Morgunblaðið - 07.06.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1986
Þessir hringdu . .
Strengleikar —
góðurþáttur
Útvarpshlustandi hringdi:
Sunnudaginn 1. júní sl. var
sériega góður þáttur í hljóðvarp-
inu sem hóf sig upp úr skvaldri
helgarinnar. Það var myndlistar-
þátturinn Strengleikar í umsjá
Halldórs Bjöms Runólfssonr. Þar
fór saman áhugavert efni,
áheyrilegur og vandaður texti og
einstaklega fogur tónlist. Kærar
þakkir Halldór Bjöm.
Perluarmband
týndist í Top-ten
Ung stúlka hringdi og sagðist
hafa týnt perluarmbandi í Top-
ten-klúbbnum í Armúla föstudag-
inn 30. maí. Biður hún finnandann
að hringa í síma 71231 og heitir
fundarlaunum.
Éurocard og Visa
hressileg hækkun
Greiðslukortanotandi hringdi:
„Mér brá illa í brún þegar ég
komst að því núna á dögunum
að Eurocard hefðu hækkað verðið
á sínum kortum upp í 750 kr.,
en þau kostuðu 500 kr. áður. Ég
hringdi þá í Visa að gamni mínu
og höfðu kortin hjá þeim hækkað
í 700 kr. Þetta þykir mér nú
hressileg hækkun og trúi því varla
að hún stafi eingöngu af verð-
bólgunni. Gaman væri að fá að
vita hvemig á þessari verðhækk-
un stendur."
Spurst fyrir
um BMX-turbo
reiðhjól
Guðfínna hringdi og sagði að
hjóli sonar síns hefði verið stolið
er hann tók þátt í Afríkuhlaupinu
um daginn og hafði lagt því fyrir
framan stjómarráðið. Um er að
ræða nýtt BMX-turbo reiðhjól,
gjarðimar með hvítu plasti en
dekkin gul. Biður hún þá sem
kynnu að verða varir við hjólið
að hringja í síma 13292.
„Nordan hardan gerdi gard..
Enn hringja margir eða skrifa
vegna fyrirspumar um botn, sem
birtist í Velvakanda á dögunum,
við þessum fyrrihluta:
Nordan hardan gerdi gard
geysihardurvardhann
Geir Guðmundsson Bolungarvík
skrifar:
„í Velvakanda lýsti O.Þ. eftir
botni við vestfírskan vísuhelming.
í bók Áma Gíslasonar Gullkistunni
útb. 1944, bls. 183, er vísan í heild
svona:
Nordan vard, hann gardi gard,
geysihardurvard ’ann
bordajardarennisard
upp í skardid bard ’ann
Vísa þessi er alkunn hér vestra
og gjarnan notuð sem dæmi um
hinn foma vestfírska framburð, þar
sem -ð- var borið fram sem -d-, en
sá framburður er alveg við það að
hverfa. Til gamans mætti fylgja
ísfírsk staka sem birtist á sama
stað:
Suðaustan og setur upp eyra,
sinna vill þó Fjörðunum meira,
landnordan og ljónið út Djúpin,
líka hengir ’ann strákinn í Núpinn.
(Eyra: ský, sem vindur teygir,
strákur: skýjaklúfur)." Steinunn
Gunnarsdóttir sendir þennan botn:
Ofan jardar ekkert vard
onískardidbard’ann
Steinunn þakkar fyrir nöfnin á
tánum sem komu í Velvakanda í
vetur.
Jón Óskar sendir þennan botn:
bordajardarerdisard
uppískardidbard’ann
Bordi jardar heldur hann að sé
sjórinn, ard sjávar sé brim og erdis
áhersluorð, þ.e. brimið barðist upp
í skarðið.
Vestfírðingur sendir þennan
botn:
ardar svardar ennis ard
ofan i skardid bard’ann
B.G. sendir eftirfarandi botn:
Ólafsfjardar upp á skard
upp á skardi bard’ann
Gunnar Bjamason ráðunautur
hringdi og sagðist hafa lært þessa
vísu á Akureyri um 1930 og hafí
seinni parturinn þá verið þannig:
Eyjafjardareyddi ard
upp í skardid bard’ann
Þetta þýði að norðangarðurinn
hefði tekið hey af bæjum og borið
upp í skarðið.
