Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Krabbinn
Annar þáttur Kolkrabbans,
þess margfræga ítalska sjón-
varpsmyndaflokks er skreytir nú
sjónvarpsdagskrána á þriðjudögum,
hrærði svo sannarlega hjarta þess
er hér ritar. Söguþráðurinn: Aðal-
söguhetjan, Corrado lögreglufor-
ingi, snýr aftur til Palermo að
ganga frá búi sínu er hann í óða
önn að pakka niður hinum verald-
legu eigum einkadótturinnar Pálu
er síminn hringir og hann beðinn
að mæta til viðtals hjá einum mafíu-
foringjanum en sá situr reyndar
sundurskotinn í húsbóndastólnum
og að sjálfsögðu er löggan mætt á
staðinn augnabliki síðar og fer með
Corrado beint í fangelsið þar sem
dómari úr röðum mafíunnar bíður
hans með bros á vör. Corrado neyð-
ist til að kyssa á hring helsta
mafíuleiðtoga Sikileyjar, þess er var
valdur að dauða Pálu litlu, og endaði
þátturinn á því að Corrado vitjar
gráfarinnar þar sem litla stúlkan
brosir úr gullnum ramma á köldu
granítinu. Eg rek ekki frekar sögu-
þráðinn enda út í hött að lýsa ferð-
inni ofan í myrk undirdjúpin þar
sem slímugur kolkrabbi mafíunnar
spýtir bleki í augu hinna heiðvirðu,
menn verða að leggja á sig þá ferð
án leiðsögumanns og kalt er hjarta
þess manns er ekki fann til með
Corrado þá hann safnaði saman
eigum Pálu litlu; stílabókunum þar
sem hún hafði teiknað mynd af
pabba og mömmu, bangsanum er
hafði veitt litlu stúlkunni hlýju og
öryggi á andvökunóttum. Sú þján-
ing hins hjartahreina var óbærileg
og grundvöllur glæsivillanna er
spegluðust í himinbláum sundlaug-
um kolkrabbanna. Mér varð hér
hugsað til fréttar af handtöku eitur-
lyfjasmyglara í Sundahöfn, þar
hefir rannsóknarlögreglan okkar
höggvið af einn arm þess kolkrabba
er hér spriklar, vel að verki staðið,
strákar, og slakið hvergi á, því eins
og við sjáum í ítalska framhalds-
myndaflokknum þá slöngvast hinir
slímugu armar vítt um þjóðarlíka-
mann ef ekkert er að gert eða eins
og Corrado lögregluforingi komst
að orði undir lok þáttarins: Mér
fínnst eins og ég sé að kafna, ég
er. . . niðurlægður og upphafínn á
víxl, sparkað niður í hin ystu myrk-
ur til þess eins að ég geti staðið
upp og kysst á vöndinn.
Hallur Hallsson
Hailur Hallsson nýráðinn frétta-
maður hjá ríkissjónvarpinu okkar
hefir tekið að sér það hlutverk að
höggva á arma kolkrabbans ís-
lenska á öldum ljósvakans og er
það vel því Hallur virðist öllum
hnútum kunnugur í víghreiðri lög-
reglunnar. En Hallur hefír mátt
reyna þann bitra sannleika að
aðgát skal höfð í nærveru sálar og
á ég þá við frásögnina af Hafskips-
málinu. En til þess eru mistökin að
læra af þeim og óska ég Halli
Hallssyni velfarnaðar í baráttunni
við kolkrabbann slímuga en í þeirri
baráttu verðum við öll að taka
höndum saman og styðja löggæslu-
mennina með ráðum og dáð. Annars
sýnist mér að bjartari tímar séu nú
framundan í þessu efni hér á landi
og þá einkum á stjómmálasviðinu
þar sem stjómmála- og embættis-
menn verða í vaxandi mæli að gera
grein fýrir verkum sínum og eiga
æ erfiðara með að ausa gegndar-
laust af sjóðum almennings, þó eru
alltaf til einstaka menn er kunna
þá list að spýta bleki í augu sjón-
varpsvélanna. Fréttamenn sjón-
varps hafa máski hingað til verið
fulltillitssamir við þessa ágætu
máttarstólpa miðstjómarvaldsins.
