Morgunblaðið - 07.06.1986, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.06.1986, Blaðsíða 56
Ákvörðun um hvalveiðar ekki breytt Ingmar Bergman ásamt konu sinni og Hrafni Gunnlaugssyni á Keflavíkurflugvelli í gær. Bergman kominn til að stjórna Júlíu MEÐAL fyrstu farþeganna sem stigu út úr Flugleiðavélinni frá Stokkhólmi í gær var leikstjórinn Ingmar Bergman ásamt eiginkonu sinni. Hrafn Gunnlaugsson, formaður fram- kvæmdanefndar Listahátíðar, og Stefanía Sunna Hockett, starfsmaður hátíðarinnar, tóku á móti honum og færðu honum rauðar rósir. Þetta er i fyrsta sinn sem Bergman kemur hingað í heimsókn og virtist hann ánægður við komuna hingað, faðmaði formann framkvæmda- nefndarinnar að sér, tók á móti rósavendinum frá Listahátíð með bros á vör og sagði að rósimar hér væru fallegar! Að svo mæltu lá Ieiðin í fríhöfh- ina, en úti fyrir beið svartur glæsivagn eftir að flytja hann og konu hans í bæinn, en Bergman leikstýrir sem kunnugt er leikritinu Fröken Júlíu sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld og annað kvöld, og vegna mikillar aðsóknar hefur þriðju sýningunni verið bætt við klukkan fjögur á morg- un. Fiskverð hjá Coldwater hækkar um 5 til 20 cent „VIÐ höfum þegar ákveðið með hvaða hætti hvalveiðar í vísinda- skyni verða stundaðar í sumar og gert um það samning. Síðan Karitas Ósk Bjamadóttir Leitin í Eldvatni enn árangurslaus LEITIN að stúlkunni sem saknað er og bQ hennar í Eldvatni i Skaftártungu var árangurslaus í gær. Stúlkan heitir Karitas Ósk Bjamadóttir. Karitas Ósk er 19 ára gömul, fædd 30. apríl 1967. Hún á lög- heimili á Eyrarlandi í Fljótsdals- hreppi í Norður-Múlasýslu, en hefur búið undanfama mánuði hjá móður sinni í Aðallandi 8 í Reykjavík. Að sögn Reynis Ragnarssonar lögreglumanns í Vík sem stjómar björgunaraðgerðum, töldu björgun- armenn sig hafa náð að krækja í bílinn í fyrradag og draga hann til í ánni en krækjan missti takið áður en þeir náðu að draga hann á hentugan stað til að ná honum upp. Olíubrák kom upp á yfirborðið og brak þegar þeir færðu hann til. I gær einbeittu þeir sér að staðnum þar sem þeir misstu bílinn, en hafa ekki náð að fínna hann eða festa í hann aftur. Um 20 björgunarsveit- armenn voru að björgunarstörfum við Eldvatn í gær. er þessi samningur tU endurskoð- unar á hveiju ári í Ijósi reynslu og nýrra viðhorfa. Veiðarnar verða þvi stundaðar i sumar, hvað sem Alþjóða hvalveiðiráðið samþykkir á fundi sínum nú,“ sagði HaUdór Ásgrímsson, sjáv- arútvegsráðherra, í samtali við Morgunblaðið. „Vísindaneftidin fjallaði ekki sér- staklega um rannsóknaráætlun okkar núna. Enn er til umfjöllunar ályktun, sem Svíþjóð og Sviss fluttu á síðasta fundi og stefnt er að því að afgreiða nú. í henni felst ályktun um það með hvaða hætti ríkisstjóm- ir noti sér heimildir til veiða í vís- indaskyni. Það er að afurðimar verði ekki seldar á alþjóðlegum markaði. Þama er ekki um að ræða neina breytingu á stoftisamþykkt- um ráðsins eins og var er stöðvun veiða í atvinnuskyni var samþykkt. Hér er eingöngu um ályktun að ræða. Við búumst við því að við getum fallizt á mjög mikið af því, sem er í þeim texta. Hins vegar er ágreiningur um eitt atriði; hvort heimilt skuli að selja afurðir á al- þjóðlegum mörkuðum, sem til verði við veiðar í vísindaskyni. Við teljum það ekki vera í verkahring ráðsins að álykta um slíka hluti og eigi ekki að blanda því saman við vís- indalegan