ( Frakklandi fyrir viku
eftir að hafa stórslasast á æfingu
á Brabham-keppnisbfl sínum. Elio
var 28 ára gamall og einn af
fremstu kappakstursökumönn-
um heims.
Slysið varð þegar de Angelis var
að prófa Brabham-bflinn á braut í
Frakklandi. Missti hann stjórn á
bflnum í beygju á mikilli ferð og
skall á grindverki. Kviknaði í bflnum
og tókst aðstoðarmönnum de
Angelis ekki að ná honum strax út
né slökkva eldinn vegna tækja-
skorts. Leið langur tími þar til hann
• ftalinn Eliode Angelis.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson.
náðist úr bflnum og var hann þá
illa farinn af brunasárum og öðrum
meiðslum, sem voru alvarleg.
Björgunarþyrla flutti hann á sjúkra-
hús og voru fengnir sérfræðingar
frá Englandi og Ítalíu til aö annast
hann. Um nóttina voru læknar
bjartsýnir á aö tekist hefði að
bjarga lífi de Angelis, en hann lést
um morguninn. De Angelis er þriðji
Formula 1-ökumaðurinn sem lætur
lífið á tæpu ári. Þjóðverjarnir Stef-
an Bellof hjá Tyrell og Manfred
Winkelhoc létust báðir í fyrra, báðir
þegar þeir óku Porsche-keppnis-
bflum í þolaksturskeppni, ekki
Formula 1.
Mikiðummóthjá
Golfklúbbi Reykjavíkur
MIKIÐ hefur verið um golfmót
hjá Golfklúbbi Reykjavíkur að
undanförnu og hór á eftir fara
úrslit í helstu mótunum sem búin
í hinni árlegu flaggkeppni vann
Guömundur Jónasson en hann var
24 metra frá 20. holunni en Einar
L. Þórisson fékk besta skorið í
þessu móti, 74 högg.
Hvítasunnumótið þar sem keppt
er um Hvítasunnubikarinn fór að
sjálfsögðu fram um hvítasunnu-
helgina og þar vann Gunnar Árna-
son Skarphéðin Sigursteinsson í
hörkukeppni.
MK-keppninni er einnig lokið en
þar vann Úlfar Ormsson á 60
höggum. Vilhjálmur Andrésson sló
63 högg og Halldór Sigurðsson 67
högg í þriðja sætið. Þessar tölur
eru þegar búið er að draga forgjöf-
ina frá en ívar Hauksson náði
besta skori í þessari keppni, 78
höggum.
Öldungar
Eitt opið öldungamót hefur
þegar verið háð. Leiknar voru 18
holur með forgjöf og voru kepp-
endur 35 talsins. Úrslit urðu þau
að Rúnar Guömundsson vann á
66 höggum, Geir Þórðarson varð
annar á 74 höggum og Svan Frið-
geirsson þriðji á 76 höggum og
eru þeir kappar allir úr GR. Besta
skor keppninnar náði Rúnar Guö-
mundsson, 83 högg.
Unglingar
Tvö mót hafa verið fyrir ungl-
inga. Maímótið, sem er keppni fyrir
15 ára og yngri, var haldið fyrir
skömmu og þar var keppt með og
án forgjafar. í keppninni án forgjaf-
ar sigraði Rúnar Guðmannsson en
hann lék á 95 höggum. Ástráöur
Þ. Sigurðsson lék á 97 höggum í
annað sætið og Ingvi M. Pálsson
á 103 í það þriðja. Ingvar Þ. Ólafs-
son vann í keppninni með forgjöf
með því að leika á 71 höggi nettó.
Haukur Óskarsson varð annar með
73 högg.
Um síðustu helgi fór fram
punktakeppni unglinga í Grafar-
holti og þar vann Jón S. Helgason
með 42 punkta en fast á hæla
honum kom Haraldur Reynisson
með 41 punkt og í þriðja sæti varð
Óskar E. Ingason með 39 punkta.
MorgunblaðiS/Einar Falur
• Augnabliksmenn við njósnastarf sitt á mánudagskvöldið.
Mjólkurbikarinn:
Víkingur leikur við
Augnablik íkvöld
11 aðrir leikir ífyrstu umferðinni fkvöld
Mjólkurbikarkeppnin hófst f
gærkvöldi eins og sjá má á blað-
sfðu 63 hjá okkur f dag. í kvöld
verða margir leikir f keppninni og
meðal annars leika Vfkingar við
lið Augnabliks úr Kópavogi. Þeir
Augnabliksmenn eru ekki vanir
að ana að hlutunum og til þess
að kynna sér lið Vfkinga sem
best litu tveir þeirra á æfingu
hjá Vfkingi á mánudagskvöldið.