ÓlafurM.
Jóhannesson
Rás 1
Breytingar á tónlistar-
dagskrá í sumar
Meginbreyting á tónlist-
ardagskrá rásar eitt frá
vetrardaskrá er að fastir
liðir með tónlist kl. 14.30
hafa verið styttir um 15
mínútur en liðir fyrir há-
degi (11.30 til 12.00) em
nú allir jafnlangir. Megin-
þættir tónlistardagskrár-
innar eru um 50 mínútna
liðir milli kl. 11.00 og 12.00
alla virka daga, 40 mínútna
liðir kl. 16.20 til 17.00 alla
virka daga og 50-60 mín-
útna liðir í dagskrárlok
fyrri hluta vikunnar. Um
helgar er röðun tónlistar-
þáttanna eilítið öðruvísi og
þá hefur tónlistardeild
nokkm lengri tíma til ráð-
stöfunar um og eftir mið-
nætti.
Enda þótt allir telji rétt
að gæta fjölbreytni í tón-
listarvali og veita þeim
þjónustu, sem ekki ná
sendingum rásar 2, er
auðsætt að svonefnd
„æðri“ tónlist hlýtur að
setja mestan svip á tónlist-
ardagskrá rásar 1. Einnig
er lögð talsverð áhersla á
skemmtitónlist fyrir þá
hlustendur sem komnir em
á efri ár og þykir lítið um
afþreyingartónlist við sitt
hæfí á rás 2.
Gerðar hafa verið breyt-
ingar á einstökum liðum
virka daga sem hér segir:
Síðdegistónleikar verða á
sínum stað kl. 16.20 á virk-
um dögum, íslensk tónlist
á mánudögum en önnur
þematengd, sígild tónlist
aðra virka daga. Er stefnt
að því að breyta yfírbragði
síðdegistónleikana þannig
að ekki verði valin í þá tón-
list af hvaða tagi sem er úr
sígildum tónbókmenntum
heldur lögð til grandvallar
ýmis þemu eða efnisflokk-
ar.
Þátturinn á frívaktinni
hefur verið færður af
fimmtudögum jrfir á mánu-
daga kl. 11.03. Morgunlið-
urinn kl. 11.03 aðra virka
daga verður nýttur undir
unna tónlistardagskrá með
stuttum, aðgengilegum sí-
gildum verkum og þáttum
úr slíkum verkum, hljóð-
færatónlist og söng.
Miðdegisliðurinn kl.
14.30 á mánudögum verð-
ur nýttur undir sígilda tón-
list en aðra virka daga
verður miðdegisliður í
umsjá dagskrárgerðar-
manna á tónlistardeild og
helgaður léttri tónlist sem
er kynnt í beinni útsend-
ingu. Aðra hveija viku
verður þó á þessum tíma
þáttur um suður-ameríska
tónlist af léttara taginu í
umsjá Ellýjar Vilhjálms.
Kl. 23.00 á mánudögum
verða vandaðir klassískir
tónleikar og einnig kl.
22.00 annan hvem þriðju-
dag í um klukkustund á
undan nútímatónlist sem
stendur til miðnættis.
Annan hvem þriðjudag
verður sígild tónlist að
loknu endurteknu leikriti.
Djassþáttur verður kl.
23.10 á miðvikudagskvöld-
um en einu sinni í mánuði
verður útvarpað beint frá
djasstónleikum á vegum
útvarpsins. Þáttur Leifs
Þórarinssonar Á ópemsvið-
inu fellur niður í sumar.
