Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
128. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986
Prentsmiðja Morgiinblaðsins
Sri Lanka:
70 menn farast
í sprengingum
Colombo, AP.
AÐ MINNSTA kosti 70 manns fórust í Trincomalee-héraði, þegar
tímasprengjur sprungu um borð í tveimur almenningsvögnum.
Ónafngreindur talsmaður her-
stjómarinnar sagði að vagnamir
hefðu gereyðilagst í sprengingun-
um. Annar vagnanna var á leið til
Colombo, en hinn til Kantalai. Yfir-
herstjómin sagði að 70 manns
hefðu farist, en embættismaður rík-
isfyrirtækisins, sem rak vagnana,
segir að mun fleiri kunni að liggja
í valnum. Hann sagði enn ffemur
að líklega hefðu flestir farþeganna
verið sinhalar.
Að undanfömu hefur verið mikið
um sprengingar og árásir, sem beint
er gegn sinhölum. Ríkisstjómin
hefur kennt herskáum tamflum um
þessar árásir, en þeir beijast fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis tamfla á
norður- og austurhluta Sri Lanka.
Tamflar, sem em flestir hindúar,
em um 18% hinna 16 milljóna íbúa
eyjarinnar. Þeir hafa kvartað undan
því að þeir séu misrétti beittir af
Sinhölum, sem era búddistar og í
miklum meirihluta á eynni.
Varsjárbandalagið:
Tillaga um fækkun
herja í Mið-Evrópu
Búdapest, AP.
FUNDI leiðtoga Varsjárbanda-
lagsríkjanna lauk í gærkvöldi í
Búdapest í Ungverjalandi með
því að Ieiðtogamir lögðu til að
bandalagið og NATO semdu um
25% fækkun herja í Evrópu á
næstu árum.
Tillagan gerir ráð fyrir fækkun
í land- og flugher um 100-150 þús-
und hermenn á næstu tveimur ámm
og að síðar hefjist fækkun í áföng-
um, sem leiði til 25% fækkunar
heraflans. Hugmyndin er að sveit-
imar verði afvopnaðar, hermennim-
ir sendir heim og vopn þeirra eyði-
lögð eða geymd samkvæmt reglum,
sem samkomulag næðist um.
Einnig gerir tillagan ráð fyrir
fækkun meðaidrægra kjamavopna
og að komið verði á gagnkvæmu
eftirliti til að sannreyna hvort aðilar
fari eftir samningum. í þessu skyni
verði sett á fót alþjóðleg nefnd, sem
fulltrúar Varsjárbandalagsins og
NATO ættu m.a. sæti í. Nefndinni
væri ætlað að fylgjast með fram-
gangi samkomulags um hergagna-
fækkun með vettvangskönnun.
Menn, sem málum em kunnugir,
telja tillöguna ekki vænlega til ár-
angurs. Hún gangi miklu lengra en
þær tillögur, sem 13 ára árangurs-
lausar Vínarviðræður stórveldanna
hafa snúist um. Þeir halda því fram
að tillagan sé fram komin í þeim
tilgangi að dreifa athyglinni frá
Vínarviðræðunum þar sem Varsjár-
bandalagið hefur verið í vöm und-
anfarin ár og ekki ljáð máls á
raunhæfri fækkun herja og vopna
í Mið-Evrópu.
Handritin handleikin
Morgunblaðið/Bjami.
Stórhertogahjónin heimsóttu Árnastofnun í gsermorgun, þar sem þeim voru sýnd handritin. Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður Árnastofnunar, upplýsti hjónin um sögu og gildi handritanna fyrir
íslendinga og fékk síðan stórhertoganum eitt handritanna í hendumar, sem hann handlék með
ýtrustu varúð.
Sjá ennfremurfréttogmyndirá bls. 26.
Hörð andstaða við hvalkjötssölu íslendinga á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins:
Ráðið snýst gegn fjár-
mögnunarleið Islands
Malmö, Svíþjóð. Frá Ömarí Valdimarssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
ALLT bendir nú til að Alþjóða-
hvalveiðiráðið samþykki í dag
ályktun þar sem aðildarriki ráðs-
ins eru hvött til að koma í veg
fyrir alþjóðlega verslun með
afurðir hvala sem veiddir eru i
visindalegum tilgangi. Þótt
ályktun af þessu tagi sé ekki
Svalbarði skattparadís
skipaútgerðarmanna?
Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
SVALBARÐI kann að verða gerður að norskri skattaparadís.
Viðskiptaráðuneytið hefur nú til athugunar, hvort þar skuli
koma á fót alþjóðlegri skipaskráningu, svo að norsk skipaút-
gerðarfyrírtæki, svo og erlend, geti notið góðs af lágum sköttum.
Á tveimur sl. ámm hefur norski m.a. vegna hárra skatta. Það fer
farskipaflotinn minnkað um helm-
ing. A þremur fyrstu mánuðum
þessa árs dróst flotinn enn saman
um 10%. Utgerðarfyrirtækin telja
það of kostnaðarsamt að gera
skipin út undir norskum fána,
því sífellt í vöxt, að skipin séu
skráð í löndum, þar sem skatta-
greiðslur em lágar, svo sem í
Panama, Líberíu eða á Kýpur.
Við það lækkar útgerðarkostnað-
urinn og fyrirtækin losna undan
norskum skipaskrár.ingarreglum,
sem em strangar, m.a. að því er
varðar skráningu áhafna.
Hugmyndin á bak við þá tillögu,
að norsk útgerðarfyrirtæki skrái
skip sín á Svalbarða, þar sem
skattar em lágir, er því í stuttu
máli sú, að þannig megi takast
að stöðva fyrmefnda þróun, jafn-
framt því sem skipin verði þá
áfram undir eftirliti heimamanna.
bindandi fyrír aðildarríki ráðsins
getur hún haft mikil siðferðileg
áhríf. Hún getur jafnvel komið
í veg fyrir að íslendingar telji
verjandi að selja afurðir nokkur
hundruð hvala á næstu fjórum
árum til Japans. Hagnaðinn af
þeirrí kjötsölu átti að nota til að
fjármagna ítarlegar hvalarann-
sóknir í ár og næstu ár.
Linnulítil fundarhöld í fyrra-
kvöld, gær og gærkvöld, virðast
ekki hafa borið þann árangur sem
íslenska sendinefndin hafði vonast
til. Þótti ólíklegt í lok fundar ráðsins
í gærkvöldi að málamiðlun næðist
um orðalag sem íslendingar, Japan-
ir, Norðmenn og fleiri hvalveiðiþjóð-
ir gætu sætt sig við.
Þegar farið var að ræða um leyfí
til hvalveiða í vlsindaskyni í gær-
morgun fengu Islendingar öllu meiri
stuðning en þeir áttu von á. And-
staða þeirra við tillögu Bandaríkja-
manna, Svía og fleiri, sem leggjast
gegn verslun með afurðir tilrauna-
veiðanna, byggist á því að slík
samþykkt sé í andstöðu við 40 ára
gamla stofnskrá Alþjóðahvalveiðir-
áðsins. Undir þetta sjónarmið tóku
fulltrúar Suður-Ameríkuríkja,
Frakklands, Spánar, Noregs og
Japans. íslensku fulltrúamir töldu
að atkvæðagreiðsla um tillöguna á
því augnabliki gæti farið á hvom
veg sem var. En þá kom skyndilega
fram málamiðlunartillaga frá
Persaflóaríkinu Oman sem varð til
þess að Halldór Ásgrímsson og átta
aðrir sendinefndarformenn tóku að
sér að ná breiðara samkomulagi
sem allir gætu sætt sig við.
Dr. Ray Gambell, aðalritari Al-
þjóðahvalveiðiráðsins, sagðist van-
trúaður á að samkomulag næðist í
níu manna hópnum. Taldi hann víst
að gengið yrði ti) atkvæða um tillög-
umar árdegis í dag. Halldór Ás-
grímsson ítrekaði á fundinum í
gærmorgun að ef ráðið samþykkti
ályktun sem væri í andstöðu við
stofnskrá þess, þá gæti svo farið
að íslendingar tækju aðild sína tii
endurskoðunar.