Sigurður Guttormsson segist
hafa heyrt þennan:
Reykjafjardar austan ard
ofan í Qördinn bard’ann
Bjöm Guðbrandsson læknir
skrifar:
„Vísan gæti verið upprunnin í
Héðinsfirði en seinni hlutann hef ég
heyrt á þennan veg:
Ólafsfjardaryfirskard
allan gardinn bardi ’ann.“
Segir hann að þama sé átt við
fjallið Barða á Vestfjörðum.
Velvakandi þakkar öllum sem
hringdu eða skrifuðu.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til - eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera véirituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski
nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvseðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.
^51
'------------------------------N
96 bls. hvert hefti, tvisvar á ári. 60.
árgangur. Flytnr greinar um:
— Andlega menn og reynslu
— Hugleiðingu, yoga
— Eðli mannsins
— Huga hans og vitund
— Óskilin fyTÍrbæri
— Forna visku
Tímaritið
Gangleri
Nýir áskrifendur fá einn árgang ókeypis.
Askriftargjald500 kr.
Áskriftí síma 39573.
K-______________________________
& OPEL REKORD
DIESEL
WECINDI
ORYGGI
KRAFTUR
...sá sem aldreí bregst
BíLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Nýgalvi HS 300
Unnt er að spara ómældar upphæðir
með því að fyrirbyggja eða stöðva tær-
ingu. NÝGALVI HS 300 frá KEMITURA í
Danmörku er nýtt ryðvarnarefni á ís-
lenskum markaði.
• Nýgalvl er hrelnn slnkmálmur í sérstöku upplausnarefnl. Slnklnu er smurt á
ryðhvarfaö (oxideraö) stálundlrlaglð og brennlst fullkömlega viö þaö.
• Slnkiö bofnfellur auöveldlega og getur því veriö erfitt aö hrœra upp i dósunum
fyrst i staó. Gott er þá aö nota handborvél meö hrærisþaöa.
• Ekki þarf aó sandblása eöa gljáslípa undirlagið. Sandskolun undir háþrýstingl
eöa virburstun er fullnægjandi.
• Fjarlæglö alla gamla málningu, laust ryö og skánir, þerriö flötinn og máliö meö
nýgalva.
• Nýgalvi fyrirbygglr tærlngu og stöövar frekarl ryömyndun, fyrirbyggir bakteríu-
gróöur og þörungagróöur. Skelfisk festir ekki vlö flötinn.
• Nýgalvi er tllbulnn tll notkunar i dósum eöa fötum, hefur ótakmarkaö geymsluþol
á lager, borlnn á með pensli eöa úöasprautu.
• Hvert kg þekur 5—6 m’ sé þorlö á með pensli og 6—7 m’ ef sprautaö er.
• Venjulega er fullnægjandi aó bera á tvö lög af nýgalva. Þegar málaö er á rakt
yflrborð eöa í mjög röku lofti, t.d. úti á sjó, er ráölagt að mála 3 yfirferðir. Látlö
líða tvær stundir milli yfirferöa.
• Hitasvið nýgalva er +40°C til 120°C.
• Nýgalvi er ekki eitraöur og er skrásettur af framleiöslueftirlitlnu og vinnueftirlltinu
i Danmörku.
• Galvanhúö meö nýgalva er jafnvel ennþá þetri og þolnarl heldur en venjuleg
heltgalvanhúöun.
• Hentar alls staðar þar sem ryö er vandamál: turnar. geymar, stálvlrki, skip, bátar,
bílar, pipur, möstur, girðlngar, málmþök, loftnet, verktakavélar, landbúnaöarvélar
og vegagrindur.
Smásala
LITURINN
Síðumúli 15,
105 ReykJaviK.
Sími 84533.
ELLINGSEN HF.,
Grandagaröi 2,
101 Reykjavík.
Sfml 28655.
MÁLNINGAR-
VERSLUN
PÉTURS
HJALTESTED
Suöurlandsbraut 12,
105 Reykjavfk.
Sfml 82150
Umboð á íslandi
og heildsala
SKANIS HF.,
Norraen vlösklptl,
Laugavegi59,
101 Reykjavík.
Síml 21800.
Verktakar
STÁLTAK
Borgartúni 25,
105 Reykjavík.
Sfmi28933