Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986
Einar Pétursson á kappróðrabátnum sem Islands Falk tók herfangi
í Reykjavíkurhöfn fimmtudaginn 12. júni 1913.
Bátur Einars á Geysisplani. í
skut blaktir fáninn gamli en í
baksýn er húsið Liverpool en þar
vann Einar sem verslunarmaður
árið 1913.
Bátur Einars Péturssonar
til sýnis á Geysisplani
Kappróðrarbáturinn, sem Ein-
ar Pétursson reri 1913 út á
Reykjavíkurhöfn, verður til sýnis
á Geysisplani í Grófínni eða
innandyra i Geysisbúðinni í dag,
fímmtudag, og á morgun, föstu-
dag, frá kl. 9.00 og eitthvað fram
eftir degi. Staðarvalið er komið
undir veðri.
Róðrarferð Einars dró dilk á eftir
sér því í skut báts síns hafði hann
fána, sem í almennu tali hefur verið
kallaður „hvítbláinn". Á höfninni lá
þá danska varðskipið Islands Falk
og lét skipherra þess gera fánann
upptækan. í fregnmiða frá blaðinu
ísafold, sem kom út samdægurs í
tilefni þessa atburðar, segir í niður-
lagi að allir danskir fánar í bænum
hafí verið dregnir niður en ótai ís-
lenskir fánar séu komnir upp.
Nú gefst borgarbúum og öðrum
færi á að skoða bátinn og jafnframt
fánann sjálfan sem varð kveikjan
að háværum mótmælum í höfuð-
borg íslands um mitt ár 1913. Það
er félagið í Grófínni sem stendur
að þessari sýningu en báturinn er
fenginn að láni hjá Þjóðminjasafni.
í sumar hyggst félagið bjóða upp
á fræðslu um elsta borgarhluta
Reykjavíkur, Grófína, á hveijum
fímmtudegi. Þessir viðburðir verða
kynntir borgarbúum hveiju sinni
og eru allir velkomnir.
i.
Morgunbladið/tJlfar
Frá opnun Sjómannastofunnar: Gísli Skarphéðinsson fuUtrúi skipstjóra og stýrimanna í byggingarnefnd-
inni til vinstri, Bjarni Gestsson frá Sjómannafélagi ísfirðinga, Magnús Hauksson framkvæmdastjóri
sjómannastofunnar og Halldór Hermannsson frá Smábátafélaginu Huginn.
Sjómannastofa í notkun
ísafirðt
Sjómannadagurinn var med
hefðbundnum hætti á ísafirði.
Kappróður var á laugardag. Að
morgni sjómannadags voru
messur í Hnífsdalskapellu og ísa-
fjarðarkirkju. Sjómenn fóru í
skrúðgöngu að minnisvarða sjó-
manna og lögðu þar blómsveig
áður en þeir gengu til messu. A
Iþróttavellinum voru svo íþróttir
og skemmtiatriði og sjómenn
heiðraðir.
Á laugardag var tekin í notkun
sjómannastofa í Hafnarhúsinu.
Stofan er í eigu Sjómannafélags
ísfirðinga, Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Bylgjunnar, Vél-
stjórafélags ísfírðinga og Smábáta-
félagsins Hugins. Við hátíðlega
athöfn, þegar stofan var opnuð,
flutti Halldór Hermannsson for-
maður sjómannastofunnar ávarp.
Þar gat hann Guðmundar heitins
Gíslasonar sérstaklega, sem upp-
hafsmanns að stofíiun sjómanna-
stofu á ísafirði og eldhuga í þeim
málum meðan hans naut við.
Áætlaður byggingarkostnaður
stofunnar, er um 2 milljónir króna
og þakkaði Halldór sérstaklega
Karvel Pálmasyni alþingismanni og
Albert Guðmundssjmi fyrrverandi
fjármálaráðherra fyrir aðstoð við
framkvæmdina. Þá gat hann þess
að þegar sjóðir sjómanna og fram-
Eyrarbakki.
HÁTÍÐARHÖLD sjómannadags-
ins á Eyrarbakka fóru fram með
hefðbundnum hætti.
Mikil og almenn þátttaka var í
ýmiskonar busluleikjum sem fram
fóru við höfnina og voru áhorfendur
óvenju margir, enda hið besta veð-
ur.
Merkasti þáttur hátíðarhaldanna
var opnun sjóminjasafnsins.
Magnús Karel Hannesson oddviti
flutti stutt ávarp við opnunina og
lýsti nokkuð aðdraganda þess að
safnið varð til. Árið 1956 vakti
Sigurður Guðjónsson skipstjóri á
Litlu-Háeyri máls á því að á Eyrar-
bakka yrði stofnað safn, í stað þess
að safngripir týndust eða yrðu flutt-
ir annað. Sendi hann sveitarstjóm-
lög ríkisins hafí þrotið hafí þeir
notið mikils góðvilja útgerðarfélag-
anna á ísafirði.
Sjómannastofan er afar vel stað-
sett á efri hæð Hafnarhússins nýja
með útsýni yfír hafskipabryggjuna
þar sem iðandi hafnarlífið gefur
staðnum ferskan og ævintýralegan
inni bréf í þessu tilefni og hvatti
menn til athafna.
