Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 37
Akureyri:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986
37
Heiða Björk Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson
Sundnámskeið fyr-
ir yngri kynslóðina
AÐ UNDANFÖRNU hefur staðið
yfir sundnámskeið fyrir börn í
Sundlaug Akureyrar. Námskeið-
ið stendur yfir i 15 daga og er
krökkunum skipt í 16 hópa. I
hverjum hóp eru 15 nemendur
og er hverjum þeirra kennt í
hálfa klukkustund.
Tveir sundkennarar sjá um að
kenna æsku Akureyrar undirstöðu-
atriði sundíþróttarinnar, þau Kári
Arnason og Helga Eiðsdóttir.
„Þetta hefur gengið ágætlega það
sem af er. Við kennum krökkunum
að halda sér á floti og venjum þau
við vatnið. Mörg þeirra koma oftar
en einu sinni á námskeiðið. Þau eru
flest 6 ára, en yngstu bömin aðeins
4 ára. Sum eru hrædd eins og
gengur, en flest eru mjög áhuga-
söm,“ sagði Kári, er Morgunblaðið
leit inn á sundæfingu hjá krökkun-
um og tók nokkur þeirra tali.
Andri Pálsson, 5 ára sagði að sér
þætti mjög gaman á námskeiðinu.
Er Andri var spurður hvort hann
væri smeykur við vatnið, sagði
hann, að svo væri ekki, enda væri
nýbúinn að læra bringusund. „Svo
er ég líka búinn að læra að maður
á að anda að sér áður en maður
stingur höfðinu ofan í - því það er
ekki hægt að anda neðan í vatninu.
Ég kann smávegis í baksundi, en
ekki skriðsundi," sagði Andri og
leysti íbygginn af sér kútinn.
Glaðlegur strákur var á sundi
skammt frá. Hann kvaðst heita
Kári Árnason leiðbeinir einum
nemandanum.
Bergþór Ævarsson og vera 6 ára
gamall. Hann lét vel af námskeið-
inu, en kvaðst þó ekki vera orðinn
flugsyndur enn. „Þegar ég er orðinn
stór ætla ég kannski að æfa sund,“
sagði Bergþór.
Ljóshærð hnáta fylgdist grannt
með samtali Morgunblaðsins við
strákana. Hún sagðist heita Heiða
Björk Sigurðardóttir og kvaðst
einnig hafa verið á námskeiði í
fyrra. „Ég kann ekki baksund
ennþá, en er sæmileg í bringu-
sundi,“ sagði Heiða aðspurð um
sundkunnáttu sína og bætti því svo
við að vel væri hugsanlegt að hún
æfði sund í framtíðinni eins og
Bergþór."
Þessir þrælhressu strákar voru að koma upp úr — nýbúnir i tíma !njá Kára og Helgu.
Iíergþór Ævarsson
Akureyrarmót íi knattspyrnu:
Andri Pálsson
Nýir farandbikarar
TEKNIR hafa verið í notkun nýir
bikarar til handa sigurvegurum
á Akureyrarmótum í knatt-
spyrnu.
Bikaramir eru 12 alls og verður
keppt um þá næstu 10 árin. Þeir
verða veittir sigurvegurum karla í
meistaraflokki, 1- 6. flokki, í flokki
eldri en 30 ára og fírmakeppni. Þá
fá sigurvegarar í meistaraflokki
Tvær bílveltur á
Akureyri í gær
Akurevn. ^ ^
Akureyri.
TVÆR bflveltur urðu á Akureyri
ígær.
Onnur varð skammt norðan brú-
arinnar yfír Glerá á Glerárbraut.
Ökumaður ætlaði að stöðva við
gangbraut en ekki vildi betur til en
svo að bifreiðin ók á kantstein og
valt. Lenti hún á næsta bíl en
skemmdist ekki mikið.
Hitt óhappið varð á mótum
Laufásgötu og Gránufélagsgötu.
Tvær bifreiðir lentu í árekstri með
þeim afleiðingum að önnur þeirra
valt og em báðar mikið skemmdar.
Engin meiðsl urðu á fólki í þessum
umferðaróhöppum.
kvenna, yngri flokki og telpnaflokki
sams konar sigurlaun. Að auki hafa
verið hannaðir nýir verðalunapen-
ingar og -spjöld fyrir Knattspymu-
ráð Akureyrar. Að hausti er haldin
uppskeruhátíð þar sem sigurvegar-
ar í hveijum flokki fá verðlaun sín
afhent.
Bikarana gáfu fyrirtæki í Akur-
eyrarbæ. KEA gaf tvo, og Sjóvá,
Hellusteypan, Sérleyfísbflar Akur-
eyrar, Norðlensk trygging, Gull-
smiðimir Sigtiyggur og Pétur,
Kaffíbrennsla Akureyrar, útgerðar-
félag Akureyringa, Búnaðarbank-
inn, Bílasalan og Trésmíðavinnu-
stofan Þór gáfu einn hvert fyrir-
tæki. Verða nöfn gefendanna grafín
á verðalaunagripina. Fengnir vom
fyrirliðar Akureyrarmeistara 1985
til að draga um hvaða fyrirtæki
gæfi hvem grip. Fyrstur dró Leó
m Þorleifsson, fyrirliði KA í 6.
flokki drengja.
Formaður KRA er Davíð Jó-
hannsson. Páll A. Magnússon er
formaður, Gestur Davíðsson er rit-
ari og Sveinn Bjömsson gjaldkeri.
Davið Jóhannsson, formaður
KRA og Leo Örn Þorleifsson,
sem dró um fyrsta bikarinn.
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson