Morgunblaðið - 28.05.1986, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 63
Jón Páll
vann málið
gegn ÍSÍ
Á FÖSTUDAGINN fóll dómur fyrir
Bæjarþingi Reykjavikur í máli,
sem Jón Páll Sigmarsson höfðaði
gegn ÍSÍ til að fá niðurfellt tveggja
ára keppnisbann, sem nefnd
innan fSI setti hann í. Að sögn
Sigurðar G. Guðjónssonar, lög-
frœðings Jóns Páls, fœr hann
dóminn í hendur í dag, en sam-
kvæmt dómsorði hefur Jón Páll
verið leystur úr keppnisbanni og
það dæmt ógilt.
„Þetta er sigur fyrir Jón Pál og
þann málstað, sem hann hefur
barist fyrir og um leið staðfesting
á því að staðið var að ólöglegum
aðgerðum gegn einum af okkar
bestu íþróttamönnum, en réttlætið
hefur náð fram að ganga og það
verður ekki troöið á æru manna,“
sagði Ólafur Sigurgeirsson, for-
maður Kraftlyftingasambands ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið
ígærkvöldi.
Hvorki náðist í Jón Pál, en hann
tekur nú þátt í Hálandaleikunum í
Skotlandi, né forráðamenn fSf.
Jafnt hjá Dönum
• Ludek Miklosko, markvörður Tókka, stóð sig vel í ieiknum og varði m.a. vftaspymu. Hór er hann
á róttum stað sem oftar f leiknum.
Reykjavíkurleikarnir:
Frá Gunnari Gunnaruynl, fréttaritara Morgunblaðalns (Danmöricu.
I gærmorgun lóku Danir sinn
síðasta æfingaleik áður en
heimsmeistarakeppnin f knatt-
spymu hefst f Mexfkó. Leikurinn
var gegn Kolumbfu og lyktaði
honum með jafntefli, hvoru liði
tókst að skora tvö mörk.
Danir voru fyrri til að skora og
gerðu þeir reyndar bæði mörk sín
í fyrri hálfleik. Fyrst Ælkjer og síðan
Simonsen en í síðari hálfleik
skorðu heimamenn tvívegis og
jöfnuðu þar með leikinn. Fyrri hálf-
leikur þótti vel leikinn og skemmti-
legur en sá siöari var slakur. Sér-
staklega voru Danir slakir þá.
Morten Olsen var tekinn útaf í
síðari hálfleik vegna magakvilla og
við það riðlaðist vörnin algjörlega,
einnig vegna þess að Nilsen var
ekki með i leiknum af sömu
ástæðu og Olsen vartekinn útaf.
Það hefur annars komið mikið á
óvart hversu vel litlu leikmennirnir,
Jesper Olsen og Alan Simonsen,
hafa komið út í hinu þunna lofti.
Stóru mennirnir í liðinu eins og Jan
Mölby eiga hinsvegar mun erfiðara
með að ná tökum á loftstaginu.
Dönsku leikmennirnir eru orðnir
dálítið þreyttir á dönskum blaða-
mönnum því það eina sem þeir
vilja fá að vita er hvernig þeim
gengur að aðlagast loftinu og
hvort ekki sé vont fyrir þá að leika
í svona þunnu lofti. Sören Lerby
brást hinn versti við í gær er hann
var spurður að þessu af dönskum
blaðamanni og sagði: „Ég nenni
nú ekki aö svara þessari spurningu
einu sinni enn. Þið fjalliö sífellt um
loftsiagið hér og geröuð þaö einnig
fyrir ári. Loftiö var þunnt þá og það
er enn jafn þunnt og ég held það
eigi eftir að vera svona næstu 100
árin. Þið ættuð frekar að snúa
ykkur að því aö skrifa um knatt-
spyrnuna en ekki veðrið."
Þrekþjálfari danska liðsins, Hol-
lendingurinn Ritchard Schmith, er
ekki ánægður með þá Laudrup og
Ælkjer. Hann segir þá ekki í neinni
líkamlegri æfingu og reyndar séu
þeir í slakasta forminu af öllum
leikmönnum liðsins. Þess má geta
í lokin að Laudrup lék ekki með í
leiknum í gær vegna þess að hann
hafði ofkeyrt sig á þrekæfingu.
„Hann er ( allt of lítilli þjálfun,"
sagði þjálfarinn.
Tékkar betri
en írar unnu
Þurrkað f sólinni
MorgunDiaoio/cmar raiur
•írsku áhorfendumir sem fylgdu llðl slnu hingað til lands hafa notið veðurfolfðunnar f Reykjavfk á
milli þess sem þeir hafa verið á vellinum að hvetja sfna menn. í gær vom þeir niður á Austurvelli
þar sem þeir voru að þurrka fánana sfna og veifumar fyrir leikinn f gærkvöldi gegn Tókkum. írar
unnu leikinn og þvf geta áhorfendumlr farið hamingjusamir heim f dag með sigurverðiaunin en írska
liðið heldur einnlg heim f dag.