Létt tónlist verður á
dagskrá á miðkvöldi,
mánudaga til miðvikudaga
kl. 21.00 í 30 mínútur, í
því skyni að létta yfirbragð
dagskrárinnar þau kvöld
sem rás 2 sendir ekki út.
Þar á móti kemur að meiri
áhersla verður lögð á sí-
gilda tónlist um helgar. Á
mánudögum kl. 21.00
verður harmoníkutónlist og
önnur skemmtitónlist. Á
þriðjudögum verður leikin
vönduð, klassísk skemmti-
tónlist og á miðvikudögum
syngja íslenskir einsöngv-
arar og kórar í u.þ.b. hálf-
tíma kl. 21.00. Miðkvöld á
fimmtudögum verður með
svipuðu sniði og áður.
í þættinum Frá Suðurlandi verða kynntir ferðamögu-
leikar i Vestmannaeyjum.
Á ferð í Vest-
mannaeyjum
15
Þátturinn frá
20 Suðurlandi er á
— dagskrá rásar
eitt í dag. „í þessum þætti
fjalla ég um ferðamál í
Vestmannaeyjum, ög er
hann í beinu framhaldi af
síðasta þætti sem var á
sunnudaginn var,“ sagði
Hilmar Þór Hafsteinsson
stjómandi þáttarins í sam-
tali við Morgunblaðið. „í
þættinum reyni ég að að
kynna það sem Eyjamar
Reykjavík í augnm skálda
21—
Reykjavík í aug-
um skálda, ann-
ar þáttur, er á
dagskrá rásar eitt í kvöld.
Umsjá með þættinum hafa
þau Símon J. Jóhannsson
og Þórdís Mósesdóttir. Að
þessu sinni taka þau fyrir
seinni helming 19. aldar-
innar fram til aldamóta.
Lesin verða ljóð, sögur og
ýmsar frásagnir frá þess-
um tíma sem lýsa tíðarand-
anum í Reykjavík áður á
ámm frá mörgum hliðum.
Meðal þeirra höfunda sem
lesið verður eftir má nefna
Magnús Grímsson, Gest
Pálsson, Steingrim Thor-
steinsson, Þórberg Þórðar-
son o.fl.
hafa uppá að bjóða fyrir
ferðamenn, en þa_r er af
mörgu að taka. Ég ræði
við nokkra góða menn í
þættinum, m.a. við fram-
kvæmdastjóra Ferðaskrif-
stofu Vestmannaeyja, Ingi-
berg Gíslason. Og síðan
ræði ég við skipstjóra
Bravó sem er Hjálmar
Guðnason - hann siglir
með ferðafólk í hella þama,
undir sjávarhamra og með
ströndum. Hjálmar blæs
líka í trompet fyrir fólk og
skemmtir því með frásögn-
um. Ég fer einnig í náttúm-
gripasafnið og fæ þar leið-
sögn - það er verið að setja
upp þar mjög merkilegt
fágætt steinasafn, sem
verður eitt hið stærsta sem
til er hér á landi. Síðan
spjalla ég við ýmsa þama
eftir því sem tími vinnst
til,“ sagði Hilmar.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
12. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Markús Árelíus" eftir
Helga Guömundsson. Höf-
undurles(4).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veöurfregnir
10.30 „Ég man þá tíö". Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Strengja-
kvartettar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 (dagsins önn - Efri árin.
Umsjón: Ásdís Skúladóttir.
14.00 Miödegissagan: „Fölna
stjörnur" eftir Karl Bjarnhof.
Kristmann Guömundsson
þýddi. Arnhildur Jónsdóttir
lese (14).
14.30 f lagasmiöju — Cole
Porter.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Frá Suöurlandi. Um-
sjón: Hilmar Þór Hafsteins-
son.
15.50 Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnlr.
