Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986
35
Leikárí Þjóðleik-
hússins að ljúka
LEIKÁRI Þjóðleikhússins er að
ljúkja, en um miðjan mánuðinn
verða síðustu sýningarnar á
leikritunum í deiglunni, eftir
Arthur Miller, og Helgispjöll-
um, eftir Peter Nichols.
Verk Arthurs Miller, í deigl-
unni, byggir á sögulegum at-
burðum sem urðu í Bandaríkjun-
um í lok 17. aldar. í fréttatilkynn-
ingu frá Þjóðleikhúsinu segir að
þetta sé eitt af merkustu leikritum
Millers. Leikstjóri er Gílsi Alfreðs-
son, leikmynd og búninga gerði
Baltasar og lýsing er í höndum
Ásmundar Karlssonar. Dr. Jakob
Benediktsson þýddi leikritið, en í
helstu hlutverkum eru Hákon
Waage, Edda Þórarinsdóttir,
Gunnar Eyjólfsson, Erlingur
Gíslason, Elfa Gísladóttir, Guðrún
S. Gísladóttir og Sigurður Skúla-
son.
í sömu fréttatilkynningu frá
Þjóðleikhúsinu segir um Helgi- Úr leikritinu í deiglunni, Hákon Waage, Pálmi Gestsson, Pétur
spjöll, eftir Peter Nichols, að það Einarsson, Guðrún S. Skúladóttir og Erlingur Gislason.
Róbert Amfinnsson og Bessi Bjarnason i hlutverkum sínum í
leikritinu Helgispjöllum.
sé með athyglisverðustu leikritum
sem komið hafa frá Bretlandi
undanfarin ár. Benedikt Ámason
þýddi leikritið og er jafnframt
leikstjóri, leikmynd er eftir Stíg
Steinþórsson, búningar eftir
Guðnýju Björk Richards og lýs-
ingin er í umsjá Áma Baldvins-
sonar. í aðalhlutverkunum era
Anna Kristín Amgrímsdóttir, Ró-
bert Amfínnsson, Margrét Guð-
mundsdóttir, Bessi Bjamason,
Þórann Magnea Magnúsdóttir og
Sigurveig Jónsdóttir.
Síðustu sýningar á í deiglunni
verða 12. og 14. júní en síðustu
sýningar á Helgispjöllum verða
13. og 15. júní, en það er síðasta
sýning leikársins í Þjóðleikhúsinu.
Þó er ekki þar með sagt að leikár-
inu sé að fullu lokið því í lok
mánaðarins verður farið í leikför
með gamanleikinn, Með vífið í
lúkunum, um Vesturland og Vest-
fírði.
Hússtjórnarskólinn að Laugnm:
160 nemendur nutu
kennslu á síðasta vetri
Hússtjórnarskóli Þingeyinga
að Laugum í Suður-Þingeyjar-
sýslu lauk nýverið vetrarstarf-
semi sinni. Nutu alls 160 nemend-
ur kennslu í skólanum síðastlið-
inn vetur.
Þeir nemendur sem stunda nám
í skólanum allan veturinn eru á
matvælatæknibraut, sem er tveggja
ára framhaldsbraut, rekin í sam-
vinnu við Laugaskóla. Annarri
kennslu við skólann er skipt upp í
tvö námstímabil.
Fyrra námstímabili, sem stóð frá
15. september til 20. desember, var
skipt í mörg mislöng námskeið, þar
sem m.a. var kenndur fatasaumur,
myndvefnaður og tauþrykk. Nám-
skejðin sóttu aðallega konur.
Á síðara námstímabili vora auk
matvælatækninema, nemendur á
hússtjómarbraut, og sóttu þá braut
eingöngu stúlkur.
Auk þessa hafa allir nemendur
Litlulaugaskóla (um 50) notið
kennslu í heimilisfræði, mismikið
eftir aldri nemenda.
