Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986
Alltaf á fóstudögum
Morten Olsen
heimtil Dan-
merkur að þjálfa
FYRIRLIÐI danska leikliðsins í
knattspyrnu, Morten Olsen, hefur
ákveðið að gerast þjálfari í Dan-
mörku eftir næstu áramót. Þetta
kemur fram í viðtali sem Aktueit
tók við hann um helgina en ekki
er sagt hvar hann ætlar að þjálfa.
„Ég kem heim til Danmerkur
eftir áramótin og ætla þá að taka
að mér þjálfun. Ég er búinn að
hugsa mikið um þetta og hef feng-
ið gott tilboð frá mínu gamla félagi,
B-1901, en veit ekki enn hvort ég
fer þangað eða eitthvert annað.
Helst vildi óg vera í mínum
heimabæ, Vordingborg, en það
skýrist ekki fyrr en eftir heims-
meistarakeppnina," sagði Olsen.
Hann sagðist fylgjast vel með
danskri knattspyrnu þrátt fyrir að
hann hefði verið lengi í atvinnu-
mennskunni erlendis og verður
alltaf sár þegar liðið hans tapar.
„Mér leið mjög vel hjá B-1901 og
hefði ekkert á móti því að taka að
mér þjálfun þar. Þetta er gott félag
sem hugsar vel um sína menn."
Chris Woods
til Rangers
Frá Bob Hennessy, fróttaritara Morgunbiaðsins á Englandi.
GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers
og fyrirliði skoska landsliðsins,
hefur fengið leyfi Rangers til að
kaupa nýja leikmenn til að reyna
að endurvekja forna frægð fó-
lagsins bæði i Skotlandi og er-
lendis. Hann hefur nú fengið
Chris Woods, markvörð Norwich,
og verða samningar undirritaðir
eftir leiki Englands á HM.
Kaupverðið er 600.000 pund,
sem er met'upphæð fyrir mark-
vörð. Á síðasta keppnistímabili fór
hinn 26 ára gamli varamarkvörður
Englands, Chris Woods, fram á að
verða seldurfrá Norwich.
Þá hefur Hearts boðið 250.000
pund í Lliam Brady, en samningur
hans á Ítalíu er útrunninn. Brady
hefur leikið á Ítalíu undanfarin 6 ár
og er sagt að hann hafi áhuga á
að snúa aftur heim.
Bingham, þjálfari Norður-íra,
hefur fengið 4 tilboð um þjálfun.
Hann hefur þegar hafnað tilboði
ísraelsmanna um að þjálfa landslið
þeirra, en hin eru frá liði á Spáni,
Grikklandi og Saudi-Arabíu. Bing-
ham sagði í Mexíkó að hann muni
taka einu tilboðanna en jafnframt
halda áfram sem þjálfari Norður-
íra í hlutastarfi eins og verið hefur.
Ray Harford, sem verið hefur
framkvæmdastjóri hjá Fulham
undanfarin þrjú ár, var rekinn í
gær. Fulham féll sem kunnugt er
í 3. deild í vor.
Barcelona yfirbauð Juventus i
lan Rush, en of seint. Peter Robin-
son, framkvæmdastjóri Liverpool
sagðist hafa rætt við Barcelona
en „að okkar mati var það bæði
Rush og Liverpool fyrir bestu að
hann færi til Juventus". Sandro
Mazzola, fyrrum leikmaður Juvent-
us, gat ekki leynt gleði sinni og
sagði að Juventus með Laudrup
og Rush saman gæti haldið meist-
aratitlinum ár eftir ár um ókomin
ár. Líklegt er að Barcelona reyni
að fá Lineker, sem skoraði 40
mörk fyrir Everton á nýafstöðnu
keppnistímabili, fyrst ekki tókst að
krækja í Rush.
Frá golfvellinum í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Golfferðirtil
Eyja í sumar
• Brasilfski leikmaðurinn Luis
Antonio Correa Costa, eöa MUII-
er.
Drid er
frábær
NACER-Eddine Drid, markvörður
Alsír, hefur vakið mikla athygli á
HM og sérstaklega þótti hann
sýna snilldarmarkvörslu á móti
Brasilíu. Líkurnar á sigri Alsfr
voru 250 á móti 1, en svo fór að
Brasilía vann 1:0, en jafntefli
hefði verið sanngjörn úrslit. Að
margra mati var Drip besti maður
leiksins og hann átti ekki sök á
markinu. Hinn kattliðugi og ör-
uggi Drid hefur sýnt og sannað
að hann er markvörður á heims-
mælikvarða.
Vil hitta
Madonnu
— segir brasilíski
Miiller
HINN ungi og stórskemmtilegi
varamaður Brasilíumanna, Luis
Antonio Correa Costa, eða Miill-
er eins og hann er oftast kallaður,
á þá ósk heitasta að fá að hitta
bandarísku rokksöngkonuna
Madonnu.
„Ég á allar plöturnar hennar.
Hún er stórkostleg, bæði sem
söngvari og sem kona. Ég hef séð
Desperately Seeking Susan tvisvar
og ætlað að reyna aö sjá hana
miklu oftar," sagði hann á dögun-
um og hafði greinilega ekki hug-
mynd um að eiginmaður Ma-
donnu, leikarinn Sean Penn, er
frægur fyrir að vera ruddalegur við
alla þá karlmenn sem reyna að ná
sambandi við Madonnu. Blaðaljós-
myndarar hafa til dæmis orðið fyrir
barðinu á honum fyrir að reyna að
mynda hjónakornin.
Muller á sér samt fleiri óskir og
þær snerta knattspyrnuna. „Ég vil
endilega fá að leika heilan leik,
vera í byrjunarliðinu. Ég hef úthald
til þess og veit að ég myndi standa
mig vel," sagði þessi ungi leikmað-
ur með Sao Paulo sem fékk viður-
nefnið Muller vegna þess hversu
eldri bróðir hans fannst hann líkur
Gerd Muller þeim þýska.
Vestmannaeyja í Herjólfsdal svo-
kallað Kico Cooler-golfmót sem
haldið er af Ferðaskrifstofu Vest-
mannaeyja, Golfklúbbi Vest-
mannaeyja, ýmissa aðila i ferða-
þjónustu og Heildverslun Alberts
Guðmundssonar í Reykjavík. Mó-
tið ber nafn nýrra cooler-drykkja
sem heildverslunin er nú að hefja
innflutning á frá Frakklandi.
Kico Cooler-golfmótið hefst
fimmtudaginn 19. júní nk. og verð-
ur síðan haldið alla fimmtudaga
fram á haustið. Þátttakendur fljúga
með Flugleiðum frá Reykavík kl. 8
að morgni og sérstakur fararstjóri
og stjórnandi mótsins mun taka á
móti fólki á flugvellinum í Eyjum.
Það er hinn kunni Eyjamaður,
Guðlaugur Friðþórsson, sem sér
um alla framkvæmd þessa móts.
Eftir komuna til Eyja er haldið í
skoðunarferð um Heimaey og farin
bátsferð í sjávarhella við Vest-
mannaeyjar. A hádegi verður léttur
hádegisverður snæddur en síðan
skundað á golfvöllinn þar sem Kico
Cooler-golfmótið hefst kl. 13.30.
Völlurinn er 9 holur og forráða-
menn GV staðhæfa að þeir eigi
nú besta golfvöll landsins og vísa
í því sambandi til ummæla lands-
liðsmanna í golfi sem léku á vellin-
um um hvítasunnuna í Faxakeppn-
inni. Á vellinum er lengsta hola
landsins, 510 metrar. Mjög góð
aðstaða er í golfskála klúbbsins
og þar verður opin þjónustuað-
staða meðan mótiðferfram.
Verðlaunaafhending og formleg
mótslok verða síðan á Skansinum.
Fjölmörg verðlaun verða veitt fyrir
árangur í mótinu sem er punkta-
keppni og notuð 7/s forgjöf sem
gefur öllum keppendum jafna
möguleika að vinna. Að lokinni
verðlaunaafhendingu verður
snæddur íburðarmikill kvöldverð-
ur. Flogið verður aftur til Reykjavík-
ur kl. 22.40 um kvöldlð en auðvitað
gefst fólki kostur á því að dvelja
lengur í Eyjum standi hugur til
þess. Vestmannaeyjar hafa upp á
margt að bjóða fyrir ferðafólk,
einstaka náttúrufegurð, forvitnileg
söfn, frábæra sundhöll og góða
veitinga- og skemmtistaði. Þessi
dagsferð til Eyja mun kosta 4990
kr. fyrir manninn og er þá allt
innifalið. Allar nánari upplýsingar
um Kico Cooler-golfmótið er Guð-
laugur Friðþórsson fús að veita
og hægt er að ná sambandi við
kappann í síma 98-2877. — hjk.
og skoðunar- og skemmtiferð til I
Vestmannaeyja. Alla fimmtudaga
í sumar verður haldið á hinum
stórgóða golfvelli Golfklúbbs |
Vestmannaeyjum.
í SUMAR og fram á haustið gefst
golfáhugafólki einstakt tækifæri
til þess að sameina í eina ferð
þátttöku i skemmtilegu golfmóti
„Kannski set ég upp gall-
erí og fer að mála“
Janus Guðlaugsson heimsóttur í Lugano
Hrukkur
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Sól og sundfatatíska
sumarsins
Matur
Myndbönd
Neytendamál
Föstudagsblaðið er gott forskot á helgina