tilgang. En um þetta verða trúlega mestu deilumar," sagði Halldór Ásgrímsson. COLDWATER Seafood Corp., dótturfyrirtæki SH í Bandaríkj- unura, hækkaði í gær verð á nokkrum fisktegundum frá Is- landi. Hækkunin er á bUinu 5 tíl 20 cent á hvert pund eftir teg- undum. Mestu getur þessi hækk- un munað í karfa eða tæpum 30 mUljónum króna í heildina. Verð á þorskflökum í 5 punda pakkningum til annarra en Long John Silver’s hækkaði um 5 cent hvert pund og hefur því hækkað um 10 cent á skömmum tíma. Verð á karfaflökum hækkar sömuleiðis um 5 cent hvert pund, hvert pund í ufsablokk hækkar um 7 cent og pund af grálúðu hækkar um 20 cent. Takist Coldwater eftir þetta að selja jafnmikið af karfa og þegar eftirspum var annað, um 14 milljón- ir punda, getur verðhækkunin skil- að tæpum 30 milljónum í heildina til framleiðenda hér heima. Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater, sagði í samtali við Morgunblaðið, að menn vonuðust til þess að þessar hækkanir yrðu ekki til að styggja viðskiptavini fyrirtækisins. Með þessari hækkun væri teflt á tæpasta vaði, en það væri talið nauðsynlegt til að auka framboð á físki að heiman og bæta afkomu framleiðenda. Þegar verið væri að ræða um mikilvæga lang- tíma samninga, skipti það mestu máli, að geta séð kaupendum fyrir þeim físki, sem þeir þyrftu. Sjá frétt um söluaukningu í maí á bls. 2. Fyrsti haf- beitarlax- inn kominn FYRSTI laxinn á þessu sumri kom í hafbeitarstöðina Vogalax á Vatnsleysuströnd í fyrrakvöld. Er þetta að öllum Hkindum fyrsti laxinn sem skUar sér í hafbeitar- stöðvarnar í ár. Fyrsti laxinn var stór, 18—20 punda, og í kjölfarið komu þrír laxar til viðbótar. Guðlaugur R. Guð- mundsson, stöðvarstjóri hjá Voga- lax, sagðist eiga von á mikið af stórlaxi í sumar, það er laxi sem skilar sér eftir tvö ár í sjó. Erfíðara væri að áætla endurheimtur eins árs laxins. 3 tonn af tómötum til Svíþjóðar Á VEGUM Sölufélags garð- yrkjumanna fara 3 tonn af tóm- ötum með Flugleiðavél tíl Kaupmannahafnar árdegis i dag. Endanlegur áfangastaður tómatanna er Malmö í Sviþjóð eða svæðið þar i kring. Talið er að þetta sé fyrsti tómataút- flutningur íslendinga. Þorvaldur Þorsteinsson for- stjóri Sölufélagsins sagði að nú væri mikil framleiðsla á tómötum, meiri en möguiegt væri að selja innanlands. Ur umframtómötun- um hefði verið búin til tómatsósa hjá Efnagerðinni Val. Efnagerðin teldi þetta ekki borga sig lengur og því hefði verið ákveðið að reyna að flytja tómatana úr landi þegar mestu framleiðslutoppamir væru, frekar en að henda þeim á haug- Morgunblaðið/Börkur Sölufélagsmenn setja tómatana sem eiga að fara á markað í Svfþjóð inn í flutningabíl F'Iugleiða sem flytur þá á Keflavíkurflug- völl. Níels Marteinsson sölustjóri hjá Sölufélaginu sagði að verð á tóm- ötum væri nú mjög lágt hér á landi vegna þessarar miklu fram- leiðslu, og væri því ekki mikil áhætta tekin með útflutningi. Tómatamir færu á opinn markað þar sem verðið réðist af gæðum og framboði og eftirspum og því ómögulegt að sjá fyrir hvaða verð fengist fyrir útflutninginn. Hann gerði sér þó vonir um að hagstætt verð fengist fyrir tómatana því fslenskir tómatar væru mjög góð- ir, bragðbetri en hjá flestum öðr- um. Hann sagði að hræðsla al- mennings á Norðurlöndum við geislavirkni í grænmeti eftir kjamorkuslysið í Sovétríkjunum gæti einnig haft einhver áhrif.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.