Fastir kennarar skólans era þrír,
Hjördís Stefánsdóttir skólastjóri,
Guðrún Lísa Ágústsdóttir og Halla
L. Loftsdóttir.
Félag félagsráðgjafa:
Mótmæla skipan félags-
málastjóra í
HIÐ íslenska félagsráðgjafafé-
lag hélt nýverið fund, þar sem
m.a. var rætt um skipan nýs fé-
lagsmálastjóra í Hafnarfirði.
Á fundinum var samþykkt eftir-
farandi ályktun: „Nýverið var aug-
lýst laus staða félagsmálastjóra í
Hafnarfirði. Okkur er kunnugt um
að á meðal umsækjanda um stöðuna
Hafnarfirði
hafí verið tveir vel hæfír félagsráð-
gjafar, með langa starfsreynslu.
Þessum umsækjendum var hafnað,
en í stöðuna ráðinn félagsráðgjafi
með afar takmarkaða starfs-
reynslu." HÍF telur þetta mjög
óeðlilegar starfsaðferðir, þar eð
starfsreynsla hljóti að eiga vera
afgerandi þáttur við val á manni í
stöðu sem þessa.
Verðkönnun 115 verzlunum á Suðurlandi:
Verð víða svipað
o g í Reykjavík
NEYTENDAFÉLAG Suðurlands og aðildarfélög BSRB og ASÍ könn-
uðu verð á 19 hreinlætis- og snyrtivörum í 16 verslunum á Selfossi,
Eyrarbakka, Stokkseyri, Hveragerði og Þorlákshöfn í lok maí. Til
hliðsjónar var haft algengt verð
inu.
Niðurstaða þessarar könnunar
varð sú, ef borið er saman hæsta
og lægsta verð á höfuðborgarsvæð-
inu annars vegar og hins vegar á
þeim stöðum sem athugunin náði
til, að í átta tilfellum var Reykjavík
með lægsta vöraverðið en í þremur
með það hæsta. Þetta vill segja að
í þessu sérstaka tilviki á lands-
byggðin flest lægstu vöruverðin og
einnig flest þau hæstu. Munur á
lægstu verðum hljóp á einni krónu
og upp í 30 krónur. Það minnsta
sem aðskildi hæstu verðin á höfuð-
borgarsvæðinu og stöðunum fímm
vora 35 aurar en mestur var munur-
inn 38 krónur en hann var í verð-
lagningu Sunsilk-hárþvottalagar í
130 ml umbúðum. Samkvæmt
skýrslu Neytendafélagsins kostaði
hann mest 64 krónur á höfuðborg-
arsvæðinu en dýrastur var hann á
Selfossi þar sem hárþvottalögurinn
kostaði 102 krónur.
Á milli staðanna fímm innbyrðis
var munur á verðlagningu þeirra
sömu vörum á höfuðborgarsvæð-
19 vörategunda, sem könnunin náði
til, frá því að vera rúm ein króna
og upp í það að vera 50 krónur eða
um 100% verðmunur á þeirri tilte-
knu vörategund sem var Sunsilk-
hárþvottalögur í 130 ml umbúðum.
Eins og áður segir var hann dýrast-
ur á Selfossi, í búðinni Höfn hf, en
ódýrastur hjá KÁ í Hveragerði.
í niðurstöðum Neytendafélagsins
kemur í ljós að hvergi vora þær 19
vörategundir, sem athuga átti verð
á, allar til, þegar best lét vora 10
af þeim fáanlegar í búðunum, ann-
ars færri.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík býður þeim sem unnu fyrir flokkinn
að undirbúningi kosninganna og á kjördag og stuðluðu að glæsilegum
kosningasigri til skemmtunar í veitingahúsinu Sigtún við Suðurlands-
braut í kvöld, 12. júní, kl. 21—01.
Davíð Oddsson borgarstjóri flytur ávarp og
Ómar Ragnarsson skemmtir. Aðgangur er
ókeypis og eru miðar afhentir á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu Val-
höll frá kl. 9.00—17.00 í kvöld.
Sjólfstæðisflokkurinn.