16.20 Síödegistónleikar.
a. „Amerikumaöur í Parfs"
eftir George Gershwin. Há-
tíðarhljómsveit Lundúna
leikur; Stanley Black stjórn-
ar.
b. „Slæpingjabarinn" eftir
Darius Milhaud. Franska rik-
ishljómsveitin leikur; Leon-
ard Bernstein stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Kristin Helga-
dóttir. Aöstoðarmaöur: Sig-
urfaug M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu. Blandaöur þátt-
ur úr neysluþjóöfélaginu.
Umsjón: Hallgrímur Thor-
steinsson og Sigrún Hall-
dórsdóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegtmál
Guömundur Sæmundsson
flytur þáttinn.
20.00
20.30 Frá Listahátíð í Reykja-
vik 1986: Orgeltónleikar
Colin Andrews i Dómkirkj-
unni á þriðjudagskvöld.
(Fyrri hluti). Verk eftir Diet-
rich Buxtehude, Johann
Sebastian Bach o.fl.
21.20 Reykjavik í augum
skálda. Umsjón: Simon Jón
Jóhannsson og Þórdis Mós-
esdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræöan.
Um feröaþjónustu á (slandi.
Stjórnandi: Sverrir Gauti
Diego.
23.20 Kammertónlist.
a. „Miroirs" eftir Maurice
Ravel. Werner Haas leikui á
píanó.
b. Spænsk alþýöulög eftir
Manuel de Falla. David
Oistrakh og Vladimir Jamp
olski leika á fiölu og pianó.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
12. júní
9.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
son, Gunnlaugur Helgason
og Kolbrún Halldórsdóttir.
SJÓNVARP
17.15 Ádöfinni
Umsjónarmaöur Marianna
Friöjónsdóttir.
17.25 Krakkarnir i hverfinu
(Kids of Degrassi Street)
Annar þáttur. Kanadiskur
myndaflokkur i fimm þáttum
fyrir börn og unglinga. Þýö-
andi Ólöf Pétursdóttir.
17.50 Vestur-Þýskaland
Danmörk
Bein útsending frá Heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
FOSTUDAGUR
13. júní
20.40 Listahátíö í Reykjavík
1986
20.50 Rokkveita rikisins -
Endursýning
1. Celcíus
Þáttaröö frá árinu 1977 um
íslenskar rokkhljómsveitir
þess tima. Kynnir Þórhallur
Sigurösson. Stjórn upptöku:
Egill Eövarösson.
21.16 Sá gamli (Der Alte)
10. fskalt og yfirvegaö.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur i fimmtán þáttum.
Aöalhlutverk: Siegfried
Lowitz.
Þýöandi Kristrún Þóröar-
dóttir.
22.15 Seinni fréttir
22.20 Blekkingarvefur
(Midnight Lace)
Bandarísk biómynd frá
1960. Leikstjóri: David Mill-
er. Aöalhlutverk: Doris Day,
Rex Harrison, John Gavin
og Myrna Loy.
Ungri konu er hótaö dauöa
og oftar en einu sinni bjarg-
ast hún naumlega úr lífs-
háska. Skelfing konunnar
magnast stööugt en flestir
daufheyrast viö kvörtunum
hennar.
Þýöandi Björn Baldursson.
00.20 Dagskrárlok.
Inn í þáttinn fléttast u.þ.b.
fimmtán mínútna bamaefni
kl. 10.05 sem Guöriöur
Haraldsdóttirannast.
12.00 Hlé
14.00 Andrá
Stjórnandi: Ásta R. Jóhann-
esdóttir.
15.00 Djassogblús
Vernharður Linnet kynnir.
16.00 Nýræktin
Skúli Helgason stjórnar
þætti um rokktónlist, inn
lenda og erlenda.
17.00 Einu sinni áöurvar
Bertram Möller kynnir lög
frá rokktímabilinu,
1955-1962.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir
tíu vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Umnáttmál .
Gestur Einar Jónasson
stjórnarþættinum.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Þrautakóngur
Lokaþáttur. Stjórnendur:
Jónatan Garöarsson og
Gunnlaugur Sigfússon.
24.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.16 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavik og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.