ÍRAR TRYGGÐU sór efsta sætiA á Reykjavikurteikunum f knattspymu
í gærkvöldi, þegar þeir unnu Tókka 1:0 á aðalleikvanginum f Laugar-
dal, eftir að staðan hafði verið 0:0 f hálfleik. Tókkar voru mun betri
f fyrri hálfleik og sköpuðu sór nokkur góð marfcfæri eftir hraðan og
góðan samleik, en þeim brást bogalistin þegar nálgaðist marfc íra
og tókst ekld að skora. Frekar dofnaði yfir leiknum f sfðari hálfleik,
en á 61. mfnútu fengu frar dæmda vafesama vftaspymu, en marlcvörð-
ur Tókka, Ludek Miklosko, varði lólegt skot Mick McCarthy. Eftir
þetta lifnaði aftur yflr Tókkunum og enn fengu þeir góð færi, en
mistókst að skora. A 83. mfnútu kom sfðan eina mark leiksins. Frank
Stapleton, sem kom inn á sem varamaður á 56. mfnútu, fókk knöttinn
rótt innan við miðlfnu á vallarhelmingi Tékkanna, lók hratt upp miðjan
völlinn og skaut sfðan hörkuskoti af rúmlega 20 m færi og hafnaði
knötturínn f þaknetinu fyrir miðju marki, algjöríega óverjandi fyrir
Ludek Miklosko, marfcvörð Tókka. Tókkar reyndu árangurslaust að
jafna leiklnn en höfðu ekki árangur sem erfiði.
Fyrstu mínútur leiksins sóttu
liðin á víxl án þess að skapa sér
umtalsverð færí. Á 12. mínútu kom
fyrsta marktækifæríð í leiknum.
Mick McCarthy gaf góða sendingu
inn í vítateig Tékka, en John
Aldrídge skallaði beint í fangið á
tékkneska markverðinum. Tékkar
brunuðu upp, Miroslav Siva, besti
maður Tékka, lék á tvo íra, en ír-
arnir náðu að bjarga í hom. Tékk-
amir héldu áfram að sækja og
sérstaklega áttu írar í erfiðleikum
með Siva, sem stakk þá af hvað
eftir annað.
Paul McGrath komst í gott færí
á 25. mínútu, en Tékkar björguðu
í hom, og skömmu síðar átti hann
gott skot frá vítateig, en markvörð-
ur Tékka var á réttum stað og átti
ekki í erfiðleikum með skotið. Á
36. mínútu léku Tékkar hratt upp
vinstrí kantinn, Josef Chovanec gaf
á Karel Kula, sem framlengdi
sendinguna á Ivan Hasek sem var
í góðu markfærí, en í stað þess
að skjóta gaf hann knöttinn fyrir
markið, þar sem enginn Tékki var
fyrir, og sóknin rann út í sandinn.
Skömmu síðar var Siva enn á fullri
ferð, en Payton tókst að verja
hörkuskot hans frá vítateigshorni.
Á 41. mínútu fengu írar fríspark á
miðjum vallarhelmingi Tékka, Qu-
inn fékk góða sendingu inn í víta-
teiginn, en skot hans fór framhjá
markiTékka.
Síðari hálfleikur var daufari, en
þó fékk Hasek gott færí á 48. mín-
útu, en skaut yfir. Á 61. mínútu
dæmdi Óli P. Olsen vafasama víta-
spymu á Tékka. Frantisek Straka
Texti
Steinþór Guðbjartsson
Einar Falur
handlék knöttinn, en var hann
innan eða utan vítateigsins? Mick
McCarthy tók vitaspymuna og
varði markvörður Tékka auöveld-
lega í hom. Á 63. mínútu fékk Siva
góða sendingu frá Berger, en
hörkuskalli hans fór naumlega
framhjá. Sókn Tékka hólt áfram
og á næstu mínútu komst Siva
aftur í dauðafærí, en sendi knött-
inn út í teiginn, og írar bægðu
hættunni frá. Tékkar sóttu stíft
næstu mínútumar, en þaö kom í
hlut íra að skora eina mark leiks-
ins. Stapleton skoraði glæsilegt
mark á 83. mínútu af rúmlega 20
m færí, óverjandi fyrír markvörð
Tékka. Tékkar reyndu að jafna
metin, en tíminn var of naumur.
Lið íra var nokkuð jafnt í þessum
leik og var ekki eins mikill kraftur
í leikmönnunum eins og á móti
íslandi. Bestir voru Paul McGrath
og Ray Hughton. Hjá Tékkum var
Siva langbestur meðan hans naut
við, en hann fór út af þegar 15.
mínútur voru eftir. Hinn leikreyndi
Ladislav Vizek var einnig mjög
góður og Ivan Hasek átti góða
spretti.
Gunnartil
Malmö
GUNNAR Gunnarsson hand-
knattleiksmaður í Danmörku mun
að öllum liklndum ganga fró
samningi viö handknattleiksliðið
Malmö f Svfþjóð á morgun. í
samtali við Morgunblaðið f gær
sagðist hann fera til Sviþjóðar á
morgun og ganga frá samningi.
„Það er að vísu ekki alveg búið
að ganga endanlega frá öllum
endum en líkurnar eru svo til
100%. Ég mun þá búa í Danmörku
fyrsta hálfa áríð og Ijúka námi þar
en síðan flyt ég til Lundar," sagði
Gunnar í gær.