Morgunblaðið - 12.06.1986, Blaðsíða 64
bctir
HEIM
JÍbbókhRÖ!?
T-Jöföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Hindruðu
fulltrúa
sýslumanns
FULLTRÚA sýslumannsins í
Snæfells- og Hnappadalssýslu
var í gær meinað að bera út ábú-
anda á Höfða í Eyjahreppi, en i
fyrrahaust féll úrskurður fyrir
dómi um að bera ætti hann út.
Þegar fulltrúi kom á staðinn voru
ættmenni bóndans og sveitungar
þar fyrir og komu í veg fyrir að
hægt væri að framfylgja dómnum.
Lá við handalögmálum og þar sem
við ofurefli var að etja hélt fulltrú-
inn á brott, enda fáliðaður. Fylgis-
menn bónda höfðu uppi hótanir um
að veijast sýslumanni með góðu eða
illu, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.__ _
Krafist leng-
* ingar gæslu-
varðhalds
Rannsóknarlögregla rikisins
lagði í gær fram þá kröfu í
Sakadómi Reykjavíkur, að þeim
Björgólfi Guðmundssyni og
Ragnari Kjartanssyni, sem setið
hafa í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á málefnum Haf-
skips, verði gert að sæta áfram-
-*haldandi gæsluvarðhaldi til 25.
júní.
í dag er að vænta úrskurðar
dómara um hvort við kröfunni verð-
ur orðið.
Morgunblaðið/Börkur
Lögguhúfan mátuð í umferðarfræðslu
Námsfúsir nemendur af yngstu kynslóðinni mættu i umferðarfræðslu hjá lögreglunni í Reykjavík i Hvassaleitisskóla í gær. Þar
voru þau frædd um hættumar sem leynast í umferðinni og hvernig beri að haga sér. Unga fólkið fylgdist grannt með þvi sem við
þau var sagt og það spillti ekki fyrir að fá að máta lögguhúfuna.
HR eina hitaveitan sem
borað er fyrir í sumar
'**fJARÐBORANIR eftir vatni í sumar á vegum Jarðborana ríkisins
verða mun minni en verið hafa um nokkurra ára skeið, samkvæmt
upplýsingum frá Karli Ragnars forstjóra Jarðborana rikisins. Á
Nesjavöllum borar stærsti borinn, Jötunn, tvær til þijár holur fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur.
„Það er nýtt fyrir okkur, að í ár
eru ekki horfur á að við borum fyrir
neinar aðrar hitaveitur, en Hita-
veitu Reykjavíkur þótt i landinu séu
reknar um 30 hitaveitur og þær eru
að sjálfsögðu lang stærsti jarðhita-
notandinn í landinu," sagði Karl.
Hann taldi að fjárskorti væri þar
fyrst og fremst um að kenna. Vitað
er um margar hitaveitur sem þurfa
að útvega meira vatn en með mik-
illi aðhaldssemi er komist hjá frek-
ari borunum.
Meðal nýrra verkefna sem Jarð-
boranir rikisins sinna, eru boranir
eftir heitu og köldu vatni fyrir
laxeldisstöðvar og hefur þegar verið
borað eða ákveðið að bora fyrir 13
stöðvar. Þrátt fyrir þessa viðbót
sagði Karl að verkefnin mættu ekki
vera færri og benti á, að í ár væri
í fyrsta sinn ekki boruð nein rann-
sóknarhola á landinu, en rannsókn-
arboranir hafa ásamt borunum fyrir
hitaveitur verið stærstu verkefnin
til þessa.
Ámi Gunnarsson yfírverkfræð-
"ingur Hitaveitu Reykjavíkur sagði
að rannsóknarholan sem Jötunn
væri að byija á þessa dagana á
Nesjavöllum væri sú sautjánda í
röðinni, en eins og fram hefði komið
áður þá væri gengið þannig frá
holunum að þegar svæðið verður
virkjað þá nýtast þær, sem vinnslu-
, holur. „Árangur af borunum fram
til þessa hefur verið mjög góður.
Það er ekki skortur á afli, sem
knýr okkur til að bora í ár heldur
er verið að rannsaka stærð svæðis-
ins með það fyrir augum að reyna
að meta, sem áreiðanlegast hve
mikla orku svæðið hefur að geyma,"
sagði Ámi.
