Morgunblaðið - 28.05.1986, Page 64
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986
VERÐ f LAUSASÖLU 40 KR.
Birgðir
af nauta-
kjöti til
7 mánaða
— 27% aukning í fram-
leiðslu það sem af er
verðlagsárinu
TÖLUVERÐ birgðasöfn-
un hefur orðið í naut-
gripakjöti á undanförn-
um mánuðum. í byrjun
þessa mánaðar voru 1.335
tonn til í birgðum í
landinu, 482 tonnum eða
56,6% meira en sama dag
í fyrra. Samsvara þessar
birgðir nærri 7 mánaða
sölu í nautakjöti. Salan
undanfarna mánuði hefur
verið svipuð og áður, en
birgðaaukningin stafar af
mikilli aukningu í fram-
leiðslu.
Það sem af er verðlagsárinu,
1. september til aprílloka, hafa
komið út úr slátrun nautgripa
2.397 tonn af nautgripakjöti.
Sömu mánuði á síðasta verðlags-
ári var framleiðslan 1.888 tonn
og er aukningin því 509 tonn eða
tæplega 27%. Á þessu sama tíma-
bili hefur sala nautakjöts aukist
um 125 tonn, úr 1.521 tonni í
1.647 tonn, eða um 8,2%.
Undanfarin sex verðlagsár
hefur sala á nautgripakjöti verið
á bilinu 2.200 til 2.500 tonn. Salan
hefur samsvarað 9,29 til 10,85
kg. á mann. Salan var mest verð-
lagsárið 1979-80, 10,85 kg á
mann, en 1982-83 var hún hlut-
fallslega minnst, 9,49 kg á mann.
Á síðasta verðlagsári samsvaraði
salan 10,2 kg. á hvert mannsbam
á landinu.
Jesúítaregla býður
ríkinu frumrit Nonna
Milljarðaverðmæta velgætt
Morgunblaðið/RAX
Eftirleiðis verður löggæsla allan sólarhringinn á Kjarvalsstöðum á fimmtíu og fimm
listaverkum eftir Picasso, sem sýnd verða á Listahátíð. Tveir lögreglumenn voru
þegar mættir á vakt þegar verkin voru tekin úr kössunum í gær.
Ekki er vanþörf á öflugri gæslu þvi verðmæti málverkanna skipta milljörðum
króna að mati kunnugra. Meðal myndanna eru margar heimskunnar myndir sem
eru geysilega verðmætar, t.a.m. stúlkumyndin innfellda.
Akureyri.
ÍSLENSKA ríkinu hafa verið Sveinssonar, Nonna, handskrifuð I Sverrir Hermannsson, mennta-
boðin öll frumrit verka Jóns af rithöfundinum og hefur | málaráðherra, fengið samþykkt
fyrir því í ríkisstjóminni að
hrinda þvi í framkvæmd að leita
eftir kaupum á þeim.
Um 65% Reykvíkinga vilja
Davíð fyrir borgarstíóra
TÆPLEGA 65% kjósenda i höfuðborginni, sem afstöðu hafa
tekið, telja æskilegt, að Davíð Oddsson verði áfram borgar-
stjóri Reykjavíkur að loknum kosningunum á laugardaginn.
Er það talsvert fjölmennari hópur en hyggst kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn í borgarstjóraarkosningunum. 29% kjósenda vilja að
einhver annar verði borgarstjóri og 6,4% telja það ekki skipta
máU.
Þetta er niðurstaða skoðana-
könnunar, sem Félagsvísinda-
stofnun Háskólans gerði fyrir
Morgunblaðið um síðustu helgi.
Könnunin náði til 800 Reykvík-
inga á aldrinum 18 til 80 ára.
Svarendur voru 615 eða 77%.
Könnunin leiðir í ijós, að 54%
þeirra, sem hyggjast kjósa Al-
þýðuflokkinn í borgarstjómar-
kosningunum, vilja að Davíð
Oddsson verði áfram borgar-
stjóri. Sama sinnis eru 32% kjós-
enda Framsóknarflokks, 16%
lgósenda Alþýðubandalags og
10% kjósenda Kvennalista. 94%
kjósenda Sjálfstæðisflokks telja
æskilegt að Davíð verði áfram
borgarstjóri.
Samkvæmt könnuninni nýtur
Davíð Oddsson meiri stuðnings
Davíð Oddsson
karla en kvenna. 71% karla, sem
afstöðu tóku, vilja að hann verði
áfram borgarstjóri, en 59%
kvenna.
Spurt var: „Telurðu það æski-
legt, að Davíð Oddsson verði
áfram borgarstjóri, eða vildirðu
heldur að það yrði einhver ann-
ar?“ Af heildinni sögðust 364
(59,2%) vilja Davíð áfram, 163
(26,5%) viidu einhvem annan,
36 (5,9%) sögðu það ekki skipta
máli, 15 (2,4%) neituðu að svara
og 37 (6,0%) svömðu „veit
ekki.“ Athygli vekur, að hlutfall
óákveðinna og þeirra, sem neita
að svara, er óvenju lágt eða
8,4%.
Sverrir upplýsti þetta á fundi hér
á Akureyri í gær. Jesúítareglan í
Köln í Vestur Þýskalandi hefur
frumritin í fórum sínum en það er
Haraldur Hannesson hagfræðingur
sem bauð ríkinu þau í umboði regl-
unnar. „Þetta eru að mínu mati
geysileg verðmæti sem við eigum
kost á að eignast og ekki kemur
annað til greina en að við gerum
allt til að eignast þau. Ef Jesúítar
verðleggja þessi verðmæti veit ég
hins vegar ekki hvemig þetta fer,“
sagði Sverrir í gær en benti á að
sér fyndist allt eins líklegt að reglan
afsalaði íslenska ríkinu handritun-
um. Hann sagðist helst eiga von á
því að fulltrúar Jesúítareglunnar
kæmu hingað til lands í sumar til
að ræða þetta mál. Þess má geta
að það eru ekki aðeins frumrit hinna
heimsfrægu „Nonnabóka" sem
þama er um að ræða heldur öll
hans handrit - og þar af leiðandi
margt sem aldrei hefur verið gefið
út á prenti.
Jesúítareglan hefur einnig boðið
íslenska ríkinu myndir Colling-
woods, bresks málara sem ferðaðist
um landið á sínum tíma og málaði.
„Þetta eru frummyndir Colling-
woods og íslenska ríkið verður líka
að eignastþær," sagði Sverrir.