Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ 1986
Mótettukór Hallgrímskirkju á leið til Noregs:
Kynnir Norðmönnum nýja
íslenska kirkjutónlist
Tónleikar í Kristskirkju í kvöld
Mótettukórinn hefur fengist
við fjölbreytta tónlist og verkefn-
in hafa verið margvísleg. Þess
vegna er áhugavert og skemmti-
legt að starfa í þannig kór og
ekki síður vegna þess að sameig-
inlega taka allir kórfélagar þessi
verkefni af alvöru og reyna
þannig að sýna af sér músíkalsk-
an metnað.
Þetta sögðu tveir félagar Mót-
ettukórsins í stuttu spjalli við Morg-
unbiaðið, þau Rósa Kristín Baldurs-
dóttir og Magnús Baldvinsson.
Mótettukórinn heldur í kvöld,
fímmtudagskvöld, eins konar
kveðjutónleika fyrir Noregsferð
sem hefst á morgun og fara þeir
fram í Kristskirkju í Reykjavík.
Kórfélagamir eru spurðir nánar um
Noregsferðina:
Strangur undir-
búningur
Við syngjum á þremur stöðum í
Noregi. Hápunktur ferðarinnar
verða eflaust tónleikamir í Osló 16.
júní en þeir verða hljóðritaðir af
norska og hollenska útvarpinu. Þar
koma fram auk kórsins og Margrét-
ar Bóasdóttur og Ingu Rósar Ing-
ólfsdóttur sellóleikara organistamir
Gústaf Jóhannesson og Þröstur
Eiríksson.
Aðal tilgangur ferðarinnar er að
kynna Norðmönnum nýja íslenska
kirkjutónlist. Islensk tónskáld hafa
samið sérstaklega verk til flutnings
á Norðurlöndunum. Það er einmitt
með nýjum tónverkum sem kórfé-
lagar fá gott tækifæri til að spreyta
sig. Það er líka góð reynsla að fara
í þannig tónleikaferð, það sýndi sig
í fyrri ferð kórsins tii Þýskalands
fyrir tveimur ámm og lika í söng-
ferð um Norðurland í fyrravor.
Strangur undirbúningur fyrir slíkar
ferðir hristir hópinn vel saman og
það er mikilvægt í kórstarfí að fé-
lagslegi þátturinn sé ræktaður,
sögðu þau Rósa Kristín og Magnús,
en þau hafa bæði stundað nám í
Söngskólanum nokkur undanfarin
ár. Þau em spurð hvemig það
samræmist starfí í kór.
Segja má að það hafí bæði kosti
og galla. Raddbeiting er náttúrlega
svolítið öðmvísi hjá þeim sem lærir
einsöng en þeim sem syngja í kór.
Þess vegna hafa menn skiptar
skoðanir á því hvort það sé kostur
eða galli að starfa í kór meðfram
söngnámi. Kostimir em tvímæla-
laust þeir að í kór þjálfast menn
mikið í nótnalestri og kynnast
margs konar tónlist og er það
reynsla sem er mjög mikilvæg,
segja þau Rósa Kristín Baldurs-
dóttir og Magnús Baldvinsson.
Undir þetta síðasta taka þau Margr-
ét Bóasdóttir sópransöngkona sem
syngur einsöng með kómum í ferð-
inni og Hörður Áskelsson stjóm-
andi. Þau em nánar spurð um
þennan mismun á kórsöng og ein-
söng.
Einsöngur — kórsöngnr
í einsöngsnámi er reynt að
þroska sérkenni hverrar raddar og
dregið fram það sem einkennir
persónuleika viðkomandi en í kór-
söng er kennd almenn og eðlileg
raddbeiting og að menn falli vel inn
í þá heildarmynd sem kórinn á að
gefa. Þess vegna er það rétt að séu
menn í einsöngsnámi geta komið
þau tímabil sem gera kórsöng ekki
æskilegan.
Hins vegar gefur starf í kór
hvetjum söngvara mikla reynslu
sem gott er að hafa í vegamesti
svo sem þjálfun í nótnalestri eins
og áður er nefnt, samstarfí og ögun
og menn kynnast fjölbreyttri tón-
list. Einsöngvari býr líka að kór-
reynslu þegar að því kemur hjá
honum að syngja tvísöng, tríó og
(Morgunblaðið/Þorkell)
Rósa Knstín Baldursdóttir og* Magnús Baldvinsson halda hér á
veggspjaldi sem dreift hefur verið í Noregi til að vekja athygli á
tónleikum Mótettukórsins.
(Morgunblaðið/Þorkell)
Margrét Bóasdóttir .hitar upp“ kórfélaga fyrir æfingu.