Augnabliksmennirnir voru vopn-
aðir kvikmyndatökuvél og tveimur
myndavélum en til öryggis skrifuðu
þeir allt niður sem fram fór — ef
myndavélarnar skyldu bila. Á
myndinni hér að ofan má sjá
Augnabliksmennina tvo fylgjast
með Víkingsæfingunni á mánu-
dagskvöldið og eins og sjá má þá
dulbjuggu kapparnir sig í búninga
félagsins þannig að Víkingarnir
þekktu þá ekki.
Að sögn Augnabliksmanna ætla
þeir að taka tvo Víkinga úr umferð
í leiknum í kvöld. Andri Marteins-
son og Elías Guðmundsson eiga
ekki að fá að koma við knöttinn í
leiknum segja þeir, en eitt vanda-
mál fylgir þessu. Þeir segjast ekki
þekkja þá í sjón og því geti svo
farið að allt aðrir menn verði teknir
úr umferð.
Leikur Víkings og Augnabliks
hefst í Laugardalnum klukkan
18.30 en aðrir leikir í kvöld eru:
Stjarnan — Leiftur kl. 20
Fylkir— Hafnir kl. 20
Víkverji — Skallagrímur kl. 20.30
Njarðvík — Árvakur kl. 20
Afturelding — Grindavík kl. 20
Grundarfjörður — HV kl. 20
Hveragerði — Selfoss kl. 20
Leiftur — Vaskur kl. 20
Völsungur —KA kl. 20
Tindastóll — Magni kl. 20
Valur Rf. — Hrafnkell kl. 20
• Sigurvegarar Flugleiðamótsins. ívar Arnarsson er lengst tll vinstri, þá eru Úlfar Jónsson, Tryggvi
Traustason, Hannes Eyvindsson og mótsstjórinn Sigurður Héðinsson.
Ulfar vann Hl-C
Ulfar sigursæll
Golfklúbburinn Keilir í Hafnar-
firði hefur gengist fyrir þremur
golfmótum það sem af er sumri.
Um sfðustu helgi var háð hið ár-
lega Flugleiðamót og voru þátt-
takendur þar 71 talsins. Úlfar
Jónsson sigraði í keppninni án
forgjafar enda strákurinn á
heimavelli og f mjög góðu formi
þessa dagana. Úlfar lék á 138
höggum. Tryggvi Traustason úr
GK varð f öðru sætí með 141
högg og Hannes Eyvindsson úr
GR f þvf þriðja með 144 högg. í
keppninni með forgjöf sigraði
ívar Arnarsson úr GK á 129 högg-
um, Tryggvi varð annar með 131
högg og Úlfar í þvf þriðja með
134 högg.
í byrjun maí var Kays-keppnin
háð og þar kepptu 129 kylfingar
með og án forgjafar. Úlfar vann
þetta mót einnig og að þessu sinni
á 71 höggi. ívar Hauksson úr GR
varð annar með 73 högg og jafn
honum að höggafjölda varð félagi
hans úr GR, Ragnar Ólafsson. í
keppninni með forgjöf vann Jens
Jensson GR á 65 höggum, Ög-
mundur Ögmundsson úr GS varð
annar á 67 höggum og í þriðja
sæti varö Arnar ÓLafsson úr GK
á 68 höggum.
Panasonic-mótið var haldiö 19.
maí og það var punktakeppni.
Keppendur voru alls 105 og þeirra
hlutskarpastur varð Sigurður Hólm
úr GK með 42 punkta. Róbert
McKee úr GK fékk 40 punkta og
Guðlaugur Georgsson úr GK hlaut
38 punkta.
Hjá Golfklúbbi Ness fór fram
fyrir skömmu Hl-C mót í golfi
og voru keppendur þar alls 103
og slógu alls 9.190 högg f
keppninni. Fæst högg notaði
Úlfar Jónsson úr GK, 72 talsins
og er það jafnt pari vallarins.
Friðrik Jónsson sigraði í keppn-
inni með forgjöf, lék á 65 högg-
um nettó. Sérstök aukaverð-
laun voru fyrir að vera næst
holu á öllum par 3 brautum
vallarins. Þessi verðlaun hlutu
þau Kristfn Þorvaldsdóttir,
Marteinn Guðnason, Pétur
Arason og Bjarni Andrésson.
Kasco-mótið
Á morgun, fimmtudag, fer Hámarksforgjöf er 24 Einnig
fram opna kasco-mótið í Grafar- veröa veitt verðlaun fyrir besta
holti. kasco er einkum þekkt skor.
hérlendis fyrir golfbolta sína og Ræst verður út frá kl. 10.00
hanska. til 18.40. Skráning fer fram í
Leiknar verða 18 holur, Golfskálanum í Grafarholti í sím-
punktakeppni með 3/« forgjöf. um 82815 og 84735.