Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986
31
Bandaríska ABC-sjónvarps-
stöðin um Achille Lauro-málið:
Egypskur ráðherra lét
Bandaríkjamenn vita um
flugvél mannræningjanna
Washingfton og Kaíró.
í greinargerð ákæruvaldsins á Ítalíu í Achille Lauro-málinu kemur
fram, að palestinski hermdarverkamaðurinn Mohammed Abbas valdi
mennina, sem rændu ítalska skemmtiferðaskipinu í fyrra, og stjóm-
Einnig kemur fram í greinar-
gerðinni, að ætlun hermdarverka-
mannanna hafi verið að fara um
borð í skipið, ræna Bandaríkja-
mönnum og fara með þá til Sýr-
lands. Sfðan átti að skipta á þeim
og u.þ.b. 50 Palestínumönnum, sem
eru í fangelsi í Israel, að því er
bandaríska sjónvarpsstöðin ABC
greindi frá á mánudagskvöld.
En áætlanimar fóru úr skorðum,
þegar Sýrlandsstjóm neitaði skip-
inu um landtöku, sagði ABC og
vitnaði í fyrmefnd málskjöl. Við
neitunina urðu ræningjamir reiðir
og drápu bandarískan farþega.
Þegar ræningjamir gáfust upp
og fengu að fara frjálsir ferða sinna,
lét egypski vamarmálaráðherrann
Bandaríkjamenn vita, hvaða flugvél
yrði notuð til að flytja þá frá
Egyptalandi, hafði ABC eftir ítöl-
skum leyniþjónustumönnum.
Ráðherrann var gramur Hosni
Mubarak forseta fyrir að hafa stað-
ið á móti því, að ráðist yrði um
borð í Achille Lauro í því skyni að
frelsa gíslana, hafði ABC eftir sömu
heimildarmönnum.
í næstu viku hefjast í Genúa á
Italíu réttarhöld í máli 15 manna,
sem ákærðir em fyrir skipsránið
og morðið á bandaríska farþegan-
um, Leon Klinghoffer.
Luigi Carli, saksóknarínn sem fer
með málið fyrir hönd ítalska ríkis-
ins, sagðist ekki vita um neina
skýrslu, sem fréttin gæti byggst á.
„Ég veit heldur ekkert um sann-
leiksgildi fréttarinnar," sagði Carli
í símaviðtali, „og ekkert slíkt kemur
fram í þeim málskjölum, sem hér
hafa verið unnin."
I málskjölunum segir, að mann-
ræningjamir hafi verið þjálfaðir í
L*
sérstökum búðum í Alsír og hitt
Abbas samkvæmt áætlun í Túnis,
að sögn ABC.
Abbas, sem einnig er þekktur
undir nafninu Abul Abbas, er meðal
þeirra sem sóttir verða til saka að
þeim fjarverandi. ítölsk stjómvöld
slepptu honum fyrir átta mánuðum,
eftir að bandarískar herþotur
neyddu flugvél, sem hann var í
ásamt fjórum mannræningjanna, til
að lenda á Ítalíu.
I málskjölunum er talið sannað,
að sýrlensk stjómvöld og palest-
ínski skæmliðaleiðtoginn Yasser
Arafat hafi enga aðild átt að töku
skemmtiferðaskipsins.
í gær vísaði egypska stjómin á
bug frétt bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar um að vamarmálaráð-
herra Egyptalands hefði upplýst
Bandarílcjamenn um, með hvaða
flugvél mannræningjamir færu.
„Þetta er gersamlega tilhæfulaus
fullyrðing," sagði háttsettur emb-
ættismaður egypsku stjómarinnar,
„og uppspuni frá rótum."
Gorbachev í
Ungverjalandi
Budapest. AP.
LEIÐTOGI Sovétríkjanna, Mik-
hail S. Gorbachev, kom til Ung-
verjalands ásamt konu sinni,
Raisa, sl. sunnudag.
Mun hann eiga tveggja daga
viðræður við Janos Kadar og aðra
ungverska ráðamenn, áður en leið-
togafundur Varsjárbandalagsríkj-
anna hefst í Budapest á þriðjudag.
ÞEIR SEM NOTA 2 BRAUÐ A
DAG, FÁ NÚ GULLIÐ TÆKIFÆPI
TIL AÐ SPARA 18.068 KR. Á
ÁRI. ÞAÐ EINA SEM ÞARF AÐ
GERA, ER AÐ KAUPA BRAUÐIN
HJÁ OKKUR, MILLI KL. 17-18
ALLA VIRKA DAGA.
DÆMI:_____________________
1 STK. VÍSITÖLUBRAUÐ KR. 37.
1 STK. GRÓFT BRAUÐ KR. 62.
SAMTALS: KR. 99.
x 365 DAGAR
KR. 36.135.
____________AFSLÁTTUR 50%
KR. 18.068.
OPIÐ MÁNUD. - FÖSTUD. KL. 8-18
OG LAUGARD. - SUNNUD. KL. 9-16
BAKARÍIÐ
KRINGLAN
DALSHRAUNI 13. HAFNARFIRÐI
SÍMI 53744
Við látumvinningshafavita.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
HEFUR AF STORHUG STYRKT ÞETTA HAPPDRÆTTI
Æ
L.H.S
IANDSSAMBAND
HJÁiPARSVEITA SKÁTA
5INGAPJÓNUSTAN' SIA