Morgunblaðið - 07.06.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 7. JÚNÍ1986
Vestur-Þýskaland:
Nýr umhverfismála-
ráðherra tekinn við
Bonn, Vestur-Þýskalandi. AP.
HINN nýi umhverfismálaráð-
herra Vestur-Þýskalands, Walter
Wallmann, sór embættiseið í
gær. Eftir embættistökuna urðu
snarpar deilur á Sambandsþing-
inu og sökuðu þingmenn sósial-
demókrata, sem ásamt umhverf-
isverndarflokki græningja eru í
stjórnarandstöðu, Wallmann um
að hafa ekki gert nægilega grein
fyrir afstöðu sinni til ýmissa
umhverfisverndarmála.
Skákmótið í Bugojno:
Jafntefli í 9. umferð
Bugojno, Júgósiavíu. AP.
ALLAR skákimar í 9. umferð alþjóðlega skákmótsins í Bugojno
enduðu með jafntefli og þvi heldur Anatoly Karpov, fyrrum heims-
meistari, ennþá forustunni á mótinu með 5 vinninga og eina biðskák.
cp8.4 Úrslit í 9. umferð urðu þau
að Timman og Sokolov gerðu jafn-
tefli í 37 leikjum, Spassky og
Ljubojevic sömdu um jafntefli eftir
aðeins 14 leiki, sem og gerðu Miles
og Portisch og Karpov og Yusupov.
Næstir á eftir Karpov koma
Ljubojevic og Sokolov með 4 lh
vinning og biðskák, þá kemur
Spassky með 4 lh vinning og Miles
með 4 vinninga og biðskák.
Sósíaldemókratar deildu einnig á
Wallmann fyrir að segja í ræðu að
stjómin stefndi ekki að því að leggja
niður starfsemi í kjamorkuvemm í
framtíðinni, en stjómarandstaðan
hefur lagt mikla áherslu á það.
Helmut Kohl kanslari skýrði frá
því fyrr í vikunni að nýtt umhverfis-
málaráðuneytið yrði stofnað. Telja
sumir fréttaskýrendur að ástæðan
til þess hafí verið sú gagnrýni sem
kanslarinn sætti eftir kjamorku-
slysið í Chemobyl. Einnig hafa
græningjar unnið á í skoðanakönn-
unum að undanfömu, en kosningar
til fylkisþingsins í Neðra-Saxlandi
fara fram 15. júnl nk.
Komatsu Zenoah BC 430_____________
Vélorfið vinsœla
Með fjögurra línu nœlonhausnum
• Ómissandi fyrir sumarbústaöi og annaö óslétt land. • Ómissandi til aö snyrta umhverfis
kantsteina, tréeöagiröingar,. Létt, sterkbyggt, kraftmikiö og auövelt í notkun. • Margir
fylgihlutir. • Góö varahluta- og viögeröarbjónusta.
SláMuvéla
markaðurinn
Smiðjuvegur 30 E-gata,
Kópavogur Sími77066
Alm. auglst./SlA
Sárabindið „sýgur“
sýklana upp úr sárinu
Úr Svenska Dagbladet.
ÞAÐ ER velþekkt staðreynd að hreint sár grær fyrr en óhreint.
Til þessa hafa menn notað fúkkalyf til þess að firra sár sýklum,
en nú er mögulegt að „sjúga“ þá upp úr sárinu í stað þess að
drepaþá.
Sænskt heilbrigðisfyrirtæki,
LIC, hefur hannað nýja tegund
umbúða, en þær em sótthreins-
andi á þann veg að þær „sjúga“
sýklana upp í sig, en drepa þá
ekki í sárinu, eins og hefðbundin
fúkkalyf gera. Flestir sýklar em
vatnsfælnir og þá staðreynd nýttu
hinir sænsku vísindamenn sér.
Sýklamir dragast nefnilega að
efnum sem hrinda frá sér vatni.
Úr slíku efni eru umbúðimar.
Þetta hefur m.a. þann kost í för
með sér að sýklar, sem em ónæm-
ir fyrir fúkkalyfjum dragast að
efninu.
Engar aukaverkanir fylgja
notkun umbúðanna, þar sem þær
gefa ekki frá sér nein efni, sem
lfkaminn gæti orðið fyrir barðinu
á.
A ári hveiju fá u.þ.b. 120.000
Svíar ígerð í sár. Mörg þeirra er
erfítt að lækna með hefðbundnum
aðferðum, en umbúðimar hefa
gefíð mjög góða raun þar sem
fúkkalyfín hafa ekki dugað. Þess
em jafnvel dæmi að notkun
umbúðanna hafí komið í veg fyrir
aflimun.
Umbúðir þessar hefa verið
nefndar „sýklasegullinn", en heita
opinberlega SORBACT. Auk þess
að koma að góðum notum við að
sótthreinsa sár, hafa þær reynst
mjög vel við flutning á húðvef.
Þegar ný húð er grædd á sjúkling,
verður húðin að vera tandurhrein.
SORBACT hefur reynst kjörið til
þess, þar sem að hægt er að nota
það á afmörkuðum svæðum. í
einu tilviki hafði fímmtán sinnum
verið gerð tilraun til þess að
græða húð á mann, sem fengið
hafði bmnasár, en án árangurs.
Eftir að húð hans var hreinsuð
með SORBACT heppnaðist
ágræðslan. Þessi ágæti árangur
hefur vakið athygli og nú er hafín
dreifing á SORBACT utan Sví-
þjóðar.
Siad Barre sýnt tilræði?
París. AP.
ARABÍSKA vikublaðið Al-Mostakbal, sem gefið er út í París, sagði
{ síðasta tölublaði sínu að bUslysið, sem forseti Sómaliu, Siad Barre,
lenti í, í síðustu viku, hafi orsakast af morðtilræði. sem honum var
sýnt.
Samkvæmt opinbemm heimild-
um lenti forsetinn í bílslysi nærri
höfuðborginni, Mogadishu, hinn 23.
maí. Hann var sagður hafa hlotið
skurði, brákast og marist illa, og
var flogið með hann til Saudi-
Arabíu til meðferðar.
Samkvæmt því tölublaði Al-
Mostakbal, sem út kom í þessari
viku, var haft eftir sómölskum
heimildum að í raun hafí forsetinn
lent í slysinu þegar bflstjórinn
reyndi að forðast skotárás óþekktra
tilræðismanna. Héraðsstjóri Norð-
ur-Sómalíu var undir stýri og tókst
með snarræði að sveigja frá árásar-
mönnunum, en með þeim afleiðing-
um að bifreiðin valt og forsetinn
slasaðist.
Stjómvöld hafa ekkert vilja segja
um málið, en samkvæmt ríkisút-
varpinu í Mogadishu, er líðan for-
setans mjög góð og mun hann fara
af spítalanum bráðlega.
Siad Barre var undirhershöfðingi
og næstæðsti yfirmaður hersins
þegar hann kómst til valda árið
1969, eftir að þáverandi forseti
landsins, Ali Shermarke, var myrt-
ur.
NÝTT SÍMANÚMER FRÁ 8. JÚNÍ
69 55 00 [hIhekiahf