Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 21

Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1986 21 Skólaslit á Laugnm Fertugasta og fyrsta starfsári Laugaskóla í Dölmn lauk 24. maí sl., en þá fóru fram skólaslit að viðstöddu fjölmenni. Á Laug- um voru i vetur 125 nemendur á grunnskólastigi og upp í fyrsta námsár á fjölbrautarstigi, auk skólasels í Saurbæ fyrir yngstu nemendur þar úr sveit. Við skólann starfa nú níu fast- ráðnir kennarar auk skólastjórans, Á sfðastliðnu hausti var minnst 40 ára starfsafmælis skólans og bárust honum þá margar góðar gjafir, og fyrir gjafafé voru m.a. fengnar Qórar tölvur til notkunar við kennslu í skólanum og er það ánægjulegur áfangi og nýbreytni í starfi skólans og í samræmi við kröfur tímans. Nú stendur yfir bygging íþrótta- húss við skólann, og er nú verið að gera íþróttasal fokheldan, og er það von manna, að ekki líði mörg ár þar til unnt verði að taka íþrótta- húsið í notkun, enda þörfin afar brýn. IJH Tvennar prestskosning- ar á laugardag Prestskosningar verða í Sauðanesprestakalli í Þingeyjar- prófastsdæmi og Laugalands- prestakaUi i Eyjafjarðarpró- fastsdæmi á laugardag, um leið og kosið verður til sveitarstjórna. Um Sauðanesprestakall sækir sr. Ingimar Ingimarsson á Þórshöfn sem þar er settur sóknarprestur. Um Laugalandsprestakajl er einn umsækjandi, sr. Hannes Öm Bland- on, sóknarprestur á Olafsfirði. Upphaflega sóttu tveir aðrir guðfræðingar um Laugalands prestakall, en annar dró sig til baka hinn hafði ekki tilskilin réttindi að mati ráðuneytisins þar sem hann hafði lært og starfað erlendis. Atkvæði verða talin á Biskups- stofu. Útsölustaöir: ESSO-stöövarnar Hagkaup Skeitunni K, t, jöt affjallalambi er auðvelt að geyma frosið (ódýr- ast keypt í heilum og hálfum skrokkum) og hœgt að nýta nánast allan skrokkinn í grill- mat-lœri, lundir, hrygg, hvers konar sneiðar nú eða skrokkinn í heilu lagi, t.d. þegar um hópa eraðræða. Meðlæti með grilluðu kjöti af íslensku fjallalambi ætti að vera einfalt og látlaust. Glóðaðar kartöflureru vinsælar, einnig kartöflusalat, glóðaðir tómatar, ananas, epli, bananar, græn- meti og kryddsmjör. ð grilla úti á góðri stund er orðinn ómissandi hluti af íslenskri sumarsælu. Kjöt af íslensku fjallalambi er jafn ómissandi hluti afgrill- máltíð enda hœfir það bœði umhverfinu og matseldinni - meyrt, safaríkt og svo þetta sérstaka bragð sem aðeins íslensktfjallalamb hefur eftir að hafa nærst á ómenguðum villigróðri liðlangt sumarið. Það er lítið mál að matreiða vel heppnaða grillmáltíð þegar kjötið af íslenska fjallalambinu er annars vegar. Raunar er það bráðskemmtilegt! Best er að þíða kjötið í ísskápnum 3-4 dögum fyrir notkun til að tryggja að það bráðni í munni veislugesta. Grillmeistarinn þarf líka að stilla sig um að stinga í kjötið á grilhnu, þó vissulega sé það freistandi, því þá er hætt við að safinn renni úr því. Það er líka óhætt fyrir kappann að spara sterka kryddið. Hér er það háijallabragðið sem gildir. Margir nota bara salt og pipar en hvítlaukur, blóðberg (timian), rosmarin, milt sinnep, mynta eða steinselja henta einnig vel í mörgum tilvikum. Meistarinn sér svo um að smjörpensla kjötið, (það er svo gott) og þegar hann veifar kokkahúfunni er eins gott að vera snöggur með diskinn. íslenska lambakjötið er nefnilega fljótt að hverfa jafnvel af stærstu grillum. Þá er bara að grilla meira! & e

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.