Í688828I
íbúðarhúsnæði
Orrahólar
35 fm falleg einstaklíb. á jarð-
hæð. Nýjar innr. Laus strax.
Hagst. kjör.
Flókagata
2ja herb. stór kjallaraíb. Góðar
innr. Frábær staður.
Háaleitisbraut
3ja herb. góð íb. á 4. hæð.
Fallegt útsýni. Bílskréttur.
Flúðasel
3ja-4ra herb. 90 fm falleg íb. í
kjallara. 50% útb. Ákv. sala.
Einbýlishús
Hef til sölu einbhús í Árbæ -
Klyfjaseli - Fannafold - Bleikju-
kvísl.
í smíðum
Raðhús við Fannafold
126 fm á tveimur hæðum auk
25 fm bílskúrs. Húsin seljast
fullfrág. að utan, múruð og
einangruð að innan án milli-
veggja. Fast verð kr. 3,2 millj.
Afh. mars-júní '87.
INGILEIFUR EINARSSON
löggiltur fasteignasali
Suóurlandsbraut 32
V *
BV.
Hand
lyftr
vognor
fj* Eigum ávallt fyrirliggjandi
]i hinavelþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BlLDSHÖFÐA 16 SiMI: 672444
kvartett og af þeim sökum er hún
líka mikilvæg.
Margrét Bóasdóttir hefur að
undanfömu verið á ferð í Þýska-
landi þar sem hún söng m.a. Te
Deum eftir Dvorák og'hélt ljóðatón-
leika og eftir Noregsferðina heldur
hún tónleika í Mývatnssveit og á
Akureyri með Margréti Gunnars-
dóttur. Um leið og hún æfír fyrir
Noregsferðina með Mótettukómum
nú síðustu dagana fengu kórfélagar
hana til að taka sig í raddþjálfun
og hún er spurð nánar um hana:
Árin sem ég bjó í Þýskalandi
raddþjálfaði ég tvo góða kóra
samhliða námi mínu og söng. Það
er gaman að sjá þann áhuga kórfé-
laga sem kemur fram með þvf að
sækja þessa aukatíma en raddþjálf-
un sem þessi þarf að fara fram í
nánu samstarfí við kórstjórann.
Raddþjálfari verður að hafa í huga
að fá fram sama blæ, sama hljóm
og kórstjórinn hefur lagt áherslu á
þvi annars er mögulegt að hann
vinni þvert ofan í það sem áður
hefur verið gert. Þessi raddþjálfun
beinist að því að styrkja rétta beit-
ingu raddarinnar og er hún þannig
undirstaða fyrir söngstfl kórsins.
Raddþjálfun alltaf í
fullu gildi
Raddþjálfun er ailtaf í fullu
gildi, bæði þegar svona ferð stendur
fyrir dyrum eins og núna og á öllum
tímum í kórstarfí, menn búa alltaf
að þeirri þjálfun, segir Hörður. Það
er heldur alls ekki sama hvemig
hún fer fram og sem stjómanda er
mér ekki sama hver annast radd-
þjálfun í kór sem ég stjóma. Við
Margrét stunduðum hins vegar
bæði nám í Þýskalandi þannig að
skoðun okkar og skilningur á túlkun
í kirkjutónlist er svipuð þannig að
hér fer allt fram í miklu bróðemi.
Á efnisskrá tónleikanna í Krists-
kirkju í kvöld era eingöngu íslensk
verk: Mótettur og sálmalög eftir
Gunnar Reyni Sveinssonj Hjálmar
H. Ragnarsson, Hörð Áskelsson,
Jónas Tómasson og Þorkel Sigur-
bjömsson. Þá verður flutt í fyrsta
sinn í Reykjavík Magnifícat fyrir
sópran, selló og orgel eftir Jónas
Tómasson en hefur áður verið flutt
á tónleikum á ísafírði og Bolungar-
vík. Margrét Bóasdóttir fer þar með
einsöngshlutverkið, Inga Rós Ing-
ólfsdóttir leikur á sellóið og Hörður
Áskelsson á oregl. Þá syngur
Margrét einnig einsöng í Kvöld-
bænum Þorkels Sigurbjömssonar
og Psalm 84 eftir Hörð Áskelsson,
en hluti þessarar efnisskrár var
fluttur á vortónleikum Mótettukórs-
ins í lok maí.
BV
Rafmagns
oghand-
lytlarar
Liprir og
handhægir.
Lyftigeta:
500-2000 kíló.
Lyftihæð upp í
6 metra.
Mjóar aksturs-
leiðir.
Veitum túslega
allarupplýsingar.
UMBOÐS- OG HEILDVEBSLUN
BiLDSHÖFÐA 16 SIML672444
pjóNdsTA
revns^ P
Pei<k|NG
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670