Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986
27
Nokkur orð til
F egrunarnefnd-
ar Reykjavíkur
eftirEddu
Jónasdóttur
Fyrir um það bil tíu dögum talaði
ég við starfsmann hjá fegrunar-
nefnd Reykjavíkurborgar (ég veit
ekki nafn hans — ég man ekki til
að hann hafi kynnt sig) til þess
m.a. að skipuleggja hreinsunardag
í einu af hverfum borgarinnar.
Undanfamar vikur hafa foreldra-
og kennarafélög staðið fyrir hreins-
unardögum í hverfum og stóð til
að taka höndum saman í íbúða-
hverfl því sem umlykur Æfínga-
og tilraunaskóla Kennaraháskóla
Islands. Sem fulltrúi í foreldraráði
fyrrnefnds skóla tók ég að mér að
skipuleggja hreinsunardag þennan.
Þar sem skóla er lokið og því
ekki mögulegt að senda nemendur
heim með miða spurði ég umræddan
starfsmann fegrunamefndar hvort
fegrunamefnd Reykjavíkur tæki að
sér að auglýsa fyrir okkur. Slflct
hafði verið gert fyrir önnur for-
eldrafélög. Mér var tjáð að það yrði
gert. Sagt hann mér ennfremur að
auglýsing um þennan hreinsunar-
dag gæti fylgt öðmm tilkynningum
frá fegrunamefnd Reykjavíkur þar
sem fegmnarvika borgarinnar bjnj-
aði síðasta laugardag. Mikið var ég
ánægð er ég fékk þessar upplýsing-
ar þar sem umrætt foreldrafélag á
aðeins þriggja stafa tölu í banka-
bókinni og var þar af leiðandi ekki
fært um að kosta auglýsingar.
Fór ég nú fram á að stjóm for-
eldrafélagsins, kennarar og sjálfur
yfirmaður skólans, skólastjórinn,
kæmi kl. 11 að morgni þann 7. júní
sl. til a útbýta plastpokum til íbúa
hverfisins. En viti menn, það kom
ekki einn einasti íbúi hverfisins og
hver var ástæðan. Þau loforð sem
gefin höfðu verið vom svikin, engin
tilkynning kom um þetta í fjölmiðl-
„ Að mínu mati kæmi
„stórhreingerning-11
sem þessi okkur borg-
arbúum til að líða betur
í Reykjavíkurborg.“
um. Plastpokar vom sendir í skól-
ann á föstudeginum og hafi borgin
þökk fyrir það en ekki koma þeir
að gagni í þetta skipti.
Umrætt mál er ef til vill smáat-
riði í augum ykkar sem starfa í
fegrunamefnd Reykjavíkur. í'mln-
um augum er ekki svo. Þama ætl-
uðu íbúar úr þeim hverfum sem
liggja að Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands að taka
höndum saman og fegra umhverfi
sitt á 200 ára afmælinu.
Auglýsingar um fegmnarviku
Reykjavíkur glymja daglega í eyr-
um okkar í útvarpi og sjónvarpi
fyrir mikinn pening. Eg er þess
fúllviss að skipuiagður hreinsunar-
dagur eins og stóð til að hafa sl.
laugardag á vegum foreldrafélags
ÆKHÍ hefði skilað mun betri ár-
angri en þessar umræddu auglýs-
ingar. Ég veit til þess að foreldrafé-
Iög í öðmm skólum hafa staðið fyrir
slíkum dögum með góðum árangri.
Það er mikil þörf á að hreinsa
borgina á hinum ýmsu stöðum og
því er þessi fegranarvika mjög
þarfleg. Borgarbúar þurfa að taka
höndum saman og hreinsa í kring
híbýli sín en ekki eingöngu sína
eigin lóð. Að mínu mati kæmi „stór-
hreingeming" sem þessi okkur
borgarbúum til að líða mun betur
í Reylqavíkurborg.
Höfundur er starfsmaður hjá
Fiskiðn og starfar í foreldraráði
ÆKHÍ.
Vestfirðir:
Dreifikerf i rásar tvö bætt
VERIÐ er að setja upp fjóra nýja
senda fyrir dreifikerfi rásar 2 á
Vestfjörðum. Nýju scndarnir eru
fyrir Arnarfjörð, Dýrafjörð,
Onundarfjörð og Súgandafjörð.
Með þessum nýju sendum ættu
útsendingar rásar 2 að nást víðast
hvar á Vestfjörðum, en enn er eftir
að styrkja dreifikerfið á Austfjörð-
um.
Nýju sendamir em á Suðureyri
við Súgandafjörð, sem sendir út á
96,0 MHz, Holti við Önundaifyörð
sem sendir út á 91,6 MHz, Þingeyri
sem hefur senditíðnina 98,9 MHz
og á Bíldudal sem sendir út á 95,4
MHz.
WKAEMTNER
miNTERMATIONALE TRANSPORTE
Flutningur
um víða
veröld
Tökum að okkur hverskyns þjónustu við útflutning
og innflutning til og frá íslandi.
Við sjáum um allan frágang og flutning á vörunum,
auk allrar pappírsvinnu.
Hafið samband.
Chilehaus A, VI. Stock
Fischertwiete 2
D-2000 Hamburg 1
Telefon 040/335298
Telefax 040/545262
Telex 2163302 kkit d
PEX fargjald,
kr. 13.940
Flogið alladaga vikunnar
FLUGLEIÐIR
□ Þú finnur alltaf eitthvað nýtt sem
stendur uppúr i London. Þar er ótrú-
legur fjöldi alþjóðlegra veitingastaða
og fullt af óvæntum uppákomum.
(Geymdu sólarferðina þangað til i
vetur.)
LANDSHAPPDRÆTTI
TÓN LISTARSKÓLA
RAGNARS JÓNSSONAR
TÓNLISTARSKÓLA
RAGNARS jÓNSSONAR
Mercedes
190 E S
*
GLÆSILEGIR VINNINGAR
llBllAR
°S
44 hljóðfæri
að eigin vali
KENNSLU
Volkswagen Golf CL
árg. 87.
KENNSLU
L^DBÖ^
TONUST/
RAGNARS
ÍARSKÓLA
IÓNSSONAR
KENNSLU
TONUSTARSKÓLA
RAGNARS IÓNSSONAR
Akureyrí—Reykja vík
Tilstyrktarútgáfuátónlistarkennslumyndböndum,
fyrirgrunnskóla ogalmenning.
B Landsbanki
SPARISJÓÐUR GLÆSIBÆJARHREPPS Nk. Islands
Banki allra landsmarma i 100 ár