Hann sagði að það afl sem nú
fengist úr holunum nægði til að
knýja 300 MW varmaorkuver. Til
samanburðar mætti nefna að sam-
svarandi orka gæfi frá 40 MW af
rafmagni og allt að 80 MW með
hámarks framleiðslu. Kostnaður á
hveija borholu, sem boruð er í
sumar, er áætlaður á bilinu 25 til
30 milijónir króna.
Stefnt er að því að tekin verði
ákvörðun um Nesjavallavirkjun á
miðju sumri og sagði Ámi að brýnt
væri að heitt vatn frá Nesjavöllum
kæmist í gagnið eftir þijú til fjögur
ár, en það er sá tími sem tekur að
reisa orkuver, ef koma á í veg fyrir
skort á heitu vatni á höfuðborgar-
svæðinu.
Stéttarsambandsfundur:
Samkomulag um skipt-
ingu framleiðslunnar?
Hvanneyri, frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsina.
AÐALFUNDUR Stéttarsambands bænda stóð fram á nótt. Fjöldi
ályktana var samþykktur síðasta dag fundarins. Verðlags- og fram-
leiðslumálin tóku mestan tíma. í gærkvöldi kom fram tillaga fram-
leiðslunefndar n um aðalmál fundarins, reglugerð um skiptingu
framleiðslunnar, þar sem farin er svokölluð „friðarleið“, og var
útlit fyrir að hún yrði samþykkt á fundinum.
í tilíögum framleiðslunefndarinn-
ar er gert ráð fyrir að núverandi
mjólkurreglugerð verði framlengd
lítið breytt varðandi skiptingu á
milli svæðanna, nema hvað 1 milljón
lítrum minna verður til skiptanna í
samræmi við búvörusamning ríkis
og bænda. Við skiptingu á sauð-
fjárframleiðslunni verður tekið mið
af framleiðslunni tvö undanfarin
haust, en útlit er fyrir tiltölulega
litla skerðingu frá því sem nú er
þar sem útlit er fyrir að framleiðslan
í haust verði nálægt búvörusamn-
ingnum. Þama er ekki farið að til-
lögum svæðabúmarksnefndar
Stéttarsambandsins sem lagði til
að verulegt tillit yrði tekið til bú-
marks jarðanna, en það hefði aftur
þýtt tilfærslu á milli héraða.
Við skiptingu á milli manna
innan svæðanna eru notaðar hlið-
stæðar reglur og eru í núverandi
mjólkurreglugerð. Miðað er við full-
virðismark svæðisins.
í tillögunum er ekki gert ráð
fyrir sérstakri skerðingu vegna
hlunninda eða tekna viðkomandi
bónda af annarri búvörufram-
leiðslu. Þá er ekki gert ráð fyrir
sjálfvirkri skerðingu stærstu bú-
anna, eins og var í reglugerðardrög-
unum, en viðkomandi svæðisstjóm-
um heimilað að taka stærðarmörk
upp í úthlutunarregiur sínar.
Víðidalur:
Tagl skor-
ið af hesti
„EINHVER hefur farið inn í
hesthús hjá mér og taglskorið
hestinn illa,“ sagði Erlingur
Sigurðsson, sem kom að hesti
sinum Þrym illa taglskomum
í hesthúsi sínu í Víðidal.
Þrymur hefur unnið til fjölda
verðlauna á hestamannamót-
um og hafði Erlingur I hyggju
að sýna hann í sumar en er
horfinn frá því eftir þennan
atburð.
„Þetta er með því leiðinlegra
sem ég hef orðið fyrir," sagði
Erlingur. „Ég get ekki ímyndað
mér að heilbrigður maður hafi
verið þama að verki og veit
ekki hvaða skýring er á þessum
atburði, þó manni detti ýmislegt
í hug. Hvers vegna ráðist er á
hestinn skil ég ekki.“ Erlingur
sagðist hafa fengið dýralækni
til að skoða hestinn og hefði
hann gefið vottorð um að taglið
hafi verið skorið af mannavöld-
um með hníf.