Sigurður hefur síðan unnið að
þessu málefni af mikilli elju og segja
má að hann hafí komið þessu safni
upp að mestu, þó ýmsir hafí rétt
hjálparhönd og styrki.
Merkilegastur gripa safnsins er
áraskipið Farsæll, sem stendur þar
í skorðum með rá og reiða og öllum
farviði.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvemig safnið verði opið í framtíð-
inni, en þeir sem áhuga hafa á að
sjá þetta safn, geta haft samband
við oddvita, Magnús Karel, og mun
hann sjá um fyrirgreiðslu.
Óskar
blæ.
Úlfar.
Eyrarbakki:
Sjóminjasafn opnað
Ljósm.: Guðlaugur Sigurgeirsson
Sigurður Georgsson, skipstjóri á Suðurey og aflakóngur vetrar-
vertíðar síðustu þijú árin, tekur við víkingaskipinu, sem þeim
titli fylgir, úr hendi Einars J. Gíslasonar. Suðurey afíaði 1453,2
tonna á síðustu vetrarvertíð.
Fengsælir fiski-
menn heiðraðir
Vestmannaeyjuni.
HÁTÍÐAHOLD sjómannadagsins í Vestmannaeyjum voru með
hefðbundnum hætti. Á laugardag var keppt í venjubundnum
íþróttum sjómannadagsins, kappróðri, stakkasundi, koddaslag,
tunnuhlaupi og reiptogi milli bryggja. Slæmt veður, kalsa rign-
ing og vindsperringur, skemmdi nokkuð fyrir hátiðarhöldunum
en þrátt fyrir það fylgdist margt manna með dagskránni.
Á sunnudaginn skipti heldur
betur yfír til þess betra í veðurfar-
inu og sólin skein glatt. Fólk
safnaðist saman á Stakkagerðis-
túni kl. 13 og þaðan var fjölmenn
skrúðganga að Landakirkju þar
sem séra Kjartan Öm Sigur-
bjömsson söng sjómannamessu.
Að sjómannaguðsþjónustunni lok-
inni var athöfn við minnisvarða á
kirkjulóðinni um hrapaða og
dmkknaða sem Einar J. Gíslason
annaðist. Síðdegis var útihátíð á
Stakkagerðistúni og var þar mikill
mannfjöldi samankominn í veður-
blíðunni. Sveinn Tómasson, frá-
farandi bæjarfulltrúi og lengi
starfandi sjómaður í Eyjum, flutti
ræðu dagsins. Tveir sjómenn voru
heiðraðir fyrir langt og farsælt
starf á sjónum, þeir Emil Ander-
sen skipstjóri og Eggert Ólafsson
vélstjóri. Þá heiðraði sjómanna-
dagsráð Óskar J. Sigurðsson vita-
vörð og veðurathugunarmann í
Stórhöfða en Óskar er þriðji ætt-
liður í beinan karllegg sem þess-
um störfum hefur sinnt í 75 ár.
Afí Óskars og faðir gættu Stór-
höfðavitans á undan honum. Þá
vom og veittar viðurkenningar
fyrir unninn björgunarafrek frá
síðasta sjómannadegi.
Um kvöldið var síðan skemmt-
un í Samkomuhúsinu þar sem
margir góðir skemmtikraftar
komu fram. Þá vom aflakóngar
heiðraðir og sá Einar J. Gíslason
um þá hlið mála á þann hátt sem
honum er einum lagið. Sævar
Brynjólfsson og skipshöfn hans á
Breka fengu verðlaun fyrir mest
aflaverðmæti togara. Jóel Ander-
sen og skipshöfn hans á Danska
Pétri fengu verðlaun fyrir mest
aflaverðmæti togbáta og þriðja
árið í röð tók Sigurður Georgsson
skipstjóri á Suðurey, aflakóngur
vetrarvertíðarinnar, við víkinga-
skipinu sem þeim sæmdartitli
fylgpr. Þá vom veitt verðlaun fyrir
mesta heildaraflaverðmæti báta
yfir 200 lestum og féllu þau í hlut
Guðmundar I. Guðmundssonar og
skipshafnar hans á Huginn.
Ljjósm.: Guðlaugur Sigurgeirsson
Jóel Andersen, skipstjóri á Danska Pétri, tók við viðurkenningu
fyrir mest aflaverðmæti togfoáta árið 1985, 28,7 millj. Jóel er
lengst tíl vinstri á myndinni, við hlið hans er eiginkona hans
Þuriður Jónsdóttir, þá móðir hans Þórdis Jóelsdóttir og lengst
til hægri er faðir hans. Emil Andersen, útgerðarmaður.
Ljósm.: Magnús Karel
Á sjómannadaginn var opnað sjóminjasafn á Eyrarbakka. í hliðarsal
safnsins, þar sem er margt fágætra og merkilegra muna, er mynd
þessi tekin og situr Sigurður Guðjónsson, stofnandi safnsins fyrir
miðju.