Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 17

Morgunblaðið - 12.06.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986 Svínaræktarfélag Islands: Búgreinafélögin taki yfir starfsemi Búnaðarfélagsins AÐALFUNDUR Svínaræktarfé- lags íslands sem haldinn var fyrir skömmu lagði til að bú- greinafélögin tækju yfir starf- semi Búnaðarfélags Islands að verulegu leyti. Samþykktin er svohljóðandi: „Með hliðsjón af stofnun búgreina- félaga og -sambanda um land allt, sem ná til nær allra búgreina, telur aðalfundur Svínaræktarfélags ís- lands 1986 tímabært, að nú þegar verði hafínn undirbúningur fyrir yfírtöku búgreinafélaganna á þeirri megin starfsemi, sem verið hefur í höndum Búnaðarfélags íslands. Jafnframt verði félögunum tryggt það fjármagn, sem búgreinamar hafa greitt í formi sjóðagjalda til Búnaðarfélagsins, til að standa straum af kostnaði vegna ráðu- nautaþjónustu og annarra verk- efna, sem sérbúgreinafélögin hafa með höndum á hverjum tíma. Því ráðunautastarfí sem nýtist öllum búgreinum, eins og til dæmis hagfræðiþjónustu og tölvuvinnslu, verði stjómað af undimefnd sem starfí á vegum Stéttarsambands bænda og fulltrúar allra búgreina eigi sæti í. Einnig skal nefndin hafa með höndum samræmingu á einstökum þáttum ráðunautaþjón- ustunnar á milli búgreina, gerist þess þörf. Þá skal nefndin vinna að faglegri gagnaöflun fyrir bú- greinafélögin." Svínabænd- ur vilja koma upp kynbóta- aðstöðu Á AÐALFUNDI Svínaræktarfé- lags íslands sem haldinn var fyrir skömmu var samþykkt að skora á landbúnaðarráðherra að staðfesta tafarlaust samþykkt Framleiðsluráðs landbúnaðarins um 6 milljóna króna fjárveitingu úr kjamfóðursjóði til byggingar kynbótaaðstöðu fyrir svín. Halldór H. Kristinsson formaður Svinaræktarfélagsins sagði í sam- tali við Morgunblaðið að Svínarækt- arfélagið teldi nauðsynlegt að koma upp innflutningsbúi til að geta fengið valda erlenda stofna til landsins og kynbætt íslenska svína- stofninn. Hann sagði að íslenski stofninn hefði dregist afturúr og væri mikil þörf á blóðblöndun. „Við höfum barist fyrir þessu í mörg ár og erum fyrst að sjá hilla undir þetta nú, en staðfesting ráðherra hefurdregist," sagði Halldór. Hann sagði að þær 6 milljónir sem um væri að ræða væri aðeins lítið brot af þeim peningum sem svínaræktin hefði greitt í gamla kjamfóðursjóðinn. LAUGARDALSHÖLL16. og 17. JÚNÍ I ti/efni af hinni stórkost/egu rokkhát/ð i Laugarc/aZs/iöZ/inni, vi/jum við vekja athyg/i á p/ötum h/jómsveitanna Simp/y Red, LZoyc/ Co/e anc/ The Commotions, Fine Young Canniba/s og Mac/ness, sem fást / öZ/um góðum h/jómp/ötuvers/unum. SSgySPLY RED imininn in- nda- oghérá nlistar- Simply n ársins pádómur nú m. Góö tónlist ngaríkur söngur cknalls eru aöall Red. MADNESS Madness hefur löngum veriö ein fjörugasta hljómsveit poppsins. þrátt fyriraerslin er tónlist Madness mjög vönduö og hljóöfæraleikur allurfyrstaflokks. Madness er ein skemmtilegasta hljóm~ leikasveit sem um getur og skapar sveitin eetíðógléý- manlega stemmningu á tón- leikum slnum. LLOYDCOLE ANDTHE | COMMOTIONS Skoska sveitin Lloyd Cole and The Commotions er ein virtasta rokksveit Bretlands í dag. Sveitin flytur vandaö, fágað rokk, viö góöa texta söngvarans Lloyd Cole. Þetta er hljómsveit I stöðugri sókn, sem er á gööri leiö meö aö öölast sess á meöal stórvelda breskapoppsins. Fine Yo\ sem FINEYOUN ha gam söngvi algerle] hani Cannibals. Nú er einn besti söngvari Hvernig væri að undirbúa sig vel fyrir mestu rokkhátíð íslandssögunnar með því að tryggja sér eintök af þessum frábæru plötum strax í dag. stainorhf FALKINN Stofnlánadeild landbúnaðarins: Lánar ekki út á svínasláturhús Svínabændur mótmæla Stof nlánadeild landbúnaðarins hefur hafnað lánsumsókn Krist- ins Sveinssonar vegna byggingar svínaslátu rhúss á Ártúnshöfða í Reykjavík. Neitun Stofnlána- deildarinnar byggðist meðal annars á afstöðu Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins sem lagðist gegn lánveitingunni er umsagn- ar þess var leitað. Aðalfundur Svínaræktarfélags íslands sem haldinn var fyrir skömmu mótmælti harðlega þessari afstöðu Framleiðsluráðs. Krafðist fundurinn þess að Framleiðsluráð endurskoðaði afstöðu sína, þannig að viðunandi fyrirgreiðsla fengist, úr þessum lánasjóði sem svína- bændur greiða í til jafns við aðra bændur. Halldór H. Kristinsson formaður Svínaræktarfélagsins sagði að slát- urhús Kristins væri fyrsta sér- byggða svínasláturhúsið hér á landi sem væri opið öllum framleiðendum í svínarækt. Svínabændur væru því óhressir með synjun þegar á þetta rejmdi í fyrsta skipti. Stofn- lánadeild hefði veitt lán út á ali- fuglasláturhús svo dæmi væri tekið, þrátt fyrir að svínabændur greiddu hlutfallslega meira í sjóðinn en ali- fuglabændur. Leifur Kr. Jóhannesson fram- kvæmdastjóri Stofnlánadeildar landbúnaðarins sagði, þegar hann var spurður um ástæður sjmjunar Stofnlánadeildarinnar, að þetta sláturhús væri byggt utan slátur- húsaáætlunar. Nóg væri til af slát- urhúsum og engin þörf fyrir það. Leifur sagði að málið gæti horft öðruvísi við ef einhvem tímann opnaðist markaður fyrir svínakjöt á Keflavíkurflugvelli, þá gæti þessi afstaða Stofnlánadeildar komið til endurskoðunar. Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.